Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 18

Morgunblaðið - 08.10.1977, Side 18
18 - MORCUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8 OKTÓBER 1977 Sinfóníutónleikar Gudný (íudmundsd Hafliði Helgason Philip Jenkins HASKÖLABIÓ 6. OKT. 1977 VERKEFNI: L. v. Beethoven: Coriolan-forleikurinn Konserl fyrir fidlu, selló, planó og hljómsveil Sinfónía nr. 4 op. 60. Stjórnandi: Páll P. Pálsson Einleikarar: Gudný Gudmundsdóttir Haflidi HallKrímsson Philip Jenkins. Sinfóníuhljómsveit íslands hóf vetrarstarf sitt með tónleik- um í Háskólabíói s.l. fimmtudagskvöld. Hljómsveit- in hefur átt óvenju annríkt að undanförnu og er nýkomin úr hljómteikaför til Færeyja. Þar áður hafði hún ferðast hringinn um landíð og haldið fjölda tón- leika á ýmsum stöðum við ágætar undirtektir og góða aðsókn. Ber að fagna þessu framtaki hljómsveitarinnar og helst þyrftu slíkar ferðir að vera árviss og sjálfsagður þáttur í starfi hennar svo hún rísi í raun undir nafni. Ágætar viðtökur fólks víða á landinu afsannar þá kenningu úrtölu- manna fagurlista, að Sinfóníu- hljómsveit íslands sé aöeins fyrir fáa aristókrata í Reykja- vík. En það þarf að gera fleira. Ymsir þættir í starfi hljóm- sveitarinnar eru alls ekki í nógu góðu lagi og vil ég þar nefna t.d. fjölskyldu- og skóla- tönleikana, sem löngum hafa veriö hornreka. Þó ætti að liggja í augum uppi hve mikil- vægt atriðí hér um ræðir hvað varðar tónmennt skólaæskunn- ar og gildir raunar framtíð hljómsveitarinnar miklu. I bæklingnum, þar sem verkefni komandi vetrar eru kynnt, er að vísu getið um að halda eigi fjölskyldu- og skólatónleika, en hvorki hafa dagsetningar verið ákveðnar né heldur viðfangs- efni. Ætti þó að vei,'a auðvelt skipulagsatriði að ganga frá hvoru tveggja að hausti til hag- ræðis fyrir þá uppalendur, sem hvetja vílja ungviðið til að Tónllst eftir EGIL FRIÐLEIFSSON sækja tónleika og kynna það sem fram á að fara. Er hér með skorað á forráða menn hljóms- veitarinnar að gefa meiri gaum að þessum málum og taka þau fastari tökum. Svo aftur sé vikið að bæklingnum virðist þar fátt um nýjungar. Hlutur íslendinga, hvort heldur um er að ræða tónskáld eða ein- leikara, er heldur rýr í verk- efnaskrá vetrarins og samtíma- tónlist virðist ekki eiga sér málsvara marga. Hins vegar ber að fagna ráðningu Páls P. Pálssonar í stöðu aðalhljóm- sveitarstjóra. Páll hefur á und- anförnum árum margsannað hæfni sina og gefur i engu eftir flestum þeim útlendu stjórn- endum, sem hér hafa starfað. Tónleikarnir á fimmtudags- kvöldiö voru um margt mjög ánægjulegir. Hljómsveitin lék nú mun betur en oft áður í byrjun vetrar, enda haldið fjölda tónleika að undanförnu svo sem áður var að vikið. I upphafi minntist Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri tveggja nýlátinna manna, sem mjög hafa komið við sögu hljómsveitarinnar, Þeirra Gunnars Vagnssonar fram- kvæmdastjöra og Vilhjálms Guðjónssonar klarinettleikara. Blásarasveit lék Rondino eftir Beethoven og tónleikagestir risu úr sætum í viröingarskyni við hina látnu. Að þessu sinni voru viðfangsefni kvöldsins eingöngu eftir Beethoven og var það vel viðeigandi því 150 ár eru nú liðin frá andláti meistarans. Alvöruþrungið upphafsstef Coriolan forleiks- ins minnti á stórbrotinn anda mikilmennisins og var ágætlega flutt af hljómsveitinni undir röggsamri stjórn Páls. Þrí- konsertinn fyrir fiðlu, selló, píanó og hljómsveit er heldur fáheyrt verk og e.t.v. ekki jafn spennandi og ýmsir aðrir konsertar Beethovens. Einleik- arar voru þau Guðný Guðmundssóttir, Hafliði Hallgrímsson og Philip Jenkins. ÖIl eru þau listamenn í fremstu röð, sem mikið hefur kveðið að i tónlistarlífinu und- anfarin ár, enda vai’ samleikur þeirra með miklum ágætum. Samvinna einleikara og hljöm- sveitar var í góðu jafnvægi og konsertinn fluttur af öryggi og þrótti. Sömuleiðís tókst flutníngur 4. sinfóníunnar vel, ekki síst fjörugur lokaþáttur- inn. EgiII Friöleifsson. Vetrarstarf frímerkjasafn- ara að hefjast Allan síðastliðínn vetur ritaði ég hálfsmánaðarlega hér í blaðið þátt um frimerki og frímerkjaefm Var þessum þáttum haldið reglulega fram á vor, en þá fóru þeir að vonum að strjálast Þó birtust þrír þættir frá mai og fram að 9 júli, og voru þeir að mestu helgaðir 20 ára afmæli Félags frimerkjasafnara og sýnmgunni Frímex 77, sem haldin var af þvi tilefni Þess hefur nú verið farið á þeit við mig, að ég sjái enn um frimerkja- þætti Mbl , og hef ég orðið við þeirri ósk Ég gat þess, er ég hóf að rita þættina í október í fyrra. að ég hefði vissulega n^egilegt fyrir stafni á öðr- um vettvangi, og svo er í rauninni enn Vel má samt vera, að ég hafi e t v heldur rýmri tíma til að sinna þáttunum næstu mánuði en oft áður, og hafði það nokkur áhrif á, að ég lét til leiðast að annast þá Hitt vó emnig allþungt á metunum, að ég varð þess var i fyrra. að frimerkja- safnarar sýndu þáttunum oft veru- legan áhuga — og jafnvel aðrir lesendur blaðsins lika Slikt verður auðvitað hverjum manni hvatning til þess að freista þess að hafa fjöl- breytni eins mikla og kostur er á Öllu eru þó takmörk sett, og ágætur málsháttur segir, að betur sjái augu en auga. A þetta minni ég einkum vegna þess, að ég hóf ein^pitt fyrsta þáttinn fyrir ári með hvatningu til lesenda að auka fjölbreytni þáttanna með þvi að senda stuttar greinar um frímerki eða fyrirspurnir, sem síðar yrðu birtar og gætu jafnframt gefið tilefni til umræðna um ákveðna hluti Þvi miður urðu undirtektir undir þessa bón mína næsta litlar, og þess vegna nefni ég þetta enn einu sinni í von um einhvern árang- ur Þá vil ég enn fremur minna á það, sem sjálfsagt er að taka til umræðu í þáttum þessum, en það er starfsemi Frfmerki eftir JÓN AÐAL- STEIN JÓNSSON félaga og klúbba um land allt Bind ég töluverðar vonir við jákvæðar undirtektir undir þetta mál Bar þetta vissulega árangur í fyrra, og má þar nefna þátt frá 19 marz sl , þar sem m a var sagt frá starfsemi þingeyskra frímerkjasafnara og m a útgáfu sérstakrar árbókar Eins var greint frá starfi safnara í Hafnarfirði og Garðabæ Von mín er sú, að töluvert efni berist til frásagnar frá félögum og klúbbum, og er lítil hætta á, að því verði úthýst úr þáttum þessum! í síðasta þætti frá 9 júlí sl var einkum rætt um Frímex 77, en sú sýnmg heppnaðist mjög vel að allra dómi, enda var hún fjölsótt Jafn- framt var þá getið um landsþing Landssambands íslenzkra frimerkja- safnara, sem var hið tíunda i röðinni og haldið í beinum tengslum við frímerkjasýninguna Hið merkasta, sem gerðist á því þingi, var vitan- lega innganga F F i sambandið Allir islenzkir frímerkjasafnarar fagna þeirri þróun mála, enda enginn efi á. að þetta á eftir að hafa mikil og góð áhrif á samvinnu og samheldni frímerkjasafnara hér á landi. Þegar þetta er ritað, hefur stjórn L í F haldið tvo fundi á þessu hausti Var þar m a rætt um vænt- anlegt vetrarstarf, en það hlýtur einkum að felast i leiðbeiningar- og fræðslustarfi og svo aðstoð við aðildarfélög sambandsins, ekki sizt úti á landi Mun fyrst reyna á þetta í sambandi við Dag frimerkisins, sem verður að þessu sinni haldinn 8 nóvember n.k. og með hefðbundn- um hætti Síðar verður sagt nánar frá honum, þegar íslenzka póst- stjórnin hefur sent út tilkynningu um hann og sýnishorn af sérstimpli þeim, sem nota á við aðalpósthúsið í Reykjavik F.F. hóf vetrarstarf sitt með fundi 22 sept sl., og var hann fjölsóttur Hafa allmargir nýir félagar bætzt við síðustu msnuði, og er enginn efi á, að afmælissýningin i sumar hefur örvað ýmsa til að ganga i félagið Er -það vel, og um leið er vonandi, að önnur frímerkjafélög hafi svipaða sögu að segja Á þessum fundi sýndi Hjalti Jóhannesson kvikmynd, sem hann tók á Frímex 7 7, bæði við opnun og eins siðar Var myndin hin fróðleg- asta og víða mjög vel tekin Er vonandi. að þetta framtak Hjalta verði til þess. að slikar heimildar- kvikmyndir af frímerkjasýningum hér á landi verði teknar og þá helzt á vegum frimerkjafélaga eða L.Í.F., svo að þær verði varðveittar á einum stað Ekki er mér kunnugt um, að þess konar kvikmyndir hafi áður verið teknar á sýningum hérlendis, þegar Islandia 73 er undanskilin Svo sem alkunna er, stóð islenzka póst- og símamálastjórnin að þeirri sýningu i samvinnu við islenzka frí- merkjasafnara Ekki veit ég, hvernig til tókst með þá kvikmyndagerð, sem þá fór fram, þvi að ég hef ekki orðið var við. að sú mynd hafi verið sýnd söfnurum Aftur á móti er mikið til af föstum myndum frá fyrri frímerkjasýning- um, bæði svarthvítum og í lit, og hefur Sigurður Ágústsson verið langdrýgstur við þær myndatökur, svo sem félagar í F.F vita vel Þessar myndir hafa mikið minja- og heimildagildi. þegar fram líða stundir Á þessum fyrsta fundi í F F sýndi Sigurður og nokkrir aðrir félagar myndir sínar frá Frímex '77 Að vonum var góður rómur gerður að myndasýningum þessum, enda er ævinlega gaman að hafa eitthvert annað efni með á fundum en sjálf frímerkin, þótt þau séu alltaf kjarni hvers fundar Eftir þessum fyrsta fundi F.F að dæma er ekki annað sýnt en áhugi sé enn vaxandi á frímerkjasöfnun hér sem annars staðar Þá er unglingastarf einnig hafið á vegum F.F., en umsjón með því hefur Guðmundur Ingimundarson Hefur hann haft þetta starf með höndum undanfarin ár og rækt það með mikilli prýði og af áhuga í sambandi við unglingastarfið á hér við við að geta þess. að kennslubók sú í frimerkjasöfnun, sem ég gat um í júlíþæ4ti minum, að út væri að koma á vegum L Í.F., er komin á markaðinn fyrir nokkrum vikum Höfundur hennar er Sigurður H Þorsteinsson skólastjóri Er mér tjáð, að bókin seljist vel, og bendir það eindregið til þess, að þörf sé slíkrar bókár fyrir byrjendur í frímerkjasöfn- un Þegar þættir þessir hófust haustið 1975, var oft getið um frímerkjaút- gáfu á öðrum Norðurlöndum sam- hliða frásögnum af útkomu nýrra islenzkra frímerkja Þetta var hins vegar fellt niður síðastliðinn vetur af ástæðum, sem nefndar voru i fyrsta þætti. sem sé þeim, að ýmsir safnar- ar, er ég hitti á förnum vegi, álitu þetta óþarft, þar sem menn hefðu greiðan aðgang að upplýsingum um frimerkjaútgáfur í frimerkjablöðum Vissulega er þetta rétt, en engu að siður getur það ekki spillt, þótt minnzt sé á frímerki næstu ná- granna okkar, a m k við og við Verður sá háttur því tekinn upp að nýju á þessum vettvangi i einhverri mynd Nýtt frímerki 1 6. nóv. Næsta frímerki íslenzku póst- stjórnarinnar kemur út 1 6 nóv nk Er það gefið út í sambandi við hið alþjóðlega giktarár 1977, en það hefur hlotið stuðning Alþjóðaheil- brigðismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (WHO) Verðgildið verður 90 kr . en það er tvöfalt burðargjald bréfa innanlands og til Norðurlanda (frá 20g til 10Og að þyngd) Svo sem sjá má af mynd merkisins er hún táknræn fyrir hverahitann hér á landi og sýnir. hvernig hann kemur úr iðrum jarðar og er svo m.a notaður til giktlækninga Merkið er teiknað af Friðriku Geirsdóttur aug- lýsingateiknara Ekki mun von á fleiri merkjum frá póststjórninni fyrir áramót Ný frímerki í Svíþjóð Hér vil ég svo að endingu geta þess, að í dag koma út fimm ný frimerki i Svíþjóð, og eru þau helg- Framhald á bls. 37. Sænsku merlcin. Dagur frímerkis- ins 8. nóvember

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.