Morgunblaðið - 19.11.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1977
15
Haraldur Blöndal,
Menn njóti þess,
sem vel er gert
Þingmenn Reykjavíkur hafa
ætíð haft sérstöðu á Alþingi.
Þeir hafa minna verið bundnir
við kjördæmarig, og viðhorf
þeirra hafa meira mótast af
landssjónarmiðum en annarra
þingmanna. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavik
hafa gætt hagsmuna kjósenda
sinna með því að berjast fyrir
sjálfstæði sveitarfélaganna og
þar með rétti Reykvíkinga til
þess að ráða málum sinum sjálf-
ir. Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík hafa verið
stuðningsmenn þess, að at-
kvæðaréttur væri sem jafnast-
ur, þannig að búseta mismun-
aði ekki mönnum við kjörborð-
ið.
Um þess helgi fer fram próf-
kjör í Reykjavík. Menn hafa
vitanlega misjafnar skoðanir á
þvi, hverjir eiga að skipa efstu
sæti framboðslistans í Reykja-
vik. Eru þar menn metnir eftir
skoðunum sinum oggjörðum.
... Þá sleppi ég honum
Undanfarna daga hefur þess
orðið vart, að menn vilji
„sleppa“ frambjóðendum, sem
þeir raunve'rulega styðja, til
þess að tryggja kjör einhvers
eins. Þetta er mjög hættulegur
leikur og getur haft alvarlegar
afleiðingar.
Það er undirstaða prófkjörs,
að kjósendur fari eftir san-nfær-
ingu sinni við val listans. Menn
verða að kjósa þá, sem þeir
treysta bezt til þess að vera í
framboði fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, — bezt til þess að
vinna stefnumálum flokks-
ins fylgi, — bezt til þess að
fylgja stefnunni fram á Al-
þingi. Menn geta ekki sagt
viðsjálfa sig: „Raunverulega
styð ég A, en vegna þess að
hann getur fellt B, þá sleppi ég
honum.“
Kjósandi, sem þannig vinnur,
getur í fyrsta lagi staðið
frammi fyrir því, að þessi „ótti “
hafi reynzt árangurslaus, og
eina afleiðingin verði sú að A
falli fyrir þriðja manni. En
jafnvel þótt grunnurinn væri
réttur, þá verða menn að taka
þvi.
Það er tilgangur prófkjörsins
að sjá fylgi frambjóðenda. Ef
menn kjósa ekki þá, sem þeir
fylgja, hvaða mark er þá tak-
andi á prófkjöri!
— Rétt að láta
hann hvíla sig
Menn heyra þvi oft fleygt, að
þessi eða hinn sé búinn að vera
nógu lengi á þingi, — að það sé
kominn tími fyrir hann að hvíla
sig. Þessi kenning ein út af
fyrir sig er röng. Menn hafa
aðeins einn mælikvarða á það,
hvort þingmaður eigi að njóta
áfram trausts, — það hvort
hann sé traustsins verður. Ég
fæ ekki séð, að íslendingum
hafi verið skaði af því, að Pétur
Ottesen sat á þingi fyrir flokk-
inn óslitið frá 1916 til 1959,
lengur en nokkur annar. Ég fæ
ekki séð, að Alþingi hafi sett
niður vegna þess að Jóhann
Hafstein hefur verið alþingis-
maður Reykvikinga síðan 1946,
og þannig má lengi telja.
En ég veit líka dæmi af þing-
mönnum, þar sem hver þing-
dagur hefur verið of langur
tími.
Einnig valdir
varamenn
Nú um helgina geta sjálf-
stæðismenn kosið átta til tólf
frambjóðendur. Ástæðan fyrir
þvi, að fjölgað er frá árinu 1971
þegar aðeins mátti kjósa sjö eða
þingmannatölu flokksins þá, er
vitanlega sú, að eðlilegt er að
menn geti valið allan framboðs-
listann í aðalsætin tólf, ef menn
vilja. Þannig velja kjósendur
ekki aðeins efstu menn listans
og væntanlega alþingismenn
flokksins, heldur einnig vara-
menn flokksins.
Þetta er mjög mikilvægt atr-
iði. Nú eru uppi raddir um að
breyta kosningareglum þannig
að menn velji sjálfir af fram-
boðslistum eða ráði meiru en
nú. Þá skiptir allur listinn máli.
Eins getur verið að reglum um
uppbótarsæti verði breytt, þá
skiptir listinn lika máli.
Þess vegna er nauðsynlegt að
menn kjósi fulla tölu, — menn
eiga aldrei að sleppa tækifæri
til þess að hafa góð áhrif.
Basar Kven-
félags Hall-
grímskirkju
Arlegur basar Kvenfélagsins
verður haldinn 1 safnaðarheimili
kirkjunnar 1 dag, laugardaginn
19. nóv„ og hefst kl. 2. IVÍargt
góðra muna verður þarna á boð-
stólunum, og vænti ég þess að
fólk fjölmenni, því að hægt er 1
senn að gera góð kaup og styrkja
gott málefni.
Eins og allir vita er verið að
byggja Hallgrímskirkju og miðar
þvf verki nokkuð áfram, en betur
má ef duga skal. Kvenfélag kirkj-
unnar hefir jafnan verið I farar-
broddi í þvl af afla fjár til kirkju-
byggingarinnar, og er svo enn.
Margir vinir Hallgrímskirkju
gefa og góðar gjafir. Nýlega var
minnst 303. ártíðar Hallgrims Pét-
urssonar, og er ártíðardagurinn
einskonar kirkjudagur safnaðar-
ins. Við guðsþjónustu þann dag er
tekið á móti samskotum =og: gjöf-
um. Bárust að þessu sinni margar
góðar gjafir, sem þegar hefir ver-
ið gerð grein fyrir. Vil ég nota
þetta tækifæri til þess að þakka
þær og allar gjafir, sem kirkjunni
hafa borist fyrr og síðar.
Hjálpumst að því að byggja
Hallgrímskirkju.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra var nýlega sæmdur Stór-
þjónustukrossi hinnar þýzku þjónustuorðu. Þýzki sendi-
herrann Karlheinz Krug afhenti heiðursmerkið og var
þessi mynd tekin við það tækifæri, en orðuna fékk Gísli
fyrir sérstök þjónustustörf í þágu Þýzkalands.
Iðnaðarbanka-
útibú á Selfossi
FÖSTUDAGINN 4. nóvember s.l.
opnaði Iðnaðarbanki tslands h.f.
útibú á Selfossi. Útibúið er til
húsa að Austurvegi 38 en þar hef-
ur bankinn keypt fyrstu hæð
nýrrar skrifstofubyggingar. Hús-
ið teiknaði Sigurður Jakobsson
tæknifræðingur en innréttingar
útibúsins teiknaði Pétur B.
Lúthersson húsgagnaarkitekt.
Útibússtjóri Iðnaðarbankans á
Selfossi er Jakob J. Havsteen lög-
fræðingur, en starfsmenn verða
alls 5 talsins. Það mun verða veitt
öll almenn bankaþjónusta, og
verður opið alla virka daga frá kl.
9.30 til kl. 15.30. Auk þess verður
síðdegisafgreiðsla opin á föstu-
dögum frá kl. 7.00 til 18.30.
I tilefni af opnun útibúsins á
Selfossi samþykkti bankaráð
Iðnaðarbankans að færa Iðn-
skólanum á Selfossi að gjöf kvik-
myndasýningarvél til notkunar
við kennslu.
Lystræning-
inn á ferðinni
UT ER komið 7. hefti af Lystræn-
ingjanum í Þorlákshöfn. í ritinu
eru m.a. ljóð eftir ýmis ljóðskáld,
saga eftir Ölaf Hauk Símonarson,
einþáttungur eftir Þorstein Mar-
elsson, blýahtsteikningar eftir
Þorbjörgu Höskuldsdóttur og
fleira.
Bazar Kven-
félags Karla-
kórs Reykja-
víkur í dag
í dag heldur Kvenfélag
Karlakórs Reykjavíkur
hinn árlega basar sinn aó
Hallveigarstöðum við Tún-
götu. Er þar margt góðra
muna á boðstólum, svo sem
fatnaður, jólavörur alls
konar, kökur og margt
fleira.
Kvenfélagið hefur um árabil
verið kórnum stoð og stytta, hafa
konurnar m.a. lagt fram drjúgan
fjárhagslegan skerf til tónlistar-
starfa kórsins. Um 40 konur eru í
félaginu og er formaður þess
Jensína Jóbannsdóttir.
Gisting í Reykjavík
-sérstakt vetrarverð
Hótel Loftleiðir býður sérstakt verð á
gistingu að vetri til, tveggja manna her-
bergi á 4.100.- kr. og eins manns á
2.800.-. Þar gefast fleiri kostir á að njóta
hvíldar og hressingar en annars staðar:
allar veitingar, hægt að snæða í veitinga-
sal eða veitingabúð - fara i sauna bað og
sund.
Og innan veggja hótelsins er verslun,
snyrti-, rakara- og hárgreiðslustofa.
Strætisvagnaferðir að Lækjartorgi.
Njótið þægilegrar dvalar og hagkvæmra
kjara. m
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími 22322