Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NOVEMBER 1977
f
Mummi
þjálfar
hjá Fram
næsta
sumar
FRAMARAR hafa ráðið Guð-
mund Jönsson til að þjálfa meist-
araflokk félagsins í knattspyrnu
næsta sumar. Guðmundur er sá
maður, sem beztum árangri hefur
náð með lið Fram á undanförnum
árum, og má vænta þess að Guð-
mundur nái eins miklu og mögu-
legt er út úr Framliðinu næsta
sumar. Má benda á að 1972 urðu
Framarar Islandsmeistarar, 1973
bikarmeistarar, 1975 og 1976 í 2.
sæti 1. deildarinnar. Öll þessi ár
hefur Guðmundur verið við
stjórnvölinn, ýmist einn eða með
Jóhannesi Atlasvni.
Að sögn Sveins Sveinssonar,
formanns Knattspyrnudeildar
Fram, höfðu Framarar f huga að
ráða erlendan þjálfara og þá jafn-
vel tékkneskan. t Ijós hefðu kom-
ið ýmsir ókostir og óöryggi sam-
fara því og þegar Guðmundur
hefði verið fús til starfans hefði
ekki verið erfitt að taka ákvörðun
um þjálfaramálin.
Árni Stefánsson, hinn snjalli
markvörður Fram, hefur tilkynnt
félagaskipti úr Fram yfir f KA.
Sagði Sveinn að þau félagaskipti
hefðu farið fram f mesta bróð-
erni. Arni hefði tilkynnt félögum
sfnum að hann hygðist fara á ný
til Akureyrar og ekki verið nein
leiðindi samfara skiptunum.
Þætti Frömurum sárt að missa
Arna, en gætu ekki annað en sætt
sig við það og aðeins þakkað Árna
fyrir félagsskapinn og góða
frammistöðu undanfarin ár.
Sagði Sveinn að hann hefði ekki
haft fregnir af öðrum félagaskipt-
um Framara og leiddist eilffar
sögusagnir um þennan eða hinn
leikmanninn, sem væri að skipta
um félag án þess að þær sögur
hefðu við nein rök að styðjast.
Fá Frakkar sæti
Egypta í úrsiitum
HM í Danmörku?
EGYPTAR hafa dregið til baka þátttökutilkynningu liðs síns í úrslitum
HM í handknattleik, sem fer fram f Danmörku í janúar og febrúar á
næsta ári. Kom skeyti þessa efnis frá Egyptum í fyrradag, aðeins
einum degi eftir að þeir höfðu staðfest að lið þeirra myndi mæta i
úrslitakeppnina.
Egyptar áttu að vera fulltrúar Afríku i úrslitunum og hafa Danir nú
tilkynnt afríkanska handknattleikssambandinu að þeir verði að til-
kynna þátttökulið í stað Egypta fyrir morgundaginn. Egyptar stungu
upp á þvi að Túnis tæki sæti þeirra í urslitunum, en Túnisbúar eru í
banni Alþjóða handknattleikssambandsins þar sem þeir neituðu að
leika í heimsmeistaramóti unglinga í Svíþjóð á síðasta ári, vegna þess
að Israel var þar á meðal þátttökuþjóða.
Talsmaður danska handknattleikssambandsins sagði að gætu Afriku-
menn ekki fundið Iið í stað Egypta yrði Frökkum boðið sætið sem
losnar. Myndu þeir þá leika í einum erfiðasta riðli mótsins, með
Rúmeníu, Ungverjalandi og A-Þýzkalandi.
37 keppendur frá 5
löndum á júdómóti
FIMMTÁN útlendingar frá fjórum löndum veröa meðal keppenda á „opna skandi-
navíska meistaramótinu" í júdó, sem fram fer í Laugardalshöllinni um helgina.
tslenzkir keppendur á mótinu veröa 22 og má búast við skemmtilegri keppni í
flestum flokkum.
Erlendu keppendurnir á mót-
inu koma frá Danmörku (6),
tsrael (7), Svíþjóð (1) og Japan
(1). Japanski keppandinn, sem
hingað kemur stundar nám við
Háskólann, auk þess 'sem hann
kennir júdó, Er hann mjög sterk-
ur júdómaður og er þetta í fyrsta
skipti, sem japanskur júdómaður
keppir á opinberu móti hér á
landi. Svíinn Wolgang Bidro
kemur til keppninnar hér, én
hann varð fyrstur Norðurlanda-
búa til að hljóta verólaun á
Evrópumeistaramóti, er hann
varð þriðji í 65 kg flokki á síðasta
EM.
ísraelsmennirnir, sem hingað
komu í fyrradag, höfðu beðið um
sérstaka gæzlu meðan þeir yrðu
hér á landi. Var ekki hægt að
verða við óskum tsraelsmann-
anna að öllu leyti, en þeirra mun
þó betur gætt en íþróttahópa
almennt, sem hingað koma. Attu
ísraelsmenn pantað með flugvé
frá Kaupmannahöfn síðdegis í
gær og báðu forystumenn Júdó-
sambandsins um að þeir yrðu
látnir vita er flugvélin með
tsraelsmennina innanborðs væri
komin í loftið. Skömmu eftir að
vélin var komin í loftiö fengu
júdómenn tilkynningu um að liðið
frá Israel væri ekki með vélinni.
Voru því engir ,fulltrúar JSl á
Keflavíkurflugvelli til að taka á
móti gestum sínum, en þeir voru
með vélinni þrátt fyrir tilkynn-
ingu um að svo væri ekki.
Kom það þó ekki að sök, þar
sem einn af stjórnarmönnum
íþróttasambandsins, Hannes Þ.
Sigurðsson, tók á móti ísraels-
mönnum og lóðsaði þá inn á hótel.
Astæðan fyrir því að tilkynnt var
að ísraelsmenn létu tilkynna að
þeir væru ekki með vélinni, mun
vera sú „að þeir eru enn ekki
búnir að gleyma Múnchen 1972 og
óttast hryðjuverkastarfsemi,"
eins og Eysteinn Þorvaldsson, for-
maður Júdósambandsins, orðaði
það í gær.
Þátttökurétt í „opna skandi-
navíska meistaramótinu“ hafa all-
ir júdómenn, sem eru i löglegum
samtökum innan Alþjóðajúdó-
sambandsins. Er þetta fyrsta
mótið af þessu tagi sem haldið er
hér á landi og var það auglýst
meðal júdósamtaka austan hafs
og vestan. Er mótið haldið árlega
til skiptis á Norðurlöndunum og
stendur Júdósamband Norður-
Ianda að mótinu eins og NM.
Islendingar áttu einn sigurveg-
ara á síðasta móti, var það Viðar
Guðjohnsen. Hann getur þó ekki
varið titil sinn að þessu sinni, þar
sem hann á enn við meiðsli að
stríða, en hann meiddist illa á
siðasta Evrópumóti. Viðar æfir þó
af krafti og er óðum að jafna sig
af meiðslunum og hyggst hefja
keppni upp úr áramótum. Vegna
meiðslanna. varð hann að fresta
Japansför sinni, sem hann hafði
fyrirhugað í vetur.
Keppt verður i sjö þyngdar-
flokkum á mótinu. A laugardag
klukkan 14 verður mótið form-
lega sett, en keppnin í 4 léttari
þyngdarflokkunum hefst klukkan
10 árdegis á laugardag. A sunnu-
dag hefst keppnin klukkan 14 og
verður þá keppt i 3 þyngri
flokkunum. Yfirdómari á mótinu
verður Manfred Jurs, alþjóðlegur
dómari frá V-Þýzkalandi. Þá
verður um helgina og á mánudag
dómaranámskeið á vegum JSt en
kennslu annast Svíinn Karl Wöst.
Meðal íslenzku keppendanna á
mótinu verða Sigurður Pálsson,
Halldór Guðbjörnsson, Gunnar
Guðmundsson, Benedikt Pálsson,
Gísli Þorsteinsson og Svavar Carl-
sen, svo einhverjir séu nefndir.
Flestir þessara kappa verða meðal keppenda á fyrsta stðrmóti vetrarins í júdð nú um
helgina.
Víkingargerðu út
um leikinn í byrjun
í GÆRKVELDI fóru fram tveir leikir í
Reykjavíkurmótinu i handknattleik.
Fyrri leikur kvöldsins var leikur Ár-
manns og Vikinga. Vikingar fóru
geyst af stað og i fyrri hálfleik sáust
tölur eins og 6—0, 9—3 og 12—6,
en staðan i leíkhléi var 12—7.
Framan af síðari hálfleik var oft lítið
vit í því sem Víkingar gerðu og gengu
Ármenningar á lagið og tókst þeim
þrívegis að minnka muninn í tvö mörk
Stóð þá 14—12, síðan 18—16 og
að lokum 19—17 En nær Víkingum
komust þeir ekki, þeir misstu móðinn
og lokatölurnar urðu 26—19 Viking-
um i vil
Hjá Vikingum var markvörðurinn
Eggert Guðmundsson bestur og varði
hann vel allan timann Auk hans voru
þeir Ólafur Jónsson, Sigurður
Gunnarsson, Magnús Guðmundsson
og Skarphéðinn Óskarsson mjög góð-
ir
Bestu menn Ármanns i þessum leik
voru þeir Þráinn Ásmundsson og Björn
H. Jóhannesson
Mörk Vikings skoruðu: Ólafur 8,
Magnús Guðmundsson 4, Sigurður
Sveinsson, Skarphéðinn Óskarsson,
Þórður Hjaltested, Steinar Georgs,
Sigurður Gunnarsson og Páll
Björgvinsson tvö mörk hver og Jón G
Sigurðsson eitt mark
Mörk Ármanns skoruðu Þráinn
Ásmundsson 7 (2 víti), Björn H
Jóhannesson 5, Einar Þórhallsson 3,
Vilberg Sigtryggsson 2 og Jón Ást-
valdsson eitt mark
Dómgæslan var fyrir neðan allar
hellur og blátt áfram hlægileg á köflum
c£) það væri synd að segja, að Ármenn-
ingar hafi hagnast á henni —gg
Auðveldur sigur
Þróttara gegn KR
SÍÐARI leikur kvöldsins var leikur
Þróttar og KR. Um hann er það að
segja, að Þróttarar náðu strax
góðum tökum á leiknum. Þeir höfðu
2—3 marka forystu allan fyrri hálf-
leik, ef frá er talið, er staðan var
4—3 Þrótt i vil. Staðan i leikhléi var
19—9.
KR-ingar skoruðu fyrsta mark síðari
hálfleiks, en þá skoraði Konráð Jóns-
son fjögur mörk í röð og breytti
stöðunni þannig í 16—10 fyrir Þrótt
Úrslitin virtust ráðin. Svo var þó ekki,
því nú tóku KR-ingar sig á i fyrsta
skiptið í leiknum og tókst með mikilli
hörku og töluverðri heppni að minnka
muninn niður í eitt mark, 16—15 en
þá datt líka allur botninn úr liðinu, það
hreinlega gafst upp og lokakaflann
skoruðu Þróttarar níu mörk gegn
tveimur og sigruðu verðskuldað
25—17
Bestir í liði Þróttar voru þeir Konráð
Jónsson, Sigurður Sveinsson, Svein-
laugur Kristjánsson og markvörðurinn
Sigmundur Guðmundsson, en bestir
KR-inga voru þeir Símon Unndórsson
og Þorvarður Höskuldsson Pétur
Hjálmarsson varði einnig þokkalega i
fyrri hálfleik Annars léku flestir KR-
inga langt undir getu
Mörk Þróttar skoruðu Konráð Jóns-
son 1 1, Sigurður Sveinsson 5, Jóhann
Frímannsson, -Halldór Bragason og
Sveinlaugur Kristjánsson þrjú mörk
hver
Mörk KR skoruðu: Simon Unndórs-
son 9, Þorvarður Höskuldsson 3,
Ólafur Lárusson og Haukur Ottesen tvö
mörk hver og Jóhannes Stefánsson eitt
mark