Morgunblaðið - 16.07.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977
21
son borgarskjalavörður segir, að Islands-
ferð skipsins var farin á kostnað bæjar-
stjórnarinnar í Hamborg, enda talið að
ferðin hafi verið farin í tilraunaskyni.
Þrátt fyrir að talsvert tap yrði á þessari
fyrstu Islandsferð Hamborgara, sendi
bæjarstjórnin tvö skip til Islands árið eft-
ir. Utkoman úr þeirri ferð varð heldur
skárri en úr hinni fyrri og á næstu árum
munu Islandssiglingar frá Hamborg hafa
aukizt verulega. Heimildir sýna að árið
1500 var starfandi í Hamborg bræðralag
Islandsfara og er innsigli þess varðveitt í
Museum fúr Kunst und Gewerbe i
Hamborg.
Það, sem Hamborgarar sóttust eftir á
Islandi var einkum skreið, eins og fyrr
segir. En þeir létu Isleengum eftir að
veiða fiskinn að mestu leyti og borguðu
með nauðsynjavörum, sem þeir fluttu með
skipum sínum. Þessi viðskipti voru Islend-
ingum hagkvæm og þeim að skapi. Þeir
vildu eiga friðsamleg verzlunarviðskipti
við þá útlendinga, sem sigldu hingað til
lands, og siglingar Þjóðverja tryggðu ís-
lenzkri framleiðslu markað. En lands-
menn voru ætíð andvígir fiskveiðum út-
lendinga við landið, þar sem þær voru
taldar taka vinnuafl frá bændum. Af þess-
um sökum var útlendingum bönnuð vetur-
seta árið 1490 og var það bann itrekað
nokkrum sinnum á 16. öld.
Englendingar höfðu hafið siglingar til
Islands i stórum stil upp úr 1412. Þegar
ferðum Þjóðverja hingað til lands fjölgaði
á8. áratug 15. aldar, hófst eins og fyrr
segir hörð barátta milli þeirra og Englend-
inga um hafnir. Englendingar sigldu hing-
að fyrst og fremst til fiskveiða og voru
þær stundaðar frá bækistöðvum úr landi.
Slíkar veiðar voru brot á lögum og voru
Islendingar af þeim sökum hliðhollari
Þjóðverjum í skærum þeirra við Englend-
inga. Þá hafði andúð Danakonungs á Bret-
um einnig mikið að segja.
Arið 1532 kom til orrustu i Grindavík
milli Þjoðverja og Islendinga undir for-
ystu hirðstjóra Danakonungs annars veg-
ar við enska sjómenn og kaupmenn. Biðu
Englendingar lægra hlut og var Grindavik
siðasta vigi Englendinga hér á meginlandi
Islands, en eftir að þeir voru hraktir það-
an, höfðu þeir aðalbækistöð sina í Vest-
mannaeyjum og héldu henni til 1560.
ÞYZKIR BARTSKERAR OG LÆKNAR
STÖRFUÐU A tSLANDI
Hamborg var því frá öndverðu aðalmið-
stöð Islandssiglinga Þjóðverja og til að
styrkja stöðu sina innan danska ríkisins
og um leið brjótast undan veldi Lýbiku-
manna eða austur-þýzka Hansasambands-
ins hylltu þeir Danakonung opinberlega
árið 1461 sem sinn verndarherra eins og
fyrr segir.
I skjali frá árinu 1514 segir að átta til
tiu skip hafi siglt til Islands frá Hamborg
árlega. Árið 1533 lágu sextán eða sautján
skip í höfninni i Hamborg tilbúin til Is-
lands eða Björgvinjarfarar. Þegar flest
var höfðu Hamborgarar tuttugu og eitt
skip í förum til Islands. A 16. öld var
Hamborg sú erlend borg, sem Islendingar
höfðu mest skipti við og þaðan bárust
margvísleg menningaráhrif. Prent-
smiðjan, sem Jón Arason lét flytja til
landsins, kom frá Hamborg og vitað er, að
ögmundur biskup keypti ,,orgelwark“ af
Hamborgarkaupmanni. Gissur Einarsson
stundaði nám i Hamborg og kynntist þar
kenningum siðaskiptamanna, en hann
varð fyrstur biskup i lúterskum sið hér-
lendis. Jón Egilsson segir I biskupsannál-
sótt og með alþingisdómi árið 1544 var
gerð sú undantekning frá banninu við
vetursetu útlendinga, að „bartskerar
mættu liggja hér í landi með.fógetans
leyfi, þeir sem vilja vera landsmönnum til
gagns og góða og græða vilja fólk ...“
Samskiptin við Hamborgara hafa verið
margvísleg og vinsamleg og landsmönnum
til hagsbóta á ýmsan hátt, að þvi er Jón
Böðvarsson segir ennfremur.
ISLAND AÐ LÉNI GEGN LÁGU AF-
GJALDI
En ekki voru allir jafn hrifnir af
verzlun og umsvifum Þjóðverja hér á
landi. Kristján konungur III. hafði hug á
að tryggja Dönum hlutdeild í ágóðanum af
Islandsverzluninni. Arið 1574 veitti hann
bæjarstjórn Kaupmannahafnar Island að
léni gegn lágu afgjaldi og skyldi bæjar-
stjórnin láta skip ganga milli Islands og
Kaupmannahafnar árlega. Þessi tilraun
fór þó út um þúfur og endaði raunar með
ósköpum. I stjórnartíð Friðriks II.
(1559—1588) var þrengt að verzlun Þjóð-
verja á Islandi með ýmsum hætti.
Verzlunarleyfi þeirra voru bundin við ein-
stakar hafnir og þeim bannað að verzla
utan þeirra. Jafnframt voru dönskum
kaupmönnum úthlutaðar beztu hafnirnar
og konungur áskildi sér einkarétt til út-
flutnings brennisteins og fleiri varnings.
Þessar ráðstafanir vorui samræmi við
hagspekihugmyndir síns tíma, en Islend-
ingum urðu þær til mestu óþurftar, því að
Danir buðu mun verri verzlunarkjör en
Þjóðverjar og sú verzlunarstefna hrósaði
að lokum algerum sigri, þegar einokunar-
verzlun var komið á fót árið 1602 með því
að öllum útlendingum var bannað að
verzla við landsmenn.
Nokkur Hamborgarskip sigldu þó til Is-
lands i trássi við bann konungs allt fram
til ársins 1627, stundum fyrir danska
leppa.
Samgöngur milli Islands og Hamborgar
lágu því niðri næstu aldirnar og allt til
þess tíma, er Eimskipafélag íslands hóf
áætlunarsiglingar til Hamborgar á öðrum
áratug þessarar aldar.
Tilraunasiglingar þær, sem borgar-
stjórn Hamborgar gerði út til Islands árin
1475 og 1476, urðu upphaf kaupsiglinga
Hamborgar hingað til lands. Þær leiddu
til margslunginna viðskipta- og
menningartengsla. Samband Islendinga
við Hamborg stendur því föstum fótum í
fortíðinni.
Fyrst og fremst var fiskurinn sá segull,
sem dró Hamborgarmenn til Islands á 15.
og 16. öld og enn i dag eru fiskveiðar
Þjóðverja hér við land ofarlega á baugi.
En nú sem fyrr krefjast Islendingar
þess að fá að sitja einir að fiskimiðunum
umhverfis landið.
SIGLINGAR ÞJÓÐVERJA FORSENDA
FYRIR ÞVI AÐ tSLAND ER RlKI
Það að Þjóðverjar og Danir síðar voru
næstum einráðir um fiskimið og verzlun á
tslandi á 16. öld og Danir algerlega eftir
að einokuninni var komið á, á sér einnig
aðrar forsendur.
Eftir fund Ameríku var Island ekki
lengur i augum Evrópubúa á hjara verald-
ar og ekki nándar nærri eins mikilvægt,
eða það hefur Hinrik 8. Englandskonungi
alla vega ekki fundizt og því ekki talið
ástæðu til að standa í útistöðum við Þjóð-
verja eða Dani út af Islandsskreið, þegar
Amerika var komin til sögunnar.
A 16. öld varð einnig mikil breyting á
rás sögunnar í Evrópu. Holland varð stór-
ig Þjóðverja á miðöldum
— Samantekt:
Herdís
Þorgeirsdóttir
ið á hirðstjóra Danakonungs hér 1467,
Birni Þorleifssyni á Rifi á Snæfellsnesi og
unnu þeir auk þess ýmis hervirki. Danir
hertóku þá ensk skip á leið um Eyrarsund
og gerðu enskar eignir upptækar.
Hamborgarar höfðu þá sem fyrr segir
hyllt Danakonung og veitt honum stuðn-
ing við aðgerðir gegn Englendingum og
fengu því leyfi til Islandssiglinga. Eining
þýzku Hansaborganna var að rofna við
myndun tveggja hagsvæða, Eystrasalts- og
Norðursjávarsvæða, og tóku Hamborgarar
og Brimarar því að leggja á Islandshaf I
auknum mæli upp úr 1470, óhindraðir af
Lýbikumönnum.
Eftir morðið á Birni á Rifi skipaði Dana-
konungur hirðstjóra sinn hér á landi
Diðrik Pining, þýzkan flotaforingja og sjó-
hetju. Floti Diðriks var gerður út frá
Hamborg.
Helztu veiðistöðvar Englendinga voru
Vestmannaeyjar (fram til 1560), Grinda-
vlk og Hafnarfjörður og höfðu þeir Islend-
inga í þjónustu sinni. 1481 bannaði kon-
ungur vetursetu og umsvif útlendinga i
landinu og i svokölluðum Píningsdómi
1490 var útlendingum bannað að hafa
tslendinga í þjónustu sinni eða stunda
héðan útgerð.
Hansamenn unnu ýmsar hafnir af
Englendingum undir lok 15. aldar, þ.á m.
Hafnarfjörð.
1476 gerðu Englendingar árás á Þjóð-
verja i Hafnarfirði og hertóku þýzk skip
og ellefu Þjóðverja.
SIGLINGAR ÞJÓÐVERJA TRYGGÐU
tSLENZKRI FRAMLEIÐSLU MARKAÐ
Fyrsta skipið, sem sigldi hingað frá
Hamborg, hét Hispaniegard og kom hing-
að árið 1475. Það hefur vakið nokkra
undun fræðimanna, að þvi er Jón Böðvars-
um, að Hannes Eggertsson hirðstjóri hafi
búið lengi i Hamborg og látizt þar, og
Eggert sonur hans „setti gjald upp á rentu
í Hamborg, og einn sona hans, Jón, bjó í
Hamborg og átti þar tvo sonu“.
Að þvi er Jón Böðvarsson borgarskjala-
vörður segir, höfðu Hamborgarkaupmenn
áhuga á að til framfara horfði í landinu.
Þannig báðu kaupmenn og skipstjórar,
sem áttu viðskipti við Island, borgarstjóra
og ráð i Hamborg i bréfi 16. janúar 1540
að rita Danakonungi og stinga upp á því,
að skóli og fátækrahæli yrði sett á stofn i
Viðey, og mun þessi tillaga hafa verið sett
fram að undirlagi Gissurar Einarssonar.
Þýzkir bartskerar og læknar munu eitt-
hvað hafa starfað á Islandi. Ögmundur
Pálsson fékk þýzkan lækni, Lazarus
Mathiasson, til þess að græða fólk af sára-
veldi með sinn eiginn kaupflota og augu
siglingavelda Evrópu beindust nú á fjar-
Iægari slóðir og jafnframt um leið fram
hjá Islandi. Rinarósar sigldu út úr þýzkri
sögu, Hansasambandið fann mátt sinn
þverra og Þýzkaland bæði vestan og aust-
an Jótlandsskaga logaði i trúarbragða-
styrjöldum.
En að þvi er Björn Þorsteinsson prófess-
or tjáði blm. Morgunblaðsins getum við í
dag litið á siglingar Þjóðverja hingað fyrir
nærri fimm öldum sem veigamikla for-
sendu fyrir þvi að tsland er sjálfstætt riki.
Með siglingum sínum hingað mynduðu
Þjóðverjar mótvægi gegn enskum yfirráð-
um. Að öðrum kosti hefðu örlög eyjunnar
í norðanverðu Atlantshafi getað orðið þau
sömu og Orkenyja og Hjaltlands
Allt á sér sinar orsakir.