Morgunblaðið - 19.11.1977, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1977
47
Blikarnir flytja
heimaleiki sína í
nýja íþróttahúsið
í Mosfellssveit
IÞRÓTTAHÚSIÐ Ásgarður í Garðabæ þykir í það minnsta til hand-
knattleiksiðkana og hafa félögin, sem þar hafa haft heimavöll, lengi
haft í huga að flytja heimavöll sinn þaðan. Um helgina leika Breiða-
bliksmenn sinn fyrsta leik á nýjum heimavelli og verður það gegn
Njarðvíkingum í þriðju deild karla. Nýi heimavöllurinn verður í hinu
nýja íþróttahúsi í Mosfellssveit og leikurinn á sunnudag verður fyrsti
opinberi handknattleiksleikurinn
sunnudaginn.
Að öðru leyti verða leikir í elztu
aldursflokkunum í handknattleik
sem hér segir um helgina:
LAUGARDAGUR:
Akureyri:
kl. 14 3. d. karla Dalvík — Þór,
Vm.
kl. 15.30 1. d. kvenna Þór, AK —
KR
kl. 17 2. d. karla Þór — Fylkir
Njarðvík:
kl. 14.10 2. d. kvenna UMFG —
KA
kl. 15.10 2. d. kvenna UMFN —
Þróttur
kl. 16.10 2. d. kvenna IBK — IR
ar. Hefst leikurinn klukkan 18 á
SUNNUDAGUR:
Akureyri:
kl. 14 2. d. karla KA — Fylkir
Hafnarfjörður:
kl. 16.05 1. d. kvenna FH —
Armann
kl. 17.05 l.d. kvenna Haukar —
Vikingur
Garðabær:
kl. 15 2. d. kvenna UBK — KA
kl. 17.10 2. d. karla Stjarnan —
Leiknir
Laugardalshöll:
kl. 21.15 2. d. karla Þróttur —
Grótta
Tveir leikir
í körfunni
UM HELGINA verða tveir leikir í
L deild karla í Islandsmótinu I
körfuknattleik, og fara þeir báðir
fram í Iþróttahúsi Hagaskólans á
morgun, sunnudag.
Kl. 13.30 leika Fram og Þór og
að þeim leik loknum eða kl. 15.00
leika IR og UMFN. Búast má við,
að leikur fram og Þórs geti orðið
fjörugur og spennandi og erfitt er
að spá um úrslit. Hins vegar ættu
Njarðvíkingar ekki að verða í erf-
iðleikum með tR-inga, ef dæma
má eftir fyrri leikjum Iiðanna í
mótinu.
Ron Greenwood tókst að leiða
enska landsliðið til 2:0 sigurs
gegn Itölum og nú vill hann halda
áfram með liðið, að minnsta kosti
til áramóta.
Landsleikur
Englands og
l'talíu sýndur
- enski boltinn
á sínum stað
LEIKUR Englendinga og Itala í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu, sem
fram fór í London á miðvikudags-
kvöldið, verður sýndur í heild í
iþróttaþætti sjónvarpsins í dag.
Verður leikurinn i litum þar sem
hann kemur hingað á myndsegul-
bandi. Iþróttaþátturinn hefst kl.
16.30.
Enska knattspyrnan er á sínum
stað í dagskránni kl. 19 og verður
þá sýnd viðureign Derby og Ever-
ton.
Brokey þakkar fyrir sig
FYRR 1 mánuðinum var haldinn aðalfundur í Siglingaklúbbnum
Brokey.
Svofelld ályktun var þá samþykkt einróma:
„Aðalfundur Siglingaklúbbsins Brokeyjar haldin 12. október 1977
færir Iþróttabandalagi Reykjavíkur sérstakar þakkir vegna stuðnings
við félagið á liðnu ári. Má þar sérstaklega nefna gjafabátinn Ólaf og
svo stuðning við gerð dráttarbrautar í Nauthólsvík. Hvort tveggja
hefur bætt aðstöðu og eflt starf félagsins, svo um munar.“
I stjórn félagsins voru kosnir Sigurður Einarsson, formaður, Guðjón
Magnússon, Hróbjartur Hróbjartsson og Jóhann Gunnarsson.
Oleg Blokhin, einn hinna sterku
leikmanna Dynamo Kiev.
Leikmenn
Dynamo
Kiev
sterkastir
í Rússlandi
DYNAMO KIEV’ sigraði í sovézka
meistaramótinu í knattsp.vrnu í
áttunda skipti. en keppninni er
nýlega lokið þar eystra. Þetta
sterka lið frá Kænugarði, sem
meira og minna hefur einnig ver-
ið landslið Sovétríkjanna á und-
anförnum árum, tekur því þátt í
Evrópukeppni meistaraliða á
næsta ári.
I síðasza leik sínum í 1. deild-
inni sovézku vann Dynamo Kiev
lið Ararat Yerevan með 2 mörk-
um gegn engu. Dynamo Tiblisi
varð í 2. sæti og Moskva Torpedo
varð í 3. sæti. Dynamo Kiev hlaut
samtals 43 stig í leikjunum 30,
Tiblisi fékk 39 stig og Törpedo
frá Moskvu fékk 36 stig.
Blakað um
helgina
TVEIR Ieikir verða í 1. deildinni í
blaki um helgina. Á Laugarvatni
hefst Ieikur UMFL og IS klukkan
14 í dag og á Akureyri byrjar
viðureign UMSE og Þróttar í
Glerárskóla klukkan 17.
I 1. deild kvenna verða þrír
leikir um helgina. Mímir leikur
við Víking á Laugarvatni klukkan
17 í dag, Völsungur mætir Þrótti á
D.lvík klukkan 13 og á morgun
leika IMA og Þróttur klukkan 13 í
Glerárskóla.
I 2. deildinni leika b-lið UMSE
og Þróttar á Dalvík klukkan 14 og
á sama tima á morgun mætast lið
IMA og Þróttar í Glerárskóla. Aft-
urelding mætir Breiðablik i
Varmárskóla i dag og Mímir leik-
ur gegn Víkingi á Laugarvatni í
dag klukkan 15.30.
Leikir í Reykja-
víkurmótinu á
mánudags-
kvöldiö
1 Reykjavíkurmótinu i hand-
knattleik verða engir leikir um
helgina, en á mánudag verða tveir
leikir í meistaraflokki karla.
Klukkan 20 hefst I Laugardals-
höll viðureign Vfkings og KR, en
strax að þeim leik loknum mætast
Fram og Ármann. A þriðjudaginn
klukkan 20 hefst leikur Vals og
lR í Laugardalshöllinni og síðan
mætast Leiknir og Fylkir.
Norsku meist-
ararnir áfram
NORSKA liðið Refstad er nær
öruggt með að komast I þriðju
umferð í Evrópukeppni meistara-
liða I handknattleik. Um helgina
vann Refstad sænska liðið Hellas
með 19 mörkum gegn 17 og var þó
leikið í Svíþjóð. Þeir Harald Tyr-
dal, sem leikið hefur 125 iands-
leiki fyrir Noreg, og Morgan Juul,
bezti markvörðurinn á Norður-
landameistaramótinu, voru beztu
menn Refstad að þessu sinni.