Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977 27 Ragnhildur Helgadóttir, forseti neðri deildar Alþingis: Prófkjörið og S jálfstæðis- flokkurinn í dag klukkan tvö hefst prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þá ákveða Reyk- vikingar hverjir verði á fram- boðslista flokksins við Al- þingiskosningarnar í vor. í dag veljum við fólk en ekki flokk. Tökum þátt í þvi. Hugmyndin um þessa að- ferð við skipan framboðslista á sér langan aðdraganda í flokki okkar. Þessi aðferð flytur valdið úr hendi fárra í hendur fjöldans, — fólksins, sem lætur sér annt um flokk okkar og gerir sér Ijóst hlut- verk þessa stóra flokks í stjórn landsins. Prófkjör var lengi baráttu- mál ungra sjálfstæðismanna. í yngstu hópunum hafa löng- um verið eindregnustu ósk- irnar um að gera lýðræðið virkara. Þetta megum við muna. Ekki voru allir sjálfstæðis- menn á einu máli um að kosningaréttur í prófkjöri yrði heimill öðrum en félags- bundnum sjálfstæðismönn- um. Sú varð þó raunin, þar sem Ijóst var, að fjöldi manna kýs Sjálfstæðisflokkinn, án þess að kæra sig um að vera i félögunum. Fyrsta opna prófkjörið fór fram í Siálfstæðisflokknum árið 1 970 fyrir Alþingiskosn- ingar. Annað fyrir borgar- stjórnarkosningar 1974 og þetta er hið þriðja í röðinni. Fyrir þingkosningar 1 974 fór ekki fram prófkjör. Aðferðir við undirbúning og fram- kvæmd prófkjörs eru í raun- inni enn í mótun. í prófkjöri er valið milli manna, hjá því verður ekki komizt. Kosningabarátta ein- staklinga er því hluti af undir- búningi prófkjörs. Það er eðlilegt og skiljanlegt, en líka viðkvæmt og vandasamt. Mikið liggur við, að sá þáttur undirbúnings og framkvæmd prófkjörs sé með þeim hætti, að allir hafi sóma af Öll erum við samherjar. í hita barátt- unnar þurfa menn á öllum sínum drengskap að halda. Kosningaundirbúningur reynir á þolrif bæði frambjóð- enda og kjósenda. Við öðru er varla að búast, ef skipta á átta þingsætum milli fjörutíu og þriggja manna. Bækling- ar, fundir og viðtöl eru fastir liðir i kosningaundirbúningi. Allt er þetta merki um líf, áhuga, hreyfingu og frelsi í skoðunum og tjáningu. Sum- ir þreytast á slíku. Verra væri þó að vera án þess, eins og vera myndi í þjóðfélagi, þar sem óþarft þykir að leita til almennings um álit á hlutun- um. Sumir eru hræddir við, að prófkjör sundri hópi okkar Svo þarf alls ekki að vera og má ekki vera. Þvert á móti getur prófkjörsstarfið orðið til eflingar og sameiningar, ef vel er á haldið. Undirbúning- ur og framkvæmd prófkjörs getur vel farið fram með já- kvæðum og prúðmannlegum hætti. Sjálfstæðismenn hafa mikilvægu hlutverki að gegna. Við verðum að sjá til þess, að undirbúningur og framkvæmd prófkjörsins, valið milli manna, geti farið fram með þeim sóma, í vin- semd og góðum félagsanda, að flokkur okkar verði ekki, þrátt fyrir prófkjör, heldur vegna þess, rammefldur og sameinaður til hinna stóru átaka, sem við stöndum frammi fyrir i vetur og vor. Að lokum: Sjálfstæðis- menn, veitum stjórnarforyst- unni sterkan stuðning. Það verður stefnumálum Sjálf- stæðisflokksins mest til fram- dráttar. Tökum þátt í prófkjörinu. Gerum það með þeim hætti, að við sönnum kosti lýð- ræðisins. Akureyri, 17. nóvember AMTSBOKASAFNIÐ á Akur- eyri er 150 ára um þessar mundir, og er afmælisins minnst með ýmsu móti. A laugardaginn verður afmælis- hátfð f safninu og hefst kl. 14.00. Þar flytur Lárus Zophonfasson, amtsbðka- vörður, erindi um sögu safns- ins, en Gfsli Jónsson, forniaður bókasafnsnefndar, stýrir athöfninni. Þá verður haldin þriggja daga ráðstefna um sögu Akureyrar að tilhlutan sögu- nefndar bæjarins, sem kosin var í síðasta mánuði. Hana skipa Gísli Jónsson, fulltrúi bókasafnsnefndar, Haraldur Sigurgeirsson, fulltrúi Menningarsjóðs Akur- eyrar, og Valgarður Baldvins- son, kosinn af bæjarráði. Lárus Amtbókasafnið á Akureyri 150 ára Zóphoniasson hefir verið nefndinni til ráðuneytis. Nefndin er skipuð í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar á 2500. fundi hennar fyrr á þessu ári, en þá var ákveðið að veita 2,5 millj. króna til ritunar sögu Akureyrar. Ráðstefna um sögu Akureyrar í tilefni afmælisins Ráðstefnan hefst annað kvöld, föstudag, með ávarpi Helga M. Bergs, bæjarstjóra, en einnig flytja erindi Tryggvi Gíslason, skólameistari, og Haraldur Sigurðsson, banka- fulltrúi. A laugardag verður afmælis Amtsbókasafnssins sérstaklega minnst, eins og fyrr var getið, en á sunnudaginn flytja Steindór Steindórsson og Gísli Jónsson erindi, og hring- borðsumræður verða um ritun sögu Akureyrar. Ráðstefnan er öllum opin, og þessa daga og hina næstu verða til sýnis í safninu gamlar ljósmyndir frá Akureyri, gamalt Akureyr- arprent og nokkur málverk i eigu bæjarins. Á laugardag verða i Borgarbiói fjórar sýningar á Akureyrarkvik- mynd Vilhjálms Knudsens, sem Menningarsjóður Akureyrar- bæjar lét gera. Amtsbókasafnið er langelzta stofnun, sem nú starfar í Akur- eyrarbæ. Heimildir um stofnun þess skortir alveg, en vist er, að það mun hafa verið á Möðru- völlum í Hörgárdal fyrstu árin. Stefán amtmaður Þórarinsson getur þess i Lærdómslista- félagsritum 1792, að ári áður hafi hann stofnað „Hið norð- lenzka bóklestrarfélag, og hvet- ur til, að fleiri slík félög verði stofnuð. Félagsmenn losuðp 20, en annars er fátt um þetta félag kunnugt. Hugsanlegt er, að ein- hver tengsl hafi verið milli þess og bókasafnsins, en það er ósannað mál. Eftirmaður Stefáns (d. 1823) í amtmannsembætti var Grimur Jónsson, sem raunar gegndi því tvisvar. Árið 1826 skrifaði hann vini sínum Finni Magnússyni til Kaupmanna- hafnar og segir i því bréfi, að hann hafi „ladet mig forföre til at stifte et læseselskab" og biður Finn að kaupa handa því bækur. Tveimur árum síðar, í mai 1828 fékk amtmaður bréf frá stjórn Stiftsbókasafnsins í Reykjavík. Þar er frá því skýrt, að Carl Chr. Rafn (stofnandi Stiftsbókasafnsins, sem nú heitir Landsbókasafn,) hafi mælt svo fyrir, að það skuli gefa Bókasafni Norðuramtsins bækur, sem til séu í tvítökum, og fylgir skrá yfir þær. Þetta er í fyrsta sinn, sem nafrt safnsins kemur fyrir, og má vera, að nafnið sé frá Rafni komið, þótt enginn viti það nú. En þetta bréf sannar, að stofnunin er að minnsta kosti 140 ára gömul, og vera kann að hún sé eldri. Það er næst um sfnið kunnugt, að 16/5 1846 skrifaði Grímur amtmaður innanríkis- ráðuneytinu bréf og segist hafai neyðzt til að láta bækur safns- ins í kassa og koma þeim fyrir „i kjöbmand Gudmanns lokaie“ á Akureyri. Er hér sennilega um flutning safnsins til Akur- eyrar að ræða. 1850 lagði ráð- herra fyrir amtmann að láta koma bókum safnsins fyrir í hillum, svo að þær yrðu aðgengilegar almenningi, og láta gera skrá yfir bækurnar. Ekki er vitað hver tók saman skrána, en Vilhjálmur Finsen sá um prentunina í Kaup- mannahöfn 1851. Skv. henni voru 816 númer í safninu (801 bókartitill og 15 töflur og kort), mest rit á dönsku (nra. 19 bindi af Goethes udvalgte Skrifter), en fremur fátt íslenzkra bóka. Áríð 1863 er skipuð nefnd til að kynna sér ástand safnsins og gera tillögur um framtið þess. 1 h^nni áttu sæti Jón Thoraren- sen lyfsali, B.A. Steincke, verzlunarstjóri, og Jóhannes Halldórsson, kennari. Fyrsti bókavörður mun hafa verið Andreas D. Mohr (1850—1852), en síðan þeir Ari Sæmundsen og Bernhard A. Steincke, þar til Frióbjörn Steinsson tekur við vörzlunni Framhald á bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.