Morgunblaðið - 19.11.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
7
Sverrir Hermannsson
alþingismaður ritar
eftirfarandi leiðara í
blaðið Þingmúla, sem
sjáifstæðisfólk eystra
stendur að og kemur út
á Egilsstöðum. Þar er
m.a. fjallað um hugsan-
lega jöfnun á vægi at-
kvæða, frá sjónarhóli
strjálbýlisfólks.
Kosningalög
Allmikil umræða efir
orðið undanfarið um
nauðsyn breytinga á
kosningalögum og kjör-
dæmaskipan. Sýnist sitt
hverjum sem verða vill
um svo mikilvæg og há-
pólitísk mál. Umræðan
nú er aðallega vakin af
talsmönnum hinna þétt-
býlu kjördæma við
Faxaflóa, sem þykir
hlutur þeirra kjördæma
fyrir borð borinn í afli
atkvæða á Alþingi. Rétt
er það, að frá kjör-
dæmabreytingunni
1959 hefir hlutfall
fólkstölu milli kjör-
dæma raskazt verulega
vegna áframhaldandi
fólksflótta frá lands-
byggðinni til Faxaflóa-
svæðisins. Sem betur
fer hefir orðið gerbreyt-
ing á þeirri þróun hin
sfðari árin, og má þakka
það fyrst og fremst
árangri af framkvæmd
byggðastefnunnar.
Sjálfsagt er að svo
mikilvæg mál, sem hér
eru gerð að umtalsefni,
séu ávalt f athugun og j
endurskoðun. A hitt ber
að leggja áherzlu að i
ekki má hrapa að breyt-1
ingum og vanda ber til
hins ftrasta allar breyt-
ingar þá gerðar eru.
Undanfarin ár hefir
nefnd manna starfað að
endurskoðun stjórnar-
skrárinnar, hin svo-
nefnda stjórnarskrár-
nefnd, sem Hannibal
Valdimarsson gegnir
formennsku f. Hún hef-
ir enn ekki skilað áliti,
en nauðsyn ber til að
svo verði gert, áður en :
gripið er til einhverra
skyndibreytinga. Það
hefir löngum verið mik-
ill siður ýmissa stjórn-
málamanna að slá um
sig með breiðum yfir-
lýsingum um nauðsyn
þess að endurskoða
stjórnarskrána ræki-
lega. Hér skal þeirri
skoðun haldið fram, að
stjórnarskrá lýðveldis-
ins sé f öllum aðalatrið-
um góð og hafi reynzt
þjóðinni vel það sem af 1
er. Þetta dregur ekki úr
nauðsyn þess að hafa
vakaadd aug með nauð-
synlegum breytingum
sem hraðfara þrón og
nýir tfkrefjast.
Sanngjarnt að
leiðrétta
nokkuð
Sanngjarnt er að leið-
rétta nokkuð hið mikla
misvægi, sem orðið er
milli atkvæðaafls kjör-
dæma strjálsbýlis og
þéttbýlis. En algjör
jöfnuður þar á er ekki
sanngjarn og verður
ekki á slfkt sætzt. Þétt-
býliskjördæmin tvö,
Reykjavfk og Reykja-
nes, hafa í margvísleg-
um efnum mikla yfir-
burði í aðstöðu, sem
óhjákvæmilea eer að
taka tillit til. Þingmenn
kjördæma strjálbýlis
þurfa að veita miklum
mun meiri félagslega
forystu í kjördæmum
sfnum en þingmenn
þéttbýlis. Hvarvetna á
öðrum Norðurlöndum
er tekið tillit til þessa,
þannig að réttlátt þykir,
að strjálbýli hafi hlut-
fallslega fleiri fulltrúa
á löggjafarsamkundum
en þéttbýli.
Strax í upphafi starfa
Alþingis á þessu hausti
skaut upp koilinum
áfjáð löngun þing-
manna þéttbýlis í
skyndibreytingar á.
kosningalögum þann
veg, að fjölgað verði
þingmönnum þéttbýlis.
Hafa verið fram lagðar
hinar fjölbreyttustu til-
lögur þar að lútandi,
allar undir upphrópun-
um um aukið lýðræði og
jöfnun kosningaréttar.
Afstaða til þeirra til-
lagna verður ekki tekin
hér, en því hins vegar
haldið fast fram, að
með öllu sé óeðlilegt og
beinlfnis hættulegt for-
dæmi, að rjúka upp til
handa og fóta sfðustu
mánuði kjörtímabils og
breyta sjálfum kosn-
ingalögunum, án þess
að öllum almenningi
gefist kostur á að kynna
sér málið til hlftar og
neyta réttar sfns til
áhrifa á slíkar breyting-
ar. Það er að vísu rétt,
að Alþingi getur breytt
kosningalögunum. Til
þess hefir það lagaleg-
an rétt. En allar breyt-
ingar, sem snerta hinn
helga kosningarétt, ber
skilyrðislaust að leggja
fyrir kjósendur í al-
mennum kosningum.
Það hlýtur að orka mjög
tvímælis að þingmenn
hafi siðferðilegan rétt
til að breyta þeim lög-
um, sem þeir eru kosnir
eftir, og þvf síður að
setja ný kosningalög án
þess að leita fyrst eftir
umboði kjósenda til
þess. Með því móti
myndi meirihluti
þeirra þingmanna, sem
nú situr, setja ný kosn-
Framhald á bls. 45
GUÐSPJALL DAGSINS:
Matt. 9.: Trú þfn hefir
gjört þig heila.
DÓMKIRKJAN. Messa kl 11
árd. Séra Hjalti Guðmundsson.
Kl. 2 síðd. Messa, foreldrar
fermingarbarna eru sérstak-
lega beðnir að koma til mess-
unnar með börnum sínum. Séra
Þórir Stephensen.
GRENSASKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11 árd. og guðsþjón-
usta kl. 2 síðd. Altarisganga.
Organisti Jón G. Þórarinsson.
Séra Halldór S. Gröndal prédik-
ar. Fjölskyldumessa kl. 2 síðd.
Ingunn Gísladóttir talar. Les-
messa nk. þriðjudag kl. 10.30
árd. Beðið fyrir sjúkum. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSSPITALINN. Messa kl
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
SUNNUDAGASKÓLI K.F.U.M
Amtmannsstfg 2B fyrir öll börn
kl. 10.30 árd.
ASPRESTAKALL. Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grimur Grímsson.
DÓMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS Landakoti. Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
og lágmessa kl. 2 síðd. Alla
virka daga er lágmessa kl. 6
síðd., nema á laugardögum, þá
kl. 2 síðd.
LAUGARNESKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Messa
kl. 2 síðd. Tónleikar sem verða
áttu í kirkjunni á sunnudaginn
flytjast fram til 5. febrúar.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2
síðd. Séra Guðmundur Óskar
Ólafsson. Bænamessa kl. 5 siðd.
Séra Frank M. Halldórsson.
Arbæjarprestakall.
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Séra Guð-
mundur Þorsteinsson.
FRlKIRKJAN Reykjavik.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
SELTJARNARNESSÓKN.
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
Félagsheimilinu. Séra Frank
M. Halldórsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Árelíus Níelsson.
BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Barnagæzla.
Séra Ölafur Skúlason.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Sunnudagaskóli i Breiðholts-
skóla kl. 11 árd. og messa kl. 2
síðd. í Breiðholtsskóla. Séra
Lárus Halldórsson.
HJALPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Vakningarsamkoma kl. 8.30.
Ofursti Arne Braathen og Leif
Braathen frá Noregi tala.
FlLADELFlUKIRKJAN. Al-.
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
ELLI- OG HJUKRUNARHEIM-
ILIÐ Grund. Guðsþjónusta kl. 2
siðd. Séra Garðar Þorsteinsson
messar. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
HATEIGSKIRKJA. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Séra Arn-
grimur Jónsson. Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Séra Tómas Sveins-
son. Siðdegismessa kl. 5. Séra
Arngrímur Jónsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN.
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Séra Hreinn Hjartarson.
LITUR DAGSINS:
Grænn. Táknar vöxt.
Einkum vöxt hins and-
lega lífs.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastig kl. 11
árd. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Séra Þorberg-
ur Kristjánsson.
KARSNESPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 11 árd. í
Kársnesskóla. Messa I Kópa-
vogskirkju kl. 2 siðd. Séra Gisli
Kolbeins prédikar. Aðalfundur
safnaðarins verður haldinn að
lokinni messu. Séra Árni Páls-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ. Hámessa kl. 2 siðd.
MOSFELLSPRESTAKALL.
Fjölskyldumessa að Mosfelli kl.
2 síód. Séra Birgir Ásgeirsson.
FRlKIRKJAN Harnarfirði.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Safnaðarprestur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Barnasamkoma kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Aðal-
safnaðarfundur Hafnarfjarðar-
sóknar verður að lokinni guðs-
þjónustu. Séra Gunnþór Inga-
son.
NJARÐVIKURPRESTAKALL.
Guðsþjónusta i Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og
i Stapa kl. 2 siðd. Séra Páll
Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa
kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
HVALNESKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl. 1.30 síðd.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA.
Barnaguósþjónusta kl. 10.30
árd. Almenn guðsþjónusta kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 siðd. Séra Björn
Jónsson.
Bazar og kökusala
á Hallveigarstöðum í
dag 19. nóvember kl. 2.
Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur
Skógarmál
Tólf ritgerðir um gróður og
skóga á íslandi, samdar i
tilefni af sjötugsafmæli Há-
konar Bjarnasonar f.v.
skógræktarstjóra. Fæst hjá
bóksölum um land allt.
Bókin sem allir náttúruunnendur
ættu að eignast
Opið i dag laugardag kl. 9—12
RIMTEPPI
Höfum nú aftur fyrirliggjandi
velour rúmteppin.
Tilbúin og í metramáli.
Sendum gegn póstkröfu
ÍtLUGGATJ o ed
, SKIPHOUI17A SÍM117563