Morgunblaðið - 08.10.1977, Síða 27

Morgunblaðið - 08.10.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977 27 Hvað kostar að búa í hinum ýmsu borgum? DÝRASTA stórborg veraldar um þessar mundir er sögð vera Tokio, og í 2. sæti nokkru neðar er Stokkhölmur. Það sem einna mesta athygli vekur í könnuninni, sem gerð var á vegum sviss- neskra aðila, er að ódýrara er nú I New York en áður fyrr. Odýrustu staðirnir eru hins vegar Buenos Aires, Lissabon og Róm. Reiknað í dollurum og vísitölu þá lítur dæmið þannig út: Tokio 142,9, Stokkhólm 123,6, Osló 121,9, Vín 115,3, Kaupmanna- höfn 109,3, Helsingfors 108,0, París 105,2, Haag 104,8, London 81,2, Lissabon 72,9, og Buenos Aires 46,6. Á þessu sjást að um 100 stigum dýrara er að kaupa sömu vörur í Tokio en í Benos Aires. 0 NÚ má segja að loksins hafi það komið fram f dagsljósið, sem áhugamenn um bíla hafa beðið lengi eftir. Hér er átt við bílasýningu, sem fram fór í Frankfurt 15.—25. sept. s.I. en þar kynntu Benz- verksmiðjurnar sína algengustu gerð í station-útgáfu. Minni sparnaður # FYRSTU 7 mánuði ársins minnkaði sparnaður Þjóðverja í formi bankainnistæða, skuldabréfa og þess háttar um 22% sé miðað við sama tíma í fyrra. Einnig kemur fram að sparnaðurinn f heild er sá lægsti síðan 1970. Einhverjar lfkur ættu því að vera á auknum útflutningi til Þýzkalands þar sem þjóðartekjur þeirra eru meðal þeirra hæstu sem þekkjast í Evrópu. Flugvélaframleiðendur í YFIRLITINU hér á eftir má sjá árangur helztu flugvélaframleiðenda heims ásíðastliðnu ári. Eftirtektarvert er að hjá fyrirtækjum eins og Fokker og British Aircraft, sem hafa svipaða veltu á síðasta ári þá er starfsmannafjöldi hins síðarnefnda um helmingi meiri. Velta í Hagn./ Starfsm.fj. millj. $ halli Boeing/USA 3919 103 65400 Douglas/USA 3544 109 57860 Aerospatiale/Frakkl. 1636 —125 35120 Dassault/Frakkl. 1192 34 14980 British Aircraft/Engl. 823 32 36140 Fokker/Holland 748 —2 18540 MBB/Þýzkaland 692 4 20120 Fjölþætt sölustarfsemi hjá Prjónastofu Bórgamess # 1 viðtaii er Viðskiptasfðan átti við Gísla Halldórsson hjá Prjóna- stofu Borgarness kom fram að veruleg söluaukning hefði átt sér stað hjá þeim, sé miðað við sama tfma síðasta árs. Ein forsenda þessarar aukningar er sú mikla áherzla sem lögð hefur verið á hönnun vara og má í þvi sambandi nefna að samstarf hefur verið við danskan hönnuð. Önnur og ekki veigaminni forsenda þessar- ar aukningar er fjölþætt sölukerfi. Einn mikilvægasti hlekkur þess er starfræksla á eigin verksmiðju í Skotlandi en þaðan er stjórnað sölustarfseminni í Bretlandi og Irlandi með milligöngu umboðsmanna. Salan til Norðurlanda og Þýzkalands er byggð upp með milligöngu þarlendra umboðsmanna en aftur á móti fer salan til Bandaríkjanna fram með milligöngu Hildu h.f. i Reykjavík. Vilhjálmur Guð- jónsson - I örfáum linum er mér ljúft að minnast góðs vinar og samherja. Ég naut þess ætíð að vera í félags- skap Vilhjálms Guðjónssonar hljómlistarmanns — og þá ekki hvað sízt i heimi tónanna. Þar Hrekkjusvín með nýja hljóm- plötu á markað VÆNTANLEG er á markað ný hljómplata með hljómsveitinni Hrekkjusvin. Nefnist hljóm- platan Lög unga fólksins. Að plötunni stendur hópur tónlistar- fólks, sem hefur komið víða við á siðustu mánuðum og þar á meðal rithöfundur. Textar á plötunni eru allir eftir Pétur Gunnarsson en lögin eru eftir Valgeir Guðjónsson og Leif Hauksson. Góð hausttíð Borgareyrum, V-Eyjafjalla- hreppi. 6. októher. TlÐIN hefur verió afbragðsgóð I haust eftir vætusumar, þriðja rosasumarið í röð. Spretta var góð s.l. sumar en óþurrkar gerðu bændum lífið leitt. Þetta var annars nokkuð misjafnt eftir bæjum, hjá sumum gerði siðdegisskúrir dag hvern meðan ekkert rigndi hjá öðrum. Hey eru nokkuð mikil og sæmileg að gæðum. Litilsháttar er byrjað að slátra og hefur mér sýnzt, að lömb séu nokkuð væn. Kartöfluuppskeran brást hins vega alveg og tók því varla að taka upp úr sumum görð- Um. — Markfls. - Kveðja áttum við flestar stundir saman, ásamt svo mörgum öðrum góðum félögum. Við eftirlifendur mun- um sakna Villa i gleðileíkjum tón- anna, já eða tregatónum saknað- arljóða. Hann átti tónatilbrigði fyrir öll lifsins tækifæri og þess vegna sannur hljómlistarmaður. Fljótt stóð ljómi af leik hans i hljómsveitum hér í borg, þegar voru nær eingöngu útlendir hljóð- færaleikarar hér og Villi ungur að árum. Allir voru sammála um að stíllinn hans Villa væri til fyr- irmyndar. Síðan það var hefur margt breytzt, en Villi ætíð sami góði og vandaði músikkantinn. Hans aðalsmerki var hógværðin. Við félagar i Lúðrasveit Reykja- víkur minnumst hans ætíð sem eins af okkar traustu og fyrir- myndarfélögum. — Hafi Villi þakkir fyrir allt sem hann gaf. Innilegar samúðarkveðjur send- um við i lúðrasveitinni eftirlif- andi eiginkonu hans, dætrum og öðrum aðstandendum hans. Þorvaldur Steingrímsson. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi Yfirgengi miðað pr. kr 1 00. - við innlausnarverð Seðlabankans 1971 1966 2. flokkur 1974 25 318% 1967 1. flokkur 1853.1 1 15 4% 1967 2. flokkur 1840 98 42 2% 1968 1. flokkur 1607 83 310% 1968 2. flokkur 1512.67 30 4% 1969 1 flokkur 1 129 08 30.3% 1970 1. flokkur 1037.50 153% 1970 2. flokkur 761 00 29 9% 1971 1 flokkur 718 18 15 3% 1972 1 flokkur 626 20 29 7% 1972 2. flokkur 535.77 15 3% 1973 1 flokkur A 415 88 1973 2. flokkur 384 46 1974 1 flokkur . 266 99 1975 1 flokkur 218 31 1975 2. flokkur .166 60 1976 1 flokkur 158 57 1976 2. flokkur 128 77 1977 1 flokkur 1 19 60 VEÐSKULDABRÉF: Kaupgengi • pr kr 100 — 1 ár Nafnvextir: 12—20% pa 75 00 80 00 2 ár Nafnvextir: 12—20% pa 64 00 — 70 00 3 ár Nafnvextir 20% pa 63 00 — 64 00 4 ár Nafnvextir 20% pa 58 00 — 59 00 5 ár Nafnvextir: 20% pa 54 00 — 55 00 *) Miðað er við fasteignatryggð veðskuldabréf Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr kr 100 — 1973 — B 376 72 <10% aftóll) 1974 — D 284 88 (10% afföll) 1976 — H 135.97 (10% afföll) HLUTABRÉF: Eimskipafélag íslands hf Kauptilboð óskast VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEIIMI RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 1 00. — 1977 — 2. flokkur. Nýtt útboð 100 — Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga MÁRPCfTinGARPÉIAC ÍflRRDf Hft VERÐBRÉFAMARKAÐUR LÆKJARGÖTU 12 (Iðnaðarbankahúsinu) SÍMI 2 05 80 Svart á hvftu 1. sbl. 1. á,g. I9?7 ~ Haust Forsíða hins nýútkomna rits, Svart á hvítu. Svart á hvítu nýtt menningarrit SVART A HVlTU, nýtt menning- artímarit hefur hafið göngu sína I Reykjavík. Þeir sem standa aó útgáfu ritsins, eru aðstandendur Gallerí Suðurgata 7. Ritinu er ætlað að fjalla um menningarmál á breiðum grund- velli. í fyrsta tölublaði er að finna greinar um tónlist, kvikmyndir, myndlist og bókmenntir, auk fjöl- margra ljóða. Einnig sýna nokkrir myndlistamenn verk sin á síðum blaðsins. Fyrirhugað er að gefa ritið út ársfjórðungslega. ísfisksölur hefjast í Danmörku LANDSSAMBAND fsl. útvegs- manna fékk í fyrradag löndunar- léyfi fyrir einn togara til þess aó landa ísfiski f Ilanmörku, en alls hefur verið sótt um löndunarleyfi fyrir þrjú skip f Esbjerg. Fyrsti togarinn er Ólafur Jónsson frá Sandgerði og lagói hann af staó til Danmerkur kl. 20 1 gærkvöldi og á að selja aflann á mánudags- morgun. Utgerðarfélagi skipsins hefur verið tryggt visst lágmarks- verð fyrir aflann í Esbjerg og er verð fyrir þorsk ekki lægra en þaö sem boðió er á lrlandi, 213 kr. á kfló. íslendingar hafa ekki áður selt ísfisk i Danmörku — að þvi er Kristján Ragnarsson, formaður LlU, tjáði Morgunblaðinu i gær. Fyrr á timum var þó seldur þar saltfiskur úr togurum, og i mörg ár seldu Islendingar isaða síld þar i landi. Ölafur B. Ölafsson, forstjóri Miðness h.f., sem á Ólaf Jónsson, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að áætlaður afli togar- ans væri 125 lestir, mest þorskur. Ástæðuna fyrir þessari sölu i Danmörku kvað Ólafur vera, að togarinn ætti að fara í slipp og þegar þeir hefðu farið að athuga markaðsástandið i Evrópu hefði komið i ljós, að gott verð fengist í Danmörku fyrir umræddar fisk- tegundir og mun betri en i Þýzka- landi. Síðan hefði tekið 2 vikur að fá innflutningsleyfið. Ólafur kvað tvo aðalkaupendur vera að aflanum i Esbjerg og eftir því sem hann bezt vissi færi afl- • inn svo til allur til vinnslu i frysti- húsum þar, en þó gæti verið að eitthvert lítilsháttar tnagn færi á almennan markað. Þá sagði hann, að hærra veró fengist fyrir fisk í Danmörku en i Færeyjum og væri verðið vel sam- bærilegt við það, sem i boði væri á Irlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.