Morgunblaðið - 08.10.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977
19
Grænland og EBE:
Landsstjómin óskar
viðræðna við Dani
um endurskoðun
LANDSSTJÓRNIN í
Grænlandi hefur óskað
eftir því við ríkisstjórn
Danmerkur að hafnar
verði viðræður til að end-
urskoða stöðu Grænlands
innan Efnahagsbandalags-
ins, sérstaklega með tilliti
til stefnunnar í fiskveiði-
málurn. í þessu sambandi
hefur forseti landsstjórn-
arinnar, Chemnitz, lýst því
yfir að frá sjónarmiði
Grænlendinga sé fiskveiði-
stefnan „misheppnuð".
Fram til 1. maí 1979 hefur
landsstjórnin takmörkuð áhrif og
ákvörðunarvald, en þá fær Græn-
land sjálfsstjórn. Grænlendingar
hyggjast efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðildina að EBE er
þeir hafa fengið sjálfsstjórnar-
réttindi. Hefur Chemitz látið hafa
eftir sér að Grænlendingar muni
án efa hafna EBE-aðild ef Danir
og þó einkum Efnahagsbandalag-
ið breyti ekki um afstöðu varð-
andi Grænland.
Kína og Sovét:
Samkomulag um
fjarskipti í „ýms-
um atriðum”
Tokýó — 7. október — AP.
SAMKOMULAG um „ýmis áriði"
náðist á 20. ráðstefnu Kínverja og
Sovétmanna um fjarskipti á fljót-
um og skipaskurðum á landamær-
um rfkjanna, að því er hin opin-
bera fréttastofa Kínverja, Hshin-
hua, skýrði frá í dag. Ráðstefnan
var haldin i Heido, sem er í
Norður-Kína, frá 27. júlí til 6.
október.
1 frásögn Hshinhua kemur ekk-
ert fram um efnisatriði samkomu-
lagsins, en skýrt er frá því að
næsta ráðstefna um sama mál
verði haldin i Sovétríkjunum og
muni nánari viðræður fara fram
um fundartíma.
Ráðstefnan nú er hin fyrsta
sem haidin er í þrjú og hálft ár.
Östaðfestar heimildir herma að
það hafi verið Kínverjar sem stað-
ið hafi fyrir því að svo langt hlé
varð á viðræðum um málið, en alll
frá árinu 1951 þegar Kínverjar og
Sovétmenn gerðu með sér samn-
ing um skipulag fjarskiptamála á
iandamærunum, var þingað ár-
lega fram til ársins 1974, með
þeim undantekningum að viðræð-
um var aflýst þegar menningar-
byltingin hófst i Kina árið 1968 og
þegar blóðug átök urðu milli
herja ríkjanna við Ússúri-fljót ár-
ið 1969.
Owen til
Sovét
Lundúnum — 7. októbcr — Rcutcr.
UM HELGINA leggur David
Owen, utanríkisráðherra Breta,
af stað í fyrstu heimsókn sína til
Moskvu eftir að hann tók sæti í
brezku stjórninni. Tilgangur
hans með ferðinni er að kynna
W/
ERLENT,
sér afstöðu sovézku stjórnarinnar
til alþjóðamála, eins og þau horfa
við um þessar mundir.
Búizt er við þvi að Owen færi i
tal við sovézka ráðamenn málefni
fólks, sem á undanförnum árum
hefur árangurslaust farið þess á
leit við Sovétstjórnina að fá að
fara til Bretlands til ættingja
sinna. Fyrir skömmu lagði brezka
sendiráðið fram lista yfir viðkom-
andi fjölskyldur fyrir sovézk
stjórnvöld.
Areiðanlegar heimildir herma
að Owen hafi huga á þvi að ræða
þróun mála í Afríku sunnan-
verðri við Sovétstjórnina. Hann
mun eiga fundi með Andrei
Gromyko utanríkisráðherra og er
búizt vð þvi að viðræður þeirra
muni ekki sízt snúast um mann-
réttindi og slökunarstefnu.
Grubbs vill halda
áfram að fljúga
Griffin, Georgíu —
7. október — AP
VICTOR Grubbs, flugstjóri
Pan American breiðþotunnar,
sem rakst á aðra breiðþotu á
Tenerife-flugvelli í vor, með
þeim afleiðingum að 580
manns létu Iffið, heful- lýst því
yfir að hann langi til að byrja
að fljúga á ný. Grubbs kvaðst
ekki vita hvenær læknar teldu
hann færan um að hefja störf
að nýju, en frá því að sl.vsið átti
sér stað í marz hefur hann að
niestu náð sér eftir alvarlegan
bruna á baki og handlegg.
1 fréttaviðtali vildi Giubbs
ekki ræða slysið sem slíkt, en
það var hið mannskæðasta i
flugsögunni. Grubbs skýrði frá
þvi hvernig honum tókst að
komast út úr brennandi þot-
unni. 1 fyrstu ætlaði hann að
komast út um hliðarglugga
flugstjórnarklefans, en glerið
reyndist of þykkt til aó hann
gæti mölvað það. Þá fór hann
aftur í farþegarýmið þar sem
allt var i björtu báli. Hann
minnist þess þá að hafa látið
sér til hugar koma að stökkva
niður á jörðina en hafa gert sér
grein fyrir því að fallið yrði of
hátt. Það næsta sem Grubbs
getur rifjað upp frá björgun-
inni er að skyndilega lá hann á
hnjánum á jörðinni. Þegar
hann haföi svo áttaó sig sneri
hann sér að því að aðstoða far-
þega við að komast frá
brennandi flakinu.
Brókin af
Viktoríu
drottningu
slegin á upp-
boði fyrir
160 pund
Lundúnum — 7. okt. — AP.
NÆRSKJOL, sem á sínum tíma
var f eigu Viktórfu Englands-
drottningar var selt á uppboði í
Lundúnum í dag fyrir 160 sterl-
ingspund, eða sem svarar tæp-
um 60 þúsund krónum fslenzk-
um. Kaupandinn, frú Edone
Adderley, kvaðst hafa keypt
flíkina sem nokkurs konar
minjagrip um drottninguna.
Við nánari umfjöllun kom í
Ijós að henni leizt ekki á þá
hugmynd að hafa brókina sem
veggskraut á heimiii sínu, held-
ur bjóst hún við að sýna hana
aðeins útvöldum vinum, en
geyma hana sfðan sveipaða
silkipappfr.
„Kannski ég bregði mér ein-
hverntima i buxurnar," sagði
frúin en mittismál hennar er
um hálfum metra minna en um-
mál buxnastrengsins — 115
sentimetrar — gefur til kynna
um mittismál drottningarinnar.
Samkvæmt því má ætla að pær-
skjólið hafi drottning átt þegar
aldurinn var farinn að færast
yfir hana því að á sokkabands-
árunum var til þess tekið hve
mitti hennar var grannt.
Eitt er vist. Þeim, sem uppi
voru á Viktoriutimunum, hefði
ekki dámað við þessi tíðindi,
þvi að þeir voru svo blygðunar-
samir að þeir þoldu ekki einu
Frú Edone Boughton Adderlay, sem keypti brækur hennar hátignar sinni að sjá stólfætur i nekt
Viktorfu drottningar Englands, sýnir hér fréttamönnum tfzkuna f sinni, heldur huldu þá með
undirfatnaði kvenna á þeim tfmum. simamynd ap. dúkum.
Pillan fimmfaldar hættu á æða-
sjúkdómum í konum yfir 35 ára
samkvæmt brezkri könnun
KONUR yfir 35 ára aldri, sem
taka eða hafa tekið getnaðar-
varnapillur, eru fimm sinnum
líklegri til að deyja af völdum
æðasjúkdóma en þær sem aldrei
hafa tekið pilluna, að þvf er fram
kemur f niðurstöðum könnunar.
sem tók til 63 þúsund brezkra
kvenna á nfu ára tímabili. Niður-
stöðurnar hafa nú birzt í brezka
læknaritinu Lancet.
Könnun sú, sem hér um ræðir,
fór fram á vegum tveggja háskóla-
stofnana, og bar niðurstöóum
þeirra saman.
Af pilluneytendum á aldrinum
35 til 44 ára deyr ein kona af
hverjum 3 þúsund af völdum æða-
Victor Grubbs á sjúkrabörum
eftir slysið.
Eftir slysið var Grubbs í
sjúkrahúsi um sjö vikna skeið,
illa haldinn af brunasárum,
sem nú eru að mestu gróin.
Flugstjóri KLM-þotunnar, sem
rakst á Pan Am-þotuna, lét lífið
að þvi að talið er samstundis og
þoturnar skullu saman.
sjúkdóma, og er reykingakonum
eða þeim sem tekið hafa pilluna i
fimm ár eða lengur mun hættara
en öðrum. Eftir að konur, sem
taka pilluna, eru orðnar 44 ára,
hækkar hlutfallið til muna, en þá
deyr ein af hverjum 700 úr æða-
sjúkdómum.
Þeim, sem eru undir 35 ára
markinu, er siður hætt, en þá
deyr aðeins ein af hverjum 20
þúsundum.
í greininni í Lancet þar sem
grein er gerð fyrir niðurstöðum
þessara rannsókna kemur fram að
ætla megi að hætta á æðasjúk-
dómum sé áfram fyrir hendi þótt
konur hætti að taka inn pilluna,
en ekki liggur ljóst fyrir hversu
lengi. Tveir virtir læknar, Ekjé
Kuenssberg og Sir John Dew-
harst, sem beðnir voru um að
segja skoóun sina á niðurstöðum
rannsóknanna, ráðleggja konum
yfir 35 ára aldri eindregið að
íhuga hvort þær eigi að halda
áfram að taka pilluna, en um leið
töldu þeir ekki ástæðu til að kon-
ur hættu aó taka þetta getnaðar-
varnalyf fyrr en þær hefðu orðið
sér úti um annað betra. Þeim bar
saman um að engin ástæða væri
til þess að konur undir þritugu
hættu pillutöku.
Blökkumannaleiðtoginn Steve
Biko, sem lézt í fangelsi í síðasta
niánuði, hafði greinilega skadd-
azt á heila og skrámazt áður en
Samkvæmt niðurstöðum líða
nokkur ár fra þvi að konur taka
að neyta pillunnar þar til hætta
eykst á æðasjúkdómum.
Trudeau
friðmælist
við Levesque
Oltawa — 7. októhcr — Rcutcr.
PIERRE Trudeau, forsætisráö-
herra Kanada, lýsti í dag yfir
breyttri afstöðu sinni til deilu,
sem staðið hefur um hvort
franska skuli vera hið opinbera
tungumál Quebec-búa. Trudeau
kvaðst ekki mundu beita neitun-
arvaldi sinu gegn frumvarpi
Quebec-stjórnar um aö franska
skuli verða hið opinbera tungu-
mál. Hann skoraði á forsætisráð-
herra Quebec, René Levesque,
sem er mjög eindreginn aðskiln-
aðarsinni. að hefja samvinnu við
Kanada-stjórn urn að jafna
ágreining þann, sem ríkt hefur
um hvaða mál skuli rétthæst i
Quebee, um leið og hann kvaðst
þvi ekki meðmæltur að málið yrði
útkljáð fyrir æðsta dömstóli
Kanada.
andlátið bar að, að þ\I er lilaðiö
Rand Daily Mail í Jóhannesar-
borg skýrir frá í dag.
Blaðið byggir frásögn sina á við-
Franihald á bls. 22.
Sex s-afrískir læknar:
Biko með heilaskemmd
og skrámur fyrir andlátið
JóhanncsarhorK. 7. okt. — AP.