Morgunblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 1
48 SlÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
236. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tarradelas tekinn
við forsetaembætti
— ein milljón manna fagnaði
honum við heimkomuna
Sjálfstjórn í Katalóníu:
Karcelonu. 24. okt. Keulor.
„LENGI LFII Katalónía, lengi
lifi Spánn", sagói Josep Tarradel-
as er hann sór embættiseið sein
forseti sjáifstjórnar Katalóníu í
dag. Látleysi setti svip sinn á at-
höfnina, sem fór fram í Baree-
lona, en þesar Tarradelas kom til
Katalóníu í gær eftir 38 ára út-
legó var honum ákaft fagnað. Tal-
ið er að um ein milljón manna
hafi safnazt saman á flugvellin-
um við Bareelona og í miðborg-
inni. Fólkið grét, söng, dansaði og
veifaði fánum er það fagnaði
Tarradelas, sem nú er 78 ára að
aldri, en hann hefur verið Kata-
lóníumönnum tákn sameiningar
og þjóðernishyggju síðan héraðið
var svipt sjálfstjórn eftir sigur
Francos einræðisherra í horgar-
styrjöldinni fyrir tæpum fjórum
áratugum.
Við embættistökuna i dag lét
Tarradelas svo um mælt að sjálf-
stjórn héraðsins mundi stuðla að
réttlæti og lýðræði í landinu öllu,
Enda þótt Katalóníumenn hefðu á
sínum tíma verið sviptir
ákvörðunarvaldi i eigin málum
hefðu þeir aldrei misst kjarkinn
og viljann til að ráða sjálfir ráð-
um sínum. Adolfo Suarez for-
sætisráðherra Spánar sagði við
þetta tækifæri, að sjálfstjórnar-
réttindi hinna ýmsu héraða á
Spáni væru lykillinn að lausn
ýmissa helztu vandamála sem við
væri að etja i landinu um þessar
mundir, enda væru slík réttindi
veigamikill þáttur í þeim
stjórnarskrárdrögum, sem í
undirbúningi væru.
16 manna ráð fer með fram-
kvæmdavald sjálfstjórnarinnar í
Katalóníu, en nefnd fulltrúa
Katalóníu-stjórnar og ríkisstjórn-
arinnar í Madrid mun á siðari
stigum málsins ákveða hvaða mál
heyri framvegis undir hvorn
aðila. Stjórn hers og lögreglu með
aðsetur í Katalóníu verður eftir
sem áður i höndum stjórnarinnar
i Madrid.
Hluti v-þýzku áhlaupssveitarinnar, sem frelsaði gfsla Lufthansa-þotunnar í Mogadishu. Myndin er tekin
við heimkomuna til Bonn, þegar fyrirliði sveitarinnar, Ulrich Wegener, bauð menn s.ína velkomna úr
þrekrauninni.
Spennan vegna hefndarað-
gerða Baader-Meinhof magnast
Bonn. 24. okíóber. Keuter.
GlFURLEG spenna er nú ríkj-
andi i Vestur-Þýzkalandi og með-
Þjóðaratkvæði í Panama:
Meirihlutafylgi
við nýjan samning
Panama. 24. okt. Keuter.
ÞEGAR talning atkvæða í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni í Panama um
nýjan samning við Bandaríkin
um Panamaskurðinn var vel á veg
komin í dag var Ijóst að verulegur
meirihluti stendur að baki stjórn
landsins í þessu máli. Þegar 570
þúsund atkvæði höfðu verið talin
höfðu 375 þúsund sagt já við
nýjum samningi en 189 þúsund
voru á móti.
Blöð í Panama telja atkvæða-
greiðsluna ótvíræðan sigur fyrir
stjórn landsins, en ' samnings-
drögunum er gert ráð fyrir því að
landsmenn fái yfirráð yfir skipa-
skurðinum um næstu aldamót.
Um 800 þúsund manns voru á
kjörskrá.
al V-Þjóðverja erlendis vegna
ítrekaðra aðvarana vestur-þýzku
stjórnarinnar um nýjar hefndar-
aðgerðir af hálfu stuðnings-
manna Baader-Meinhof-klík-
unnar. Til mikilla átaka kom
í dag á Sikiley þar sem fram fóru
mótmælaaðgerðir vegna dauða
Baader, Ensslin og Raspe í
fangelsi í Stuttgart á dögun-
um. I þessum átökum særðust
að minnsta kosti 18 lögreglu-
menn. Þá sprakk öflug sprengja
fyrir utan sýningarsal v-þýzkrar
bifreiðaverksmiðju á Norður-
italiu og í Róm voru miklar var-
úðarráðstafanir gerðar vegna hót-
ana um að v-þýzka sendiherran-
um þar yrði grandað í hefndar-
skyni.
Hópur griskra stjórnleysingja
lýsti í kvöld ábyrgð á hendur sér
vegna sprengjutilræðis i verk-
smiðju, sem er í eigu þýzkra aðila.
um ieiö og hótað var að frekari
árásir yrðu gerðar á þýzk fyrir-
tæki í Grikklandi.
Helmut Sehmidt. kanslari Vest-
ur-Þýzkalands, birti i dag yfirlýs-
Tillaga framkvæmdanefndar EBE:
Bretar fái að veiða
21,6% heildaraflans
Pólland:
Amnesty-
menn hand-
teknir
Varjsá, 24. oktöber. Reuter.
PÓLSK stjórnvöld stöðvuóu í
dag söfnun undirskrifta á
áskorunarskjal Amnesty Inter-
national þar sem krafizt er
frelsunar pólitískra fanga hvar
sem er á byggðu böli, en undir-
skriftasöfnun þessi fer um
þessar niundir fram i flestum
löndunt og er ekki beint gegn
neinni sérstakri ríkisstjórn,
Öeinkennisklæddir lögreglu-
menn handtóku þrjá félaga í
Póllands-deild Amnestv þar
sem þeir voru við undirskrifta-
söfnun í borginni Lublin. Vit-
aö er að einum Amnest.v-
ntannanna var sleppt eftir
hálftíma yfirheyrslu. og er tal-
ið að hinum iveimur hafi einn-
ig verið sleppt sköntmu siðar.
Luxembourg. 24. októbor. Roulor.
I HARÐORÐRI ræðu á fundi ráð-
herranefndar Efnahagsbanda-
Iagsins í dag lýsti brezki sjávarút-
vegsráðherrann, John Silkin, því
yfir að í tilraunum sínum til að
móta nýja fiskveiðistefnu banda-
lagsins hefði framkvæmdanefnd-
inni láðst að taka tillit til sér-
stakra aðstæðna í brezkum sjávar-
útvegi, um leið og hann gagn-
rýndi harðlega tillögur um vernd-
un fiskstofna, sem hann kvað
hvergi nærri fullnægjandi.
I tillögum framkvæmdanefnd-
arinnar er m.a. að finna kvóta um
skiptingu afia á miðum aðildar-
rikjanna fyrir árið 1978. Ekki er
vitað um efnisatriði kvótatillög-
unnar, en Austin Laing fram-
kvæmdastjóri Sambands brezkra
útgerðarmanna tjáði fréttamönn-
um, að af heildaraflanum væri
aðeins gert ráð fyrir því að Bretar
fengju að veiða 21,6% enda þótt
um 60% af öllum fiskimiðum inn-
an 200 mílna EBE væru við
strendur Bretlands.
Óstaðfestar fregnir herma að
ólíklegt sé að samstaða náist um
fiskveiðistefnu EBE fyrir árslok.
Viðbrögðin við ræðu Silkins
voru misjöfn, en þó var haft eftir
áreiðanlegum heimildum á fund-
inum, að fulltrúar flestra aðildar-
ríkjanna teldu gagnrýni Breta
eiga við rök að styöjast, þannig að
hún hlyti að verða umræðugrund-
völlur á fundinum, um leið-og
þeir tóku fram að írar væru sam-
mála Bretum í flestum atriðum.
Það kom fram i máli Silkins að í
tillögum framkvæmdanefndar-
innar væri ekki tekin afstaða til
kröfu Breta um allt að 50 milna
einkalögsögu.
Um verndun fiskstofna sagði
Silkin m.a. að framkvæmdanefnd-
inni hefði gersamlega mistekizt
að sjá til þess að hægt væri að
grípa til skjótra og virkra vernd-
unarráðstafana, þannig aö sýnl
væri að aðildarríkin yrðu sjálf aö
hafa forgöngu um slíkar aðgerðir,
að minnsta kosti þar til bandalag-
inu hefði tekizt aö ryðja úr vegi
hindrunum fyrir því að þaó gæti
sett raunhæfar reglur þar um.
S-Afríka:
ingu þar sem hann hvatti almenn-
ing lil að vera vel á verði gegn
hryðjuverkamönnum sem eru í
slagtogi við Baader-Meinhof. Þá
lagði kanslarinn að þjóð sinni að
láta ekki áróður um að fangarnir í
Stuttgart heföu verið ráðnir at
dögum villa um fyrir sér.
Viðtækar öryggisráðstafanir af
hálfu Bonn-sljörnarinnar hafa
verið gefðar á flugvöllum i um
það bii 40 löndum síðustu daga.
og örvggisverðir i þjónustu Bonn-
stjörnarinnar grandskoða hvern
einasta farþega sem fer um borð í
v-þýzkar flugvélar.
Leitinni að morðingjum v-þýzka
iðrekandans Hanns-Martins
Sehleyers er haldið áfram af
miklu kappi. Hefur lögreglan í
Frakklandi. þar sem lik Sehleyers
fannst. skýrt frá því að 9 þeirra 16
hryðjuverkamanna, sem eftirlýst-
ir eru í sambandi viö málið. hafi
sézt í Frakklandi á síðustu sjö
vikum. Þeirra á meðal Christian
nokkur Klar, sem talinn er hafa
keypt Audi-bílinn sem likiö
fannst í. Kaupin föru fram í \'-
Þýzkalandi. en að sögn lögrelg-
unnar bendir allt til að Klar hafi
sézt að minnsta kosti 8 sinnum á
almannafæri í Frakklandi frá þvi
að Sehle.ver hvarf. Oltast Iranska
lögreglan að hryðjuverkamenn-
irnir séu nú komnir úr landi og er
talið sennilegl að þeir þafi haldio
til Sviss.
Óeirðir og handtökur
Jóhannesarborg, 24. október.
Reuter.
LÖGREGLAN í Jóhannesarborg
handtók í dag sjö presta f.vrir að
bera fram mótmæli við banni
stjórnarinnar i S-Afríku við starf-
semi 18 félagasamtaka í síðustu
viku. Prestarnir voru yfirheyrðir
fyrir rétti en var að því loknu
sleppt gegn tryggingu, að sögn
lögreglunnar.
Frá þvi að bannið við félaga-
starfsemi gekk í gildi fyrir fimm
dögum, um leið og sjö andstæð-
ingar stjórnarinnar úr hópi hvítra
manna voru bannlýstir. útgáfa
tveggja dagblaða blökkumanna
stöðvuð og fjölmargir blökku-
mannaleiðtogar handteknir, hef-
ur ókyrrð i landinu farið vaxandi
og i uppþotum í Queenstown og
King Williams Town um helgina
voru 59 blökkumenn handteknir.
Óljösar fregnir hafa borizt af
meiðslum á mönnum. svo og
eignatjöni, í öeirðum víða i land-
inu nú um helgina, en ekki hefur
frétzt um manntjón.