Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULl 1977
37
H WTtÁ' Ai
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
rfkum mæli og kristnin. Saga
Krists er t.d. næstum þvl eins-
dæmi. Hins vegar er mörg trúar-
leg verðmæti og fagrar hugmynd-
ir að finna f helgiritum allra
trúarbragða. En þá stingur það
jafnan f stúf eitthvað alvarlegt
sem kristinn maður fellir sig ekki
við og mótmælir heils hugar. Svo
að byrjað sé einhvers staðar er
eitt aðalatriði Múhameðstrúar
það, að Allah ráði öllu, allt hljóti
að verða sem hann vill, hann
hjálpi þeim sem honum þóknast,
en lætur aðra farast ef honum svo
býður við að horfa. Hjálp og glöt-
un hvers manns sé algjörlega i
hendi Allah. Alræði hans sé
algjört og maðurinn sviptur allri
ábyrgð. Þó að slíkar kenningar
séu ekki annað en það sem bæði
kristnin og Múhameðstrúin hafa
erft frá gyðinglegum formtrúar-
brögðum og eflaust er numið frá
hugmyndum enn eldri þjóða, þá
er allt um það engum kristnum
manni nútfinans stætt á að játa
þessu og fyrirgera dómgreind
sinni og tilfinningu.
Lfku máli gegnir um Baháf-
trúarbrögðin, a.m.k. f einu atriði.
Oft hefur undirritaður tekið
bók f hönd, komna frá þessari
trúarbragðagrein, og hrifist af
fegurð og einlægni boðskaparins.
Með nokkrum undantekningum
þó. Nútfma lesandi getur ekki
með réttu viðurkennt að bannað
sé að ræðast við gegnum dánar-
tjaldið svonefnda. En þá mein-
loku að það sé synd að fá fréttir
eða skiptast á kveðjum milli
heima getur að lfta innan krist-
innar kirkju og f flokki Baháf-
manna. Sannast þarna hversu
mjög er erfitt að dreifa þoku
ritningarstaða Gamla testamentis-
ins, — fulltrúa frumstæðra trúar-
hugmynda.
Theósófíu indverskrar áttar og
dr. Helgi Pjeturs rákust á í skiln-
ingi um endurfæðingu til jarðar.
Þróun náttúruvisinda til nútfma-
þekkingar gefur til kynna að dr.
H.P. fór skynsamlega leið til
skilnings á tilverunni og naut þar
hvorutveggja náttúrufræðiþekk-
ingar og dulargáfna þeirra er
margsannaðar eru fyrir starfsemi
sálarrannsóknamanna og
spfritista. En einmitt dulrænar
lækningar á jarðneskum sjúk-
dómum taka af öll tvímæli um
áreiðanleik og nauðsyn spfritiskr-
ar þekkingar. Hinu getur varla
nokkur sanngjarn vfsindamaður
mótmælt að endurfæðingar til
þessarar okkar heittelskuðu jarð-
ar gerast, — eru ein aðferðin við
þroskunarsmíðina. Af og til og oft
hvað eftir annað fyrir suma ein-
staklinga samkvæmt eigin vilja,
en varla sem algilt lögmál.
fö Neðribyggð-
arskuggi
Undirritaður hefur sterka til-
hneigingu til að áfellast ummæli
eins undraverðs huglækninga-
manns. Þau er hann lét f ljós f
einni af mörgum sinna ágætu
bóka. Um var rætt ábyrgð þeirra
heimsvaldaforingja sem ef til vill
kæmu til með að sprengja sundur
jarðarhnöttinri í atómæði. Lét
huglæknirinn liggja að þvf f orð-
um sfnum að vafamál væri hvort
þeir sem slíkri gereyðingu yrðu
valdandi ættu sér nokkurn tima
viðreisnar von annars heims. Yfir
þá menn sem að nokkru marki
þekkja til sögu Krists af guð-
spjöllunum og fyrir vandlegast
framkvæmdu rannsóknir á sam-
böndum milli heima, koma slfkar
fullyrðingar jafnvel þótt hálf-
kveðnar séu sem þrumur úr heið-
skiru lofti. Og meira en það. Varla
,er hægt að hugsa sér kvfðvæn-
legri örvæntingu búna mannkyni
en ef það sannaðist að veruleik-
inn væri svo gjörsamlega and-
stæður eðli Krists. Það er eins og
útskúfunarkenningin gangi alls
staðar aftur. Þessi þráláti neðri-
byggðarskuggi, sem um aldir hef-
ur valdið kröm á andlegri heil-
brigði þjóðanna. Svo aumt er það
nú ekki að sumar mannverur
eyðileggist, rétti aldrei úr beygju
dauða að eilífu. Hins vegar getur
það kostað ólýsanlega fyrirhöfn.
Spyrji einhver hvernig ég viti
þetta svara ég: Þetta hafa
þúsundir einstaklinga vitað áður.
En ég þarf ekki að spyrja þá. Ég
finn það, veit það, hvar sem ég er.
Veit það hér og nú. Það má kalla
þetta fjarhrif, ekki er það verra,
þá eru margir um vissuna.
Öneitanlega yrði það ómælan-
legur harmleikur, þessi heima-
gerða sprenging jarðarinnar.
Ekki svo mikið vegna þess sem
þroskaðir f góðvild, og illvirkjar,
yrðu að þola heldur smælingjar
og sakleysingjar. Gerendur slfkra
slysa geta hvorki né mega eyðast
því að það er þeirra hlutverk að
breytast, — og byggja annað nýtt
af fúsum og frjálsum vilja. Og ef
þetta væri ekki rétt hvers virði
væru þá Kristshugmyndirnar
tvær, sem gleggst hafa verið sett-
ar fram, önnur f Fjallræðunni og
hin af John Arthur Hill?
Máttur mannsandans er geisli
hins æðsta þroska, guðdóms.
Lærisveinar á þeim vegum hljóta
ekki náð, heldur líkn, bróðir styð-
ur bróðir. Sá bróðir styður mest
og bezt sem sterkastur er. Er það
hlutverk trúarbragðanna að
draga úr vaxtarvonunum? Ein-
hver hefði nú álitið ekki.
Sigurður Draumland."
Þessir hringdu . . .
@ Reglur lánasjóðs-
um ábyrgðarmenn
Faðir:
— Hjá Lánasjóði íslenzkra
námsmanna eru f gildi þær reglur
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
1975, sem haldið var í Tjentiste f
Júgóslaviu, kom þessi staða upp í
skák þeirra Rach, V-Þýzkalandi,
sem hafði hvitt og átti leik, og
Botto, Argentínu!
9 ■ m Íf
wm. Wm k wzm wm
Bj % m iik lt
■ m ’A
■A y ■ A m 11 A és m WM. ■ : PP Sik
■ §1 É l s
29. Hg6! — fxg6, (Ef 29.. De5, þá
30. Hg7) 30. hxg6 — Hf7, 31.
Df8+H Svartur gafst upp, því
mátið verður ekki umflúið.
Heimsmeistari unglinga 1975
varð Rússinn Cehov, en núver-
andi unglingaheimsmeistari er
Bandarfkjamaðurinn Mark
Diesen.
að tvo ábyrgðarmenn þarf til að
samþykkja lánsumsókn og ganga f
ábyrgð fyrir láninu. Sonur minn,
sem er í námi og er að sækja um
námslán, getur e.t.v. ekki hagnýtt
sér það vegna þess að þessar regl-
ur segja að annað foreldri megi
aðeins ganga í ábyrgð fyrir lán-
inu, aðrir verði að vera utanað-
komandi, vinir eða skyldmenni.
En það er bara ekki alltaf hægt að
fá skyldmenni til að ganga i
ábyrgð fyrir láni að upphæð
kannski 250 þúsund krónum og
hvað á þá að gera? Á námsmaður
að missa af iáni aðeins vegna þess
að enginn finnst ábyrgðarmaður-
inn? Ég hef heldur varla geð í
mér til að biðja einhvern um að
ganga f ábyrgð fyrir þessum upp-
hæðum, þetta er meira en ein-
hverjir smávlxlar. Ég spurðist
fyrir um það í lánasjóðnum hvort
ekki væri tekið gilt fasteignaveð
þvf ég á fbúð, sem ekkert hvflir á,
en reglurnar meina það, aðeins
verður að fá nöfn tveggja
ábyrgðarmanna. Hvernig fer fólk
að þessu? Eiga allir námsmenn
aðgang að einhverjum sem vilja
taka þetta hlutverk að sér? Ég sé
ekki neina útgönguleið úr þessu
vandamáli og væri því fróðlegt að
heyra um reynslu annarra i því
sambandi. —
Hjá Lánasjóði fsl. námsmanna
fékk Velvakandi þær upplýsingar
að tveir ábyrgðarmenn þurfa að
ganga f ábyrgð fyrir láni, annar
má vera faðir eða móðir náms-
marina, hitt getur verið systkin
eða annað skyldmenni, ekki
yngra en 20 ára og ekki yfir 65 ára
og væri þetta einu reglurnar sem
farið væri eftir varðandi ábyrgð-
armenn.
HÖGNI HREKKVlSI
Er þetta nú ekki einum of. .?
Monika Sveinsdóttir
í Goðdölum - Níræð
Það er í frásögur fært, að hann
væri gervilegur að sjá og reyna
systkinahópurinn í Bjarnastaða-
hlíð í Vesturdal, er þau voru þar
öll heima undir lok 19. aldarinnar
börn hinna greiðasömu myndar-
hjóna og góðbænda, Sveins
Guðmundssonar frá Fremri-
Svartárdal og Þorbjargar
Ölafsdóttur frá Litluhlið. Þau
hjónin höfðu gifzt 1886 og búið
um sinn í Fremri-Svartárdal, en
frá fardögum 1871 á vildisjörð-
inni Bjarnastáðahlfð, þar sem
heimili þeirra stóð í rúman aldar-
þriðjung, börnin uxu úr grasi og
bú blómgaðist. Voru þessi hjón
vinsæl mjög og vel metin i héraði,
en margir þeir, sem nutu gest-
risni þeirra ög hjálpar í ýmsum
vanda, en aðstoð þeirra og góðvild
brást aldrei né dróst. Þorbjörg dó
undir vor 1906, tæplega sextug,
en Guðmundur, sem bjó enn hið
næsta fardagaár, fluttist að Litlu-
hlíð til Ólínu dóttur sinnar og
Guðmundar Ólfssonar manns
hennar, og dó hann þar sumarið
1914, umvafinn ástúð og hlýju
Litluhliðarhjóna, fullra 78 ára. —
Þótt svo langt sé liðið frá dauða
Þorbjargar og Sveins í Bjarna-
staðarhlið, er þeirra tíðum minnzt
í Skagafjarðardölum sakir alhliða
mannkosta, en niðjarnir halda
nöfnum þeirra á loft með nýrri
kynslóð.
Þó að þrjú systkinanna frá
Bjarnastaðahlið séu enn á dögum,
Elín, ekkja Vilhjálms Andrésson-
ar f Reykjavík, 91 árs, Monika í
Goðdölum, sem í dag er níræð, og
Guðrún kennari, 87 ára, og býr i
gjafaherbergi sfnu i Sjúkrahúsi
Skagfiróinga á Sauðárkróki, heyr-
ir saga foreldranna liðinni öld og
systkinanna, a.m.k. hin eldri
þeirra, ólikum og ærið fjarlægum
tíma, en áratugir sfðan sum
þeirra hurfu af hinum jarðneska
vettvangi. Að sönnu væri ánægju-
legt að minnast þessara mikil-
hæfu systkina á merkisdegi
Moniku, en hér er eigi rúm að
gera þau skil, sem hæfði, og skal
því ekki vikið að sinni, enda er
þar í efni saga f ellefu sjálfstæða
þætti, þar sem greinir frá merk-
um íslendingum. — Ein systirin
dó ung, en upp komin og þrjú
börn i æsku.
Monika er fædd í Bjarnastaða-
hlið á Súsönnumessu 1887, og ber
hún einnig nafn dagsins, sem
kenndur er við Súsönnu þá, er
einn viðauki Danielsbókar segir
frá á dramatfskan 'hátt. En
Moniku-nafnið er eftir Moniku á
ÁnastöðUm, orðlagðri ágætis-
konu, sem hinar mörgu Monikur
hér um sveitir geta rakið hið sér-
kennilega, gríska nafn sitt til,
raunar tekið hér á landi sem í
öðrum kristnum þjóðlöndum eftir
Moniku kirkjumóður, sem svo var
nefnd af því, að hana brast eigi
þolgæði til þess að koma syni sín-
um, Arelíusi Ágústusi, til þess
manns, að hann varð biskup í
Hippö og hinn vfðfrægi guðfræð-
ingur fornkirkjunnar. Hæfa hin
kirkjulegu nöfn Moniku i Goðdöl-
um vel, þvf að hún er mikill
kirkjuvinur.
Ekki verður reynt að lýsa
bernsku Moniku í Bjarnastaða-
hlíð hér, né æskuárunum á hinu
stóra heimili, en fullyrt, að henni
varð hollur heimaskólinn hjá hin-
um dugmiklu foreldrum, sem svo
voru raungóð og næm á aðstæður
annarra, að orð er enn á gert. Þótt
hún væri hið þriðja yngsta þeirra
systkinanna, sem upp komust og
fullum átján árum yngri en Guð-
mundur, er var þeirra elztur, varð
henni snemma töm tillitssemi,
hlífð við aðra og nærfærni, en
eins og kunnugt er, er það miklu
oftast, að elztu systkinin nema
slika umgengniskosti af nauðsyn
heimilislifsins og reynslu dag-
anna á barnmörgum bæ. Þótti
Monika hafa mjúkar hjúkrunar-
hendur og fara mildilega um allt,
sem var veikburða og viðkvæmt.
Hafa þeir göfugu hæfileikar
aldrei horfið henni. Kom oss það i
hug á s.l. sumri, þegar þess var
minnzt, að sextíu ár voru liðin fró
dauða Símonar Dalaskálds og loks
settur legsteinn á leiði hans i Goð
dalagarði, en Monika annaðist
hann heima i Bjarnastaðahlíð
1916, er ævi hans þvarr, unz yfir
lauk.
Æskuár Moniku liðu við frá-
bærlega skipulegt starf og lær-
dómsrikt verknám í foreldrahús-
um. Varð hún brátt eftirsótt f
Framhald á bls. 30.
endursýrtir
tvœr úrvalsmyndir
næstu tvo daga
Hver mynd aðeins sýnd í einn dagl
20"
Laugardagur 16. júli
TORAI
TORA!
TÖRA!
Hin ógleymanlega striðsmynd
um árásina á Pearl Harbor.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sunnudagur 1 7. júlí
BUTCH
CASSIDY
OG THE
SUNDANCE
KID
Einn besti vestri siðari ára með
Paul Newman og Robert Redford
Sýnd kl. 3. 5, 7.1 5 og 9.30.
Bönnuð innan 14 ára.
BífOKDlÍDY
PAUL
NEWMAN
ROBERT
REOFORD
KATHARINE
ROSS
Nú er tækifæriÓ að sjá gamlar og góðar myndir.
mmmammmmmmmmmmBmms,