Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
5
Fri vinstri: R gnheiður O. Bjömsson. sem itti hugmyndina að stofnun
Nonnasafns, Edda Eiriksdóttir. varaformaður Zontaklúbbs Akureyrar,
Stefania Ármannsdóttir. safnvörSur, og Þórhildur Steingrimsdóttir. formaSur
Nonnasafnsnefndar Zontaklúbbs Akureyrar.
Akureyri:
Nonnasafn 20 ára
Minnzt með hátíðarsamsæti
Akureyri, 16. nóvember
ZONTA-systur á Akureyri minntust
þess i dag með hátíðlegu samsæti i
Nonnahúsi, sem svo er nefnt, en hét
fyrrum Páishús, að 20 ár eru liðin frá
þvi, að Nonnasafnið var fyrst opnað i
þessu húsi. Það var á 100. afmælis-
degi Jóns Sveinssonar S.J., 16.
nóvember 1957.
Hugmyndina að stofnun minningar-
safns um hinn víðfræga og ástsæla
rithöfund og barnavin átti Ragnheiður
0 Björnsson. en Zontaklúbbur Akur-
eyrar tók málið strax að sér og tók að
vinna ötullega að því Hjónin Sigríður
Davíðsdóttir og Zóphonías Árnason
gáfu Zontaklúbbnum húsið árið 1 952 í
þessu skyni, og var strax hafist handa
um lagfæringar á þvi í því efni nutu
Zontasystur ráðlegginga og atbeina
Stefáns Jónssonar arkitekts, en húsið
er lítt breytt frá dögum Nonna nema
suðurstofurnar
Foreldrar Jóns Sveinssonar,
Sigríður Jónsdóttir og Sveinn
Þórarinsson, keyptu húsið árið 1865,
þegar þau fluttust til Akureyrar frá
Möðruvöllum í Hörgárdal. og þar átti
Nonni heima i 5 ár Faðir hans
andaðist árið 1869, og árið eftir fór
Nonni alfarinn af landi burt
Haraldur Hannesson hagfræðingur
hefir gefið safninu marga góða muni,
einkum bækur og myndir, en annars
eru safninu að berast munir víða að allt
til þessa dags, jafnvel frá fjarlægum
löndum. Aðsókn hefir alltaf verið mjög
mikil og farið vaxandi, bæði íslenskra
og erlendra gesta. Sumir koma gagn-
gert í nokkurs konar pílagrímsgöngu á
þær slóðir, sem sögur Nonna gerðust á
og þar sem Nonni átti bernskudaga
sína. Þá hefir safnið gengist fyrir skipu-
legri fræðslu 1 1 ára barna um Nonna.
og hefir útgefandi Nonna bókanna á
íslensku, ísafoldarprentsmiðja, gefið
verðlaunabækur fyrir bestu ritgerðir
barnanna um höfundinn og bækur
hans.
Fyrsti safnvörður Nonnasafns var
Kolbeinn Kristinsson fræðimaður, en
síðustu 15 árin hefir ein Zonta-systra,
Stefanía Ármannsdóttir annast safn-
vörslu Formaður Nonnasafnsnefndar
Zontaklúbbsins er nú Þórhildur Stein-
grimsdóttir, en formaður Zontaklúbbs
Akureyrar er Guðriður Eiriksdóttir, sem
nú er stödd erlendis. Á meðan gegnir
varaformaðurinn, Edda Eiríksdóttir,
formennskunni
Sverrir Pálsson.
Mjög góð
rækjuveiði
í Húnaflóa
Hvammstanga, 17. nóv.
HÉR HEFUR rækjuveiði
gengið mjög vel þann hálfa
mánuð, sem þær hafa verið
stundaðar, afli óvenjulega
mikill, allt upp í 4 tonn á
bát af góðri rækju. Rækjan
heldur sig mjög innarlega í
flóanum, svo að það er
mjög stutt að sækja.
Það leiðinda veður, sem hefur
farið yfir undanfarna daga er al-
veg gengið niður, en hér er þæf-
ings snjór og einhver ófærð.
Búfénaður er að mestu kominn í
hÚS. Fréttaritari.
Einn sótti um
Seyðisfjörð
FYRIR nokkru rann út umsókn-
arfrestur um Seyðisfjarðarpresta-
kall. Ein umsókn barst frá sr.
Herði Þ. Ásbjörnssyni, Reykjavík,
sem áður var sóknarprestur í'
Bíldudal.
Sr. Svavar Stefánsson.
Prestkosning
á Norðfirði
PRESTKOSNING fer fram í
Norðfjarðarprestakalli á morgun,
sunnudaginn 20. nóvember. Einn
umsækjandi er í kjöri, sr. Svavar
Stefánsson, settur sóknarprestur.
t prestakallinu eru tvær sóknir,
Norf jarðar- og Brekkusókn.
Svavar Stefánsson er 28 ára
gamall. Hann varð stúdent árið
1969 og guðfræðiprófi lauk hann
frá Háskóla Islands í mai 1975.
Svavar var um tíma settur prest-
ur í Hjarðarholtsprestakalli og
frá júni 1976 hefur hann verið
settur prestur í Norðfjarðar-
prestakalli.
IViðminnumá
að
Elín
Pálmadóttir
tekur þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í dag.
Við viljum Elínu á þing:
— Vegna beinna kynna hennar af borgarbúum og
málefnum þeirra sem borgarfulltrúi i Reykjavík í 8 ár og sem
blaðamaður í 1 9 ár.
— Vegna þess að hún hefur hugkvæmni, kjark og dugnað
til að nýta sina reynslu og þekkingu og koma málum fram.
-— Vegna þess að i henni er fólginn möguleikí á að rétta
aftur hlut kvenna i þingliði Sjálfstæðisflokksins og fá tvær
konur kjörnar á þing i Reykjavík.
Stuðningsmenn
Farið á
Elínu
Vantar þig
blómaskreytingu
i&f?*', . Látið okkar frábæra v-þýzka
•* skreytingarmann Burkhard
pC" £ ' Maedge sjá um skreytinguna
Nú um helgina skreytir Burkhard Maedge
á staðnum allskonar blómaskreytingar s.s.
Brúðarskreytingar
Afmælisskreytingar
Gj afaskr ey tingar
og þær skreytingar
sem þú óskar.
Komið í Blómaval um helgina
Þú sérð
ekki eftir því
blómoocil
iniiiHíHiaiii