Morgunblaðið - 25.10.1977, Page 1

Morgunblaðið - 25.10.1977, Page 1
48 SlÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 236. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Tarradelas tekinn við forsetaembætti — ein milljón manna fagnaði honum við heimkomuna Sjálfstjórn í Katalóníu: Karcelonu. 24. okt. Keulor. „LENGI LFII Katalónía, lengi lifi Spánn", sagói Josep Tarradel- as er hann sór embættiseið sein forseti sjáifstjórnar Katalóníu í dag. Látleysi setti svip sinn á at- höfnina, sem fór fram í Baree- lona, en þesar Tarradelas kom til Katalóníu í gær eftir 38 ára út- legó var honum ákaft fagnað. Tal- ið er að um ein milljón manna hafi safnazt saman á flugvellin- um við Bareelona og í miðborg- inni. Fólkið grét, söng, dansaði og veifaði fánum er það fagnaði Tarradelas, sem nú er 78 ára að aldri, en hann hefur verið Kata- lóníumönnum tákn sameiningar og þjóðernishyggju síðan héraðið var svipt sjálfstjórn eftir sigur Francos einræðisherra í horgar- styrjöldinni fyrir tæpum fjórum áratugum. Við embættistökuna i dag lét Tarradelas svo um mælt að sjálf- stjórn héraðsins mundi stuðla að réttlæti og lýðræði í landinu öllu, Enda þótt Katalóníumenn hefðu á sínum tíma verið sviptir ákvörðunarvaldi i eigin málum hefðu þeir aldrei misst kjarkinn og viljann til að ráða sjálfir ráð- um sínum. Adolfo Suarez for- sætisráðherra Spánar sagði við þetta tækifæri, að sjálfstjórnar- réttindi hinna ýmsu héraða á Spáni væru lykillinn að lausn ýmissa helztu vandamála sem við væri að etja i landinu um þessar mundir, enda væru slík réttindi veigamikill þáttur í þeim stjórnarskrárdrögum, sem í undirbúningi væru. 16 manna ráð fer með fram- kvæmdavald sjálfstjórnarinnar í Katalóníu, en nefnd fulltrúa Katalóníu-stjórnar og ríkisstjórn- arinnar í Madrid mun á siðari stigum málsins ákveða hvaða mál heyri framvegis undir hvorn aðila. Stjórn hers og lögreglu með aðsetur í Katalóníu verður eftir sem áður i höndum stjórnarinnar i Madrid. Hluti v-þýzku áhlaupssveitarinnar, sem frelsaði gfsla Lufthansa-þotunnar í Mogadishu. Myndin er tekin við heimkomuna til Bonn, þegar fyrirliði sveitarinnar, Ulrich Wegener, bauð menn s.ína velkomna úr þrekrauninni. Spennan vegna hefndarað- gerða Baader-Meinhof magnast Bonn. 24. okíóber. Keuter. GlFURLEG spenna er nú ríkj- andi i Vestur-Þýzkalandi og með- Þjóðaratkvæði í Panama: Meirihlutafylgi við nýjan samning Panama. 24. okt. Keuter. ÞEGAR talning atkvæða í þjóðar- atkvæðagreiðslunni í Panama um nýjan samning við Bandaríkin um Panamaskurðinn var vel á veg komin í dag var Ijóst að verulegur meirihluti stendur að baki stjórn landsins í þessu máli. Þegar 570 þúsund atkvæði höfðu verið talin höfðu 375 þúsund sagt já við nýjum samningi en 189 þúsund voru á móti. Blöð í Panama telja atkvæða- greiðsluna ótvíræðan sigur fyrir stjórn landsins, en ' samnings- drögunum er gert ráð fyrir því að landsmenn fái yfirráð yfir skipa- skurðinum um næstu aldamót. Um 800 þúsund manns voru á kjörskrá. al V-Þjóðverja erlendis vegna ítrekaðra aðvarana vestur-þýzku stjórnarinnar um nýjar hefndar- aðgerðir af hálfu stuðnings- manna Baader-Meinhof-klík- unnar. Til mikilla átaka kom í dag á Sikiley þar sem fram fóru mótmælaaðgerðir vegna dauða Baader, Ensslin og Raspe í fangelsi í Stuttgart á dögun- um. I þessum átökum særðust að minnsta kosti 18 lögreglu- menn. Þá sprakk öflug sprengja fyrir utan sýningarsal v-þýzkrar bifreiðaverksmiðju á Norður- italiu og í Róm voru miklar var- úðarráðstafanir gerðar vegna hót- ana um að v-þýzka sendiherran- um þar yrði grandað í hefndar- skyni. Hópur griskra stjórnleysingja lýsti í kvöld ábyrgð á hendur sér vegna sprengjutilræðis i verk- smiðju, sem er í eigu þýzkra aðila. um ieiö og hótað var að frekari árásir yrðu gerðar á þýzk fyrir- tæki í Grikklandi. Helmut Sehmidt. kanslari Vest- ur-Þýzkalands, birti i dag yfirlýs- Tillaga framkvæmdanefndar EBE: Bretar fái að veiða 21,6% heildaraflans Pólland: Amnesty- menn hand- teknir Varjsá, 24. oktöber. Reuter. PÓLSK stjórnvöld stöðvuóu í dag söfnun undirskrifta á áskorunarskjal Amnesty Inter- national þar sem krafizt er frelsunar pólitískra fanga hvar sem er á byggðu böli, en undir- skriftasöfnun þessi fer um þessar niundir fram i flestum löndunt og er ekki beint gegn neinni sérstakri ríkisstjórn, Öeinkennisklæddir lögreglu- menn handtóku þrjá félaga í Póllands-deild Amnestv þar sem þeir voru við undirskrifta- söfnun í borginni Lublin. Vit- aö er að einum Amnest.v- ntannanna var sleppt eftir hálftíma yfirheyrslu. og er tal- ið að hinum iveimur hafi einn- ig verið sleppt sköntmu siðar. Luxembourg. 24. októbor. Roulor. I HARÐORÐRI ræðu á fundi ráð- herranefndar Efnahagsbanda- Iagsins í dag lýsti brezki sjávarút- vegsráðherrann, John Silkin, því yfir að í tilraunum sínum til að móta nýja fiskveiðistefnu banda- lagsins hefði framkvæmdanefnd- inni láðst að taka tillit til sér- stakra aðstæðna í brezkum sjávar- útvegi, um leið og hann gagn- rýndi harðlega tillögur um vernd- un fiskstofna, sem hann kvað hvergi nærri fullnægjandi. I tillögum framkvæmdanefnd- arinnar er m.a. að finna kvóta um skiptingu afia á miðum aðildar- rikjanna fyrir árið 1978. Ekki er vitað um efnisatriði kvótatillög- unnar, en Austin Laing fram- kvæmdastjóri Sambands brezkra útgerðarmanna tjáði fréttamönn- um, að af heildaraflanum væri aðeins gert ráð fyrir því að Bretar fengju að veiða 21,6% enda þótt um 60% af öllum fiskimiðum inn- an 200 mílna EBE væru við strendur Bretlands. Óstaðfestar fregnir herma að ólíklegt sé að samstaða náist um fiskveiðistefnu EBE fyrir árslok. Viðbrögðin við ræðu Silkins voru misjöfn, en þó var haft eftir áreiðanlegum heimildum á fund- inum, að fulltrúar flestra aðildar- ríkjanna teldu gagnrýni Breta eiga við rök að styöjast, þannig að hún hlyti að verða umræðugrund- völlur á fundinum, um leið-og þeir tóku fram að írar væru sam- mála Bretum í flestum atriðum. Það kom fram i máli Silkins að í tillögum framkvæmdanefndar- innar væri ekki tekin afstaða til kröfu Breta um allt að 50 milna einkalögsögu. Um verndun fiskstofna sagði Silkin m.a. að framkvæmdanefnd- inni hefði gersamlega mistekizt að sjá til þess að hægt væri að grípa til skjótra og virkra vernd- unarráðstafana, þannig aö sýnl væri að aðildarríkin yrðu sjálf aö hafa forgöngu um slíkar aðgerðir, að minnsta kosti þar til bandalag- inu hefði tekizt aö ryðja úr vegi hindrunum fyrir því að þaó gæti sett raunhæfar reglur þar um. S-Afríka: ingu þar sem hann hvatti almenn- ing lil að vera vel á verði gegn hryðjuverkamönnum sem eru í slagtogi við Baader-Meinhof. Þá lagði kanslarinn að þjóð sinni að láta ekki áróður um að fangarnir í Stuttgart heföu verið ráðnir at dögum villa um fyrir sér. Viðtækar öryggisráðstafanir af hálfu Bonn-sljörnarinnar hafa verið gefðar á flugvöllum i um það bii 40 löndum síðustu daga. og örvggisverðir i þjónustu Bonn- stjörnarinnar grandskoða hvern einasta farþega sem fer um borð í v-þýzkar flugvélar. Leitinni að morðingjum v-þýzka iðrekandans Hanns-Martins Sehleyers er haldið áfram af miklu kappi. Hefur lögreglan í Frakklandi. þar sem lik Sehleyers fannst. skýrt frá því að 9 þeirra 16 hryðjuverkamanna, sem eftirlýst- ir eru í sambandi viö málið. hafi sézt í Frakklandi á síðustu sjö vikum. Þeirra á meðal Christian nokkur Klar, sem talinn er hafa keypt Audi-bílinn sem likiö fannst í. Kaupin föru fram í \'- Þýzkalandi. en að sögn lögrelg- unnar bendir allt til að Klar hafi sézt að minnsta kosti 8 sinnum á almannafæri í Frakklandi frá þvi að Sehle.ver hvarf. Oltast Iranska lögreglan að hryðjuverkamenn- irnir séu nú komnir úr landi og er talið sennilegl að þeir þafi haldio til Sviss. Óeirðir og handtökur Jóhannesarborg, 24. október. Reuter. LÖGREGLAN í Jóhannesarborg handtók í dag sjö presta f.vrir að bera fram mótmæli við banni stjórnarinnar i S-Afríku við starf- semi 18 félagasamtaka í síðustu viku. Prestarnir voru yfirheyrðir fyrir rétti en var að því loknu sleppt gegn tryggingu, að sögn lögreglunnar. Frá þvi að bannið við félaga- starfsemi gekk í gildi fyrir fimm dögum, um leið og sjö andstæð- ingar stjórnarinnar úr hópi hvítra manna voru bannlýstir. útgáfa tveggja dagblaða blökkumanna stöðvuð og fjölmargir blökku- mannaleiðtogar handteknir, hef- ur ókyrrð i landinu farið vaxandi og i uppþotum í Queenstown og King Williams Town um helgina voru 59 blökkumenn handteknir. Óljösar fregnir hafa borizt af meiðslum á mönnum. svo og eignatjöni, í öeirðum víða i land- inu nú um helgina, en ekki hefur frétzt um manntjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.