Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Samþykkt að hafa skoðanakönnun
um næstu flokksforystu með 70:62
VANDI sé, sem landsfundarfulltrú-
ar Alþýðubandalagsins standa
frammi fyrir, þ.e. að velja flokks-
forystuna næstu árin, kom upp á
yfirborðið þegar á fyrsta fundi
landsfundarins í fyrrakvöld, er Er-
lingur Sigurðsson og Gunnlaugur
Ástgeirsson báru fram tillögu um
skoðanakönnun á fundinum, sem
verða skyldi kjörnefnd miðstjómar
að leiðarljósi, er hún tilnefndi
menn til forystu. í gærmorgun
urðu miklar umræður um tillög-
una, þar sem flokksforystan mælti
öll gegn samþykki hennar. Þrátt
fyrir það var tillagan samþykkt
með 70 atkvæðum gegn 62. Fór
skoðanakönnunin síðan fram i
kjölfar skýrslu formanns um þær
aðgerðir, sem forystan hefði haft i
frammi við að velja sér eftirmenn.
Á meðan var fundur lokaður.
Eins og skýrt var frá i Morgun-
blaðinu í gær, lögðu þeir tvímenn-
ingar til. að hver landsfundarfulltrúi
skyldi tilnefna 3 menn á blað og
tilgreina, hvaða embætti þeir ósk-
uðu eftir að viðkomandi gegndu.
Álfheiður Ingadóttir bar fram breyt-
ingartillögu og lagði til að nöfnin
yrðu fjögur. Féll Álfheiður síðan frá
tillögu sinni
Tillögunni var í fyrrakvöld vísað til
kjörnefndar miðstjórnar og fjallaði
hún þegar um hana Á árdegisfundi
í gær skýrði Benedikt Daviðsson
síðan frá niðurstöðum nefndarinnar,
sem voru, að nefndin vildi ekki
leggjast gegn því, að tillagan fengi
afgreiðslu fundarins; en með sam-
þykki flutningsmanna fékk nefndin
þá til þess að fella niður kröfuna um
að tilgreint yrði í hvaða embætti
viðkomandi frambjóðandi ætti að
fara Benedikt kvað miklar umræður
hafa orðið í nefndinni um tillöguna.
Er Benedikt hafði lýst afgreiðslu
kjörnefndar miðstjórnar á tillögunni
kvaddi sér hljóðs Hjörleifur Gutt-
ormsson Hann bað menn aðeins
velta fyrir sér, hvaða ávinningur yrði
af slíkri tillögu og hvort hún væri
skref í þá átt að leysa þann vanda,
sem flokkurinn væri í. Hann kvaðst
vera einn þeirra, sem væri óánægð-
ur með þann undirbúning, sem fram
hefði farið vegna þessara forystu-
breytinga, flokksráðsfundur hefði
ekki tekið á málinu eins og hann
hefði átt að gera Hann kvað skoð-
anakönnun sem þessa ekki fullnægj-
andi og ekki í anda lýðræðis. Hann
kvað menn geta ímyndað sér að
einn maður fengi þorra tilnefninga,
annar helming, þriðji fjórðung og
fjórði maður aðeins 10% Siðan
kæmi i Ijós að engir vildu gefa kost á
sér i efstu sætin. „í hvaða stöðu
setjum við þá, sem þurfa að taka við
stöðunni við litinn stuðning fundar-
ins?" spurði Hjörleifur. Hann kvað
formann flokksins jafnframt þurfa að
gefa skýrslu um gerðir stjórnarinnar
í að velja sér eftirmenn
Næstur tók til máls Lúðvík
Jósepsson Hann sagði að mikill
væri hann orðinn sá borgaralegi
grinþáttur, að fólk í Alþýðubanda-
laginu væri farið að falla fyrir^ion-
um. Þessi grinþáttur gengi nú yfir
þjóðfélagið eins og alda, hvort sem
það héti skoðanakönnun, prófkjör
eða forval Hann kvað skoðanakönn-
unina i tillögunni blátt áfram hlægi-
lega, en tók fram að hann væri þó
ekki andvigur eðlilegum skoðana-
könnunum
Lúðvik sagði að hann myndi
greiða atkvæði gegn tillögunni og
þótt hann yrði einn til þess, þá yrði
að hafa það Enginn skyldi geta sagt
um hann að hann hefði samþykk
tillöguna. sem hann kvað vera út í
bláinn Tillagan er gervilýðræði og
væru menn með henni að gera sér
upp lýðræðisást með yfirborðslýð-
ræði Með tillögunni nálgumst við
ekkert mark — sagði Lúðvik
Jósepsson
Ragnar Arnalds formaður Al-
þýðubandalagsins, tók til máls og
sagði að i málflutningi Hjörleifs
Guttormssonar hefði komið fram
ásökun á forystu flokksins um að
hún hefði ekki sinnt sem skyldi að
finna sér eftirmenn Ragnar kvaðst
hafa vakið á framkvæmdastjórnar
fundi máls á þessum vanda, en
tillaga frá sér þar hefði ekki fengið
neinn hljómgrunn Hins vegar kvað
hann þetta mál hafa verið hugleitt
mikið siðustu mánuði og rætt i
flokknum, kannað hafi hverjir vildu i
raun gefa kost á sér og hverjir ekki
Hann kvaðst ekki vilja rekja málin
nákvæmlega — slíkt gæti þá verið
túlkað sem áróður á kjörstað, ef svo
færi að tillagan yrði sarnþykkt Hann
kvaðst óttast að tillagan leysti engan
Framhald á bls. 28.
Flokksforystan mælti gegn samþykki tillögunnar
Hjörleifur
Guttormsson
Svava
Jakobsdóttir
Kjartan
( iafsson
Vaxtahækkun á mánudag:
Víxilvextir verða 20,5% og
29% á vaxtaaukareikningum
BANKASTJÖRN Seðlabankans
hefur f samráði við bankaráðið
ákveðið vaxtahækkun sem kemur
til framkvæmda á mánudaginn,
21. nóvember. Heildarvextir af al-
mennum sparisjóðsbókum hækka
úr 13,16%, vextir vaxtaauka-
reikninga hækka úr 26 f 29%,
forvextir af víxlum verða 20,5% á
ári, og af vaxtaaukalánum greið-
ast nú 30% ársvextir. Einnig
hækka grunnvextir endurseljan-
legra birgða- og rekstrarlána úr 3
f 4% á ári og grunnvextir útgerð-
arlána hækka úr 6 f 7%.
1. ágúst sl. var ákveðið að skipta
innláns- og útlánsvöxtum í tvo
þætti: „grunnvexti og verðbóta-
þátt vaxta“. Undanskildir eru
vextir af innstæðum á tékkareikn-
ingum. Þegar þessi háttur var tek-
inn upp, var frá þvi skýrt að
Seðlabankinn mundi fyrst um
sinn endurskoða verðbótaþáttinn
ekki sjaldnar en á þriggja mánaða
fresti að jafnaði og yrði í upphafi
miðað við það að verðbótaþáttur-
inn hækkaði um nálægt 60% af
þvi, sem verðbólgan kynni að
verða umfram 26% á ári. Sú 3%
vaxtahækkun, sem nú kemur á
sparisjóðsbækur og vaxtaauka-
reikninga felst i hækkun á verð-
bólguþætti vaxtanna, en einnig
verða grunnvaxtir víxla hækkaðir
um ‘á%, þannig að samtals hækka
forvextir víxla um 3,25%; úr
17,25 %i 20,5% áári.
Kjör á yfirdráttarlánum breyt-
ast hins vegar þannig, að grunn-
vextir lækka úr 6% í 4% á ári, en
viðskiptagjald, sem reiknað er af
upphæð lánsheimildarinnar,
háekkar úr 5 í 7% á ári.
1 frétt frá Seðlabankanum um
vaxtabreytingarnar nú segir, að
slíkar aðgerðir dugi ekki nema til
að leysa hluta þess verðbólgu-
vanda, sem við er að etja. Megin-
markmiðið verði að vera það að
snúa verðlagsþróuninni aftur til
betri vegar en til þess þurfi um-
fangsmiklar aðgerðir í' peninga-
málum, ríkisfjármálum og á öðr-
um sviðum efnahagsmála. For-
senda slíkra aðgerða sé almennur
skilningur á hættunni af áfram-
haldandi verðbólgu, eins og að
undanfönru, og víðtækt samstarf
stjórnvalda og hagsmunasamtaka
um aðgerðir til úrbóta.
Teikning-
ar, sög-
ur og ljóð
BARNA- og fjölskyldusíða
Morgunblaðsins vill beina
þeim tilmælum til barna og
forráðamanna þeirra að senda
blaðinu teikningar, sögur,
Ijóð, skrýtlur og annað efni,
sem unnt væri að birta á
Barna- og fjölskyldusíðu
blaðsins.
Nú líður óðum að jólum og
væri því æskilegt að teikning-
ar og annað efni væri í sam-
ræmi við hátíðarnar.
Efnið, sem sent verður,
birtist í sunnudagsblöðum
Morgunblaðsins, eftir því sem
rúm leyfir hverju sinni.
Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins í Vesturlandskjördæmi
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins i
Vesturlandskjördæmi fer fram dag-
ana 26.—27. nóvember n.k. Þátt-
taka í prófkjörinu er heimil meðlim-
um sjálfstæðisfélaga 16 ára og eldri,
sem búsettir eru í kjördæminu. svo
og þeim sem hyggjast styðja Sjálf-
stæðisflokkinn í næstu alþingiskosn-
ingum og hafa kosningarétt í kjör-
dæminu.
Frambjóðendur i prófkjörinu verða
Anton Ottesen. Ytri-Hólmi Borgarfjarð-
arsýslu, Árni Emilsson Grundarfirði,
Friðjón Þórðarson Stykkishólmi, Inga
J Þórðardóttir Akranesi. Ingiberg J
Hannesson, Hvoli, Dalasýslu, Jón Sig-
urðsson Reykjavík, Jósef H Þorgeirs-
son Akranesi, ÓðffTh Sigþórsson Ein-
arsnesi, Mýrarsýslu, Ófeigur Gestsson
Sigtúni, Borgarfjarðarsýslu og Valdi-
mar Indriðason Akranesi
Kjörstaðir verða á Akranesi í Sjálf-
stæðishúsinu. i Borgarfjarðarsýslu i
Heiðarskóla og Kleppjárnreykjaskóla, í
Mýrasýslu, skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins i Borgarnesi, i Dalasýslu, i félags-
heimilinu Tjarnarlundi og félagsheimil-
inu Dalabúð í Búðardal. í Snæfells- og
Hnappadalssýslu verða þeir i Lionshús-
inu í Stykkishólmi, skrifstofu Guð-
mundar Runólfssonar h f i Grundar-
firði, Grundarbraut 10 Ólafsvik. Skrif-
stofu Harðfrystihúss Hellissands, fé-
lagsheimilinu Lýsuhóli og að lokum í
samkomuhúsinu Dalsmynni
Kjörstaðir verða opnir frá klukkan
13.00—22 00 báða dagana Utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðsla fer fram i
Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík á sama
tima báða dagana
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISMANNA
í REYKJAVÍK
Við hvetjum alla þá sem kosningarétt hafa í
prófkjörinu að nota atkvæði sitt til fram-
gangs hæfileikamönnum á listanum um leið
og við viljum benda á eftirfarandi atriði:
HVERJIR
HAFA KOSNINGARÉTT?
Allir stuðningsmenn D-listans við alþingiskosn-
ingarnar, sem náð hafa 20 ára aldri, fyrir 25.
júni 1 978, og allt flokksbundið sjálfstæðisfólk í
Reykjavík sem náð hefur 18 ára aldri fyrir 25
júni 1978.
____FÆST 8 FLEST 12 _
Kjósa skal fæst 8 og flest 1 2 frambjóðendur,
með því, að setja kross fyrir framan nöfn þeirra,
sem óskað er að verði endanlega á framboðs-
listanum.
HVAR OG HVENÆR?_
Kosning fer fram í dag, sunnudaginn 20. nóv
kl. 14 00—19.00, i 7 kjörhvefum víða um
borgina, og gefum við upplýsingar um þá staði
i sima 28155. Einnig verður kosið mánudaginn
21. nóv. og verður kjörstaður aðeins opinn i
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
AKSTUR - ÞJÓNUSTA
Við stuðningsmenn Guðlaugs Bergmann, sjá-
um um akstur á kjörstað og höfum opna
skrifstofu, að Laugavegi 66, simi 28155, alla
kosningadagana
Stuðningsmenn Guðlaugs Bergmanns.