Morgunblaðið - 16.07.1977, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULI 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Kennara vantar
að grunnskólanum í Grundarfirði. Æski-
legar kennslugreinar: danska, stærð-
fræði, tónfræði. Nánari upplýsingar veitir
formaður skólanefndar sími 8695 og
skólastjóri sími: 8637.
Skólanefnd.
Laus staða
Handavinnukennara við húsmæðraskóla
Borgfirðinga, Varmalandi. Umsóknir
sendist skólanefndarformanni Önnu
Brynjólfsdóttur. Gilsbakka Pr. Borgarnes.
Plötusmiður
Óskum að ráða plötusmið með meistara
réttindi til verkstjórnar nú þegar.
Getum útvegað íbúð.
Skipasmíðastöðin Skipavík,
sími 93-8289, Stykkishó/mi.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft á skrif-
stofu, um er að raéða fjölbreytt starf.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Upplýsingar á skrifstofunni á mánu-
dag.
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúia 1A
Gjaldkerastarf
við heildverslun, í miðbænum er laust til
umsóknar. Listhafendur sendi blaðinu
umsóknir, með upplýsingum um aldur og
fyrri störf, merkt: „Gjaldkeri — 4387".
Ráðningartími strax eða í síðasta lagi 1.
sept. 1977.
A
Kennarar
Stærðfræðikennara vantar að Þinghóls-
skóla í Kópavogi (Unglingadeildir og
framhaldsdeildir) næsta skólaár. Um-
sóknarfrestur til 31. júlí. Einnig vantar
kennara við Kársnesskóla (kennsla yngstu
deilda). Umsóknarfrestur til 31. júlí.
Skólafulltrúi
Tónlistarskóli
S ka g afj a rða rsýsl u
auglýsir
Tónlistarkennari óskast n.k. vetur. Æski-
legar kennslugreinar orgel, píanó
strengjahljóðfæri eða blásturshljóðfæri.
Uppl. gefa í fjarveru skólastjóra,
Guðmann Tóbíasson, útibússtjóri, Varma-
hlíð sími 95-61 60 og Margrét Jónsdóttir,
skólastjóri Löngumýri, sími 95-61 1 6.
Hellissandur
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6741 og
afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100.
Skólastjórar —
Kennarar
Lausar eru til umsóknar, staða skólastjóra
og þrjár til fjórar kennarastöður við Barna-
skóla Ólafsfjarðar. Og ein kennarastaða
við Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar. Um-
sóknarfrestur til 15. ágúst n.k.
Upplýsingar veittar í síma: 62211 á
kvöldin.
Skó/anefnd.
Skrifstofu- og
afgreiðslustarf
Stórt útgáfufyrirtæki óskar að ráða starfs-
mann til alhliða skrifstofu- og afgreiðslu-
starfa. Mjög góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg. Gagnfræðingur með
verzlunarkjörsvið æskileg. Tilboð er greini
aldur menntun og fyrri störf, sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir n.k. þriðjudag
19. júlí. Merkt: Dugleg. — 2437.
— I>orskveidarn-
ar takmarkaðar
Framhald af bls. 40
„Með þessum aðgerðum hafa
tslendingar gengið lengra í fisk-
verndunarmálum en nokkur önn-
ur þjóð í heiminum, að því ég bezt
veit,“ sagði Matthías Bjarnason
sjávarútvegsráðherra þegar hann
kynnti reglugerðina á fundi með
blaðamönnum í gær.
Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði í upphafi
blaðamannafundarins að sam-
kvæmt hinni nýju reglugerð yrðu
skuttogarnir að hætta þorskveið-
um i 30 daga á næstu 4 mánuðum.
Fyrst gætu menn valið á milli
hvort þeir hættu veiðum 26. júlí
til 1. ágúst eða 2. ágúst til 8. ágúst
og síðan kæmu 23 dagar til viðbót-
ar sem menn gætu ákveðið hve-
nær þorskveiðar yrðu ekki stund-
aðar, en þó yrði hver stöðvun að
vera a.m.k. 7 dagar í senn. Kvað
sjávvarútvegsráðherra að togar-
arnir þyrftu hins vegar ekki að
hætta veiðum, þeir gætu stundað
aðrar veiðar en þorskveiðar, en
þó mætti þorskaflinn ekki fara
yfir 10% af heildarafla. Einnig
væri hægt að nota eitthvað af
þessum tíma til að yfirfara skipin.
Þessu næst gat Matthías
Bjarnason þess, að reglugerðin
næði tvfmælalaust ekki til veiða
V-Þjóðverja og Norðmanna hér
við land þar sem hlutfall þorsks í
heildarafla þeirra hefði ekki farið
yfir 10%.
Til maíloka veiddu Norðmenn
t.d. aðeins 52 tonn af þorski við
Island og á s.l. ári veiddu þeir
aðeins 182 tonn af þorski af 2641
tonna heildarafla.
A sex mánaða tímabili eða frá 1.
des s.l. til 1. maí s.l. veiddu V-
Þjóðverjar 23.130 tonn af fiski við
Island. 14.800 voru karfi, 3.000
tonn ufsi, 2.969 tonn grálúða en
aðeins 700 tonn voru þorskur.
I maflok höfðu Færeyingar
veitt 5638 lestir við tsland af þvf
magni voru 1900 tonn þroskur,
2100 ufsi og 1040 tonn aðrar teg-
undir eins og langa og keila.
Nákvæmar tölur um afla Belga
voru ekki fyrir hendi, en hlutfall
þorsks í heildarafla þeirra hefur
hins vegar verið um 14%
Sagði sjávarútvegsráðherra, að
hin nýja reglugerð yrði strax send
Belgum og munnlegar viðræður
hefðu þegar átt sér stað við Fær-
eyinga, og ætlast væri til að þess-
ar þjóðir hlýddu þessum reglum.
SjáVarútvegsráðherra var
spurður hvað talið væri að sóknin
minnkaði mikið í tonnum talið við
þessar ráðstafanir. Kvað hann
erfitt að gera sér grein fyrir þvi,
þar sem ekki væri vitað hvað hver
skuttogari hefði stanzað lengi í
höfn það sem af væri árinu. Hins
vegar væri það svo að margir
teldu, að stórfelld breyting hefði
orðið á miðunum kringum landið
síðasta árið. Mætti þar nefna að
brezku togararnir væru farnir
fyrir fullt og allt, möskvar i botn-
vörpu hefði verið stækkaðir hinn
1. feb. s.l., svæðum lokað o.fl. Það
hefði einnig komið í ljós, að afli
væri meiri á vissum stöðum kring-
um landið um þessar mundir en
menn hefðu gert sér grein fyrir.
Það væri staðreynd að meiri
hrygningarfiskur hefði verið úti
fyrir Norðurlandi í vor en menn
hefðu átt von á.
„Ef viðmiðunarreglur Hafrann-
sóknastofnunarinnar hefðu verið
samþykktar tel ég að togarútgerð
hefði lagst niður, en tillögur
stofnunarinnar verða hins vegar
skoðaðar gaumgæfilega," sagði
Matthías Bjarnason og bætti þvi
við að hann væri á móti því að
atvinnuleysi yrði i landinu. Til-
lögur sérfræðinga væru alltaf
góðar og oftast væri farið eftir
þeim. Það væri ekki alltaf hægt,
ef svo væri þyrfti ekki á alþingi
né ríkisstjórn að halda.
„Sjálfur tel ég margumrædd
275 þús. tonna hámarksveiði á
þorski þurfi ekki að vera lokataia
þorskaflans í ár. En stefnan er sú
að draga sem mest úr þorskaflan-
um, og við höfum gengið lengra
en nokkur önnur fiskveiðíþjóð í
friðunarmálum.“
Þá sagði sjávarútvegsráðherra
að hann hefði fyllstu ástæðu til að
ætla að allir fylgdu hinum nýju
reglum, og gott eftirlit yrði haft
með því. Veiðieftirlitsmenn
sjávarútvegsráðuneytisins væru
nú orðnir 7 talsins, en hefðu verið
5 til þessa. Þá myndu skip Land-
helgisgæzlunnar og Hafrann-
sóknastofnunarinnar fylgjast vel
með veiðum á næstunni.
Reglugerðin um takmarkanir á
þorskveiðum er svohljóðandi:
1. gr.
A timabilinu 26. júlí til 1. ágúst
1977, að báðum dögum meðtöld-
um, eru allar þorskveiðar bannað-
ar í Islenskri fiskveiðilandhelgi.
Utgerðaraðilum skuttogara er þó
heimilt að velja um að stöðva
þorskveiðar á fyrrgreindu tima-
bili eða dagana 2. ágúst til 8. ágúst
1977, að báðum dögum meðtöld-
um, enda sé sjávarútvegsráðu-
neytinu tilkynnt um það eigi síðar
en 22. júlí.
2. gr.
Skuttogarar, með aflvél 900
bremsuhestöfl eða stærri mega
ekki stunda þorskveiðar í 30 daga
samtals i íslenskri fiskveiðiland-
helgi frá útgáfudegi þessarar
reglugerðar til 15. nóvember 1977
og eru þá meðtaldar takmarkanir
þær, sem um getur í 1. gr. Útgerð-
araðilar geta ráðið tilhögun þess-
arar veiðitakmörkunar, þó þann-
ig, að hver skuttogari verður að
láta af þorskveiðum ekki skemur
en 7 daga í senn.
3. gr.
Útgerðaraðilar skulu tilkynna
sjávarútvegsráðuneytinu eigi síð-
ar en 15. ágúst hvernig þeir haga
veiðitakmörkun á þorskveiðum
samkvæmt ákvæðum 2. greinar.
Verði slíkar áætlanir ekki látnar í
té getur ráðuneytið ákveðið hve-
nær viðkomandi togarar skuli láta
af þorskveiðum. Útgerðaraðilar
eru bundnir við áætlanir sínar og
verða að leita samþykkis ráðu-
neytisins ef þeir vilja breyta
þeim.
4. gr.
A þeim tima, sem fiskiskip
mega ekki stunda þorskveiðar
skv. 1. og 2. gr. má hlutdeild
þorsks í heildarafla hverrar veiði-
íerðar ekki nema meiru en 10%.
Þorskafli undir þeim mörkum
skoðast sem Iöglegur aukaafli, en
fari þorskafli hverrar veiðiferðar
fram úr 10% af heildarafla, verð-
ur það sem umfram er gert upp-
tækt samkvæmt lögum um upp-
töku ólöglegs sjávarafla.
5. gr.
Sjávarútvegsráðuneytinu er
heimilt að setja nánari reglur um
framkvæmd þessarar reglugerðar
ef nauðsyn krefur.
6. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar
þessarar varða sektum samkvæmt
ákvæðum laga nr. 44 5. apríl 1948,
um vísindalega verndun fiski-
miða landgrunnsins, og heimilt er
að gera afla og veiðarfæri upptæk
eftir þvi sem við á. Með mál út af
brotum skal farið að hætti opin-
berra mála.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt 1. gr. laga nr. 44 5. apríl
1948, um visindalega verndun
fiskimiða landgrunnsins, til þess
að öðlast þegar gildi og birtist til
eftirbreytni öllum þeim sem hlut
eiga að máli.
Sjávarútvegsráðuneytið,
14. júlf 1977.
— Skattskráin
Framhald af bls. 40
Vesturlandsskráin i vikunni
þar á eftir.
Skrárnar fyrir Suðurland,
Austurland og Norðurland
vestra eru jafnan síðastar á
ferðinni, en Sigurbjörn kvaðst
vona að þær kæmu fljótlega
upp úr mánaðamótunum.
—Viðræður Geirs
og Schmidts
Framhald af bls. 40
forsætishjónanna, sem hófst með
borðhaldi að Hótel Sögu kl. 20.30.
1 islenzku móttökunefndinni á
Keflavikurflugvelli voru, auk for-
sætisráðherrahjónanna og Davíðs
Olafssonar og frúar, Guðmundur
Benediktsson ráðuneytisstjóri,
Hörður Helgason skrifstofustjóri,
Niels P. Sigurðsson, sendiherra
tslands í Bonn, Helgi Agústsson
blaðafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins o.fl. embættismenn. Einnig
var þar v-þýzki sendiherrann á
Islandi Reimund Hergt og kona
hans. Heimsókn kanslarahjón-
anna lýkur á sunnudagsmorgun,
en frá dagskrá heimsóknarinnar
þá og i dag, laugardag, segir á bls.
3.
— Beið bana
Framhald af bls. 40
litlu bifreiðarinnar yfir veginn og
lenti á bandarisku fólksbif-
reiðinni sem á móti kom. Við
þann árekstur kastaðist banda-
ríska fólksbifreiðin út af veginum
og fór heila veltu.
Þrennt var i þeim bíl — hjón
ásamt ungu barni, en þau hlutu
minniháttar meiðsli, þó að þau
væru flutt í slysadeildina. öku-
maður Mini-bifreiðarinnar mun
hins vegar hafa beðið bana svo til
samstundis eins og áður segir.
Hann var ættaður austan úr sveit-
um, en nú vistmaður á Reykja-
lundi og var að fara austur fyrir
fjall í helgarfrí. Hann var ein-
hleypur.
— Valur— ÍBV
Framhald af bls. 39
hefur þetta veikt liðið töluvert.
Eyjaliðinu hefur annars farið
gifurlega mikið fram upp á sið-
kastið, og er tvímælalaust í röð
beztu liðanna hér. Það sem helzt
skorti hjá liðinu í gærkvöldi var
örlítið meiri skipulagning i
sóknaraðgerðunum.
I STÚTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild.
Laugardalsvöllur 15. júlf
ÚRSLIT: Valur — IBV 2—0
(1-0)
Mörk Vals: Atli Eðvaldsson á
23. mín. og Guðmundur Þór-
björnsson á 50. min.
Aminningar: Oskar Valtýsson
og Dýri Guðmundsson fengu gul
spjöld. Óskar fyrir orðbragð við
dómarann, en Dýri fyrir grófan
leik.
auí;lV8IN(;asíminn er:
l J l***#«*W«Mh