Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19 NOVEMBER 1977 39 áttu bæjarstjórahjónin veigamik- inn þátt í að varpa ljóma á þessar viðtökur. , Árið 1926 komu konungshjónin til Akureyrar. Þótt viðdvölin væri ekki löng, tókst góður kunnings- skapur með Fanneyju og hrið- meyju drottningar, og skrifuðust þær á lengi síðan. Þetta var fyrir hálfri öld, þegar veröldin var önn- ur en nú og kóngar voru kóngar. Rithöfundurinn heimsfrægi, Jón Sveinsson, var í hópi margra, sem gistu ísland þjóðhátíðarárið 1930. Er hann vitjaði æskustöðvanna á Akureyri, féll það öðrum fremur í hlut þeirra hjóna að veita honum hjartanlegar viðtökur. Akureyri á sér marga dýrmæta reiti til minja. Þar er Nonnahús, svo sem kunn- ugt er. í minjasafni bæjarins eru líka varðveittir góðir gripir til minningar um nafna hans, bæjar- stjórann fyrrverandi. Þótt það yrði þannig hlutskipti Fanneyjar að taka þátt i opinberu lífi bæjarins um árabil og hún hefði vegna mannkosta sinna hlotið að setja svip á heimabyggð sina hvar sem hún hefði staðið, var hún að eðlisfari hlédræg kona og ekki um það gefið að vekja á sér athygli. En hún var gædd ýms- um þeim kostum, sem við óskum, að prýði vini okkar. Hún var að visu borin og barnfædd fyrir daga langskólaaldar, en hafði engu að síður öðlazt góða menntun. Hún var traust, svo að ekki skeikaði. Hlýja hennar og hispursleysi var með þeim hætti, að fólki hlaut að líða vel í návist hennar, enda kunni hún þá list að hjálpa öðrum að njóta sín. Trygglyndi hennar var dæmafátt. Til marks um það má geta þess hér, að óvandabund- inn unglingur, sem þau hjón skutu skjólshúsi yfir fyrir tæp- lega 40 árum, minnist nú með þakklæti símtala á tyllidögum og afmælisskeyta, sem hún hefir sent honum siðan. Og jólakortin, sem ekki brást, að bærust í tæka tið, voru rituð svo fagurri hendi og persónulegri, að af bar. Arið 1934 fluttust þau hjón ut- an úr bæ inn í Aðalstræti 72, þar sem þau bjuggu á annan áratug. Seinna reistu þau húsið Aðal- stræti 82, og þar bjó Fanney lengstum siðan. Fjaran á Akur- eyri, sem svo er kölluð, þar sem undu sér sendlingur og kría, en gróður teygði sig upp á brekku- brún, hefir löngum varðveitt sér- stakan þokka sem menn skynja undir eins, en ekki verður lýst. Þarna inni með firðinum var fögru mannlífi búin vegleg um- gjörð, og þar undi látin dreng- skaparkona til efstu ára. Ég læt hér lokið fátæklegum kveðjuorðum um Fanneyju Jó- hannesdóttur, sem var svo mikils háttar, að fyrrum hefðu þjóð- skáldin við leiðarskil kveðið henni ljóð. Bjarni Sigurðsson frá Mosfelli. Það fólk, sem einkum setti svip á Akureyri í uppvexti minuni, er nú sem óðast að hverfa af sjónar- sviðinu og margt horfið okkur fyrir alllöngu. í þessum hópi eru hjónin Fanney Jóhannesdóttir og Jón Sveinsson, sem lengi var bæj- arstjóri í höfuðstað norðurlands. Jón lést fyrir 20 árum, en frú Fanney er nýlátin í hárri elli og er í dag lögð til hinstu hvildar við hlið bónda síns og sonarins Svav- ars i krikjugarðinum á Akureyri. Fanney Jóhannesdóttir er ein þeirra kvenna, sem aldrei gleym- ast þeim, er kynntust henni. Það atvikaðist svo, að Jón og Fanney reistu hús sitt við sömu götu og foreldrar minir og var stutt á milli. Þetta voru meðal fyrstu húsa á suður Brekkunni og þau fyrstu, sem risu við Hrafnagils- stræti. Dóttír hjónanna, Sigríður, varð vinstúlka okkar systranna frá fyrstu tíð og yngri dóttirin Brynhildur leiksystir litla bróður okkar og þvi var titt hlaupið á milli húsanna tveggja enda stutt að fara. Ævinlega var okkur vel tekið, þegar við börðum dyra til að spyrja um vinstúlkuna. Hús- freyjan talaði bliðlega við okkur og brosandi, röddin var óvénju mild og þægileg og allt fasið að- laðandi, svo að okkur leið vel ná- lægt henni. Ég sá hana aldrei öðruvisi en með bros á vörum og á r sem standast dldar-hlaðborð.ð á boðstölum m>u á laugardögum paö eru tai' ■etkhlaðna • kar, sem er kt. 17 og 20 VEITINGAtlÚSlÐ <pé6022 T ÁRMÚLA 21 vinnufólk þeirra vann þeim ára- tugum saman. Viðurgerningur allur var eins og höfðingjum sómdi og ekkert við nögl skorið. Á hinn bóginn var oft vel unnið og glaður var Jóhannes að loknum löngum dögum þegar miklu heyi hafði verið komið i hlöður og fúlg- ur. Hygg ég að oft hafi hann í hjarta sinu hugsað líkt og sveita- drengurinn úr Dölum vestur, Jóhannes úr Kötlum, sem sagði: ....göfgasta gleði í sál gefur mér unnið verk." Þó að vel væri unnið og ekki gert viðreist fylgdist Jóhannes vel með þvi sem gerðist afbæjar. Hann hlustaði á útvarp og las blöð og er mér minnisstætt hversu vel hann fylgdist með veðurfari, bú- skaparháttum og afkomu bænda, jafnvel í fjarlægum sveitum. Aldrei leit ég hann hýrari á svip en þegar tíðindi bárust um ár- gæsku til lands og sjávar. En ef fréttist um illt árferði velti hann því jafnan fyrir sér hvað helst mætti til bjargar verða. Ánægja yfir erfiðleikum annarra var óþekkt í rausnargarðinum Stóru- Giljá og líklega um gervallt Húna- þing. Mér er í fersku minni haustdag- ur einn á hlaðinu á Ytra-Hólmi. Ég fylgdi Giljárbræðrum þangað i heimsókn til fornvinar þeirra, Péturs alþingismanns Ottesens. Að loknum kossum og faðmlöguin segir Pétur: ,,Ja, tnikið var nú oft gaman að koma að Giljá í gamla daga og aldrei gleymi ég því hvað þið voruð alltaf vel heyjaðir." Það birti yfir svip bræðranna og var hann þó heiður fyrir og þeir svöruðu að bragði: „Já. við kunnum nú alltaf betur við að geta miðlað öðrum og þurfa ekki að kaupa hey.“ Þetta svar kunni atorkumaður- inn Pétur Ottesen að meta enda I ramhald á bls 3i Ingibjörg var fædd á Vatnsenda við Keflavík 16. ágúst 1896 og ólst þar upp hjá foreldrum sinum á fjölmennu myndarheimili. Syst- kinin voru fimm, og var Ingibjörg næst yngst. Móðir Ingibjargar var Jóhanna JónasdóttiF fædd 27. október 1860 á Rútsstöðum í Flóa. Þær voru þrjár, systurnar á Rútsstöður, orð- lagðar fyrir sína hæfileika og myndarskap í hvivetna, Jóhanna, Sigriður og Katrin. Sigriður giftist Samúdel Ölafs- syni söðlasmið, miklum framfara- manni i iðnaði hér í borg. Hann starfaði einnig í áraraðir að bæjarmálum, og átti mikinn þátt i fyrstu skrefum bæjarsamfélags- ins, eins og við nú þekkjum það. Katrín giftist Guðmundi og bjuggu þau myndarlegu búi sinu til sjós og lands i Tungu í Flóa. Það var í þá daga, er róið var til fiskjar frá söndunum við suður- strönd islands. Guðmundur var Minning: Jóhannes Erlendsson bóndi Stóru-Giljá mjög erfitt með að hugsa mér hana reiða eða skapvonda, þótt eflaust hafi hvorki skort skap né alvöru, en við okkur börnin var hún ævinlega mild og því er minningin um hana svo ljúf. Jón og Fanney eignuðust tvær fallegar og velgefnar dætur sem voru sólargeislar heimilisins, en son höfðu þau eignast vanheilan og var það þungbær raun. Mikið ástríki var nleð Fanneyu og systr- um hennar og áttu börnin athvarf hjá þeim góðu konum og þar dvaldi drengurinn um árabil. Þótt árin i Hrafnagilsstræti yrðu ekki mörg, þá ljómar af þeim í minningunni og alltaf hélst vin- átta milli barnanna. F:nney var glæsileg kona i allri framgöngu. Hún gladdist innilega yfir vel- gengni dætranna og hún syrgði örlög drengsins síns vanheila. En í lífinu eru ævinlega bæði ljós og skuggar og líklega kynnum við ekki að meta sólina ef aldrei bæri skugga fyrir og fæstir lifa við eintómt sólskin, þótt stundum sýnist misjafnt deilt manna á meðal. Og Fanney kvartaði ekki yfir hlutskipti sínu. Hún var þakklát kona fyrir þann „deildan verð“ sem kom í hennar hlut og sannar- lega hafði hún líka yfir mörgu að gleðjast og mikið að þakka. Við vorum aðflutt og ókunnug i bænum, þegar við fluttum í Hrafnagilsstrætið og það var ekki lítil gæfa að kynnast góðu fólki og eignast góða granna á borð við Fanneyju og fjölskyldu hennar. Fanney var alltaf fín. Það var sama, hvort hún var hversdagsbú- in með svuntuna við eldhússtörf- »n eða i peysufötum við hátiðleg tækifæri — en þau bar hún glæsi- lega — það var alltaf persónan sjálf og hinir mörgu góðu eðlis- kostir, sem blöstu við manni og Framhald á bls. 36 Fædd 16. ágúst 1896. Dáin 26. október 1972. Ingibjargar Bjarnadóttur, Bárugötu 10, munu margir minn- ast, en þar átti hún heima siðast liðin 35—40 ár, og þar tók hún á móti ættfólki og vinafólki sínu, oft á ári hverju; með miklum höfðingsbrag — þar var miðstöð ættfólksins. F. 23. mai 1891. D. 23. október 1977. „Nú fækkar þeim óðum sem fremstir stódu sem festu rætur í fslenskri jöró. veggi vörður hl(>ðu (>K vegi ruddu um hraun or skörð. biirðust til þrautar með hnefa op hnúum or höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt.“ Jóhannes Erlendsson, bóndi að Stóru-Giljá i Húnaþingi er í val fallinn hátt á níræðisaldri. — Hann var fæddur 23. maí 1891. sonur hjónanna Astríðar Sigurð- ardóttur frá Hindisvík á Vatns- nesi og Erlends Eysteinssonar frá Orrastöðum, en þau bjuggu að Beinakeldu í Torfalækjarhreppi. — Jóhannes var aðeins tíu ára þegar faðir hans lést frá konu og átta börnum á aldrinum eins til fimmtán ára. Elsti sonurinn, Sig- urður, sem þá var fjórtán ára, tók þegar við búsforráðum með móð- ur sinni og var ráðsmaður. Ungur var Jóhannes að árum er hann hóf að vinna búinu. Bjuggu þeir bræður um skeið þrír saman á Beinakeldu og var Eysteinn hinn þriðji. Þar kom að Jóhannes fór bú- ferlum að Stóru-Giljá ásamt móð- ur sinni en hún átti þá hlut i þeirri jörð. Nokkru síðar fluttist Sigurður einnig að Giljá og eign- uðust þeir bræður brátt jörðina alla en Eysteinn bjó áfram á eign- arjörð sinni, Beinakeldu. Sigurð- orðlagður bóndi; og gæfusamur sjósóknari, en skipin voru opnir bátar og fyrir brimboða að fara frá sandinum, sem liggur fyrir opnu hafi. Faðir Ingibjargar var Bjarni Jónsson, fæddur á Brekku á Álftanesi (Bessastaðasókn) 3. desember 1860. Hann kvæntist Jóhönnu og bjuggu þau í Gerðum i Garði, en hann var útvegsbóndi og formaður þar. Bjarna er lýst Framhald á bls. 36 ur og Jóhannes, sem ,oft voru nefndir Giljárbræður, bjuggu síð- an á Stóru-Giljá þar til fyrir fáum árum að þeir seldu búið i hendur bróðursyni sínum, Erlendi Ey- steinssyni. Búskapurinn á Stóru-Giljá var með einstökum myndarbrag í tíð þeirra bræðra eins og raunar þjóðfrægt er. Stórt var búið og höfðinglega og þann veg að jafn- an voru þeir grónir í fyrningum. Tækninýjungar bar þar að garði fyrr en víðast annars staðar. Ef Jóhannes frétti af tæki sem nýta mátti við búsýsluna, jafnvel þótt enginn hefði keypt það til islands og reynt hér, var hann ekki í rónni fyrr en það var komið heiin i hlað á Stóru-Giljá. Það sagði mér Guðmundur Jónsson, fyrrum skólastjóri á Hvanneyri, sveitungi Giljárbræðra, að fyrir hefði kom- ið að nýjungar í vélbúnaði hefðu fyrr borist að Stóru-Giljá en Hvanneyri. Jóhannes Erlendsson var völ- undur og bar slikt skyn á vélar þótt alls ómenntaður væri í vél- fræði að undrum þótti sæta. Kom það sér vel, einkum þó eftir að þeir bræður höfðu virkjað Giljá og raflýst þannig þrílyft steinhús sem þeir reistu sjálfir eftir eigin hugmyndum á árunum 1924—1926. Raflýsing sveitabæja var á þeirri tíð nokkur nýlunda norðanlands og merki egt fram- tak. Jóhannes annaðist rafstöðina alla tíð og að sjálfsögðu viðhald búvéla og húsa. Einnig hvíldi bú- stjórnin mjög á herðum hans því að fljótt hlóðust á Sigurð ýmis störf i þágu byggðarinnar. Var hann um langan aldur hreppstjóri Torfalækjarhrepps og oddviti, annaðist póstafgreiðslu og síma- þjónustu og vann að safnaðarmál- um svo að eitthvað sé nefnt. Mátti segja að Sigurður ætti sér bróður sem að baki honum stóð, glaður og reifur, og hvikaði hvergi frá hversdagsönnum. Samvinna bræðranna var slík að milli þeirra fóru aldreí óánægjuorð. Og skapferli þeirra var þannig háttað aö hnýfilyrði lágu þeim aldrei á tungu, jafnvel þó að þeim væri eitthvað öndvert. Ef finna þurfti að var það gert með gamanyrðum og glettni á vör. Ætíð var fjölmenni á Stóru- Giljá. Bræðurnir höfðu margt hjúa og voru hjúasælir. Margt Ingibjörg Bjarna- dóttir Minningarorð ys' *s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.