Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
13
Gréta Sigfúsdóttir.
sem einkenndu lifsstilinn á þeim
mismunandi tímaskeiðum sem
sagan nær yfir. Þó þetta sé býsna
yfirgripsmikil saga eru það fyrst
og fremst meinsemdirnar í samfé-
laginu sem Gréta gerir uppskurð
á. Olukka aðalsöguhetjunnar frá |
fyrstu tíð til hinstu stundar á ræt-
ur í súrum og söltum jarðvegi
þess mannlifs sem hún er sprottin
úr. Sem barn fær hún enga eða
ranga fræðslu um lifið sem bíður
hennar. Þegar t.d. forvitnin rekur
hana til að spyrja um æxlun og
kynlif er þess konar opinská
hnýsni lamin niður i eitt skipti
fyrir öll með því fororði að
allar hugrenningar í þá áttina séu^
syndsamlegar. Þetta veldur henni' ‘
heilabrotum og geðflækjum og af-
skræmir það lítilfjörlega ástarlíf
sem hún fær notið um ævina.
Þegar hún svo, gömul orðin, horf-
ir til baka, yfir samasem ólifað líf,
lítur hún svo á að »í stað þess að
velja sér maka við sitt hæfi hafði
hún kastað sér fyrir fætur manns
sem stóð henni langtum ofar i
þjóðfélagsstiganum.«Eigi að síður
hefur hún eytt öllu sinu lifi i að
sakna þessa manns. Svo mjög hef-
ur hún hengt sig i minninguna
um hann að hún átti enga bliðu
aflögu handa hinum manninum
sem þó fórnaði sér fyrir hana.
Harðast þykir henni þó að son-
urinn skuli afrækja hana og
skammast sín fyrir hana aldraða
eftir allt sem hún hefur fyrir
hann gert. Að lokum hlýtur hún
samt að játa að hún eigi sjálf
nokkra sök á því. Hún hafði ekki
feðrað hann rétt, meira að segja
haldið leyndu fyrir honum sínu
rétta faðerni þegar hann vildi
sjálfur komast að hinu sanna og
þar með alið hann upp í skugga
yfirhylmingar. Var það einvörð-
ungu til að hlífa mannorði hins
rétta föður? Nei, það stafaði einn-
ig af hinu að hún vildi eiga hann
ein. Sjálf var hún ekki — i alls-
leysi sínu — laus við draug eigin-
girninnar. Þannig geta mein-
semdir nútimans rakist til eldri
tíðar enda þótt lifið í gamla daga
bæri yfir sér saklausari yfirsvip.
Saga þessi er sérstæð að því
léyti að hún er sögð ýmist í fyrstu
eða þriðju persónu, ýmist »ég«
eða »hún«. Þetta verk er afrakst-
ur lífsreynslu og íhugunar, verk
þroskaðs höfundar sem er búinn
að sjá fyrir sér nógu mörg dæmi
lífsins til að vega það og meta
hleypidómalaust. Þeim, sem
ámælir samtiðinni, hættir stund-
um við að gylla fortíðina, bæði
viljandi og óviljandi, telja mest-
allt heimsins böl nýtilkomið,
sakna fornra dygða. Gréta skoðar
þetta allt i samhengi, nútíma og
liðinn tíma, orsök og afleiðing. Þó
hún velji til þessarar frásögu
nokkuð öfgakennd dæmi úr lifinu
er saga hennar — yfir heildina
lítið — öfgalaus. Allt, sem segir
frá í þessari sögu, hefur gerst ótal
sinnum þó það hafi ekki komið
fyrir hvern mann. Og allt hefur
það markað svipmót þjóðlífsins á
undanförnum áratugum. Þarna
blasir t.d. við hinn þrúgandi
heimilisagi fyrri tíðar en hins
vegar upplausn heimilisins á okk-
ar tíð. Þegar óhöpp hafa hent er
gjarnan spurt um aðdragandann.
Hvað hefur farið úrskeiðis? Sól
rís í vestri er ein samfelld skýrsla
um þá atburðarás. Með þvi að lesa
söguna alla og staldra síðan við
niðurstöður hennar getur maður
sagt sem svo: þannig hlaut að
fara. Arfurinn sem gamla konan
lætur eftir sig er að ýmsu leyti
táknrænn og þá ekki síður hvern-
ig erfingjarnir spila úr honum:
Hún lætur Biblíuna sina ganga til
sonarsonar síns i þeim vændum
að guðsorðið verði honum leiðar-
ljós á hálli lífsbraut. En gamla
konan hafði líka geymt peninga
milli blaða í bókinni. Þá finnur
ungi maðurinn og kaupir fyrir þá
— brennivin! Af Biblíulestri hans
fara hins vegar færri sögur.
Þessi saga er skrifuð af lipurð
og þrótti, en fyrst og fremst af
einurð og heiðarleika.
Erlendur Jónsson.
Fyrirlestur um Pompidou-
safnið í Franska bókasafninu
PHILIPPE Bidaine frá Frakk-
landi heldur fyrirlestur um Beu-
bourg listamióstöðina
(Pompidou-safnið) í París á
mánudag 21. nóvember kl. 20.30.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Franska bókasafninu, Laufásvegi
12 á vegum Alliance Francaise á
lslandi.
Fyrirlesarinn Philippe
Bidanine, er fæddur 1942 í Laval
og hefur starfað sem blaðamaður,
ritstjóri og rithöfundur. Frá
árinu 1972 hefur hann gegnt
starfi upplýsinga- og fræðslufull-
trúa við Beaubourg-
listamiðstöðina í Paris. (Centre
National d’Art et de Culture
Georges Pompidou.) Beaubourg-
safnið er stærsta listamiðstöð,
sem reist hefur verið hin síðari ár
og án efa ein sú umdeildasta. Við
opnun safnsins 1977 var 4 íslenzk-
um listamönnum, þeim Hreini
Friðfinnssyni, Kristjáni
Guðmundssyni og Sigurði
Guðmundssyni, sem starfa í
Amsterdam, ásamt Þórði Ben
Sveinssyni, sem starfar í Þýzka-
landi, boðið að sýna verk sín þar.
Fyrirlesturinn á mánudags-
kvöld verður á frönsku og er
öllum heimill aðgangur.
Jóhann Hjálmarsson:
Frelsi orðsins og
mikilvægi skáldskap-
ar í tækniþ jóðf élagi
Ein eftirsóttustu bókmennta-
verðlaun Vestur-Þýskalands
eru kennd við leikritaskáldið
Georg Búchner sem fæddist I
Darmstadt 1813. Það er þýska
akademían sem veitir þessi
verðlaun, en hún var stofnuð
1950. Verðlaunin eru veitt i
heimaborg Búchners á haustin
og meðal þeirra sem hafa notið
þeirra eru höfundar á borð við
Gottfried Benn, Erich Kástner,
Max Frisch, Ingeborg Bach-
mann, Helmut Heissenbúttel,
Peter Handke, Paul Celan,
Heinrich Böll, Gúnter Grass og
Hans Magnus Enzensberger.
Að þessu sinni fékk austur-
þýska Ijóðskáldið Reirier
Kunze verðlaunin.
Reynt hefur verið að segja
frá Reiner Kunze í Morgunblað-
inu og birta sýnishorn ljóða
hans, en eins og kunnugt er var
hann rekinn úr austur-þýsku
rithöfundasamtökunum í fyrra
vegna bókar sinnar Die
Wunderbaren Jahre (Árin un-
aðslegu). Bókin var gefin út í
Frankfurt af S. Fischer Verlag
og hefur verið þýdd á mörg
mál. Eftir að Wolf Biermann
var synjað um að snúa aftur til
Austur-Þýskalands hefur
Kunze ekki verið vært þar.
Hann ákvað þvi að setjast að i
Vestur-Þýskalandi og býr nú i
Obernzell, Erlau. Bókin Árin
unaðslegu er einhver harðasta
gagnrýni á ómennsk stjórnvöld
sem fram hefur komið. Kunze
lýsir því einkum hvernig misk-
unnarlausar kröfur kerfisins i
Austur-Þýskalandi bitna á
börnum og unglingum, þess er
gætt líkt og í þriðja ríkinu forð-
um eð engar óhreinar hugsanir
fái að búa um sig í viðkvæmum
brjóstum. Meðal fjölmargra
dæma um þetta úr Árunum un-
aðslegu er Skólafélagar:
,,Henni þótti að fjöldinn, vin-
ir hennar, yrðu að sjá póstkort-
ið litríka sem hún fékk frá Jap-
an: verslunargata í Tókió um
kvöld. Hún fór með kortið i
skólann og fjöldinn lét smá
tyggjóblöðrur springa á vörun-
um við þessa framandi sýn.
í frímínútum var hún aðvör-
uð af umsjónarkennaranum.
Einn skólafélagi hennar hafði
skýrt honum frá að hún ræki
auðvaldsáróður í skólanum.“
í Darmstadt þótti mörgum
það viðeigandi að Heinrich Böll
hélt ræðu til heiðurs Kunze.
Böll sem orðið hefur fyrir of-
sóknum í Vestur-Þýskalandi
vegna samúðar sinnar með upp-
reisnarhópum lagði út af frels-
isskerðingu bæði í Vestur- og
Heinrich Böli
Kunze
og
Böll
i
Darm-
stadt
Reiner Kunze
Austur-Þýskalandi. Kunze var
ekki hávær að vanda. Inntak
ræðu hans var mikilvægi skáld-
skapar i tæknivæddu þjóðfélagi
þar sem efnishyggja ræður ríkj-
um. í Böll og Kunze sáu menn
fulltrúa húmanisma sem nauð-
synlegt er að standa vörð um,
ekki síst þegar öfgar á báða
bóga, vinstri og hægri, virðast
sameinast um að kæfa raddir
gagnrýni og manneskjulegra
viðhorfa. Á það verður ekki of
oft minnt að rithöfundurinn er
ekki málpípa stjórnmálasam-
taka sem hafa lausnir allra
vandamála á takteinum, heldur
hlýtur hann að snúast til varnar
fyrir þá sem hætta er á að verði
undir. Ég þekki ekkert skáld
sem hefur verið trúara slíkri
hugsjón en einmitt Reiner
Kunze. Og ekki skal gleyma
þætti Heinrichs Bölls sem hef-
ur fengið menn til að hugsa ráð
sitt þegar gamlar erfðir þýskrar
valdbeitingar hafa sagt til sin.
Böll hefur með skrifum sínum
sannað mikilvægi orðsins í
heimi þar sem fólk, einkum
ráðamenn, stefna að þvi að gera
orðið marklaust.
Skáld eins og Reiner Kunze
hafa aftur á móti með lágværu
tali sínu kennt mörgum að orð
hafa merkingu og í riki þar sem
þegnarnir eru aðeins númer
verður orð skáldsins verðmæt-
ast, jafnvel fögnuður skóla-
stúlku sem hefur fengið fallegt
póstkort frá .útlöndum er var-
hugaverður. En hættulegastur
er boðskapur skáldsins sem
yrkir líkt og Kunze um hinn
eilífa harmleik, sem fer fram í
þjóðfélagi þar sem leiðsögnin
ræður ferð, einhverjir aðrir
vita alltaf betur en þegnarnir:
Hve mörjí tré verða
felld, hve mörgum rótum
bylt
innra með okkur
(Úr Ijóðinu (Iljúpur jarðvegur)
En eins og Böll hefur bent á
berist þetta ekki eingöngu i
rikjum Austur-Evrópu. I Vest-
ur-Þýskalandi verða þeir æ fjöl-
mennari sem heimta aðgerðir
gegn frjálsu orði, rithöfundur-
inn á að samsinna skoðunum
sem hafna breytingum. En slikt
er varla i anda Georgs
Búchners sem á sinum tíma
stofnaði félag til að berjast fyr-
ir mannréttindum. Ekki er
heldur liklegt að Heinrich Böll
muni láta að stjórn eftir alla þá
tortryggni sent beinst hefur
gegn honum að undanförnu og
meðal annars kornið fram í þvi
að virða einkalíf hans einskis.
Fyrir þár sem fara fram á meira en bara lit á skjáinn
aBMBmwir
TILBOÐ : 100.000
út og rest 6 m.
NORDMENDE
og
BANG &
OLUFSEN
40% allra
sjónvarpa
i landinu.
TILBOÐ:
25—30.000, staðgr.
Sjónvarp til ísl.
Transistora.
Línu
myndskerminn.
System Kal 2
Varanleg litgæði
26 ár í fararbroddi
ORYGGI YÐAR!
VIÐBJÓÐUM
3ja ára ábyrgð á
myndlampa og
ár á öllu hinu
7 daga skilafrest
ef tækið uppfyllir
ekki kröfur yðar.
Þér standið með
pálmann í höndunum.
BYLTING!
Varanteg tilgæði
tryggja
að litgæðin
haldanst meðan
tækið endist.
Aðeins i Bang &
Olufsen og Nordmende!
VARANLEG LITAGÆÐI
PANTIÐ STRAX
í DAG!
ÞJONUSTA
Verzlun og
verkstæði
vort er það
fullkomnasta
sem þekkist
norðan Alpafjalla
Yðar og okkar hagur
Skipholti 19 R.
BÚÐIN S 29800 (5 línur)