Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.11.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977 Atli Heimir Sveinsson; Um Sinfóníu- hljómsveit íslands Það var löngu kominn tími til að Alþingi fjallaði um málefni Sinfóníuhljómsveitar íslands og setti henni lög líkt og gert er um aðrar menningarstofnanir t.d. Háskóla íslands, Þjóðleik- húsið, Ríkisútvarpið o.s.frv. Staða Sinfóníuhljómsveitarinn- ar hefur verið lík og drauga á íslandi — þeir ganga ljósum logum en finnast hvergi á manntalsskyrslum, Sinfónfu- hljómsveitin starfar af fullum krafti og hefur gert það á þriðja áratug, en um tilveru hennar er hvergi nokkurn lagabókstaf að finna. Þess vegna er gott, að frumvarp er komið fram um slarfsemi hennar og tilveru. Það er viðurkenning á því að hljómsveitin sé til, og að hún verði ekki lögð niður. Frumvarpinu virðist einkum ætlað að tryggja fjárhagslegan bakgrunn hljómsveitarinnar. Það útaf fyrir sig er gott og nauðsynlegt. Að öðru leyti er það gallað — einkum er að starfseminni sjálfri, uppbygg- ingu sveitarinnar, og stjórnun samþykkt, sem ég vona, verður mjög fljótlega annað frumvarp betra og ýtarlegra að sigla í kjölfarið, þar sem hlutverk og starfsemi hljómsveitarinnar, innan íslensks tónlistarlífs, er nánar skilgreint og ákveðið. Þó þyrfti að sníða ýmsa agngúa af þessu frumvarpi. Það hlýtur að vera neyðarráð- stöfun, að Sinfóniuhljómsveitin sé „eign“ Ríkissjóðs, Ríkisút- varpsins, Þjóðleikhússins, Borgarsjóðs Reykjavíkur, bæjarsjóðs Kópavogs, Hafnar- fjarðar, Garðabæjar og Sel- tjarnarness. Hljómsveitin á að vera eign ríkisins eingöngu, líkt og Há- skólinn, Þjóðleikhúsið, Ríkisút- varpið o.fl. Sú tilhögun, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, kann að vera nauðsynleg í svip, en einhvers staðar þarf að taka fram, að stefnt sé að því, að ríkið reki hljómsveitina á al- gjörlega sambærilegum grund- velli og fyrrnefndar menn- ingarstofnanir. Staða Sinfóníu- hljómsveitarinnar er, og hlýtur Frá æfingu á f jölskyIdutónleikum. gjarnt, en hins vegar eiga þeir ekki að ráða ferðinni að öllu leyti. Það er engin trygging fyr- ir þvi að þeir tilnefni menn i stjórnina með tónlistarmennt- un né — áhuga. í frumvarpi til laga um Þjóð- leikhús, sem lagt var fyrir Al- þingi árið 1976 var gert ráð fyrir því, að þingflokkarnir skipi fulltrúa sína í Þjóðleik- húsráð. Það er jafnmikið út í hött og sú skipan, sem frum- varpið um Sinfóníuhljómsveit- ina gerir ráð fyrir, en tilhenig- ingin er auðsæ: pólitíkusar og þeirra fylgilið vilja garfa í menningarmálum. Mennta- málaráð, útvarpsráð, úthlut- unarnefnd listamannalauna eru kosin pólitískri kosningu. Þetta er vandamálið. Unnt er að leysa það með því, að krefj- ast tónlistarmenntunar af þeim er í stjórn Sinfóniuhljóm- sveitarinnar skulu sitja — eða alla vega meirihluta þeirra. Sið- an getur riki, sveitafélög, ríkis- útvarp, þjóðleikhús eða jafnvel þingflokkur sett „sina“ menn í stjórnina. Nú er fjarri því að ég vilju útiloka stjórnmálamenn og þeirra lið. Það er pólitísk ákvörðun stjórnmálamanna, að setja lög og reglugerðir, þ.e.a.s. ramma um starfsemi menningarstofn- ana. Það er iíka pólitísk ákvörð- un að sjá þeim fyrir fé. En síðan eiga stjórnmálamenn að láta kunnáttu menn um að reka þessar stofnanir. Bæði fulltrú- vitnað sé enn í frumvarpið um Þjóðleikhús, er þar gert ráð fyr- ir þvi, að stofnunin hafi svo marga starfsmenn, að hún að staðaldri geti leyst þau verk- efni, sem henni ber að rækja samkvæmt lögum. Ekki er að finna bein ákvæði um, hvað Sinfóníuhljómsveitinni er ætl- að að gera. Það vantar skil- greiningu á stöðu hennar og hlutverki i íslensku tónlistar- lífi. Fremur mætti taka fram, í bili, að starfsmenn Sinfóníu- hljómsveitarinnar skulu ekki vera færri en 65. Að visu er gert ráð fyrir þvi, að heimilt sé að nota lausráðið fólk í einstök verkefni, og er það til bóta. Þá er og gert ráð fyrir, sam- kvæmt frumvarpinu, þriggja t’fJrÆSSu iéam' Wm Sinfónfuhljómsveitin og Söngsveitin Fflharmonfa hennar lýtur. Og það er ekki nema von. Af frumvarpinu og greinargerð þess má ráða, að enginn tónlistarmaður hefur verið hafður með í ráðum um samningu þess, ef undanskyldir eru þrír óperusöngvarar. Ekki virðist hafa verið leitað ráða hjá starfsmönnum hljóm- sveitarinnar, samtökum hljóm- iistarmanna né tónskálda, og er það næsta furðanlegt. Nú má segja, að það sé ærið verk að tryggja fjáihag og til- veru Sinfóniuhljómsveitarinn- ar — allt annað, er starfsemi hennar varðar, megj bíða betri tíma. En þvi má ekki gleyma að fjármál, listræn starfsemi og árangur stofnana, sem Sinfóníuhljómsveitarinnar, verða ekki glöggt aðskilin — þetta eru tvær hliðar á sömu krónunni. Og þegar Alþingi fer loksins að ræða mál menningar- stofnana. sem Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, — og tekur sér smáfrí frá efnahagsmálum, Kröflu og setu, — þá er það sjálfsagt og rétt að allar hliðar málsins séu ræddar. Og vissu- lega eiga þeir aðilar, sem eiga að reiða frani fé til starfsem- innar, rétt á því að vita hvernig á að nota fjármunina. Löng ferð hefst með stuttu skrefi — og þetta frumvarp er einmitt slíkt skref. Verði það að verða, sambærileg við stöðu Háskólans í skólakerfinu og stöðu Þjóðleikhússins í leik- listarlífinu. Eins konar toppur á píramídanum. Hins vegar veit ég of lítið um þær reglur, sem gilda unt verkskiptingu ríkis og sveitarfélaga, til þess að ég geti lagt þar orð i belg. Um stjórn Sinfóníuhljóm- sveitarinnar segir frumvarpið, að hún skuli vera skipuð fimm mönnum: einum tilnefndum að þeim sveitarfélögum sem eiga hana, einum tilnefndum af þjóðleikhúsrádi, einum til- nefndum af fjármálaráðuneyt- inu og útvarpsstjóri á einnig sætí í stjórninni samkvæmt stöðu sinní og er jafnframt for- maður hennar. Þá er gert ráð fyrir einum fulltrúa frá starfs- mannafélagi hljómsveitarinn- ar. Með þessu fyrirkomulagi er möguleiki — og raunar mikil hætta — að rnenn, sem enga tónlistarmenntun hafa né áhuga, ráðskist með málefni hljómsveitarinnar. Svo hefur oft verið hingað til, og hljóm- sveitin lifað það af. En hún væri eflaust betur á vegi stödd hefðu tónlistarmenn sjálfir fengið meiru að ráða um mál- efni hennar. Hér eru eignaraðilar að fylgj- ast með fjárframlögum sínum, og það er ekki nema sann- Hvergi er tryggt að þeir, sem vit hafa á málúnum, fjalli um þau. Nú eru stjórnmálamenn ekkert verf gerðir en aðrir menn, en það er bjarnargreiði, að ætlast til þess af mönnam, að fjalla um mál sem þeir hafa ekki menntun né þekkingu til. Það þarf tónlistarmenntun til að fjalla um tóniist, leiklistar- menntun til að fjalla um leik- list, verkfræðimenntun til að fjalla um verkfræði o.s.frv. Fyrri hluti Atli Heimir Sveinsson ar hins pólitíska valds og fjár- veitingavaldsins eiga síðan að- eins að fylgjast með þeim. Mér hefur oft virtst, að stjórnmála- liðið gerði sér ekki grein fyrir þessari skiptingu. Gert er ráð fyrir þvi i frum- varpinu að stjórn Sinfóníu- hljómsveitarinnar ráði sér framkvæmdastjóra. Ekki er einu sinni gert ráð fyrir því að hann skuli hafa tónlistarmennt- un. Hann skal, samkvæmt frumvarpinu, vera ráöinn til 4 ára og er endurráöning heimil. Eðlilegast væri að hið' sama gilti um framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar og um þjóðleikhússtjóra sam-. kvæmt frumvarpinu um Þjóð- leikhús frá 1976: hann skal hafa staðgóða menntun og þekkingu á faginu, vera ráðinn til 4 ára og endurráðning heim- il einu sinni. Þá er gert ráð fyrir því, að hámarksstærð hljómsveitarinn- ar skuli vera 65 hljómlistar- menn. Ég álít það mistök, og held að það sé einsdæmi, að ákveða starfsmannafjölda menningarstofnana með lögum. Og telji Sigurður Björnsson, óperusöngvari og framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitarinn- ar þá stærð hæfilega, væri fróð- legt að fá að vita hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu. Svo manna verkefnavalsnefnd, sem starfi stjórn hljómsveitarinnar til aðstoðar. Gert er ráð fyrir að í henni eigi sæti: framkvæmda- stjóri, hljómsveitarstjóri og tónlistarstjóri rikisútvarpsins. En hér vantar fleiri inn: full- trúa starfsmanna hljómsveitar- innar, fulltrúa frá samtökum hljómlistarmanna og tónskálda. Ennfremur gerir frumvarpið ráð fyrir að Sinfóníuhljóm- sveitin og Þjóðleikhúsið hafi samvinnu um flutning söng- leikja. Það vantar inn ákvæði um listdans. Hér hafa verið flutt í Þjóðleikhúsinu, einn eða tveir söngleikir árlega — ópera, óperetta eða mjúsíkal. En nú eigum við einnig ballett- flokk, sem er í mikilli framför og starfar af miklum krafti. Mér finnst t.d. dálítið ömurlegt að hugsa til þess, að sjá á jólum Hnotubrjótinn með gramma- fónundirieik. Hingað til hefur hljómsveitin unnið að flutningi söngleikja, en í framtíðinni, — og raunar núna strax, — hlýtur listdans að koma einnig inní myndina. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ■starfsmenn Sinfóníuhljóm- sveitarinnar fullnægi hluta af starfsskyldu sinni með vinnu á vegum Þjóðleikhússins. Slíkt fyrirkomulag var áður fyrr við Framhald á bls. 45

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.