Morgunblaðið - 04.08.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
19
Sjávarafurðadeild Sambandsins:
r
U tflutnings veltan
jókst um 65,5%
fyrstu 6 mánuðina
FYRSTU sex mánuði þessa árs
jókst útflutningsvelta Sjávaraf-
urðadeildar Sambandsins um
65,5%. Veltan varð nú 6.730 millj-
ónir króna, en á sama tímabili s.l.
ár var hún 4.066 millj. kr.
Nýútkomnar Sambandsfréttir
hafa eftir Sigurði Markússyni
framkvæmdastjóra, að af heildar-
útflutningi deildarinnar væru
frystar afurðir langstærsti hlut-
inn, eða um 60 af hundraði. Lýsi
og mjöl væru um 33%, en afgang-
urinn ýmsar aðrar afurðir, svo
sem söltuð hrogn og skreið.
Segir Sigurður að þessi aukning
á útflutningsveltu deildarinnar sé
að langmestu leyti til komin
vegna aukningar í mjöli, bæði að
því er varðar magn og verðmæti.
14 stiga hækkun
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hefur hækkað um 14 stig; úr 138 i
152 stig, vegna áhrifa nýrra kjara-
samninga í sumar, segir I frétt frá
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins.
Sænskar handíðir
á Tálknafirði
IIÍ:R á landi dvelja nú 22
sænskir handíðakennarar og
nemendur frá fræðslusam-
bandi sænsku kirkjunnar
(SKS). Munu þeir efna til nám-
skeiðs I handíðum hérlendis og
verður það að þessu sinni úti á
landsbyggðinni, eða á Tálkna-
firði, dagana 3.—10. þessa mán-
aðar. Ilópur þessi er hingað
kominn fyrir tilstuðlan Sigrún-
ar Jónsdóttur, en henni var á sl.
ári boðið á vegum samtakanna
til Svfþjóðar að sýna verk sfn.
Sýndi Sigrún þá verk sfn I
Stokkhólmi. Ilárnösand og
Vásterás.
Námskeiðið sem þessi hópur
frá SKS efnir til á Tálknafirði
er að sögn Sigrúnar Jónsdóttur
fyrsta námskeið sinnar tegund-
ar hérlendis. Sagði Sigrún það
einsdæmi að kenriarar og nem-
endur á námskeiði væru bein-
linis fluttir inn til landsins til
að íslendingar gætu orðið með-
al þátttakenda. Sjálf hefur Sig-
rún þó verið með námskeið
svipaðrar tegundar bæði á höf-
uðborgarsvæðinu og úti á landi,
og hefur hún m.a. verið með
slík námskeið á Tálknafirði.
1 spjalli við Ullu Littgren,
forsvarskonu sænska hópsins,
kom fram að námskeiðinu á
Tálknafirði yrði gefið einkenn-
isheitið „Lifið og skapið“. Sagði
Ulla að reynt yrði að fá þátttak-
endur til að sækja fyrirmynd-
irnar sem mest í náttúru Is-
lands, og vinna þær síðan i tau-
þrykk, batik eða keramikk.
í spskonar hópur frá íslandi
sæki Svia heim á næsta ári.
Maður slasast
í umf er ðarslysi
Akureyri 3. ágúst
BRONCO bíll meó sex manns valt
út af veginum skammt norðan við
Geldingsá í morgun kl. 10.25. Lög-
regla og sjúkralið frá Akureyri
komu fljótlega á vettvang. Öku-
maður bflsins var þá skorðaður f
bflnum, hafði festst milli stýris-
ins og þaks bflsins, en það lagðist
inn þegar bílnum hvolfdi. Öku-
maður mun vera allifiikið slasað-
ur og verður fluttur með flugvél
til Reykjavíkur í kvöld. Bróðir
hans meiddist á hálsi og tvær
konur f bflnum fengu taugaáfall.
Tvö börn, 5 og 3 ára, meiddust
hins vegar ekkert. Bfllinn er afar
illa farinn. Þar sem slysið varð er
vegabrún ekki há, en hins vegar
er vegurinn mjór og krókóttur.
Sv.P.
Erfitt
Sigrún Jónsdóttir heldur um þessar mundir sýningu á 13 verkum
sfnum, f sambandi við ráðstefnuna Nordisk kristenhet f samtidens
miljö sem fram fer f Norræna húsinu 3.—5. ágúst. Sýnir Sigrún þar
ýmsa kirkjuiega muni sem hún hefur unnið á undanförnum árum,
en á þessari mynd RAX er Sigrún við eitt nýrri verka sinna.
Nýtt gallery
NÝTT gallery var opnað 2. júlí s.l.
Aðstandendur þessa gallerys eru
nokkrir ungir menn sem hafa að-
stöðu að Drápuhlíð 40. Nú þegar
hafa verið tvær sýningar hjá
þeim. Einnig er í bígerð hjá þess-
um ungu mönnum að standa fyrir
kvikmyndasýningum og fleiru.
að halda
vegum við
— JU, ÞAÐ er rétt að við höfum
fengið kvartanir um slæma vegi
víðs vegar af landinu að undan-
förnu, en í þeirri tfð sem verið
hefur f sumar, hefur verið erfitt
að halda vegum góðum, sagði
Snæbjörn Jónasson vegamála-
stjóri f samtali við Mbl. f gær.
Snæbjörn sagði að á Ausfjörð-
um og Norð-Austurlandi hefði lít-
ið rignt og því ekki verið hægt að
hefla. Þar væru vegir því almennt
mjög þurrir og harðir. Á Suður-
og Vesturlandi hefði hins vegar
verið mikil úrkoma, og vegir strax
hlaupið i holur um leið og búið
væri að hefla.
Börkur búinn að landa
3200lestum af kolmunna
Þessi hressi og myndarlegi
hópur kanadfskra ungmenna á
mynd Emilíu leit við á rit-
stjórn Morgunblaðsins nýlega.
Kynntu þau sér starf blaða-
manna og hvernig blað er unn-
ið f dag. Sexmenningarnir eru
allir af íslenzku bergi brotnir
og kunnu svolftið fyrir sér f
íslenzku, en fslenzkuna kváð-
ust þau hafa numið f kvöld-
skólum.
Krakkarnir tjáðu Morgun-
blaðsmönnum að þau hefðu
verið hér á landi frá miðjum
júlí og kynnt sér land og þjóð.
Kváðust þau vera mjög hrifin
af móttökunum sem þau hefðu
fengið, en einmitt rétt eftir að
þau heimsóttu Mbl. áttu þau
að vera mætt í hádegisverðar-
boði Menntamálaráoherra. Öll
eru ungmennin á 18. ári nema
karlmaðurinn f hópnum, Dar-
ryl Björnsson frá Winnipeg,
sem er 14 ára. Darryl er fyrir
miðju í aftari röð á myndinni.
Honum á hægri hönd er
Tannis Gutnick frá Calgary og
á vinstri hönd Colleen Fjeld-
sted frá Gimli. Frá vinstri í
fremri röð eru Susan Cmikie-
wicz frá Selkirk, Sandra Mar-
tin frá Gimli og Sharon Bach-
man frá Lundar.
BÖRKUR NK landaði 850 lestum
af kolmunna f Neskaupstað f
fyrradag og var þar með búinn að
landa alls 3200 lestum af kol-
munna frá því að skipið hóf kol-
munnaveiðarnar úti fyrir Aust-
fjörðum fyrir röskum tveimur
vikum. Ekki var ákveðið hvort
Börkur héldi áfram á kolmunna-
veiðunum eða færi til loðnuveiða
þegar hann fór út á ný.
Jóhann K. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðar Sildar-
vinnslunnar h.f. í Neskaupstað,
sagði þegar Morgunblaðið ræddi
við hann, að Víkingur, sem einnig
hefði verið kominn til kolmunna-
veiða, væri nú hættur aftur og
kominn á loðnumiðin, og það væri
mjög erfitt fyrir eitt skip að
stunda þessar veiðar, þar sem allt-
af þyrfti að byrja leit þegar skipin
kæmu á miðin eftir löndun og
færi því mikill tími til spillis.
Annars sagði Jóhann að ekki væri
hægt að segja annað en að þessar
veiðar hefðu gengið þolanlega
það sem af væri.
Vestmannaeyjabátarnir
Bjarnarey og Bylgja, sem nú
stunda kolmunnaveiðar með tvi-
Á MEÐAN þjóðhátíð Vestmanna-
eyja stendur dagana 4. til 8. ágúst
verða Flugleiöir með 40 ferðir
milli lands og Eyja.
Segir í frétt
frá Flugleiðum, að flognar verði
fjórar ferðir á dag til Vestmanna-
lembingstrolli, voru inni á Seyðis-
firði í gær, þar sem verið var að
gera ýmsar breytingar um borð í
bátunum, þá var einnig bræla á
miðunum úti fyrir Austfjörðum i
gær.
rniUi
Eyja
eyja samkvæmt áætlun og
fimmtudaginn 4. ágúst verði farn-
ar þrjár aukaferðir eða samtals
sjö feröir. Föstudaginn 5. ágúst
verða farnar 11 ferðir og á laugar-
dag 6 ferðir, á sunnudag 11 ferðir
og sex ferðir verða á mánudag.
40 ferðir
lands og
Sala að
hefjast
á spariskír-
teinum fyrir
1100 millj.
Á MORGUN, föstudag, hefst sala
spariskfrteina rfkissjóðs 2. fl.
1977, samtals að upphæð 1.100
milljónir króna. 1 frétt frá Seðla-
bankanum segir, að útgáfan bvgg-
ist á fjárlagaheimild og heimild
um útgáfu spariskfrteina f stað
þeirra sem innleyst hafa verið, að
viðbættri verðlagsuppbót.
Kjör skirteinanna eru hin sömu
og undanfarinna flokka. Höfuð-
stóll og vextir eru verðtryggðir
miðað við breytingar á bygginga-
visitölu. Skírteinin eru bundin
fyrstu fimm árin, en frá 10. sept-
ember 1982 eru þau innleysanleg
hvenær sem er næstu fimmtán
árin. Skírteinin, svo og vextir af
þeim og verðbætur, eru skatt-
frjáls og framtalsfrjáls á sama
hátt og sparifé.
Skírteinin eru gefin út í þrem-
ur verðgildum, 10.000, 50.000 og
100.000 krónum og skulu skráð á
nafn með nafnnúmeri eigenda.
Mikrn afli
á Siglufirði
Siglufirði 2. ágúst
SIGLUVÍK landaði hér í gær 150
lestum af góðum fiski. Togarinn
var við þorskveiðar í siðustu viku,
en hættir nú og verður í slipp á
Akureyri í þessari viku.
Þá er Dagný væntanleg með
200—210 lestir af fallegum
þorski. Mjög mikil atvinna er nú
hér i frystihúsunum og vantar
fólk til starfa, enda allt fullt af
fiski.
— mj.
Ekki sézt
síðan 25.
júlí s.l.
LÖGREGLAN í Reykjavik hefur
lýst eftir 21 irs gömlum manni,
Arinbirni Þór Pálmasyni, sem
hvarf frá Kleppsspítalanum
mánudaginn 25. júli s.l. og hefur
ekkert spurzt til hans siðan eða í
10 daga.
Arinbjörn er ljósskolhærður,
með hrokkið hár, grannvaxinn,
u.þ.b. 185 cm á hæð. Þegar hann
hvarf var hann klæddur i bláar
gallabuxur, mosagræna nælon-
úlpu, blámynstraða skyrtu og
gula strigaskó.
Þeir sem kynnu hafa séð til
ferða Arinbjarnar siðan hann
hvarf eru vinsamlegast beðnir að
láta lögregluna vita.