Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977
10
íslandsmeistaramótid í sandspyrnu:
Útbúnaðurinn
annar en al-
mennt geríst
ÞAÐ er óhætt að senja að pinn-
inn hafi verið pískaður á fyrsta
Íslandsmeistaramótinu í sand-
spyrnu sem fram fór í landi
Hrauns í Ölfusi um helgina.
Þef>ar hlaðamann or Ijósmynd-
ara IVIbl. bar að garði á sandeyr-
unum þar eystra voru menn að
lokaprófa farkostina í nágrenni
keppnisbrautarinnar. Kváðu
þaðan miklar drunur og sand-
strókarnir stóðu langt og lengi
aftur úr jeppunum, fólksbflun-
um og mótorhjólunum sem þar
voru. 1 öllum hamaganginum
hafa margir bezfnlítrarnir
áreiðanlega brunnið.
Mót þetta var haldið af Kvart-
miluklúbbnum. Hefur sá
félagsskapur reyndar haldið
sams konar mót tvisvar áður á
þessum stað, en nú var haldið
íslandsmeistaramót í fyrsta
sinn. Kvartmíluklúbbnum hef-
ur nýlega áskotnazt fullkominn
rafeinda- og fótóselluútbúnað-
ur sem notaður er við svipaðar
keppnir á erlendri grund, og
sögðu framámenn ktúbbsins að
tvimælingar væru nú miklu ná-
kvæmari en áður, og reyndar
eins nákvæmar og þær nokkru
sinni gætu orðið. Að erlendri
fyrirmynd var brautin höfð
91.44 metrar, þ.e. 100 enskir
yardar. Áður hefur hún verið
100 metrar og teljast þeir tímar
sem nú náðust því vera íslands-
rhet. Talsverður mannfjöldi
horfði á keppnina, eða hátt á
annað þúsund manns.
Keppt var í þremur flokkum í
sandspyrnunni, jeppaflokki,
fólksbílaflokki og i mótorhjóla-
flokki. Sex jeppar, sex fólksbíl-
ar og níu mótorhjól tóku þátt í
keppninni. Fyrst fengu menn
að fara eina æfingaferð í braut-
inni til að kynnast hinum nýja
útbúnaði en notað var svonefnt
,,jólatré“ til að ræsa bílana, en
það er sérstök ijósaröð á láréttu
statifi. Síðan tók alvaran við, og
fóru menn brautina tvisvar í
undankeppninni. Fram var
haidið þar til þeir leiddu saman
hesta sína, sem tveimur beztu
tímunum höfðu náð í undan-
rásunum. I öllum átökunum
Dæmigerð mynd af upphafi keppni á sandspyrnumóti Kvartmfluklúbbsins. Sandurinn var tættur upp
Og honum spyrnt f loft upp Ljósm. Krislinn Ólafsson.
arútbúnaður hennar er mörg-
um framandi.
Úrslitin í keppninni urðu þau
að Hafsteinn Hafsteinsson sigr-
aði í jeppaflokki á 6.38 sek-
úndum. Ók hann Jeep árgerð
’73, en sú bifreið er með 401
rúmsentimetra AMC vél. Ann-
ar varð Helgi Ágústsson á 6.91
sek. Jeepster, árgerð ’67 og með
350 rúmsentimetra Chevrolet
vél. í fólksbílaflokknum sigraði
Hjörleifur Hilmarsson á Chevy
Nova bifreið á 7.43 sekúndum.
Vél þess farkosts er 350 rúm-
sentimetrar. Annar varð
Kristinn Kristinsson á Triumph
á 7.70 sekúndum, en véKn í
þeirri bifreið er 289 rúmsenti-
metrar. í mótorhjólaflokknum
varð Pétur Þorgrimsson skarp-
astur á 6.35 sekúndum. Ók
hann á Montesa Cappra hjóli.
Annar varð Jón Ö. Valsson á
Suzuki 370 á tímanum 6.39
sekúndum.
—ágás.
Mótorhjólakeppnin var tilkomumikil og jafnvel meira spennandi en keppnin f öðrum flokki.
Ræsirinn fylgist með að settum reglum sé framfylgt
sem keppninni fylgdi var tætt-
ur upp mikill sandur og kraft-
mestu farartækin jusu honum
yfir áhorfendur sem stóðu um
20 metra fyrir aftan rásmarkið.
Þátttakendur í sandspyrnu-
keppninni lögðu greinilega
mikið í fararskjóta sína svo að
þeir næðu sem beztum árangri í
keppninni. Voru tryllitækin því
nokkuð öðruvisi útlits en hinn
almenni vegfarandi á að venj-
ast. Á jeppunum og fólksbílun-
um voru t.d. mjög breið dekk,
felgan var í mörgum tilfellum
helmingi breiðari en gerist á
þjóðvegunum. Þá höfðu sumir,
sérstaklega jeppaeigendurnir,
brallað ýmislegt í vélum sínum
og þannig aukið kraft og
snerpu fararskjótanna veru-
lega. I fólksbílaflokknum fór
einna mest fyrir bifreið af
Triumph-gerð, en hjóla- og vél-
Hafsteinn Helgason (jeppi nær) á leið til sigurs f jeppaflokki. Fjær er Ólafur Ólafsson
... spyrnan tekin ...
Beðið á rásmarki...
... og nú er þrusað af stað