Morgunblaðið - 04.08.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
15
Unglingur skotinn
til bana í Soweto
Jóhannesarborg 3. ágúst AP.
16 ÁRA gamall unglingur fóll
fyrir byssukúium lögreglumanna
f Soweto, útborg Jóhannesarborg-
ar, er lögreglumenn dreiföu hóp
unglinga, sem fóru með grjót-
kasti um götur Soweto. Nokkrir
aðrir unglingar særðust að sögn
lögreglunnar.
Unglingarnir, sem allir voru
blökkumenn, voru í kröfugöngu,
þar sem þeir kröfðust m.a. bættr-
ar menntunar, sem þeir halda
fram að sé miklu lélegri en hjá
hvítum nemendum.
Nemendurnir hafa verið í verk-
falli frá skólagöngu í 9 daga og
var pilturinn, sem féll í dag, sá
fjórði frá því sl. föstudag, sem
lætur lífið í átökum við lögreglu.
Bretland:
Diplómatar snú-
ast til varnar
London 3. agust Reuter.
SAMTÖK brezkra diplómata hafa snúizt harkalega gegn opinberu
skýrslunni, sem birt var f gær, þar sem m.a. er lagt til að 55
sendiráðum og ræðismannsskrifstofum Breta erlendis verði lokað eða
dregið verulega úr starfsemi þeirra. Þessar tillögur eru gerðar á þeim
grundvelli að nefndin, sem samdi skýrsluna, telur að Bretar eigi litla
möguleika á að vinna aftur sinn fyrri sess á vettvangi alþjóðastjórn-
mála.
Diplómatarnir drógu þessa nið-
urstöðu stórlega í efa i dag og
bentu á að óvíst væri hvernig
Frökkum vegnaði í dag ef þeir
hefðu dregið úr diplómatastarf-
semi sinni meðan á efnahags- og
stjórnmálaerfiðleikum þeirra
stóð á seinni hluta 5. áratugs þess-
arar aldar.
Brezk blöð fögnuðu í dag flest
þeirri hreinskilni, sem þau segja
að einkenni skýrsluna og The
Times sagði að sú hreinskiini ætti
fullan rétt á sér og að viðhorf
manna í stjórnmálum og utanrík-
isþjónustunni væri á margan hátt
langt á eftir tfmunum. Financial
Times sagði að timi breytinganna
væri kominn, Bretar væru ekki
lengur það stórveldi, sem þeir
hefðu verið á fyrstu árunum eftir
strfð.
Diplómatarnir hafa ekki neitað
nauðsyn þess að endurskoða utan-
ríkisþjónustuna, en kvarta yfir
því hve oft það sé gert. Hefur slik
endurskoðun nú verið gerð þrisv-
ar sinnum á sl. 13 árum og hefur
diplómatastarfsliðinu á þeim tíma
verið fækkað um 15%.
Þrátt fyrir miklar umræður um
þessi mál, sem búizt er við á næst-
unni, er ekki gert ráð fyrir að
skýrslan hafi í för með sér miklar
breytingar á utanríkisþjónust-
unni á næstu mánuðum.
Flestir skilja í
Bandaríkjunum en
lifa lengst í Sviþjóð
Sameinuðu þjóðunum 3. ágúst
AP.
FLEIRI hjónaskilnaðir eru
Alexander Haig:
Efnahemað-
aruppbygg-
ing Sovét-
ríkjanna
ábyggjuefni
Moenchengladbach, V-Þýzka-
landi 3. ágúst AP
ALEXANDER Haig. yfirhershöfS-
ingi Atlantshafsbandalagsins,
sagði á fundi með fréttamönnum
í dag afi NATO hefSi áhyggjur af
stöðugt vaxandi efnahernaðar-
getu Sovétrfkjanna. Hann sagði
að NATO hefSi vitaS af þessari
þróun undanfarna mánuði og að
Ijóst væri að Sovétmenn hefðu
aukið styrkleika sinn verulega
bæði á tæknisviSi og hvaS magn
snertir.
Haig var á blaðamannafundinum
spurður að þvi hvort hann teldi að
neutronusprengjan svonefnda væri
svar við hernaðaruppbyggingu
Sovétrikjanna i Evrópu og hann
svaraði þvi til að hernaðarsérfræð-
ingar NATO væri sammála um
nauðsyn þess að færa kjarnorku-
hernaðarmál bandalagsins i Evrópu
í nýtizkuhorf. Hann sagði að
ákvörðunin um hvort NATO fengi
þessa sprengju væri i grundvallar-
atriðum stjórnmálaleg og þyrfti
samþykki bandalagsþjóða til og
væri unnið að því máli núna. Neu-
tronusprengjan drepur sem kunn-
ugt er fólk, en eyðileggur ekki
byggingar eða hergögn á svæðinu.
Miklar deilur hafa orðið um þessa
sprengju í V-Þýzkalandi en eld-
flaugar þar i landi yrðu búnar neu-
tronuoddum ef Carter Bandarikja-
forseti gefur leyfi til framleiðslu og
notkunar sprengjunnar
í Bandaríkjunum en
nokkru öðru landi í heimin-
um að því er fram kemur í
skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna, sem birt var í New
York í dag. Árið 1974, sem
er síðasta árið sem tölur
eru til yfir, voru allt að
125000 hjónaskilnaðir í
Bandarikjunum eða 4.6
skilnaðir á hverja 1000
íbúa. Puerto Rico og
Virginíueyjar koma næstar
með 4.3 og 3.6 skilnaði á
hverja 1000 íbúa. I V-
Þýzkalandi er 1.5 skilnaður
á hverja 1000 ibúa í Dan-
mörku 2.6 og 3 í Svíþjóð.
t skýrslunni kemur fram að
íbúafjöldi heims í árslok 1976 var
4 milljarðar 45 milljónir og fyrstu
5 ár þessa áratugs fjölgaði mann-
kyni um 1.9% að meðaltali á ári
hverju. Flestir íbúar eru í Kina
eða 839 milljónir, 598 milljónir i
Indlandi, 255 milljónir f Sovét-
ríkjunum, 214 milljónir i Banda-
rikjunum, 136 milljónir í
Indónesfu, 111 milljónir í Japan
og 107 milljónir í Brazilíu.
Sviþjóð er áfram það riki, sem
íbúarnir eiga lengsta lífsvon, 72
ár fyrir karlmenn og 78 ár fyrir
konur. ísland, Danmörk Noregur
og Holland koma næst með 71 ár
fyrir karla og 77 fyrir konur.
Lægst er þessi tala i Afríkurikinu
Chad, 29 ár fyrir karla og í Efri
Volta er lifsvon kvenna aðeins 31
ár.
Makaríos
erkibiskup
fallinn
W
i
valinn
Kýpur. Grískir Kýpurbúar
fögnuðu Makariosi sem þjóð-
hetju við heimkomuna og 16.
ágúst 1960 hlaut eyjan sjálf-
stæði og Makarfos varð fyrsti
forseti hins nýja lýðveldis og
Fazil Kutchuk, leiðtogi tyrk-
neska þjóðarbrotsins á eynni,
varaforseti.
Átökin 1963
Heiftarleg átök brutust út
milli þjóðarleiðtoganna 1963 og
urðu Sameinuðu þjóðirnar að
senda gæzlulið til eyjarinnar
1964 til að binda endi á átök og
koma i veg fyrir frekari átök.
Bardagar brutust út á ný 1967
og voru Grikkland og Trykland
„Slóttugur
meistari
stjórnmálanna
Nicosia 3. ágúst Reuter.
MAKARtOS erkibiskup og for-
seti Kýpur, sem lézt í morgun
að heimili sfnu af völdum
hjartaslags, 63 ára að aldri,
lifði af 4 morðtilraunir, bylt-
ingu og útlegð á þeim 20 árum,
sem hann stóð f forystu f stjórn-
málalegri eldlfnu eyjarinnar.
Makarfos var hirðingjasonur,
fæddist 13. ágúst f Panayia,
skammt frá Paphos. Ilann
lærði til munks f Kykkos-
klaustri og nam sfðar við
Aþenuháskóla og guðfræði-
deild Bostonháskóla f Massa-
chusetts f Bandarfkjunum.
Ilann var kjörinn biskup af
Kitium árið 1950, meðan hann
var enn við nám f Bandarfkjun-
um og þremur árum sfðar varð
hann erikibiskup og leiðtogi
Kýpur.
Makaríos leiddi Kýpurbúa til
sjálfstæðis árið 1960 og varð
fyrsti forseti eyjarinnar, þar
sem Grikkir eru fjórum sinnum
fleiri en Tyrkir meðal þeirra
620 þúsund ibúa sem eyna
byggja. Þau 17 ár, sem
Makaríos var forseti Kýpur
ríkti stöðug spenna milli þjóð-
arbrotanna og margoft kom til
blóðugra átaka.
Makarios var hættast kominn
árið 1974 er grískir herforingj-
ar i þjóðvarnarliði eyjarinnar
gerðu byltingu gegn honum i
júlí og hann komst naumlega
lífs af úr árás á forsetahöllina
og komst undan til Englands.
Við komuna þangað lýsti hann
þvi yfir að hann væri. réttkjör-
inn forseti Kýpur og hann var
aldrei í vafa um að hans örlög
væru að snúa aftur heim. Það
gerði hann 4'A mánuði síðar og
var fagnað næstum eins og sig-
urglaðri hetju. Þessi mánuðir í
útlegð voru Makaríosi bitur
reynsla er hann fylgdist úr fjar-
lægu lándi með innrás Tyrkja
og þeim blóðugu bardögum,
sem í kjölfarið fylgdu.
Gífurleg
vandamál
Vandamálin, sem við blöstu
er hann sneri heim voru gífur-
leg. Efnahagsmálin voru i mol-
um og stjórnmálaleg og mann-
úðarleg vandamál voru hrika-
leg og algert vantraust riki
milli griskra og tyrkneskra eyj-
arskeggja. Um þriðjungur ibú-
anna var heimilislaus.
Yfirþyrmandi vandamál voru
hins vegar hlutur, sem
Makaríos hafði búist við frá því
að hann fyrst lagði út á stjórn-
málabrautina á fyrstu árum 5.
áratugsins, bæði sem andlegur
og stjórnmálalegur leiðtogi
Kýpurbúa. Makarios var ýmist
lýst sem slóttugum manni eða
meistara á sviði stjórnmála.
Rauf Denktash leiðtogi Tyrkja
á Kýpur sagði eitt sinn um
hann „Hann er frábær hlust-
andi, en maður, sem aldrei get-
ur skipt um skoðum."
Stjórnmálaferill Makariosar
fyrstu árin var erfiður og oft
blóðugur og hann varð að heyja
neðanjarðarstríð og þola út-
legð. 1950 gekktst hann fyrir
óformlegri þjóðaratkvæða-
greiðslu á Kýpur, þar sem 95%
ibúanna greiddu atkvæði með
sambandi við Grikkland, en
Bretar höfðu þá ráðið eynni frá
1878. Makaríos varð nú aðal-
hvatamaður Enosis, sambands
við Grikkland, og flutti mál sitt
æ meira á alþjóðavettvangi.
Honum mistókst að fá stuðning
S.Þ. við málsstaðinn og sömu-
leiðis urðu viðræður hans við
brezka ráðamenn árangurslaus-
ar. 1956 var hann handtekinn
og sendur í útlegð til Seychell-
eyja sakaður um þátt í frelsis-
striðinu á eynni. Þetta varð til
að gera hann að hetju Kýpur-
búa. Hann hafnaði boði Breta
um að láta hann lausan gegn
því að hann fordæmdi ofbeldi
opinberlega, en honum var
sleppt skömmu síðar 1957 með
því skilyrði að þvi er talið var,
að hann snéri ekki aftur til
Kýpur. Árið eftir féll hann frá
Enosisstefnu sinni og lýsti þvi
yfir að hann gæti fellt sig við
sjálfstæði undir eftirliti Sam-
einuðu þjóðanna. í febrúar
1959 komu fulltrúar Bretlands,
Grikklands og Tyrklands sam-
an til fúndar i London og náðu
samkomulagi um sjálfstæði
á barmi styrjaldar áður en
gríska stjórnin kallaði George
Grivas hershöfðingja heim, en
hann var i forystu EOKA-
skæruliðahreyfingarinnar, sem
barðist fyrir sameiningu við
Grikkland. Grivas snéri aftur
til Kýpur með leynd 1971 og
setti á stofn aðra EOKA-
hreyfingu, sem hélt uppi
hryðjuverkastarfsemi á eynni
þar til Grivas lézt 1974, þá 75
ára að aldri.
Innrás Tyrkja
Eftir byltinguna 1974, er
Nicos Sampson leiðtogi bylting-
armanna hafði svarið embættis-
eið sem forseti, hélt Makaríos
til Sameinuðu þjóðanna, þar
sem honum var tekið sem
þjóðarhöfðingja og hann skor-
aði á öryggisráð S.Þ. að tryggja
sjálfstæði Kýpur.
20. júli gerðu Tyrkir innrás á
Kýpur og Grikkir kölluðu út
herinn. Þermur dögum síðar
sagði Sampson af sér og
Glafkos Clerides forseti þings-
ins tók við sem bráðabirgðafor-
seti. Þetta var sama dag og her-
stjórn i Grikklandi afhenti
borgaralegum stjórnmáiaflokk-
um völdin i landinu á ný eftir 7
ára einræðisstjórn. 30 júlí
undirrituðu Grikkir, Tyrkir og
Bretar samning um að koma á
vopnahléi á ný, en það sam-
komulag fór út um þúfur 14.
ágúst og Tyrkir náðu þriðjungi
eyjarinnar á sitt vald áður en
vopnahlé komst aftur á.
Makaríos kom til Aþenu 29.
nóvember sama ár til viðræðna
við Karamanlis forsætisráð-
herra og sagði þá „ég rétti
Tyrkjum olivugrein, en neita
að bjóða land og vatn, sem er
tákn undirgefni og niðurlæg-
ingar." Heim snéri hann 7.
desember við gifurleg fagn-
aðarlæti og hvatti til samninga-
viðræðna milli tyrknesku og
grísku þjóðarbrotanna en vís-
aði hugmyndum um skiptingu
eyjarinnar algerlega á bug.
Fyrstu merki um veikleika
komu í april s.l. er hann fékk
vægt hjartaáfall og sá sjúkdóm-
ur hefur nú fellt hann.