Morgunblaðið - 04.08.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
5
Tekst Pologaevsky
að minnka bilið'?
TOLFTA skákin í einvígi
þeirra Polugaevskys og
Korchnois í Evian I Sviss var
tefld i gærdag. Korchnoi, sem
hafði svart, beitti fremur sjald-
gæfri byrjun. Aætlun stór-
meistarans landflótta var
greinilega sú aó einfalda taflið,
en það er auðskilið með hlið-
sjón af stöðunni i einvíginu, því
Korchnoi þarf aðeins tvö jafn-
tefli til viðbótar til að tryggja
sér sigur í einviginu. Polu-
gaevsky tefldi þó miðtaflið af
miklu öryggi og hafði undirtök-
in allan timann.
Honum tókst síðan að nýta
smávægilega stöðuyfirburði
sína til þess að fá fram hagstæð-
ara endatafl og í biðstöðunni
hefur hann einhverja vinnings-
möguleika.
Ef Polugaevsky sigrar i þess-
ari skák breytast horfurnar i
einviginu til muna, því nú teflir
Korchnoi ekki af sama krafti og
í upphafi einvfgisins. Þá var
staóan á tímabili 6—1 honum i
vil. Þær tölur hafa nú breyst í
7V4—3V4 og ef Polugaevsky sigr-
ar í biðskákinni i dag gæti ein-
vigið tekið nýja og óvænta,
stefnu.
Hvitt: Lev Polugaevsky
Svart: Viktor Korchnoi
Bogoljubow-indversk vörn
I. d4 —e6, 2. c4 — Bb4 +
(Korchnoi reynir sifellt að
rugla andstæðinginn i ríminu í
byrjuninni. I sjöttu skákinni
lék hann hér 2... b6, 3. e4 —
Bb7, 4. Dc2 — Dh4)
3. Bd2
(Eftir 3. Rc3 — Rf6 kemur upp
Nimzoindversk vörn. Það er á
hinn bóginn einkennandi fyrir
byrjanavai Polugaevskys að
hann leikur aldrei drottningar-
riddara sínum fyrstum manna
út á borðið)
De7
(Eftir 3... Be7, 4. g3 — Rf6
kæmi upp sama staða og í átt-
undu skákinni sem Korchnoi
tapaði)
4. g3 — Rc6, 5. Rf3
(Þessi byrjun er kennd við
sovézka stórmeistarann Bogo-
ljubow, en hann var upp á sitt
bezta á þriðja áratug þessarar
aldar)
Rf6, 6. Rc3 — Bxc3, 7. Bxc3 —
Re4, 8. IIcl —d6,9. d5
(Polugaevsky sættir sig ekki
við hið rólega framhald 9. Bg2
— f5, því fyrr eða síðar verður
hann að eyða leik i að flæma
svarta riddarann frá miðborð-
inu)
— Rxc3, 10. Hxc3 — Rd8, 11.
Bg2 — 0-0,12. dxe6
(Hvítur vill ekki eiga 12. .. e6
— e5 og 13... f7 — f5 yfir höfði
sér, en eftir það yrðu menn
svarts fljótir i gagnið)
— Rxe6
(Nákvæmara en 12... Bxe6, 13.
Rd4 og eftir 12... fxe6, 13. Dd2
yrði svartur fyrr eða síðar að
leika e6 — e5 til að koma
biskup sinum i gagnið)
13. 0-0 — Bd7
(Hvitur hefur greinilega rýmra
tafl, en svarta staðan er algjör-
lega án veikleika)
14. Rh4!
(Hótar peðinu á b7 og stefnir á
d5 reitinn um f5 og e3)
Bc6,15. Rf5 — Df6,16. Re3
(16. Bxc6 — bxc6, 17. Re3 væri
einungis vatn á myllu svarts,
þvi að hann fengi opna b línu
og sterkari aðstöðu á miðborð-
inu)
Bxg2, 17. Kxg2 — Hfe8, 18. Rd5
— Dg6
(Aætlun svarts er sú að sækja
að hvíta kóngnum með þvi að
láta drottninguna og riddarann
vinna saman. Hann hótar
reyndar 19... c6, 20. Re3 — Rg5
og 21... De6 vofir yfir.)
19. Dbl
(Mjög eðlileg ákvörðun. Polu-
gaevsky vill fremur tefla enda-
tafl, en lenda í vörn)
c6
(Erfið ákvörðun. Korchnoi tek-
ur á sig slæman veikleika á d6,
en kýs það fremur en að lenda i
endatafli þar sem Rd5 þrengir
mjög að svörtum. Að velja
siðari kostinn og leika 19.. .
Hac8 var þó áreiðanlega örugg-
ara)
20. Dxg6 — hxg6, 21. Re3 —
Rc5
(Eftir 21. . . Rd4 leysir hvítur
öll vandamál sín með 22. Hdl! j\
og 22. . . Rxe2? gengur ekki
vegna 23. Hc2. Svartur gæti
reynt 22... c5, en eftir 23. Kfl
— He6, 24. Hd2 og siðan 25. Rc2
yrði veikleikinn á d6 senn
óbærilegur)
22. Hdl — a5. 23. IIa3!
(Hótar 24. Hxd6 og 23. .. He6
yrði svarað með 24. b4)
Hcd8, 24. Rc2 — Kf8
(Þegar valda þarf bakstæð peð
í endatafli er kóngurinn oftast
mikilvægasti varnarmaðurinn)
25. h4 — Ha6, 26. Rel
(Hvítur varð að svara hótun-
inni 26... Hb6, 27. Hxa5 —
Hxb2, 28. Hxc5 — Hxc2)
He8, 27. Kf3 — Ke7, 28. He3+
— Re6, 29. b3 — Haa8, 30. Rd3
— Had8, 31. Rb2
(Hvitum liggur ekkert á og
mikilvægt er að finna riddaran-
um hentugan stað)
Kd7, 32. Ra4 — Kc7, 33. Rc3 —
85
(Þessi leikur léttir svörtum
ekki vörnina. Betra var að biða
átekta, því hvitur á enn langt i
land með að fá yfirburðastöðu.
Reyndar er þetta dæmigert fyr-
ir Korchnoi. Hann biður aidrei
eftir að sjá áætlanir andstæð-
ingsins i hvert sinn, heldur
reynir upp á von og óvon að
leysa vandamál sín)
34. h5 — f5, 35. g4
(Annars leikur svartur 35... g4
og h5 peðið einangrast)
f4, 36. Hed3 — Rc5, 37. Hd4 —
Rd7, 38. Re4 — Re5+, 39. Kg2
— Rf7, 40. f3 — He5, 41. Kf2 —
h5.
ÍP 11 jp •m wk
n ém mm
y 1 mm ff
1J 1 fl mm A
lUI A m m A ■ wm.
A A #
A ■ w>, ||§ A jm m§
JP fÆ. mk s m wm m
Hér fór skákin í bið. Polu-
gaevsky lék biðleik. Vinnings-
möguleikarnir eru greinilega
hvíts megin, sérstaklega vegna
hinna veiku peða svarts á d6 og
g5. Polugaevsky á þó langt i að
inntiyrða vinninginn og það er
greinilega andvökunótt fram-
undan hjá aðstoðarmönnum
hans.
„Stefni
á sigur
næst"
segir nýbakaði Norð-
urlandameistarinn
„MAÐUR hugsaði ekkert of
mikið um unglingameistaratit-
ilinn, enda var hann inni í
sjálfri keppninni um Norður-
landatitilinn f karlaflokki. En
ég er að sjálfsögðu ánægður
með að hafa orðið unglinga-
meistari Norðurlanda í skák. og
víst er að ég mun stefna að þvi
að vinna þennan titil aftur að
tveimur árum liðnum". Þannig
mælti hinn nýbakaði skák-
meistari Norðurlanda f ungl-
ingaflokki. Jón L. Arnason,
sem aðeins er 16 ára gamall, f
spjalli við Mbl. í gær.
Eins og kunnugt er, er Jón
núverandi Islandsmeistari í
skák og á Norðurlandamótinu í
Finnlandi barðist hann lengi
vel um Norðurlandatitil fuíl-
orðinna. Um þá baráttu sagði
Jón: „Ég tel mig hafa verið
óheppinn i siðustu umferðun-
um. 1 þeirri næstsíðustu tapaði
ég fyrir Pettersson eftir að hafa
fengið unna stöðu, en Petterson
varð svo Norðurlandameistari.
Hefði ég unnið hann þá hefði
ég allt eins getað orðið Norður-
Við heimkomuna frá Norðurlandamótinu afhenti ung stúlka Jóni landameistari."
blómvönd og óskaði honum til hamingju með frammistöðuna f Aðspurður sagði Jón L. Arna-
Finnlandi. (ljósmMb. Friðþjófur). Framhald á bls 18.
DECCfl
LITSJÓNVARPSTÆKI
Úrvalstæki, búin öllum tækninýjungum, svo sem línulampa og
viðgerðareiningum. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Hagstæðir afborgunarskilmálar.
Verð:
20“ tæki kr. 241.200.- 22“ tæki kr. 283.900.- 26“ tæki kr. 320.800.-fll
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Sendtim
bæklinga,
ef óskað er.