Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 4

Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKT0BER 1977 blMAK 28810 24460 bílaleigan GEYSIR BORGARTÚNI 24 iömÉmm C 2 n 90 2 11 38 FERÐABÍLAR hf. Bilaleiga, sími 812G0. Fólksbílar, stationbilar, sendibíl- ar, hópferðabílar og jeppar. iR car rental ORÐ r I EYRA Stafsetningar- æfing fyrir byrjendur Sigldu Pappírar um norðurhöf áður Torfære.vingar og Borgarfslendingar litu dagsins Ijós. Söðluðu Gúmmítékkar um daginn þegar Vatnsausturrfkismenn frýðu Hjónarúmenum ogGæsar- ungverjum alls. Skriðu Skriffinnar úr eggjárnum og felldu Óþjóðverja og Andskota á eigin brögðum. (Kunnum úr miðaldasögu eftir nafna vorn Dinner.) Flugu Loftbelgar og Loðfrakkar gegnum Ijósmúr Klukkna- portúgala eins og segir nánara af f 3. bindi nútímasögu rninnar, bls. 1234, 4. línu o. áfr. Lágu Norðurpólverjar óbættir hjá Nýjagarði eins og alþjóð grunaði alltaf. Niður um höfin förum við bvggðum eins og forðum daga í kompanfi við Axlabanda- rfkjamenn. At'(«IA’SIN(»ASÍMINN KK: 22480 JH#r{)tinbI«t>tt> Útvarp Reykjavlk L4UG4RD4GUR 8. október MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Kristján Jónsson les þýðingu sfna á „Túlla kóngi“ eftir Irmelin Sandman Lilius (8). Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. Oskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristín Sveinbjörnsdóttir kynnir. Barnatími kl. 11.10: Þetta vil ég heyra. Arnar Hannes Hall- dórsson (11 ára) og Guðrún Katrín Jónsdóttir ( 7 ára) velja og flytja efni ásamt stjórnandanum, Guðrúnu Birnu Hannesdóttur. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. SÍÐDEGIÐ 14.30 Arfleifð í tónum. Bald- ur Pálmason tekur fram hljómplötur þekktra. er- lendra tónlistarmanna. sem létust f fyrra. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir 16.20 „Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands". Gunnar Stef- ánsson les úr minningaþátt- um Hendriks Ottóssonar, og fluttir kaflar úr viðtali Jón- asar Jónassonar við Hcndrik, hljóðrituðu árið 1966. 17.00 Enskukennsla í tengsl- um við kennslu í sjónvarpi, sem hófst á miðvikudaginn var og verður endurflutt kl. 18.15 þennan dag. Leiðbein- andi: Bjarni Gunnarsson menntaskólakennari. SKJÁNUM LAUGARDAGUR 8. október 1977 17.00 Iþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.15 On WeGo Enskukennsla. Fyrsti þáttur endutsýndur. 18.35 Þú átt pabha, Elfsabet Dönsk framhaldsmynd í þremur þáttum Lokaþáttur Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Söguntaður Ingi Karl Jóhannesson. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 19.00 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Undir sama þaki Íslenskur framhaldsmynda- flokkur f sex þáttum eftir Björn Björnsson, Egil Eðvarðsson og Hrafn Gunn- laugsson. 2. þáttur Dagdraumar Þátturinn verður endur- sýndur miðvikudaginn 12. október. 20.55 America (L) Hljómsveitin America flyt- ur poppmúsík. 21.40 Allra eftirlæti (Darling) Bresk bfómynd frá árinu 1965. Leikstjóri John Schlesinger. Aðalhlutverk Julie Christie, Dirk Bogarde og Laurence Harvey. Diana Scott, eftirlæti auð- manna og fyrirfólks um heim allan, rifjar upp ævi sfnaog ástir. Þýðandi Öskar Ingimarsson. 23.40 Dagskrárlok. _____________ J 17.30 Júlfferð til Júgóslavíu. Sigurður Gunnarsson fyrrum skólastjóri flytur síðari hluta ferðaþáttar síns. 18.10 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar.__________________ KVÖLDIO 19.35 Mannlíf á Hornströnd- um. Guðjón Friðriksson talar við Hallvarð Guðlaugsson húsasmfðameistara; - loka- þáttur. 19.55 Einsöngur: Maria Callas óperusöngkona syngur aríur eftir itölsku tónskáldin Bell- ini og Cherubini. Hljómsveit Scala-óperuleikhússins f Míl- anó leikur. Hljómsveitar- stjóri: Tullio Serafin. 20.25 Októberdagar á Akur- eyri 1931. Stefán Ásbjarnar- son á Guðmundarstöðum f Vopnafirði segir frá; fyrsti hluti. 20.50 Svört tónlist; - tfundi þáttur. Umsjónarmaður: Gérard Chinotti. Kynnir: As- mundur Jónsson. 21.35 „Uppþvottamaðurinn", smásaga eftir Per Olof Sund- man. Sigurjón Guðjónsson ís- lenzkaði. Pétur Einarsson leikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. Enska í sjónvarpi og útvarpi Klukkan 18.15 i dag endursýnir Sjónvarpið fyrsta þátt enskukennsl- unnar, en þættirnir hafa hlotið heitið On We Go. Þátturinn var frumsýndur sl. míðvikudag, og veröur svo með þá 29 þætti sem eftir eru að þeir verða frumsýndir á miðvikudög- um og síðan endursýndir á laugardögum. Stuttu fyrir endursýninguna eru þætt- irnir útskýrðir í hljóð- varpi, þ.e. kl. 17.00. Að sögn Björns Baldurs- sonar hjá Sjónvarpinu eru þessir þættir og þessi sam- eiginlega kennsla í útvarpi og sjónvarpi fyrsta kennsluverkefni sem út- varp og sjónvarp hafa stað- ið að saman. íþróttir kl. 17.00: Bjarni Felixson sér um íþróttaþátt að vanda kl. 17 í dag í sjónvarpinu. í spjalli við Mbl. sagði Bjarni að hann mundi sýna úr leik ÍA og Brann sem fram fór nýlega svo og mundi hann sýna úr seinni landsleik íslend- inga og Kínverja í hand- bolta. Bjarni sagði að þátturinn yrði styttri nú en venjulega vegna enskukennslunnar, en að viku liðinni hefst þáttur- inn kl. 17.30, og þá stend- ur þetta til bóta sagði Bjarni. t íþróttaþættin- um á mánudagskvöldið sagðist Bjarni sýna úr handbolta- og körfubolta- leikjum helgarinnar, en auk þess yrði hann með erlendar íþróttamyndir í bragðbæti, eins og hann orðaði það. Dirk Bogarde og Julie Cristie í hlutverkum sínum í kvikmynd kvöldsins, Allra eftirlœti. Bíómynd kvöldsins, kl. 21.40: Hún er eftirlæti auð- manna ogfyrirfólks... Sjónvarpio sýnir i kvöld kl. 21.40 brezku biómyndina Allra eftirlæti, sem er framleidd 1965, en á frummálinu heitir myndin Darling Leikstjóri myndarínnar er John Schlesinger, en með aðalhlutverkin fara Julie Christie, Dirk Bogarde og Laurence Harvey Söguþráðurinn er i stuttu máli á þá leið að glæsikvendið Diana Scott rifjar upp ævi sina og ástir, en Diana er mikið uppáhald auðmanna og fyrirfólks um viða veröld John Schlesinger leikstjóri er fæddur i Lundúnum 1926 Vann fyrst við leikstjórn i sjónvarpi áður en hann sneri sér að kvikmyndum Hlaut æðstu viðurkenningar kvik- myndaheimsins fyrir fyrstu myndina sem hann stjórnaði í Ameríku, en það var hin fræga mynd Midmght Cowboy Stundaði nám i háskóian- um í Oxford og fékk þar áhuga á leikhúsi. Lék sjálfur i nokkrum leik- ritum i sjónvarpi og i kvikmyndum áður en hann sneri sér að leikstjórn Þykir takast vel i að opna tilfinningar manna fyrir þvi stressi, þeim von- brigðum og erfiðleikum sem daglegt lif í nútima þjóðfélagi býður upp á Sú mynd sem Schlesinger hefur þótt takast einna bezt með er Sun- day, Bloody Sunday, en aðrar myndir hans eru m.a Billy Liar og From the Madding Crowd Julie Christie er fædd á Indlandi 1941 Vann 1 leikhúsum og lék í sjónvarpsþáttum að loknu námi í listaskóla, en hefur i seinni tið snúið sér meir að kvikmyndum Hlaut æðstu viðurkenningar fyrir leik sinn i Dariing, mynd kvöldsins, en hefur auk þess leikið m a i Billy Liar og Dr.Zhivago Dirk Bogarde er Englendingur, fæddur í London 1921 Af hollensk- um æftum. Hefur náð góðum árangri á leiksviðinu, en eftir her- þjónustu i seinni heimsstyrjöldinni hóf Bogarde að leika i kvikmyndum. Hefur hann þótt gera hinum fjöl- breytileguslu hlutverkum ágæt skil og er mikils metin leikari i kvik- myndaheiminum Laurence Harvey er einnig brezkur, fæddist reyndar i Litháen 1928 og bar fyrst um sinn nafnið Larushka Skikne. Varð að fikra sig upp metorðastiga leikara. fyrst á leiksviði og aukamyndum, en náði um siðir til Hollywood og hefur skapað sér þar orð sem leikari svo og sem framleiðandi og stjórnandi Helztu myndir Harveys eru Rómeó og Júlia (’54). Three Men in a Boat ('56). Room at the Top ('58), Darling ('65) (mynd kvöldsins), o.fl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.