Morgunblaðið - 19.11.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977
„Góðar óskir frá öllum
hljóta að fylgja Sadat”
- sagði Einar Agústsson
MORGUNBLAÐIÐ sneri
sér til Einars Ágústsson-
ar utanríkisráðherra í
gærkvöldi og spurði hann
álits á ferð Sadats til
ísraels. Utanríkisráð-
herra sagði: „Ég tel að
þetta sé sögulegur við-
burður, sem hljóti að efla
vonir manna um að þetta
langvinna deilumál nálg-
ist lausn. Ég tel að Sadat
utanríkisráðherra
hafi með þessu sýnt mik-
inn kjark og samkomu-
lagsvilja og honum hljóta
að fylgja góðar óskir frá
öllum svo og Israels-
stjórn og þingi með von
um að um raunverulegan
vilja til aö leysa málið sé
að ræða. Það er mjög í
anda okkar íslendinga að
leysa málin með viðræð-
um en ekki vopnum.“
Fleiri tékkar gengu
milli reikninganna en
rannsóknarmenn töldu
— og rannsókn ávísanamálsins
mun því dragast fram á næsta ár
Mál Hauks í
vinnslu hjá
saksóknara
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Þórð Björnsson
ríkissaksóknara og spurðist fyrir
um mál Hauks Guðmundssonar
rannsóknarlögreglumanns.
Saksóknari svaraði því til, að
allar umbeðnar umsagnir ráðu-
neyta væru komnar og væri nú
unnið að málinu hjá embættinu
en ómögulegt væri aó segja hve-
nær það yrði afgreitt hjá embætt-
inu.
„ÞAÐ HAFA fleiri tékkar gengið
milli þeirra bankareikninga, sem
við erum með í rannsókn, en okk-
ur óraði fyrir og hefur rannsókn-
in því gengið hægar en við vonuð-
um,“ sagði Hrafn Bragason um-
boðsdómari f ávfsanamálinu f
samtali við Morgunblaðið f gær.
Hrafn hefur verið I frfi frá dóm-
arastörfum við borgardóm
Reykjavíkur frá 1. september og
stefndi hann að því að ljúka rann-
sókn málsins fyrir áramót. I gær
kvaðst Hrafn hafa litlar vonir um
að þessi áætlun stæðist.
Auk Hrafns vinna nú að stað-
aldri 3—4 lögreglumenn að rann-
sókn málsins og fer hún fram í
húsnæði Útvegsbankans f Kópa-
vogi. Áður störfuðu rannsóknar-
menn í Lögreglustöðinni í Reykja-
vík en vegna þrengsla í bygging-
unni urðu þeir að flytja sig í
Kópavog.
F undinum
var lokað
ÞAÐ ER yfirlýst stefna Al-
þvðubandalagsins, að lands-
fundur flokksins sé opinn öll-
um, sem á vilja hlýða. I gær
gerðist það að Úlfar Þormóðs-
son, starfsmaður Þjóðviljans,
bar fram tiliögu um að fundin-
um yrði lokað. Var tillaga Úlf-
ars samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum lands-
fundarfulltrúa, nema tveggja,
sem ekki vildu samþykkja til-
lögu Úlfars.
í tillögunni var jafnframt
kveóið svo á, að á meóan fund-
urinn væri lokaður, skyldi for-
maður flokksins, Ragnar Arn-
alds, skýra fulltrúum frá til-
raunum flokksforystunnar til
Framhald á bls. 29.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs:
Völuspá og Þryms-
kviða frá íslandi
REKNETAVEIÐUM á sfld er lokið. Á myndinni sést
Skógey SF 53 á siglingu á miðin. (Ljósm. Ósk. Sæmunds-
son).
TÓNLISTARVERÐLAUN
Norðurlandaráðs verða af-
hent á fundi ráðsins dag-
ana 18. —22. febrúar á
næsta ári. Verðlaunin
nema 75000 dönskum krón-
um, sem eru um 2.590.000
íslenzkar krónur. Síðast
þegar verðlaunin voru af-
hent, 1976, hlaut íslenzka
tónskáldið Atli Heimir
Sveinsson þau, en verð-
launin eru afhent annað
hvert ár.
Að þessu sinni hafa Norður-
Bændafundir um allt land:
Samdráttur í söiu mjólkurafurða
- aðgerðir til að minnka nyt í kúm
„SAMDRÁTTURINN í sölu
mjólkurafurða að undanförnu og
þær aðgerðir sem hugsanlega
verður að grfpa til I þvl sambandi
þýða tekjuskerðingu hjá bændum
og það er hart fyrir bændur að
taka þvf á sama tíma og allir aðrir
landsmenn auka tekjur sfnar,“
Góðar sölur hjá togur-
unum í V-Þýzkalandi
ÞRÍR íslenzkir togarar
seldu ísaðan fisk í V-
Þýzkalandi í gær og í fyrra-
dag og fengu allir ágætis
verð fyrir aflann, eða
170—190 kr. að meðaltali
fyrir kílóið.
Karlsefni RE seldi 211.6 lestir
fyrir 423.500 mörk eða tæpar 40
milljónir í fyrradag. Meðalverð á
kíló er kr. 190. Sama dag seldi
Sigluvík SI 92.9 lestir fyrir
191.800 mörk eða um 81 millj. kr.,
meðalverð er kr. 190.
1 gær seldi svo Stálvík SI 93.3
lestir fyrir 170.600 mörk eða um
17 millj. kr. Meðalverð á kíló var
kr. 172.
sagði Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands bænda, f
samtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi þegar hann var inntur eft-
ir ástæðu fyrir fundum þeim sem
Stéttarsambandið efnir til um
þessar mundir á meðal bænda
landsins.
„Ástæðan er vandamál, sem
upp er komið varðandi sölu og
útflutning á landbúnaðarafurð-
um,“ sagði Gunnar, „það hefur
dregið úr sölu mjólkurafurða
innanlands, um 2—3% siðan um
áramót á sölu mjólkur, 5% á sölu
rjóma og 18.9% á smjöri. -2ala á
kindakjöti hefur verið óbreytt, en
óvíst er um nautakjöt. Þessi sam-
dráttur eykur á vandamál vegna
útflutnings landbúnaðarafurða
og þetta þýðir að auka verður
ostagerð til útflutnings og þá
duga ekki jitflutningsbæturnar
sem gert er ráð fyrir. Á s.l. ári,
þ.e. frá 31. ág.‘76 til 31. ág.‘77.
vantaði um 300 milljónir króna í
útflutningsbætur og á þessu ári
er reiknað með að enn hærri upp-
hæð vanti.
Við erum að skýra þennan
vanda fyrir bændum og leggja
fram hugmyndir um aðgerðir til
Framhald á hls. 28.
löndin hvert um sig tilnefnt tvo
menn sem til greina kæmu, en
það eru frá Danmörku Vang
Holmboe fyrir Konsert fyrir cello
og hljómsveit og Gunnar Berg fyr-
ir Essai Accoustique 3 fyrir píanó
og hljómsveit. Frá Finnlandi eru
tilnefndir AIuis Sallinen fyrir
Ratsumies (ópera) og Paavo
Henninen fyrir Maiandros, (sem
leikur fyrir píanó og elektrónisk
tæki). Frá íslandi Jón Ásgeirsson
fyrir Þrymskviðu og Jón Þórarins
son fyrir Völuspá. Frá Noregi
Finn Mortensen fyrir Hedda
(verk fyrir hljómsveit) og Knut
Nystedt fyrir Lucis Creator
Optime (verk fyrir kór hljómsveit
og einleikara). Frá Sviþjóð Lars
Gunnar Sodin fyrir Skárvor av tid
som kommer og Svein-David
Sandström fyrir Culminations, en
þess má að lokum geta að frá
íslandi hafa verið tilnefndir i
sambandi við úthlutun bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs þeir Thor Vilhjálmsson og
Tryggvi Emilsson en þau verð-
laun eru til úthlutunar árlega.
©
INNLENT
I>rautgódir á
raunastund 9.
bindi komið út
9,61% hækk-
un á vísitölu
framfærslu-
kostnaðar
VlSITALA framfærslu-
kostnaðar var f byrjun
mánaðarins 840 stig og hafði
hækkað um 74 stig frá þvf f
byrjun ágúst. Þessi hækkun
er 9,61% og segir í frétt
Hagstofu Islands að til hafi
komið hækkanir á fjölmörg-
um vöru- og þjónustuliðum,
bæði innlendum og
erlendum.
Vfsitala framfærslukostn-
aðar er reiknuð frá janúar-
mánuði 1968 sem 100 stig-
um.
„Hasla mér völl við
hliðina á þeim sem hafa
breytt Alþýðiiflokknum”
segir Jón Helgason formaður Einingar
„ÁSTÆÐAN fyrir því a8 ég hef gengiS til liðs viS
AlþýSuflokkin er einfaldlega su. a8 ég tel Samtök-
in ekki geta skapaS þann pólitíska bakhjarl. sem
maSur þarf að hafa á bak vi8 sig. og ég tel
AlþýSuflokkinn nú standa næst minum skoSun-
um," sagSi Jón Helgason formaSur verkalýSs-
félagsins Einingar á Akureyri í samtali vi8 Morgun-
blaSiS i gær. Jón sagSi sig úr Samtökunum fyrir
nokkru og hefur nú formlega sótt um inngöngu i
AlþýSuflokkinn.
„Ég tel a8 það hafi orðið veruleg umskipti i
Alþýðuflokknum a8 undanförnu og þessi umskipti
falla vel að minni lifsskoðun. og þess vegna hasla
ég mér völl i flokknum við hliðina á þeim mönnum.
sem hafa lagt sig fram við að breyta honum i þá
veru sem ég tel hann eigi að vera.
Að mínu mati verður verkalýðsbaráttan ekki
rekin nema hún hafi einhvern pólitiskan bakhjarl,
og eðlilega vel ég þann sem stendur næst minni
lifsskoðun," sagði Jón Helgason.
Jón
Helgason
ÞRAÚTGOÐIR á raunastund, 9.
bindi, eftir Steinar J. Lúðvfksson
blaðamann er nú komin út hjá
bókaútgáfunni Hraundrangi, Örn
og örlygur H/F. 1 þessari björg-
unar- og sjóslysasögu tslands tek-
ur Steinar fyrir atburði áranna
1916 — 1919, að báðum árum
meðtöldum.
1 frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Þessi ár voru umbrotaár í is-
lenzkum sjávarútvegi. Vélbátaút-
gerðin var að taka við af skútuút-
gerðinni og togararnir að koma til
sögunnar. Á þessum árum stóð
fyrri heimstyrjöldin, sem olli ís-
lendingum miklum búsifjum. 1
bókinni eru m.a. frásagnir af at-
burðum styrjaldaráranna, eins og
t.d. þegar flutningaskipunum
Ceres, Vestu og Flóru var sökkt.
Þá má nefna frásögn af strandi
Goðafoss, björgunarafreki Guó-
bjarts Ölafssonar og manna hans i
marz 1916, er selveiðiskipið Kóp-
ur fórst út af Reykjanesi."
Steinar J. Lúðvíksson segir í
formála að þetta ritverk hafi orið
umfangsmeira en upphaflega hafi
verið gert ráð fyrir, en samt sem
áður sé engum ljósara en sér að
mestu erfiðleikarnir hafi verið
þeir að oft hefði orðið að stikla á
of stóru, og draga saman í stutt
mál, það sem vert hefði verið að
væri mun ítarlegri og lengri frá-
sagnir. Siðan segir hann:‘„Þvi er
ekki að neita að við samningu
þessarar bókar hefur reynst mun
erfiðara að afla heimilda en oft
áður. Slíkt er í raun og veru eðli-
Framhald á bls. 29.