Morgunblaðið - 16.07.1977, Side 22

Morgunblaðið - 16.07.1977, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977 V-þýzka efnahagsundrið: Úr örbirgð til allsnægta í lok heimsstyrjaldarinnar síðari var efnahagur Þýzka- lands i rústum. Eyðilegging blasti hvarvetna við í borg- um landsins og iðnframleiðsla og samgöngur voru lamað- ar. Mikill skortur var á nauðsynjum í landinu og atvinnu- leysi landlægt. Svartamarkaðsbrask var i algleymingi enda mikill vöruskortur og skömmtun á mörgum vörum. Skipting landsins i tvo hluta gerði ástandið enn verra. Þannig þurfti vesturhlutinn t.d. að flytja inn 50% þeirra landbúnaðarvara sem neytt var í stað 20% sem Þýzka- land allt flutti inn áður. Efnahagur Þýzkalands haföi frá lokum siðustu aldar verið einn hinn bezti i álfunni og var m.a. grundvöllur stríðsreksturs þeirra í báðum styrjöldunum. I lok styrjaldarinnar siðari var svo kornið að landið gat hvorki fætt né klætt þegna sína án utanað- komandi aðstoðar. A Potsdam ráð- A árinu 1948 urðu þáttaskil, bæði i efnahags- og stjórnmálalífi V-Þýzkalands, en þá var tekin ákvörðun um stofnun sambands- ríkis í landinu og jafnframt gerð- ar umfangsmiklar efnahagsráð- stafanir, sem lögðu grundvöll að efnahagslegri velgengni landsins næstu áratugi. Kosningar fóru Ur v-þýskri pappirsverksmiðju. stefnunni sumarið 1945, hafði verið um það samið að allir hernámshlutar Þýzkalands skyldu áfram vera ein efnahags- leg heild, en af því varð ekki af pólitiskum ástæðum sem flestum eru kunnar. Brezku, bandarísku og frönsku hernámssvæðin voru smám sam- an sameinuð á árunum fram til 1948 og héraðskosningar fóru fram í einstökum rikjum vestur- hlutans. Vesturveldin lögðu áherzlu á að koma i veg fyrir að pólitískt og efnahagslegt vald þjappaðist saman á einn stað og jafnframt var þeim mjög í mun að tryg&ja afvopnun Þýzkaiands og bann við hergagnaframleiðslu. Leifar stjórnar nazista voru upp- rættar og áherzla lögð á handsöm- un striðsglæpamanna. Fljótt kom í ljós að nauðsynlegt var að taka efnahagslífið föstum tökum vegna þess ástands sem þar ríkti og hinnar almennu stöðnunar { atvinnulífi landsins. síðan fram til sambandsþings á árinu 1949 og eftir þær myndaði Konrad Adenauer stjórn kristi- legra og frjálsra demokrata. Efnahagsaðgerðirnar byggðust í fyrsta lagi á því að nýr gjaldmið- ill var tekinn i notkun. Þýzka rikismarkið (Reichsmark) var úr sögunni en við tók sambandsríkis- markið (Deutsche Mark) ogvar' eitt slíkt jafnvirði tíu ríkismarka áður. Við þessi skipti urðu pen- ingar aftur af skornum skammti og urðu á ný einhvers virði. Svartamarkaðsbrask hvarf á skömmum tima og heilbrigðir við- skiptahættir tókust á ný jafnhliða því sem verðlagseftirlit var að mestu lagt niður og skömmtun á varningi hætt. Viðreisnin, sem á eftir kom og byggðist á þessum aðgerðum, studdist siðan við erlenda efna- hagsaðstoð, einkum i formi Marshall-hjálpar Bandarikja- manna, og mikla vinnu lands- manna sem lögðu sig fram um að VIÐSKIPTI L. Á V-þýzk skipasmiðastöð. Atvinnulcysingar sækja bætur slnar á atvinnumálaskrifstofu. Þúsund marka seðlar 1 sjálfvirkum peningateljara. V-þýzkur stáliðnaðarmaður að störfum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.