Morgunblaðið - 08.10.1977, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.10.1977, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1977 Lenin er alls staðar Framhald af bls. 15 verið á veiðum á þessum slóðum og hafi þá skotið dádýr og sært það banasári. Dýrið féll í heita lind og um leið og það féll í laug- ina, varð það alheilbrigt. Stökk dýrið úr lindinni og hvarf inn í skóginn. Kóngurinn fékk hins vegar áhuga á lindinni, sem hafði læknandi áhrif og ákvað hann að setjast að á þessum stað og stofn- aði borgina. Þetta varð upphaí höfuðborgar Georgíu. Orðið „tibili" þýðir á grúsísku heitur. Þvi þýðir Tibilissi borg hinna heitu hvera — og þvi i raun Hveragerði. Á bökkum árinnar Kúra er minnismerki um Vakhtangi Gorgasali og við minnismerkið stendur ævaforn kirkja. Kirkja þessi er fremur illa farin og lítið sem ekkert haldið við. Þar er ekk- ert, sem minnir á kristna trú, nema lítil freskumynd yfir inn- ganginum innanverðum, þar er mynd af Kristi. í miðri kirkjunni er lítið svið og þar eru sýndir þjóðdansar og sungnir þjóðsöngv- ar. Þar var haldin sérstök sýning fyrir íslendingana. Grúsiumenn dansa mjög sérkennilega. Dansa karlmennirnir með tærnar krepptar undir sér, en dans kvennanna er miklu fremur hæg- ur gangur, rétt eins og þær líði yfír dansgólfið. Þá var og spilað og sungið og gerði fólkið það lista- vel. Var þessi skemmtun í þessari litlu kirkju, sem muna má fífil sinn fegri, einkar aðlaðandi og ljúf. Þá var okkur islenzku ge'st- unum ekið upp fyrir borgina, sem stendur mjög skemmtilega milli hæða og skoöuðum við þar æva- forna mannabústaði, sem þar eru varðveittir. Þá voru skoðuð söfn, sem full voru af kirkjumunum og gömlum íkornum. Yfirleitt eru öll söfn í Sovétríkjunum með mikl- um og fallegum kirkjugripum, sem teknir hafa verið úr kirkjun- um og settir á söfn til sýnis. Þá var komið við í óperuhúsinu í Tibilissi, sem er mikið og veglegt og hlustuðu gestirnír þar á æf- ingu. Nokkrir söngvarar sungu ariur úr óperum. Óperuhúsið í borgínni var byggt árið 1856, en fyrir fjórum árum brann það, og hefur nú verið endurreist i sinni fyrri mynd, hin veglegasta bygging. Síðdegis var siðan farið í Ung- herja-höllina eða Palace of the Pioneers eins og það heitir á ensku. Slikar hallir eru um öll Sovétríkin, en þar er ungliðum flokksins kennd uppbygging so- vétskipulagsins og hugmynda- fræðilegur grundvöllur þess. Krakkarnir læra og ýmsar listir, dans, söng og hljóðfæraslátt og þeir, sem skemmtu gestunum, höfðu náð undraverðri leikni i þessum listum. Einn fylgdar- mannanna sagði um stjórnmála- lega uppfræðslu ungmennanna, sem hefst við 6 ára aldur, en þá og fram til 9 ára aldurs kallast þeir októbristar, að lokinni kennslunni yrðu börnin eins og ætlazt væri til að þau yrðu. Eftir að börnin hætta að vera októbrist- ar verða þau ungherjar og lýkur náminu um 13 ára aldur. Börnin eru klædd ekki ósvipað skátum, en i stað græna skátaklútsins er rauöur klútur. I anddyri hallar- innar er mynd af Lenin að tala við ’ slíka ungherja og eru þeir á myndinni eins klæddir og börnin, sem við hittum þetta síðdegi í aíte'fV , Úr Bolsjoj-leikhúsinu. ríkjunum. Við hlið hermanns, sem stóð vörð við gröfina, stóð unglingspiltur með riffil. Telpur í herklæðum stóðu við hermannagrafir, sem voru fram- an við minnisvarðann og á leg- steinum mátti sjá dánardægur mannanna, um og eftir striðslok. Síðan var farið í skoðunarferð um borgina og m.a. heimsótt Soffiu- dómkirkjan, sem er stórkostlegt mannvirki, opin sem safn. Er kirkjan öll mjög haganlega máluð freskum og ævaforn. Við Skrautvagnar fyrrverandi yfirstéttar i Rússlandi, Rolls Roycar síns tima. Grúsíu. Um kvöldið var veizla til heiðurs íslenzka forsætisráðherr- anum og konu hans, en blaða- mannafélag Grúsíu hélt okkur, ís- lenzkum blaðamönnum, veglega veizlu á Hótel Iveria, sem var hótel okkar, Intourist-hotel. Frá Tibilissi var haldið til Kiev, höfuðborgar Úkraínu, eða Kænu- garðs í Garðaríki hinu forna. Þar var lagður blómsveigur á leiöi óþekkta hermannsins. Eins og i Moskvu lék herhljómsveit fyrst lag eftir Robert Schumann, en síðan voru leiknir þjóðsöngvar ís- lands, Sovétríkjanna og Ukraínu. Hermenn marseruðu með gæsa- gangi, en einnig voru viðstaddir unglingar j herklæðum. Slíkt höfðum við ekki séð áður í Sovét- hann hafði verið snæddur feng- um við styrju, sem bökuð var I rjóma. Er hingað var komið i málsverð- inum, sem innbyrtur var með öll- um mögulegum tegundum ljúf- fengra úkraínskra vina, var staðið á fætur og héldum við þá að snæð- ingi væri lokið. Nei, viti menn, þá fluttu menn sig aðeins í annan sal hallarinnar og þar var borinn á borð rjómaís, sérstakar Kiev- kökur, ávextir, sælgæti og kaffi ásamt koniaki. Á meðan á þessu síðara borðhaldi stóð, komu fram hinir ýmsu listamenn og skemmtu gestunum, svo að hinir ljúffengu réttir rynnu betur niður. Verið getur að þessi veizla hafi verið með sérstöku sniði, þar sem hún var í raun og veru kveðjuveizlan, sem íslenzku gestunum var hald- in. Árdegis næsta morgun var og flogið til Moskvuflugvallar, í veg fyrir Aeroflot-þotu, sem flytja átti gestina til London. Ég og fulltrú- ar ísienzka sjónvarpsins urðum hins vegar eftir í Moskvu, þar sem við ætluðum til Kaupmannahafn- ar síðar um daginn um Helsinki og Stokkhólm. Það er ljóst, að þessi ferð til Sovétríkjanna, sem alls stóð í 7 daga, verður ógleymanleg þeim, sem þátt i henni tóku. Margt kom einkennilega fyrir sjónir, enda byggist öll sovézka þjóðfélags- sem bjó á sömu hæð hótelsins og við, kvað þetta engin vandræði. „Þið skuluð bara fara niður á 6. hæð, lyftan stöðvast alltaf þar.“ Okkur fannst auðvitað hjákátlegt, að allir þyrftu að fara á 6. hæðina til þess að ná lyftunni. Matsalur hótelsins var á 2. hæð. Ég þurfti eftir einn málsverðinn að skreppa upp í herbergið mitt. Ég fór þvi að lyftunni og ýtti á lyftuhnapp- inn. Ég hafði beðið drykklanga stund eftir lyftunni, þegar maður kom til mín og sagði, að þetta væri ekki til neins, lyftan stöðvað- ist aldrei á þessari hæð. í Kiev höguðu lyfturnár sér eilítið öðru visi, þær komu oftast, þegar kall- að var á þær, ,en hvort þær fóru síðan af stað, þegar þær áttu að gera það, virtist undir hælinn lagt. Kannski er það athyglisverðast fyrir íslendinga, sem fara til So- vétríkjanna, að sjá, hve gífurleg dýrkun á sér stað á minningu Lenins. Styttur af honum eru alls staðar. Sums staðar sést einnig ein og ein mynd af Marx og kannski Engels. Hins vegar sér maður á stöku stað myndir af flokksleiðtoganum, Leonid Breznev, og á einni aðalgötu Yerevan var gríðarstórt málverk af honum á graseyju milli akreina. Var myndin máluð í eðli- legum litum. Þannig virðist að- Örninn, sem Japanskeisari gaf zarnum i Rússlandi og getið er um i greininni. kirkjuna eru katakompur og er þar m.a. grafinn Þorvaldur víð- förli, sem sagður er hafa borið beinin í Kænugarði. Þegar for- sætisráðherra og föruneyti fóru á þjóðarbúskaparsýninguna í Kiev, óskuðum við blaðamenn eftir að fá að sjá katakompurnar, en rétt i þann mund, er við komum þang- að, hafði þeim verið lokað. Þrátt fyrir beiðni rússnesku fylgdar- mannanna þorði starfsfólkið ekki að hleypa okkur inn, þar sem ekki náðist i forstjóra safnsins. Því urðum við þess ekki aðnjótandi að koma í katakompurnar og heilsa upp á Þorvald víðförla. Urðum við við svo búið frá að hverfa. Siðasta kvöldið i Kiev, sem jafn- framt var síðasta kvöld heimsókn-, arínnar, var haldin vegleg veizla í höll Katrinar miklu, sem nú heitir Mariinsky-höllin. Þar snæddum við einhvern glæsilegasta kvöld- verð, sem a.m.k. við blaðamenn fengum í ferðinni, og til gamans ætla ég hér að láta matseðilinn fylgja. Fyrst var rauður og svart- ur kavíar með olifum og með því var drukkið ýmist kryddað eða ókryddað vodka. Þá vár lax með sitrónu, skinka, steikt kjöt með stöppuðu grænmeti, reykt svíns- síða með hvítlauk og ávextir. Þá var réttur, sem hét á ensku „delicacy from hen", lostæti, sem við islenzku blaðamennirnir þýddum snarlega á íslenzku, sem „pútunamm". Þá var einhver sér- stök pylsa á borðum og siðan fengum við plómur með hráu deigi utan um og voru þær etnar með ávaxtasafa. Var þetta sér- stakur úkrainskur réttur. Er Hervörður I heiðursstöðu. stefnan á allt öðrum grundvallar- sjónarmiðum en við Islendingar eigum að venjast. Þegar ég nú rifja það upp fyrir mér, kemur margt upp i hugann, sumt að vísu nokkuð kátbroslegt eins og til dæmis ,,lyftumenningin“ í Sovét- ríkjunum. I Moskvuháskóla fór- um við til dæmis mjög hátt upp í lyftu. Sú lyfta var svo hraðgeng að þegar við fórum niður i henni, fékk maður hellu fyrir eyru. Hins vegar var lyftumenning i Intourist-hótelunum, sem við gist- um, heldur bágborin. í Yerevan t.d. var undir hælinn lagt, hvort lyftan stöðvaðist á hæðinni, sem maður var á, jafnvel þótt ýtt hefði verið á takkann. Hótelið var 12 hæða bygging og fólk varð að tjalda því sem til var af þolin- mæði, ef það ætlaði að nota lyft- urnar. ísienzkumælandi Rússi, eins vara farið að brydda á þeim sið stalínismans, er myndir og styttur flokksforingjans voru um allar trissur. Þennan sið kvað Nikita Krúsjéff niður á sínum tíma. Hann hefur enn ekki fengið að hvíla við Kremlarmúra, heldur liggur í kirkjugarði i Moskvu. Þangað ætluðum við að halda síð- asta daginn og skoða leiði hans, en hervörður stóð við innganginn i garðinn, svo að við gátum ekki séð leiði hins fallna foringja. Þessa Lenindýrkun eiga ef til Islendingar erfitt með að skilja. Islendingar eiga þó sinar þjóð- hetjur, en hvenær skyldu brúóhjón — t.d. eftir hjónavigslu í Dómkirkjunni i Reykjavík, ganga að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli og brúðurin leggja brúðarvöndinn við fótstall stytt- unnar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.