Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977
21
ivegursta kona heims er sænsk, Mary Katrfn Stavins, og sést hún hér fyrir miðju ásamt þeim, sem komu
næstar. T.v. fyrir aftan er ungfrú Bandarfkin, sem varð nr. 5, en t.h. ungfrú Brazilfa nr. 4. T.v. við Katrfnu
er ungfrú V-Þýzkaland nr. 3 og t.h. ungfrú Holland nr. 2.
Sænsk stúlka varð
ungfrú Alheimur
London, 17. nóvember, Reuter.
UNGFRtl Svfþjóð, hin tvftuga og
ljóshærða Mary Stamins, var f
dag krýnd Ungfrú Alheimur 1977
af Cindy Breakspeare frá
Jamaika sem hlaut titilinn 1976.
Kjökraði sænska stúlkan af gleði
og sagðist ekki getað trúað út-
nefningunni.
Að venju stóð nokkur styr um
keppnina, sérstaklega var mót-
mælt þátttöku Suður-Afríku í
henni og einnig haft við orð að
litarháttur mismunaði keppend-
um þegar dómarar bæru saman
bækur sinar.
Við krýningarathöfnina í Royal
Albert Hall í London tróðu 30
námsmenn upp, veifuðu áletruð-
um spjöldum og hrópuðu ýmis
vígorð, flest á þá leið að kvenfólk
væri ekki kyntákn sem nota ætti í
annarlegum tilgangi. Nokkrir
mótmælenda sprengdu ólyktar-
sprengjur en voru fjarlægðir áður
en til teljandi óláta kom.
Söngvarinn Andy Williams
skemmti sér vel á krýningar-
athöfninni, en hann skemmti
gestum með söng á milli þess að
stúlkurnar 63 voru kynntar. Sagði
hann það hafa góð áhrif á sig að
vera innan um svo margar fagrar
stúlkur og laumaði kossi á nokkr-
ar þeirra þegar færi gafst.
í öðru og þriðja sæti urðu Ineke
Berends frá Hollandi og Dagmar
Winkler frá Vestur-Þýzkalandi.
Aðrar úrslitastúlkur voru frá
Brazilíu, Bretlandi, Bandaríkjun-
um og Astralíu.
Fleiri Gyðingum leyft
að yfirgefa Sovétrikin
Genf 18. nóv. AP
EITT þúsund Gyðingum var
heimilað að fara frá Sovétrfkjun-
um til Vfnar fyrri hluta þessa
mánaðar samkvæmt upplýsingum
talsmanns alþjóðlegrar nefndar,
er fjallar um fólksflutninga i
Evrópu.
Tala þessi bætist við tölu þeirra
13.254 útflytjenda, sem komu til
Vinar frá Sovétrfkjunum á tíma-
bilinu frá janúar til október,
samanborið við 10.914, sem fluttu
á sama tfmabili sl. ár.
í hópnum voru 6,388 sem héldu
beint til tsraels, en afgangurinn,
6.866, fór aðallega til Bandarikj-
anna.
I skýrslu frá fertugasta og
fyrsta fundi nefndarinnar kemur
fram, að enn fremur sé áætlað að
21.000 öðrum verði hjálpað af
nefndinni til að flytja frá Sovét-
ríkjunum árið 1978. Stærsti hóp-
urinn sem greitt verður fyrir.
samkvæmt áætluninni, er þó í
Indókina, en 22.000 flóttamenn
munu fara þaðan næsta ár.
Áður en fundi nefndarinnar
lauk á fimmtudagskvöld, hvatti
sendimaður Bandaríkjanna, Jam-
es L. Carlin, til að fleiri þjóðir
„opnuðu dyr sínar“ fyrir flótta-
mönnum frá Indókína, einkum
„bátafólkinu". „Astandið í málum
flóttamanna hefur óvíða verið
hörmulegra og meira aðkallandi,"
sagði sendimaðurinn.
Sudur-Kórea:
Innflutningsbanni aflétt
Seoul, 18. nóvember. Reuter.
VERZLUNAR- og iðnaða-
ráðuneyti Suður-Kóreu af-
létti í dag innflutnings-
banni og höftum á ýmsum
nauðsynjavörum. Er þetta
neyðarráðstöfun til að fá í
landið ýmsar vörur sem
þar skortir.
Ráðuneytið tilkynnti að
fyrri takmarkanir hefðu
náð til 60 vörutegunda, þ.á
m. brotajárns, kemískra
efna, prentvéla, bílvéla og
túrbína til orkufram-
leiðslu. Kvótatakmörkun-
um var aflétt á 13 vöruteg-
undum til viðbótar, svo
sem sykurreyr, sýrópi,
kindakjöti og kakói.
Ráðuneytið tilkynnti að
þessar neyðarráðstafanir
þýddu 100 milljón dollara
aukningu á innflutningi
landsmanna sem ráðgert er
að nemi um 11 milljörðum
dollara í ár. Reiknað er
Bankaræningi iðraðist
Montreal, 18. nóv. Reuter.
OÞEKKTUR bankaræningi i
Montreal í Kanada hefur fengið
bæði lögreglumönnum og starfs-
mönnum Hins konunglega kana-
díska banka ærið umhugsunar-
efni, því að hann hefur skilað
aftur 115 þús. dollurum, sem
hann sagðist hafa stolið.
öryggisverðir bankans fundu
peningana í skáp á strætisvagna-
miðstöð skömmu eftir að hringt
var í bankann og skýrt frá hvar
peningarnir væru niður komnir. 1
símanum baðst ræninginn fyrir-
gefningar og sagðist sjá eftir að
stela peningunum.
Hefur þessi yfirbót ræningjans
valdið lögreglu og bankamönnum
miklum áhyggjum þar sem hann
sagði ekki frá því hvenær hann
stal peningunum eða á hvern hátt
hann komst yfir þá. Eru lögreglu-
menn og starfsmenn bankans því
önnum kafnir við að fara yfir
skýrslur um rán, falsanir og fjár-
drætti til að reyna að komast að
þvi hver á peningana.
með að útflutningur lands-
ins nemi um 10,5 milljörð-
um dollara í ár.
Gjaldeyrisvarasjóður
Suður-Kóreu nam 4255
milljónum dollara í lok
október en um síðustu ára-
mót nam sjóðurinn 2960
milljónum dollara. Aukinn
innflutningur mun halda
þessari aukningu í skefjum
og minnka verðbólguþrýst-
ing, að sögn ráðuneytisins.
Soares endurnýj-
ar vináttusamning
við Spánverja
Madrid, 18. nóv. AP.
VON ER á forsætisráðherra
Portúgals, sósfalistanum Mario
Soarez til Madridar á mánudag.
Kemur Soarez þangað í þriggja
Jardskjálfti
í Belgrad
Belgrad 18. nóv. AP.
MEÐALSTERKUR jarð-
skjálfti mældist í Belgrad kl.
6,28 að íslenzkum tima í morg-
un, en upptök hans voru um
hundrað kilómetra suðaustur
af Belgrad samkvæmt upplýs-
ingum vísindamanna á jarð-
skjálftarannsóknastöðinni i
Sofia. Þetta var haft eftir júgó-
slavnesku fréttastofunni
Tanjug.
Jarðskjálftinn, sem átti upp-
tök sin miðja vegu milli borg-
anna Velingrad og Jakoruda,
skráðist 5 stig á Mercallimæii,
en ekki fylgir fréttinni að slys
hafi orðið. Mælirinn tekur mið
af mældum styrkleika á til-
teknum stað í stigum frá 1 til
12.
daga opinbera heimsókn, m.a. til
að endurnýja vináttu- og sam-
vinnusamning fberisku þjóðanna
beggja.
Samningur þessi mun leysa af
hólmi hinn svokallaða „íberiu-
samning“, er gerður var 1939 og
undirritaður af Franco og þáver-
andi forsætisráðherra Portúgals,
Antonio Oliveira Salazar. Féll
hann úr gildi eftir uppreisn hers-
ins, er kollvarpaði stjórn Salazars
i april 1974.
Samskiptum landanna hrakaði
mjög eftir liflát fimm Spánverja i
september 1975, er sakaðir voru
um pólitísk hryðjuverk.
Tengsl nágrannalandanna
tveggja styrktust þó á nýjan leik
er Franco hershöfðingi féll frá
tveimur mánuðum siðar og Juan
Carlos konungur hófst til valda.
ERLENT
Grunaðir Baader-Meinhofmenn:
Fjórir gefa hungur-
verkfaU upp á bátiirn
Hamborg 18. nóv. Reuter.
FJÓRIR menn sem
grunaðir eru um aðild að
Baader- Meinhof hryðju-
verkasamtökunum og hafð-
ir eru í varðhaldi í Ham-
borg, hafa bundið enda á
tveggja daga hungurverk-
fall sitt. Var hugmyndin
með verkfallinu að knýja
yfirvöld til að láta átta
öfgamenn lausa að því er
haft var eftir talsmanni
þýzka dómsmálaráðu-
neytisins i dag. Alls eru níu
manns, er grunaðir eru um
að vera í hópi hryðjuverka-
manna undir lás og slá í
Hamborg.
Embættismenn í Stutt-
gart sögðu einn fanganna,
ungfrú Becker, sitja enn
við sama keip í hungur-
verkfallinu.
Ungfrú Becker er ein
þeirra 11 er ræningjar
Schleyers kröfðust að látn-
ir væru lausir í síðasta
mánuði. Ungfrúin var færð
aftur til Stammheim-
fangelsisins í Stuttgart í
gær eftir að hafa verið í
umsjá lækna á sjúkrahúsi.
Mynd þessi var tekin á þriðjudag er til ryskinga kommilli lögreglu og
mótmælenda f Parfs. Unga stúlkan var I hópi þeirra sem mótmæltu
framsali Vestur-Þjóðverjans Klaus Croissant, lögfræðings hrvðju-
verkamannsins Andreas Baaders. Hafði mótmælafundur og ganga
vegna Croissant verið bönnuð af yfirvöldum. AP-mvnd