Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 1

Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 223. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Minnkandi líkur á að Schleyer sé á lífi Bonn 7. október AF. MINNKANDI líkur eru nú taldar á að v-þýzki kaupsýslumaðurinn og iðjuhöldurinn Hanns Martin Schleyer sé á lífi, en ekkert hefur heyrzt frá ræningjum hans í 11 daga, eða síðan þeir hótuðu að lífláta Schleyer ef v-þýzk stjórn- völd fyrirskipuðu ekki þegar í stað, að leit að þeim skyldi ha-tt og að þau hættu að hlera símtöl og reyna að rekja þau frá skrif- stof.u svissneska lögfra-ðingsins Denis Payots, sem er milligöngu- maður ramingjanna og stjórn- valda í V-Þýzkalandi. Schleyer hefur nú verið á valdi hryðju- verkamanna úr Rauðu herdeild Baader-Meinhofsamtakanna frá því 5. septemher. Höfðu ræningj- arnir krafizt þess að 11 félögum þeirra yröi sleppt úr haldi og 1.1 milljón marka greidd í lausnar- fijald. Helmut Schmidt hélt i dag ræðu Framhald á bls. 23 Helmut Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, kemur til athafnar í Bonn, þar sem hinn nýi efnahagsmálaráðherra landsins sór embættiseið sinn. Lögreglumenn vopnaðir vélbyssum gæta kanslarans. Deilan um aðild Pal- estínumanna leyst? Tel-Aviv og Washington. 7. október. SIMCHA Ehrlich, fjár- málaráðherra ísraels, sem er í forsæti stjórnar lands- ins, meðan Begin forsætis- ráðherra hvílist í sjúkra- húsi, sagði í kvöld að hann teldi að Israelar myndu samþykkja vinnuplagg það, sem Carter Banda- ríkjaforseti og Moshe Dayan utanríkisráðherra ísraels undirrituðu í New York fyrr í vikunni. Lét ráðherrann þá von í ljós, að hægt yrði að koma á nýrri friðarráðstefnu um deiluna í Miðausturlönd- um fyrir lok þessa árs. Innihald vinnuplaggsins hefur ekki verið gert opinbert, en fregn- in um að Carter og Dayan hefðu komizt að bráðabirgðasamkomu- lagi hefur létt nokkrum áhyggj- um af ísraelum yfir stefnu Bandaríkjanna í Miðausturlönd- um. Diplómataheimildir í New York hermdu í kvöld að i vinnuplagg- inu væri kveðið á um að Palest- ínumenn fengju að senda fulltrúa til Genfarráðstefnunnar i alls- herjarsendinefnd frá Arabarikj- unum. Talsmenn Frelsisfyikingar Framhald á bls. 23 Kuznetsov ekki líklegur til valda- baráttu í Kreml iVIoskvu 7 októher AF — Routor KJÖR sovézka diplómatans Vasilys Kuznetsovs í embætti varaforseta Sovétríkjanna i morgun varpaði engu ljósi á hugsanlegan arftaka Brezhnevs, forsela og aðalritara sovézka kommúnistaflokksins, eins og stjórnmálamenn og stjórnmála- fræðingar höfðu vonað. Kuznetsov, sem er 76 ára að aldri og einn revndasti diplómat og samningamaður Sovétríkjanna hefur nær enga reynslu í sovézk- uni stjórnmálum og því óliklegt að hann muni fara út í valdahar- áttu, ef Brezhnev fellur frá á und- an honum. Talið er að starfssvið hins nýja varaforsetaembættis, sem stofnað var til með nýrri stjórnarskrá í Sovétríkjunum og Æðsta ráðið samþykkti einróma á fundi í morgun, verði einkum að létta ýmsum smáverkum af forsetan- um, svo sem að taka á móti erlendum diplómötum, vera við opinberar athafnir o.s.frv. Brezhnev sem nú er 71 árs að aldri, er sagður heilsutæpur og kemur æ sjaldnar fram opinber- lega. Hann lét kjósa sig forseta landsins nú i sumar eftir að hafa ýtt Nikolai Podgorny heizta keppinaut sinum, út í kuldann, en Brezhnev hefur nú verið leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins um 10 ára skeið. Það var Mikhail Suslov, helzti hugmyndafræðingur sovézka kommúnistaflokksins, sem bar fram tillögu um kjör Kuznetsovs á fundi þings Sovétríkjanna, rétt eftir að Æðsta ráðið hafði sam- þ.vkkt hina nýju stjórnarskrá landsins. Kuznetsov hefur undan- farið verið fyrsti aðstoðarutan- rikisráðherra landsins, én mun Indland: Enn verdur bid á ad Concorde fái að lenda í New York W'ashinRlon 7. októbcr. Reutor. KNN VEHÐUH hid á því aö fransk-brezka hljóðfráa Concordefarþegaþotan fái að lenda í New York, eftir að Hæstiréttir Bandarikjanna féllst á að fjalla um áfrýjum samgönguniálayfirvalda í New York. Var hæstiréttur beðinn að urskurða í málinu eftir að alríkisáfrýjunardómstóll í New York hafði úrskurðað að Concorde skyldi fá lendingar- leyfi. Hæstiréttur tekur áfrý j- un stjórnarinnar fyrir N< ju Delhí 7. október. Reuter — AP. INDVERSKA stjórnin fékk nokkra uppreisn æru í dag, er hæstiréttur landsins féllst á að fjalla um áfrýjun hennar á rétt- mæti úrskurðar dómara í Nýju Delhí, uni að Indíru Gandhí, fyrr- um forsætisráðherra, sk.vldi sleppt úr haldi skilyrðislaust, eft- ir að hún var handtekin sl. mánu- dag, sökuð um spillingu og valda- misnotkun. Úrskurðaði dómarinn að engin haldföst rök hefðu verið fyrir handtökunni og fyrirskipaði að frú Gandhí skyldi látin laus án tryggingar, eftir að hún hafði ver- ið sólarhring í fangelsi i Bombay. Heldur ríkisstjórnin því fram að frú Gandhi hefði átt að fá að fara frjáls ferða sinna gegn tryggingu og að dómarinn hefði haft rangt fyrir sér að engin rök væru fyrir handtökuskipuninni. Stjórnmála- fréttaritarar telja að nokkrir dag- ar eða jafnvel vikur kunni að liða áður en hæstiréttur kveður upp sinn úrskurð. Málsmeðferð indversku stjórn- arinnar hefur verið harðlega gagnrýnd þar í landi og orðið til þess að útifundir og fjöldagöngur til stuðnings frú Gandhí hafa ver- ið haldin víða um landið. Gandhí sagði á fundi i gær að stjórnvöld í landinu vildu gera allt, sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að sér tækist að endur- vekja traust fólksins til sin, en sagði að hún myndi fara út á meðal fólksins, sem elskaði hana, jafnvel þótt hún ætti á hættu fangelsi eða að verða hengd, hún ætlaði sér að halda á loft baráttu- málum fólksins og hefja aftur virk afskipti af stjórnmálum. Vasily Kuznetsov, varaforseti Sovétríkjanna. nú væntanlega láta af þvi starfi. Hann var kjörinn, i stjórnmálaráð flokksins sl. mánudag og þótti þá einsýnt að honum væri ætlað nýtt starf. Hann er málmtækni- færðingur að mennt og starfaði m.a. við Ford- Framhald á bls. 23 Sirica dómari lætur af störfum WashiiiRton 7. októbor Routor. BANDARÍSKI dómarinn John Sirica, sem hlaut heimsfrægð fvr- ir dómsforsæti sitt við YVatergate- réttarhöldin, hefur sagt af sér emba-tti og tók Carter forseti af- sögn hans til greina í kvöld. John Sirica, sem er 73 ára að aldri, vann sitt síðasta embættisverk í vikunni, er hann mildaði dóma yfir siðustu sakborningum VVatergate, sem enn eru í fang- elsi, John Ehrlichman og Robert Haldemann, helztu ráðgjöfum Nixons fyrrum forseta og John Mitchell f.vrrum dómsmálaráð- herra landsins. Sirica bar viður- nefnið „strangi John", því að hann þótti mjög gjarn á að dæma menn til þ.vngstu refsingar, sem lagabókstafurinn le.vfði. Sirica dómari á heimili sinu i YVashington í fyrradag. Sovét-herskip geta lagt bandarískar borgir 1 eyði segir flotaforinginn WUliam Read WashinRton 7. október. AF. BANDARÍSKI flotafor- inginn YVilliam Read. sagði i Washington í dag, að sovézk herskip undan austurstönd Bandaríkjanna væru nægilega nálægt til að geta eyðilagt borgir í Bandarikjunum, ef til kjarnorkustyrjaldar kæmi. Read, sem er yf- irmaður Atlantshafs- flota Bandaríkjanna, sagði að hin stöðuga aukning sovézkra kaf- báta, tundurspilla og heitiskipa í Mexíkóflóa og undan austurströnd Bandarikjanna væri staðfesting á stóraukn- um flotastyrk og fram- sókn sovézka flotans. Read sagði að í júli sl. hefðu Sovétmenn siglt flotadeild inn á Mexíkö- flóa, sem hefði talið ým- is skip vopnuð eldflaug- um. Sagði hann að fyrir nokkrum árum heft ver- ið sjaldgæft að sjá sov- ézk herskip á úthöfun- um, en nú væri þau að finna á öllum heimshöf- um, mörg og velvopnuð. Hann sagði að banda- ríski flotinn teldi nú 470 herskip og auk þess ættu Bandaríkjamenn 577 kaupskip. Sambæri- legar tölur hjá Sovét- mönnum væru 1919 her- skip og 2420 kaupskip. Sagði flotaforinginn, að Bandaríkjamenn myndu standa illa að vigi i löngu striði við Sovétrikin, því að yfir- burðir Sovétmanna i flutningagetu væru svo miklir og að Sovétmenn hefðu getu til að halda þessum skipum á sigl- ingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.