Morgunblaðið - 25.10.1977, Síða 7
hafa verið reknir úr vinnu,
sem neitað hafa að for-
dæma mannréttinda-
skrána, án þess þeir hafi
þó skrifað undir hana. í
nýlegri grein sem Hájek
skrifar er talið, að um
hundrað aðstandendur
mannréttindaskrárinnar
gangi atvinnulausir með
öllu, fyrir utan allan þann
mikla fjölda sem hefur
ekki fengið annan starfa
en illa launaða erfiðis-
vinnu eftir brottrekstur úr
þeim störfum sem menn
áður sinntu."
L
Atvinnuofsóknir
Fyrir kemur. þó ör-
sjaldan sé. að blað
„vinstri róttækni" á ís-
landi gluggar i niðurstöð-
ur og reynslu af fram-
kvæmd kommúnisma. þar
sem það kenningakerfi
hefur verið ráðandi þjóð-
félagsstefna um sinn.
Þannig segir í sunnudags-
blaði „Þjóðviljans":
„Auk rógherferðar hafa
stjórnvöld (Tékkóslóva-
kiu) haldið uppi samfelld-
um ofsóknum gegn þeim
sem undirritað hafa
Mannréttindaskrána. Þær
koma fram með ýmsum
hætti. Leynilögreglumenn
láta nokkra þekktustu
undirskriftarmenn ekki i
friði. hvorki nótt né dag.
meina þeim að komast
ferða sinna, rjúfa simtöl
þeirra, hirða bréf til þeirra
o.sv.fv. En HELZTA
AÐFEROIN er atvinnu-
ofsóknir. Enginn veit með
vissu hve margir hafa
misst atvinnu sina, þvi
dæmi eru til þess að menn
Athyglisverðar
játningar
Hér koma fram
athyglisverðar játningar. Í
fyrsta lagi er skýlaust
viðurkennt að skoðana-
og tjáningarfrelsi sé ekki
fyrir hendi og að refsivert
sé að hafa aðrar skoðanir
en valdhafar þeir, er rúss-
neska innrásin fleytti til
mannvirðinga. í annan
stað er viðurkennd beiting
ATVINNUOFSÓKNA og
um leið tilvist ATVINNU-
LEYSIS. sem átti að vera
óþekkt fyrirbrigði i ríkjum
kommúnismans. í þriðja
lagi er staðhæft, þegar
fjallað er um brottrekstur
menntamanna úr fyrri
störfum. að þeir þurfi
þegar bezt lætur að lúta
að ,. illa launaðri erfiðis
vinnu". Þar með er sagt.
að verkamannavinna sé
„ illa launuð" austan
tjalds. þótt öðru hafi áður
verið fram haldið i þessu
APN- gjallarhorni hér á
landi.
Útflutnings-
bætur á land-
búnaðarafurðir
Hver er forsaga út-
flutningsuppbóta á land
búnaðarafurðir? Hverjir
bera pólitiska ábyrgð á
ákvörðunum þar að lút-
andi? Og hver var afstaða
samtaka launþega í land-
inu til þess máls? Um
þetta er fjallað í leiðara
Tímans sl. laugardag, þar
sem segir orðrétt:
„Það gerðist svo haust-
ið 1959, rétt fyrir þing-
kosningar þá, að minni-
hlutastjórn Alþýðuflokks-
ins gaf út bráðabirgðalög,
sem bönnuðu verðhækk-
un á landbúnaðarvörum.
Þetta bann hélzt þangað
til viðreisnarstjórnin kom
til valda eftir kosningarn-
ar. en þá beitti hún sér
fyrir viðræðum milli fram-
leiðenda og neytenda um
þetta efni. Þær viðræður
fóru fram í svokallaðri
sexmannanefnd, þar sem
fulltrúar Stéttasambands
bænda. Alþýðusambands
íslands og fleiri stétta-
samtaka áttu sæti. Þessar
viðræður leiddu til sam-
komulags um öll megin-
atriði. Eitt atriði þeirra
samkomulags var það að
niður félli heimild bænda
til að leggja gjald á innan
landsverð landbúnaðar-
vara ? því skyni að afla
útflutningsbóta á þann
hátt. í staðinn fyrir niður-
fellingu þessa lagaákvæð-
is, skyldi koma annað
lagaákvæði, sem fæli það
í sér, að útflutningsbætur
á landbúnaðarafurðir
skyldu greiddar úr ríkis-
sjóði, en þó mætti sú upp-
hæð aldrei vera hærri en
sem svaraði 10% af
heildarverðmæti land-
búnaðarframleiðslunnar á
viðkomandi verðlagsári.
Þetta samkomulag milli
framleiðenda og neytenda
lagði ríkisstjónin svo fyrir
þingið og var það sam-
þykkt samhljóða i báðum
þingdeildum. Engar at-
hugasemdir voru gerðar
við ákvæðið um útflutn-
ingsuppbæturnar. Þannig
byggist núgildandi laga-
ákvæði um útflutnings-
uppbæturnar á samkomu-
lagi, sem Stéttarsamband
bænda og Alþýðusam-
band íslands stóðu að. og
síðan var samþykkt sam-
hljóða af öllum þingmönn-
um, sem sátu haustþingið
1959. Það var þá almennt
álitið og viðurkennt, að
nauðsynlegt væri að
tryggja vissa umfram-
framleiðslu á land-
búnaðarvörum i öryggis
skyni og yrði það ekki bet-
ur gert en með út-
flutningsuppbótum úr
ríkissjóði að vissu marki.
Framangreind fjárveit-
ing á fjárlagafrumvarpinu
er þannig byggð á laga
ákvæði, sem algert sam-
komulag var um milli
stéttasamtaka, þingflokka
og þingmanna á sínum
tima. Það var ekki sizt
gert með samþykki þeirra,
sem nú gagnrýna þetta
fyrirkomulag, eins og t.d.
forustumanna Alþýðu-
sambandsins. M.a. stóðu
þeir Þessa sögu útflutn-
ingsuppbótanna er gott
að menn hafi í huga, þeg-
ar rætt er um þær."
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhiisinu
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR .5 OKTOBER 1977
Að mörgu er aö hyggja,
er þú þarft að tryggja
"i,;............................. .....1---------N
Brunar og slys eru of tíóir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar
óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá .
fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió.
Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu.
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 51888
EIK TEAK og
OREGONFURA
ávalllt fyrirliggjandi.
a|a Timburverzlunin
VÖlundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Lister H.R.6 dieselvél
Til sölu 6 sh Lister díeselvél Loftkæld Nýupp-
gerð.
Stærð 64 hö við 1500 sn/mín 88 hö við
2200 sn/mín.
Upplýsingar í síma 26466.