Morgunblaðið - 02.04.1978, Síða 33
— Minning
Svafa
Framhald af bls. 37.
skólanna. Og hún sat því ekki
mörg ár í stjórn S.I.B.
En mat stjórnar S.Í.B. og annars
samstarfsfólks Svöfu Þórleifsdótt-
ur má m.a. marka af því að á 50
ára afmæli S.Í.B. var Svafa
Þórleifsdóttir gerð heiðursfélagi í
Sambandi ísl. barnakennara fyrir
störf hennar í þágu skóla- og
uppeldismála hér á landi.
Svafa Þórleifsdóttir hlaut
margs konar viðurkenningar fyrir
störf sín í þágu þeirra mála, er
hún bar fyrir brjósti á löngum
lífsferli. Vitað er, að þær hafa
hlýjað hug hennar og hjarta þótt
hún hafi ekki flíkað þeim.
Svafa Þórleifsdóttir hefur nú
lokið langri, margþættri, farsælli
starfsævi. Þeir, sem notið hafa
leiðsagnar hennar og umhyggju,
þakka samfylgdina og blessa
minningu hennar.
F.h. Sambands
íslenskra barnakennara
Helgi Elíasson
Kveðja frá Sambandi borgfirskra
kvenna.
Látin er í hárri elli Svafa
Þorleifsdóttir, fyrrv. skólastjóri á
Akranesi. Sambandi borgfirskra
kvenna er- bæði ljúft og skylt að
minnast hennar með örfáum orð-
um, svo mikil voru störf hennar í
þágu þess.
Hinn 9. maí 1930 var haldinn
fundur í Borgarnesi að tilhlutan
Kvenfélagasambands Islands, sem
þá var nýlega stofnað. Mættir voru
til fundarins fulltrúar þeirra
kvenfélaga í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu, er þá voru starfandi.
Tilgangur fundarins var sá að
stofna samband með þessum
félögum.
Fulltrúi Kvenfélags Akraness á
fundi þessum var Svafa Þorleifs-
dóttir, þáv. formaður þess. A
fundinum var kosin 3ja kvenna
nefnd til að undirbúa formlega
stofnun kvenfélagasambands í(
áðurnefndum sýslum og semja lög
fyrir það og var Svafa kosin
formaður nefndarinnar. Undir-
búningsnefndin boðaði síðan til
stofnfundar 30. júní 1931.
A stofnfundi Sambands borg-
firskra kvenna var Svafa kosin
formaður þass og gegndi hún því
starfi til ársins 1944, er hún
fluttist burt af sambandssvæðinu.
Störf hennar í þágu sambands-
ins fær S.B.K. aldrei fullþakkað.
Það var ómetanlegt að eiga hana
að, fyrst sem braytryðjanda og
formann, síðan sem hollvin og
ráðgjafa.
Svafa var samvinnuþýð kona og
réttsýn, en hélt fast á réttum
málstað, hver sem í hlut átti. Hún
mótaði störf S.B.K. öðrum fremur
og var ætíð hinn góöi, andi er vakti
yfir velferð þess. Þar ríkti hinn
létti félagsandi. Svafa var gerð að
heiðursfélaga S.B.K. á 25 ára
afmæli sambandsins árið 1956.
Hún sat um 35 aðalfundi félagsins.
Þegar rætt var um það innan
stjórnar S.B.K. á hvern hátt
sambandið gæti sýnt Svöfu verð-
skuldaðan heiður í tilefni 90 ára
afmælis hennar 20. okt. 1976, kom
fram sú hugmynd að stofna sjóð í
heiþurs- og virðingarskyni við
hana. Sjóðurinn var síðan stofn-
aður á níræðisafmæli hennar og
bar nafnið Heiðurssjóður Svöfu
Þorleifsdóttur og er hann í umsjá
Kvenfélags Akraness.
Samband borgfirskra kvenna
hefur ákveðið að gefa fjárhæð í
Heiðurssjóð Svöfu Þorleifsdóttur
til minningar um hina látnu
merkiskonu.
Löngu og merku lífsstarfi er
lokið.
Við biðjum ættingjum og vinum
hennar blessunar um ókomin ár.
Blessuð veri minning Svöfu
Þorleifsdóttur.
S.B.K.
Al'OI.VSINI.ASIMINN EK:
22480
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1978
33
L0KK A BILINN
BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR
ÞARF AÐ BLETTA EÐA SPRAUTA BÍLINN ?
Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru
gæöavara, margreynd og henta
íslenskum staðháttum.
Gefið okkur upp bílategund, árgerð
og litanúmer. Við afgreiðum litinn
með stuttum fyrirvara.
í Dupont blöndunarkerfinu eru 7000
litaafbrigði möguleg.
Öll undirefni svo sem grunnar, þynn-
ar og sparsl fást einnig hjá okkur.
mnrPf* oapOkca
LUuML Laugavegi 178 simi38000
Höfum fyrirliggjandi
Farangursgrindur og
bindingar á allar
stærðir fólksbíla,
Broncoa
og fleiri bíla.
Einning skíðaboga
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
WWW AMERISKUR WWm
KULDAKLÆÐNAÐUR
A. FYRIR VINNU A
BNm og leik
Hetta
Úlpa ^
Buxur
Samfest-
ingur
meö hettu
I Æ Sendum í póstkrötu I
ÍÁmi Olafsson & Ccw
Hf 40088ÍS* 40098##f
Lincolnstóllinn
Þessi glæsilegi stóll er klæddur meö leöri.
Þér getið valið um þrjá liti.
Þið, sem eigið pantaða stóla
vinsamlegast hafiö samband viö okkur sem
fyrst.
Sent gegn póstkröfu.
Valhúsgögn,
Ármúla 4, sími 82275.