Morgunblaðið - 08.10.1977, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.10.1977, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977 VALUR - VIKINGUR - einn af úrslitaleikjum íslandsmótsins á sunnudaginn FYRIR utan leik FH og finnska liðsins Kiffen í Evröpubikar- keppninni í handknattleik verður leikur Vals og Víkings í I. deiidar keppninni í handknattleik aðal- handknattleiksviðburður helgar- innar. Má ætla að þarna sé um að ræða einn af úrslitaleikjum móts- ins, en þessum tveimur liðum er spáð mestu gengi í mótinu að þessu sinni, en I fyrra börðust þau einnig jafnri baráttu á toppn- um sem lauk þannig að Valsmenn stóðu uppi sem sigurvegarar. Alls verða fjórir leikir í 1. deild- ar keppni Islandsmótsins nú um helgina og tveir leikir verða einn- ig í 2. deildar keppninni. Verða því öll 1. deildar liðin í sviðsljós- inu og fróðlegt að sjá hvernig þeim vegnar í baráttunni. Þrír leikir fara fram í Laugar- dalshöllinni í dag. Fyrsti leikur- inn er milli Þróttar og HK í 2. deiid, og eru bæði þessi lið nýlið- ar í deildinni að þessu sinni. Þróttur féll úr 1. deild i fyrra en HK vann sig upp úr 3. deild. Óneitanlega verða Þróttarar að teljast sigurstranglegri í leik þessum, en vafalaust veitir HK- liðið þeim þó harða keppni. I því eru margir athyglisverðir leik- menn. Strax að þessum leik loknum hefst viðureign Víkings og Ármanns í 1. deildar keppninni og að þeim leik loknum leiða Vals- menn og KR-ingar saman hesta sína. Bíðir þessir leikir ættu að geta orðið hinir skemmtilegustu, ■Jt ' . Arni Sveinsson Pétur Pétursson ■ ARNIOG PETUR TIL LEICESTER CITY TVEIR leikmenn úr íslands- meistaraliði . Akraness í knatt- spyrnu, landsiiðsmaðurinn Arni Sveinsson og markakóngurinn Pétur Pétursson, halda til Englands f næstu viku, þar sem þeir munu dvelja við æfingar í a.m.k. einn mánuð hjá 1. deildar liðinu Leicester City. Hafði liðið samband við þá félaga að fyrra bragði og bauð þeim til sín, en bæði fyrrverandi þjálfari Akur- nesinga Mike Ferguson, og núverandi þjálfari liðsins, George Kirby, munu hafa haft samband við forráðamenn Leicester. — Upphaflega skrifuðu þeir Pétri bréf og buðu honum að koma til sín, sagði Árni Sveinsson í viðtali við Morgunblaðið í gær. — Pétur vildi hins vegar síður fara einn og það varð úr að ég sló til og ákvað að fara lika. Ég er viss um að þessi tími verður mjög lær- dómsríkur fyrir okkur. Við mun- um æfa með liðinu og sjá leiki þess. Verður spennandi að sjá hvernig þessir menn æfa og búa sig undir leiki. I Englandi er ekki leyfilegt að hafa útlendinga í knattspyrnu- liðunum, og hefur það verið mjög mikið gagnrýnt að undanförnu og talið er liklegt að gerðar verði breytingar þar á áður en langt um líður, og virðist svo sem að ensku liðin séu þegar farin að lita í kringum sig. Má vel vera að boð Leieester til Árna og Péturs standi í sambandi við þetta. Árni Sveinsson var einnig spurður um tilboð það sem hann hafði féngið frá sænska 2. deildar félaginu Jönköping, en það er lið- ið sem Teitur Þórðarson leikur með. — Ég er búinn að missa áhuga á því, a.m.k. í bili, sagi Arni — þeir höfðu samband við mig í sumar og vildu þá fá mig til sín, en ég hitti þá aldrei, þannig að málið komst ekki einu sinni á rekspöl. NAMSKEIÐI „TAPINGU" NÁMSKEIÐ í „tapingu" á íþrótta- meiðslum fyrir Iþróttafólk. íþrótta- kennara og þjálfara fer fram mi5- vikudaginn 12. október n.k. kl. 19.30 í Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitis- braut 13, Reykjavik. Þátttökutilkynningar þurfa að ber- ast til Halldórs Matthiassonar i sima 84561 milli kl. 12 og 13 eða 13817 eftir kl. 20.00. fyrir næstkomandi þriðjudag. Hámarksfjöldi þátttak- enda á námskeiðinu er 20 manns. og raunar er alls ekki óiíklegt að nýliðarnir í deildinni, Ármann og KR, standi uppi i hárinu á ,,hin- um stóru". A sunnudaginn verður Laugar- dalshöllin einnig vettvangur Is- landsmótsins. KI. 19.00 leika þar saman Leiknir og Fylkir, en síðan leika Fram og Haukar og Valur og Víkingur i 1. deildar keppninni. Er óhugsandi að spá neinu um úrslit þessara leikja, en óhætt að slá því föstu að þar verður hart barist. Gífurlega mikið er i húfi fyrir liðin að tapa sem fæstum stigum i fyrri lotu Islandsmótsins, en eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu, eiga f jórar fyrstu umferðir mótsins að fara fram fyrir hlé sem gert verður vegna æfinga íslenzka landsliðsins um miðjan október og mun það hlé standa allt fram yfir heimsmeist- arakeppnina í Danmörku í febrú- ar. Geir Hallsteinsson gegnir veigamiklu hlutverki I dag og ekki er óllklegt að úrslit leiksins ráðist tekst til. I Evrópubikarleik FH af þvf hvernig honum FH á góða sígurmöguleika í Evrópubikarleiknum í dag KL. 15.00 í dag hefst f Iþróttahús- inu í Hafnarfiröi fyrri leikur bikarmeistara FH í handknatt- leik við finnska liðið Kiffen í Evrópubikarkeppni hikarhafa í handknattleik. Er leikur þessi f 1. umferð keppninnar, og þurfa FH- ingar að vinna sigur með nokkr- um mörkum til þess að þeir geti talizt tryggir í aðra umferð keppninnar, þar sem vitað er að finnska liðið hefur náð allgóðum árangri á heimavelli. Þetta er í annað sinn sem ís- lenzkt og finnskt lið mætast í Evr- ópubikarkeppni. Árið 1970 lék FH við þáverandi finnska meist- ara, UK 51, i 2. umferð Evrópu- bikarkeppni meistaraliða. Fóru báðir leikirnir fram hérlendis og sigraði FH í þeim 13:10 og 17:10. Ætla má að FH-ingar eigi á að skipa sterkara liði en finnska fé- lagið, en eflaust reyna Finnarnir að halda markaskorun FH-inga sem allra mest niðri i leiknum i dag, og freista þess síðan að vinna á heimavelli. — Við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfiður leikur, sagði Örn Hallsteinsson, þjálfari FH-inga, — en það er samt skoð- un mín að við munum sigra. Áhorfendur hafa vitanlega mikið að segja. Góð hvatning frá þeim getur lyft liði okkar, jafnframt þvi sem slikt virkar alltaf illa á keppinautinn. Vonumst við eftir því að Hafnfirðingar fjölmenni á. leikinn í dag og láti okkar menn finna að þeir leika á heimavelli. Tíu landsliðsmenn I Kiffen-liðinu sem leikur hér í dag, eru hvorki fleiri né færri en tíu landsliðsmenn, og eiga sumir allmarga leiki að baki. Sá sem flesta landsleiki hefur leikið er Kari Lehtolainen sem alls hefur leikið 49 landsleiki. Hefur hann verið valinn í finnska landsliðið sem tekur þátt í Norðurlandsmót- inu hér síðar í þessum mánuði, ásamt fjórum öðrum leikmönnum Kiffen-liðsins. Flestir leikmanna Kiffen-liðsins eru mjög hávaxnir og sterkir, sumir allt að 2 metrar á hæð. FH-liðið sem leikur Evrópubik- arleikinn í dag hefur verið valið og veröur það þannig skipað: Markverðir: Birgir Finnbogason, Magnús Ólafsson, Aðrir leikmenn: Auðunn Óskarsson, fyrirliði, Geir Hallsteinsson, Þórarinn Ragnarsson, Janus Guðlaugsson, Örn Sigurðsson, Sæmundur Stefánsson, Guðmundur Arni Stefánsson, Guðmundur Magnússon, Vignir Þorláksson, Valgarður Valgarðsson. Hafa unnið 12 Evrópuleiki Leikir FH við Kiffen I Evrópubikarkeppni bikarhafa verða 27. og 28. Evrópubikarleikir FH. Hafa úrslit I fyrri leikjum liðsins orðið þau að það hefur unnið 12 leiki, gert eitt jafntefli og tapað 13 leikjum. Hafa FH-ingar skorað alls 447 mörk, en fengið á sig nokkru fleiri, eða 487. Urslit einstakra leikja hafa orðið sem hér segir: Ar Heima Cti 1965 FH—Fredensborg (Noregi) 19—15 17—14 1965 FH—Dukla Prag (Tékkóslv.) 15—20 16—23 1966 FH—Honved (Ungverjalandi) 19—14 13—20 1969 FH—Ilonved (Ungverjalandi) 17—21 17—28 1970 FH—Ivry (Frakkiandi) 18—12 16—15 1970 FH—UK51 (Fínnlandi) 13&10 17—10 1970 FH—Partizan (Júgóslavfu) 14—28 8—27 1974 FH—Saab (Svfþjóð) 16—14 21—23 1974 FH—St. Otmar (Sviss) 19—14 23—23 1974 FH—ASK Vorwaerts (A-Þýzkalandi) 17—21 18—30 1975 FH—Oppsal (Noregi) 17—15 11—19 1976 FH—Vestmanna (Færeyjum) 28—13 20—15 1976 FH—Slask (Póllandi) 20—22 18—22 EKKIOVÆNT URSLITI Valur - IR 87-67 í FYRRAKVÖLD fóru fram tveir leikir í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik. Áttust þar við Valur og ÍR og síðan Ármann og KR. Valur—IR 87:67. Valsmenn, sem léku án Þóris Magnús- sonar, sem er meiddur, áttu ekki í erfiðleikum með að sigra slakt ÍR-lið. Þeir byrjuðu leikinn af krafti og um miðjan fyrri hálfleik var^staðan orðin 30:9 Val i vil. Þá fór allt byrjunarlið Vals út af og IR- ingar náðu aðeins að rétta úr kútnum fyrir leikhlé, en þá var staðan 45:35 fyrir Val. I síðari hálfleik gerðist fátt markvert og var sigur Vals aldrei í hættu. Áhrifa hins nýja þjálfara hjá Val, Rick Hockenos, er þegar farið að gæta og virðist Valsliö- ið vera mun sprækara en áður. Hins vegar er Ijóst, að ÍR-ingar eiga erfiðan vetur fyrir höndum. Hjá Val var Hockenos bestur og skoraði 20 stig. ' Kristján Agústsson skoraði 14 stig en aðrir minna. Erlendur Markússon var langbestur IR- inga og stigahæstur með 25 stig, en Kristján Sigurðsson kom næstur með 14 stig. ÁG KR- Ármann 92-73 Án Jóns Sigurðssonar voru Armenningar engin hindrun í vegi KR-inga í leik liðanna í Reykjavikurmótinu í körfu- knattleik. Það var þó ekki að þakka góðum leik KR-inga að sigur vannst heldur lélegri vörn Ármenninga. Mikill áhugi var á þessum leik þar sem Bandaríkjamennirnir Andrew Piazza hjá KR og Mike Wood i Armanni leiddu saman hesta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.