Morgunblaðið - 01.03.1978, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978
39
Ekkerttilboð
í Jóhannes
1 ATHYGLISVERÐRI grein í tímaritinu „World Soccer“ fyrir nokkru
er fjallað vftt og breitt um frammistöðu Celtic á þessu keppnistfma-
bili. Þar er m.a. minnzt á Jóhannes Eðvaldsson á eftirfarandi hátt í
lauslegri þýðingu:
„Einn af betri leikmönnum Celtic um þessar mundir er Jóhannes
Eðvaldsson og hann hefur verið á sölulista í fjóra mánuði. Það segir
talsvert um stöðu liðsins um þessar mundir að ekki hefur borizt eitt
einasta tilboð í þennan leikmann. Hvernig eru þá hinir leikmenn
liðsins?"
Það er Alex Gordon, sem skrif-
ar þessa grein og er fyrirsögn
hennar á þá leið, að „enginn hafi
komið í stað Dalglish". Hann hafi
verið seldur til Liverpool fyrir
440 þúsund pund á síðasta hausti,
en enginn leikmaður hafi verið
keyptur til að koma i stað þessa
snjalla framlínumanns. Þetta sé
helzta vandamál Celtic auk
meiðsla leikmanna og Jock Stein
verði að íhuga sinn gang, en hann
hefur aðeins keypt leikménn fyr-
ir rúm 100 þúsund pund á keppn-
istímabilinu. Celtic geti ekki
reiknað með að fá ieikmenn á
„ódýra markaðinum“ lengur. For-
ystumenn annarra félaga viti að
Celtic eigi mikið fé í bönkum og
geri því meiri kröfur til Celtic en
áðun
MEISTARI
2 ÁR í RÖÐ
ERIC Heiden frá Bandarikjunum var í miklum
sérflokki á HM i skautahlaupum, sem fram fór
i Gautaborg um siðustu helgi. Sigraði Heiden
i þremur fyrstu greinunum og hafði þar með
tryggt sér sigur á mótinu. hann hefði ekki
einu sinni þurft að vera með i siðustu
keppnisgreininni. Heiden varð einnig heims-
meistari i skautahlaupum i fyrra og virðist
alveg hafa skotið norskum og sovézkum and-
stæðingum sinum afturfyrir sig.
Heiden sigraði i 500 og 5.000 metra hlaupi
en varð fimmti i 10 km. Jan Egill Stirholt frá
Noregi varð annar á mótinu. S. Martchuk frá
Sovétrikjunum þriðji og i 4. og 5. sæti komu
Norðmennirnir Kay Stenshjemmet og Sten
Stensen. en sá síðastnefndi sigraði i 10.000
m.
LILJA vann
silfurverðlaun
FRJÁLSlÞRÓTTAKONAN Lilja Guðmundsdóttir IR stóð sig með
ágætum á meistaramóti Finnlands í frjálsíþróttum innanhúss sem
fram fór á Abo í Finnlandi um helgina. Nældi Lilja ( önnur verðlaun í
1500 metra hlaupinu á mótinu. Ætlaði hún að einbeita sér að keppni í
800 metra hlaupinu á mótinu en kom of seint til mótsins og missti af
hlaupinu. Lilja varð finnskur meistari f 800 metra hlaupi innanhúss I
fyrra. Varð hún þá f þriðja sæti í 1500 metrunum.
„Ég undirbjó mig fyrst og
fremst undir að hlaupa 800 metr-
ana á þessu móti“, sagði Lilja.
“Ég varð spæld yfir að missa af
hlaupinu og var því eiginlega
ekki i neinu stuði í 1500 metrun-
um daginn eftir. Hlaupið var
frekar rólegt framan af þar sem
enginn vildi leiða það og halda
uppi einhverjum hraða. Úr þessu
rættist þó er halupið var um það
bil hálfnað og voru síðustu
hringirnir hálfgert spretthlaup",
bætti Lilja við í spjalli við
Morgunblaðið í gær.
íslandsmet Lilju í 1500 metrun-
um innanhúss er 4:27, 3 mínútur
en í þetta sinn hljóp hún á 4:29,3
mín. Metið setti Lilja á sama móti
í fyrra. Lilja varð sem kunnugt er
finnskur og norskur meistari i
800 metrum innanhúss í fyrra,
hljóp bæði hlaupin á rúmlega
2:09 mínútum. I viðtalinu við
Mbl. sagðist Lilja'telja sig vera i
formi fyrir a.m.k. 2:08 mín í 800
núna, en met hennar utanhúss er
2:06,3 mín. Lilja verður meðal,
þátttakenda á Evrópumeistara-
Myndasýningar
hjá kylfingum
Golfklúbbur Suðurnesja efnir til
myndakvölds og verðlaunaafhendingar
i Framsóknarhúsinu í Keflavik i kvöld
klukkan 21 Eru meðlimir klúbbsins
hvattir til að mæta og taka með sér
gesti.
Þá gengst Golfklúbburinn Keilir fyrir
annarri „skálagleði" sinni á vetrinum
næstkomandi þriðjudag og verða sýnd-
ar golfmyndir og rætt um golftimabilið
framundan Golfáhugamönnum al-
mennt er heimill aðgangur.
mótinu innanhúss i Mílanó 11. og
12. marz n.k. Keppir hún þar i 800
metra hlaupi.
—ágás.
Kynningarmót í
íþróttum fatl-
aðra á Akureyri
IÞRÓTTASAMBAND íslands og
íþróttabandalag Akureyrar ásamt
iþróttafélögum fatlaðra i Reykjavik og á
Akureyri efna til kynningarmóts í
íþróttahúsi Glerárskóla n.k. laugardag
kl 1 7 00
Þar mun fatlað fólk taka þátt i kynn-
ingu ýmissa iþróttagreina. sem það
iðkar, svo sem borðtennis, boccia,
keiluspil. bogfimi og lyftingar
Einnig mun sýndur hjólastóladans
og loks verður sýnd kvikmynd frá
Ólympiuleikum fatlaðra í Toronto i
Kanada 1976 Á sunnudag verður svo
farið i sund og efnt til kynnisferðar á
Akureyri Um 25 manna hópur úr
íþróttafélagi fatlaðra i Reykjavik fer til
Akureyrar i þessu skyni en auk þess
munu félagar úr íþróttafélagi fatlaðra á
Akureyri og e.t.v fleiri taka þátt i
mótinu.
Fram með
firmakeppni
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Fram efnir
til firmakeppni i knattspyrnu i tilefni
70 ára afmælis félagsins Hefst keppn-
in 1 1 marz n k og verður fyrirkomu-
lag hennar með sama sniði og hjá
Þrótturum undanfarnar helgar Þátt-
tökugjald er kr. 10 000 og þurfa þátt-
tökutilkynningar að berast Sveini
Sveinssyni i sima 85784 eða 26927
fyrir næstkomandi mánudag
/íð sitt hæfi
í verzlunum
MIKIÐ URVAL AF NYJUM VÖRUM
TEKIÐ UPPÍDAG.
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 20. Laugaveg 66. Austurstræti 22. Glæsibæ. Simi 28155
ar » »