Morgunblaðið - 08.10.1977, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1977
21
I Útgefandi uWaíjilli hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðr^undsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, slmi 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6. slmi 22480.
Áskriftargjald 1500.00 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 80.00 kr. eintakið
Misgengi stjórn-
arandstöðu
Stjórnarandstaða hefur þýðingarmiklu hlutverki að
gegna í lýðræðisþjóðfélagi. Henni ber ekki einvörðungu að
halda uppi málefnalegri og marktækri gagnrýni á stjórnarstefnu
og stjórnaraðgerðir, þótt það sé ein af þingræðislegum skyldum
hennar Stjórnarandstöðu ber jafnframt og ekki síður að leggja
fram eigin stefnumörkun og eigin tillögur til úrbóta i viðfangsefn-
um og vandamálum liðandi stundar Það er á þessum vettvangi
sem stjórnarandstaða á íslandi hefur brugðizt. Gagnrýni hennar
hefur verið yfirborðskennd og persónuleg fremur en málefnaleg;
öfgum þrungin fremur en marktæk. Hitt er þó enn verra að
stjórnarandstaðan hefur gjörsamlega burgðizt því meginhlutverki
sinu að leggja fram eigin tillögur i viðfangsefnum liðandi stundar
— þann veg að hinn almenni borgari i þjóðfélaginu hafi
samanburð á tiltækum leiðum í aðsteðjandi vanda samfélagsins.
Það er sanngjörn krafa af hálfu einstaklinganna i þjóðfélaginu
— á hendur stjórnmálaflokkum — að þeir setji fram á hverjum
tíma skýra stefnumörkun og valkosti í viðfangsefnum samtímans,
þann veg að kjósandinn viti ótvirætt, hvað hann er að fara eða
kjósa yfir sig, er hann greiðir atkvæði Og það er skylda
stjórnmálaflokka að standa við þá stefnumörkun, sem fylgi þeirra
byggist á. Það hefur hins vegar alltof oft brugðizt. Samstarfs-
stjórnir flokka. er hafa ólik sjónarmið i ýmsum efnum, réttlæta að
vísu vissa tilslökun. Sú skýring nægir þó hvergi nærri alltaf, þegar
eitt er sagt fyrir kosningar, en annað gert eftir þær.
Nærtækast dæmi um það, að fyrirheit og efndir stangist á, eru
gjörðír Alþýðubandalagsins á tímum vinstri stjórnarinnar síðari.
Þeir sögðust vera verkalýðsflokkur, talsmenn Alþýðubandalags-
ins, og andvígir því, er þeir kölluðu „íhaldsúrræði" í efnahagsmál-
um. Þeir felldu hins vegar gengi íslenzku krónunnar, hækkuðu
söluskatt og stóðu að verðjöfnunargjaldi á raforku, er allt stuðlaði
að hærra verðlagi í landinu og rýrði kaupmátt almennra launa. Og
þeir rufu tengsl verðlags og launa með afnámi þeirra tíma
kaupgjaldsvísitölu Þeir sögðust vera andvigir stóriðju, Alþýðu-
bandalagsmenn, en tengdu saman Sigölduvirkjun og járnblendi-
verksmiðju í Hvalfirði. Þeir völdu bandaríska auðhringinn Union
Carbide sem sameignaraðila að járnblendiverksmiðju og hófu
samningaviðræður við þennan valkost sinn, þótt hann heltizt
síðar úr lestinni. Þeir sögðust framverðir í landhelgisbaráttu,
Alþýðubandalagsmenn, en allt þinglið þeirra greiddi atkvæði með
veiðiheimildum 139 brezkra togara árið 1973, til 2ja ára, innan
„50 mílna markanna" Og hvernig var „barátta" þeirra fyrir 200
mílunum? í tveimur vinstri stjórnum sátu þeir, Alþýðubandalags-
menn, innan Atlantshafsbandalagsins og við óbreytt ástand á
Miðnesheiði Það er e.t.v. sá „Evrópukommúnismi", sem þeir
telja sig nú hafa flutt út til Ítalíu og Frakklands. Fleira mætti
eflaust til tfna, en nóg er gert, svo augljós séu „heilindin".
Þeir stjórnmálaflokkar, sem í stjórnarandstöðu eru í dag:
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Samtök frjálslyndra og vinstri
manna, hafa ólík viðhorf til mjög margra mála Þeim hefur ekki
tekizt að mynda sameiginlega stefnu i neinum þjóðmálaatriðum,
sem máli skipta. Sama er, hvort horft er til vanda efnahagslífs
okkar, verðbólguvaxtarins, kjördæmamálsins, skattamála — eða
mótunar utanríkisstefnu, t.d afstöðunnar til Atlantshafsbanda-
lagsins, hvarvetna er skoðanalegt misgengi, sem oft leiðir til
„jarðhræringa" i liði stjórnarandstöðunnar og leirskvettugosa
talsmanna þess, hvers í annars garð Það virðast því ekki miklar
líkur á þvi að þessum flokkum takist að ná saman, málefnalega,
eða að forvígismenn þeirra séu æskilegur efniviður til að mynda
starfhæfa heild, er stýrt geti þjóðarskútunni heilli i höfn framtiðar
velfarnaðar. Ekki mundi Mbl. treysta slikri „samstöðu" fyrir
fjöreggi þjóðarinnar.
Eftir helgina hefst 99 löggjafarþing þjóðarinnar, hið siðasta á
þessu kjörtímabili Framundan er kosningaár með tvennum
kosningum; fyrst til sveitarstjórna og síðan til Alþingis. Hætt er
við að störf þingsins beri vott kosningaársins, sem framundan er.
Málatilbúnaður verður því væntanlega með meira móti. Kannski
verður þá fremur horft til framboðs og fylgis en nauðsynlegra
aðgerða, er oft þykja ólíklegar til lýðhylli, einkum af hálfu
stjórnarandstöðu Slík sýndarmennska í þjóðmálum er tíma-
skekkja, er mikill meirihluti landsmanna sér i gegn um. Þorri
almennings gerir þá kröfu til þingmanna, jafnt úr stjórnarand-
stöðu sem stjórnarliði, að störf þeirra mótist af þjóðfélagslegri
ábyrgð og skyldum við fólk og framtíð í því efni dugar enginn
leikaraskapur, heldur heiðarleg viðleitni til að láta gott af sér
leiða
Ef flokkar stjórnarandstöðunnar ætla að viðhalda sams konar
starfsháttum á komandi þingi og það sem af er kjörtimabilinu,
verða þeir hver um sig og þó sér í lagi sem samstarfsheild lélegur
valkostur í augum þjóðhollra manna.
Hér fer á eftir níunda viðtal Morgunblaðsins við
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem er
liður í þeirri borgarmálakynningu blaðsins, er hlotið
hefur samheitið „Við stjórnvöl borgar“. Rætt er við
yngsta borgarfulltrúann, Davíð Oddsson, sem er formað-
ur Æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar og framkvæmda-
stjórnar Listahátíðar í Reykjavík 1978 en varaformaður
bygginganefndar borgarleikhúss og hússtjórnar Kjar-
valsstaða. Rætt er um menningarmál í Reykjavík, æsku-
lýðsmál og stjórnkerfi borgarinnar, sem er opnara og
lýðræðislegra en margur maðurinn gerir sér grein fyrir.
Margvislegur stuðn-
ingur Reykjavíkur við
menningarmál
og æskulýðsstarf
þessi tvö sjónarmið. Listahátíð og
bygging borgarleikhúss eru að
minu mati dæmi um góð sam-
skipti sem borgaryfirvöld hafa átt
við íslenzka listamenn.
Kjarvalsstaðir er tvímæialaust
fullkomnasta myndlistarhús hér á
landi. Þar er haldið uppi kynn-
ingu á verkum meistara Kjarvals,
bæði þeim, sem eru í eigu borgar-
innar, og í eign annarra. Hins
vegar er stefnt að þvr að gefa sem
flestum íslenzkum listamönnum
tækifæri til að koma verkum sín-
um þar á framfæri. — Bitur deila
reis um Kjarvalsstaði á s.l. ári,
einkum um það, með hvaða hætti
skyldi velja verk til sýningar í
húsinu. Ég var i hópi þeirra, sem
vildu fara vægt í sakir og gæta
þess að engir Stóru-dómar yrðu
felldir að óþörfu. Lyktir þeirrar
deilu urðu þær, að sett var á lagg-
ir listaráð (skipað 4 fulltrúum
iistamanna og 3 frá borginni). Þó
að ég hafi verið andvígur því
fyrirkomulagi ber að viðurkenna
að listráð hefur hvergi nærri ver-
ið eins þröngsýnt í vali sínu og
ákvörðunum og fyrri sýningar-
nefnd var. Hinsvegar er enn ekki
komin full reyrtsla á þetta fyrir-
komulag. Rétt kann því að vera að
framlengja gerðan samning um
ár, til að láta enn frekar á sam-
starfsvilja aðila reyna.
Reykjavíkurborg hefur átt stór-
an hlut í rekstri Sinfóníuhljóm-
sveitar um langt árabil. Þessi
hlutdeild hefur þó verið laus i
reipum. Ýmsum hefur þött sem
Reykjavíkurborg axlaði þar of
stóran bagga, en hún ber 21.4%
menningarmála. Þar má nefna
listaverkakaup, sem fara vaxandi,
stuðning við tónlistaskóla, og ým-
is konar áhugasamtök í borginni.
Æskulýðs-
starfsemi í
höfuðborginni
Sp.: 1 hverju felst starfssvið
Æskulýðsráðs Re.vkjavíkurborg-
ar?
Sv.: Reykjavikurborg heldur
uppi öfiugu æskuiýðsstarfi, sem
æskulýðsráð sér um, i umboði
borgarráðs. Starfsstöðvar æsku-
lýðsráðs eru nokkrar: 1) Félags-
miðstöð í Fellahelli (Breiðholti
III), sem tók til starfa í nóvember
1974; félagsmiðstöð i Bústaða-
kirkju, Bústaðir, fyrír Bústaða —
og Fossvogshverfi (rekin í sam-
vinnu við sóknarnefnd, 3) Tóna-
bær, skemmtistaður ungs fólks;
4) Siglingaklúbbur, með aðstöðu í
Nauthólsvík; 5) Saltvík á Kjalar-
nesi, sem töluvert er Iánuð til
helgardvalar fyrir ýmsa félags-
hópa. Þar er jafnframt skóli í
hestamennsku (reiðskóli), í sam-
vinnu við hestamannafélagið Fák
og 6) höfuðstöðvar æskulýðsráðs
að Fríkirkjuvegi 11. Þar er einnig
lánað út húsnæði til ýmissa
áhuga-aðila: jazzklúbbs, leik-
listarklúbbs, ungtemplara, til
fundahalda o.sv.frv.
Þessa dagana stendur yfir út-
boð á nýrri félagsmiðstöð i Ar-
bæjarhverfi. Þá hefur æskulýðs-
ráð hafið samvinnu við knatt-
Frá sumarstarfi æskulýðsráðs I Bústaðahverfi.
Menningarmál
og afskipti
borgarstjórnar
af þeim
Árfundur æskulýðsfélaga I Reykjavík í Bústöðum. Davfð I ræðustól.
Sp.: Hverjir eru helztir þættir í
menningarmálaafskiptum borg-
aryfirvalda?
Sv.: Reykjavíkurborg hefur
sinnt menningarmálum í ríkara
mæli en flest önnur sveítarfélög
hérlendis — og jafnvel í ná-
grannarikjum okkar. Lætur nærri
að 5.5% af heildarútgjöldum
borgarinnar hafi verið varið til
menningarmála, sem er hátt hlut-
fall. Stærstu þættirnir i menn-
ingarviðleitni borgarinnar eru:
borgarleikhús (Leikfélag Reykja-
víkur), bókasöfnin, listahátið,
Sinfóníuhljómsveit, myndlistahús
(Kjarvalsstaðir) og styrkir við
margháttaða menningarstarfsemi
áhugaaðila.
Hafnar eru byggingafram-
kvæmdir við borgarleikhús í nýja
miðbænum. Þegar hefur verið
steypt botnplata þess. Reykjavik-
urborg hefur nú þegar varið um
100 m.kr. til undirbúnings og
framkvæmda við borgarleikhúsið.
Segja má að byggt verði af stór-
hug og framsýni. Hinsvegar hefur
borgin flýtt sér hægt, enda hér á
ferð umfangsmikil og kostnaðar-
söm framkvæmd, sem tekið hefur
mikinn tima að undirbúa og verð-
ur ekki lokið i neinu hasti. Leik-
félag Reykjavíkur leggur hús-
byggingarsjóð sinn óskiptan til
þessara framkvæmda* en leikarar
þess og annað starfsfólk hafa lagt
fram ómælda vinnu til eflingar
hans. Meginhluti kostnaðar kem-
Davíð Oddsson borgarfulltrúi.
Myndin er tekin á fundi í
borgarst jórn Reykjavíkur.
ur þó i hluta Reykjavíkurborgar,
sennilega vel yfir 90%.
Reykjavikurborg átti mestan
þátt í því, að efnt var til lista-
hátíða hér, en þær eru haldnar
annað hvert ár. Að listahátið
standa 3 aðilar sameiginlega:
borgin, ríkið og félög íslenzks
listafólks. Hún hefur tvíþættan
tilgang. Annarsvegar að kynna
það, sem á hverjum tima er að
gerast á listasviði í veröldinni, til
uppbyggingar og örvunar hér
heima. Hinsvegar ð kynna það
bezta og ferskasta í islenzkri list.
Tekizt hefur allvel að samræma
Opið og lýðræðislegt
stjórnkerfi borgar
rekstrarhalla Sinfóníuhljómsveit-
ar Islands, samkvæmt gömlu,
munnlegu samkomulagi (en ríkis-
sjóður og ríkisútvarp eftirstöðv-
ar). Önnur nágrannasveitarfélög,
er hljómsveitir þjónar ekki siður
en Reykjavík, bera engan kostnað
af henni. Reyndar hafa komið
fram i borgarstjórn tillögur um,
að borgin hverfi alfarið frá
rekstrarframlagi til hljómsveitar-
innar. Þær hafa þó verið felldar.
Ég er persónulega fylgjandi því
að Reykjavíkurborg leggi fram
myndarlegan skerf til þess menn-
ingarhlutverks, er hljómsveitin
gegnir með prýði. Um þennan
stuðning þarf þó að setja fastar
reglur — og framlög frá fleiri
sveitarfélögum þurfa til að koma.
Reykjavíkurborg kemur á fjöl-
margan annan hátt við sögu
Fyrirhuguð félagsmiðstöð í Arbæ — teikning.
spyrnufélagið Þrótt um byggingu
félagsmiðstöðvar á félagssvæði
Þróttar (sem aðallega er Lang-
holtshverfi).
Samstarf
æskulýðsráðs
og áhugafélaga
Sp.: Hver eru tengsl Æskulýðs-
ráðs við hin ýmsu áhugafélög í
æskulýðsstarfi?
Sv.: 1 þeim félagsmióstöðvum,
sem ég nefndi áðan, fer annars
vegar fram starfsemi fjölmargra
félaga, sem sækja þar um hús-
næðisaðstöðu og hinsvegar starf-
semi, er æskulýðsráð sjálft stend-
ur fyrir. Nefna má t.d. að í Fella-
helli er hlutur áhugaféiaga i notk-
un húsnæðis 65 til 70% — en
hlutur ráðsins 30 til 35%.
Æskulýðsráð hefur á sinni
stefnuskrá hvoru tveggja, að
styðja við bakið á frjálsri félaga-
starfsemi áhuga manna með hús-
næðisaðstöðu og annarri fyrir-
greiðslu — og að ná til þeirrar
ófélagsbundnu æsku, sem ekki
ber önnur félagsskirteini en nafn-
skírteinið. Ég held að sæmilega
hafi tekizt að þjóna þessum tví-
þætta tilgangi. Bein fjárhagsað-
stoð vió áhugafélög hefur hins-
vegar ekki verið i höndum æsku-
lýðsráðs, heldur borgarráðs og
borgarstjórnar við gerð fjárhags-
áætlana borgarinnar. Mikilvægt
er að engin tortryggni sé á milli
æskulýðsráðs og áhugafélaganna.
Á sameiginlegum ársfundi, sem
haldinn var í byrjun þessa árs,
ríkti gagnkvæmur skilningur á
mikilvægi starfs beggja og nauó-
syn á góðu samstarfi þessara að-
ila.
Æskulýds-
vandamál
Sp.: Hveit er saunleiksgildi
sagna um svokallað æskulýðs-
vandamál?
Sv.: Sjálfsagt hefur hvert
aldursskeið sin vandamál. Ég
hygg þó að orðspor af æskulýðs-
vandamálum i höfuðborginni sé
mjög ýkt. Þrátt fyrir dæmi undan-
tekninga eru æskulýðsmál í mun
betra horfi hér á landi en með
nágrannaþjóðum. Vegur þar efa-
litið þyngst, að við erurn algjör-
lega laus við atvinnuleysi þeirra
unglinga, sem lokið hafa (eða
hætt við) skólagöngu. Víðtækt at-
vinnuleysi unglinga er hinsvegar
höfuðverkur hjá frændþjóðum
okkar og það á sennilega rikastan
þátt í rótleysi unglinga þar.
Þegar fjallað er um ólæti ungs
fólks á „hallærisplani", fyrjr utan
Tónabæ, eða annars staðar i borg-
inni verðum við að minnast þess,
að allur þorri ungs fólks, sem
þarna kemur, hagar sér fullkom-
lega eðlilega, þó máske af nokkr-
um gáska. Örfáir tugir ólátabelgja
setja á stundum slæman svip á
allan hópinn. Máske þarf litið eitt
athafnasamari löggæzlu, en hafa
verður í huga, að hún býr að
mannfæð miðað við hin mörgu
aðkallandi verkefni. Æskulýðsráð
gerir sitt til að vega á móti áhrif-
um hinna böldnu meðal unglinga
og að liðsinna þeim sem erfitt
eiga. Sérstök útideild, sem komið
hefur verið á fót i samvinnu við
félagsmálaráð borgarinnar, vinn-
ur sitt starf um kvöld og nætur,
meðal ungs fóllos. Persónuleg
kynni og raunhæf þekking á þeim
vanda, sem óneitanlega er nokk-
ur, hefur þann veg borið nokkurn
árangur nú þegar, en þessi úti-
deild hefur enn ekki starfað
nema skamma hríð.
Nú er verið að ljúka lagfæringu
umhverfis Tónabæjar og betrum-
bæta ytra útlit hússins, en hvoru
tveggja var, sannast sagna, til
skammar orðið. Vona ég að þessar
umbætur hafi umtalsverð áhrif á
umgegni gesta. Rekstur Tóna-
bæjar er umdeilanlegur. Spurn-
VIÐ
STJÓRN-
VÖL
BORGAR
ing er, hvort rétt væri að selja
þessa eign, og nýta söluverðmæti
til annarrar starfsemi i þágu
reykvískrar æsku, — eða að nýta
þetta húsnæði á sama hátt og
félagsmiðstöðvarnar að Bústöðum
og Fellahelli. Þvi er ekki að neita
að Tónabær hefur haft í för með
sér verulegt ónæði fyrir næsta
nágrenni, sem er fbúðahverfi.
íbúar, umhverfis Tónabæ, hafa
raunar sýnt lofsvert langlundar-
geð.
Félagsmiðstöð sú, sem byggð
verður í Árbæ, er sú fyrsta hér í
borg, sem hugsuð er og reiknuð
með slika starfsemi í huga, frá
upphafi. Ég bind miklar vonir við
þessa félagsmiðstöð, þar sem
þarna ættu að skapast ákjósanleg
skilyrði fyrir félög i hverfinu,
sem vilja taka upp nýja starfsemi
eða efla þá sem fyrir er. Til að
fyrirbyggja misskilning er rétt að
fram komi, að félagsmiðstöðvar
eru ætlaðar eldri sem yngri, þó að
búast megi við að hinir yngri
verði athafnasamari um nýtingu
þeirra.
Framhald á bls. 22.
Líkan af væntanlegu borgarleikhúsi.