Morgunblaðið - 07.05.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.1978, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 93. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Moro-málið: Leitin hert — 22 handteknir Róm — 6. maí — AP. LÖGREGLAN í Róm handtók í morgun 22 menn í einni umfangsmestu leit, sem fram hefur farið að ræningjum Aldo Moros og hugsanlegum vitorðsmönnum þeirra. Enn sem komið er verst lögreglan allra fregna af því hvort handtökurnar hafi borið árangur, en líf Moros er nú talið hanga á bláþræði eftir síðustu yfirlýsingar Rauðu herdeildarinnar um að nú verði aftöku hans ekki lengur slegið á frest.. Blöð í Róm telja sig hafa heimildir fyrir því að fjölskyldu Moros hafi borizt bréf, sem hafi að geyma hinztu kveðju hans. Fangelsislæknir í bænum Novara á Norður-Ítalíu særðist í morgun alvarlega í skotárás. Arásarmaðurinn komst undan í bifreið, en enn hafa hryðjuverka- samtök ekki lýst ábyrgð vegna árásarinnar á hendur sér. Auk skyndileitar öryggislögregl- unnar í Róm, voru öryggisráðstaf- anir hertar víða í landinu í framhaldi af ítrekuðum yfirlýsing- um Rauðu herdeildarinnar um aftöku Moros, og víðtæk leit fór fram á mörgum stöðum. Meðal annars var leitað í sumarhúsi Moros, um 100 kílómetra suður af Róm, en skömmu áður höfðu að minnsta kosti þrír óþekktir aðilar haft símasamband við lögregluna og sagt að lík Moros væri falið þar í nágrenninu. Upphringingum af þessu tagi hefur fjölgað stórlega síðan um miðja vikuna, en lögregl- an telur að þar sé í langflestum tilvikum um að ræða fólk, sem engin tengsl hefur við mannræn- ingjana. Vestur-þýzka lögreglan hefur staðfest, að í gær hafi verið leitað í litlu gistihúsi í Bonn, eftir að orðsending barst um að Rauðu herdeildirnar hefðu Moro þar í haldi. Ekkert kom fram við þessa leit, sem setja mætti í samband við málið. Þeir Hua Kuo-feng formaöur kínverska kommúnista- flokksins og Kim ll-Sung forseti Norður-Kóreu héldu áfram viöræðum sínum í Pyongyang á laugardags- morgun. Lítið hefur veriö látið uppi um viðræðurnar, annað en að pær séu vinsamlegar og að leiðtogarnir hafi upplýst hvor annan um frábæran árangur sósíalísku byltingarinnar og uppbyggingu sósíalísks pjóðfélags í löndum sínum. Þá segir Hshinhua-frétta- stofan kínverska frá pví, að peír Hua og Kom hafi komið sér saman um aö auka tengsl ríkjanna, rækta vináttu peirra og samvinnu í hagsmunamálum beggja. Mynd pessi var tekin skömmu eftir komu Hua formanns til höfuðborgar N-Kóreu í fyrradag. Suður-Afríka hót- ar frekari árásum Búizt við fordæmingu öryggisráðs SÞ á árásum á stöðvar SWAPO Hörkubardag- ar í Beirút Boirút — f». maí — AP IIARÐIR skotbardagar milli kristinna manna og múhamcðs- trúarmanna urðu í Beirút í nótt. og skarst sýrlenzka gæzluliðið í leikinn. I>egar nokkuð var farið að draga úr hörku átakanna í morgun lágu fjórir menn í valnum og að minnsta kosti 25 voru alvarlega særðir. Þetta er í annað skiptið á niánuði sem meiriháttar bardagar verða í Beirút. Ékki er ljóst hvort kristnir menn eða múhameðstrú- armenn áttu upptökin að þessu sinni, en í fréttasendingu útvarps- stöövar kristinna manna sagði að kviknað hefði í níu fjölbýlishúsum í suðausturhluta borgarinnar • í skotárásum. Þúsundir fjölskyldna yfirgáfu íbúðir sínar og höfðust fjölmargir borgarbúar við í loftvarnabyrgjum þar til draga tók úr bardögum. Pretóríu— Sameinuðu þjóðunum 6. maí — AP — Reuter. SUÐUR-Afríkustjórn hótaði í dag að halda áfram hernaðaraðgerð- um gegn skæruliðahreyfingum hlökkumanna ef lát yrði ekki á árásum þeirra á landamærum Namibi'u og Angólu. Fastlega er búizt við því. að síðar í dag samþykki öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að fordæma árásir S-Afríkumanna á ba'ki- stöðvar SWAPO-hreyfingarinnar í Angólu. auk þess sem búizt er við að ráðinu verði falið að undirbúa refsiaðgerðir gegn stjórn Suður-Afríku ef slíkar árásir endurtaki sig. Stjórn Angóla krafðist þessa skyndi- fundar öryggisráðsins. sem óvænt var boðið til seint í gærkvöldi. og studdu samtök Afríkuríkja þá kröfu. Stjórn Angóla ber Suð- ur-Afríkumönnum það á brýn að þeir séu nú að fjölga í liði sínu í Angóla. í stað þess að flytja hrott árásarliðið. eins og þeir láti í veðri vaka. Næsta öruggt er talið að 10 rki af þeim 15, sem sæti eiga í öryggisráðinuf greiði atkvæði með því að fordæma stjórn Suð- ur-Afríku, en hins vegar lítur út fyrir að Bretar, Bandaríkjamenn, Frakkar, Vestur-Þjóðverjar og Kanadamenn sitji hjá í ljósi þess Jerúsalem 6. maí Reuter MOSHE Dayan, utanríkisráð- herra ísraels, leggur á sunnu- frumkvæðis sem þeir hafa haft um lausn Namibíu-málsins að undan- förnu. Areiðanlegar heimildir hjá Sameinuðu þjóðunum telja þó ekki loku fyrir það skotið að ríkin fimm samþykki fordæmingarályktunina í von um að það verði til að blíðka forvígismenn SWAPO og greiða fyrir samkomulagi um þau atriði áætlunarinnar um lausn Nami- bíu-málsins, sem þjóðernissinnar Framhald á bls. 31 dagsmorgun upp í ferð til Bretlands og fjögurra Norðurlanda. Tilgangur hans með ferðinni er sá að gera stjórnum þessara ríkja grein fyrir framvindu mála í Mið- austur löndum og hugmynd- um sínum um að koma á nýjum friðarviðræðum við Egypta. Dayan kemur fyrst til Lundúna þar sem hann ræðir við Callaghan forsætisráðherra og David Owen utanríkisráðherra, en þaðan fer hann til Noregs, Svíþjóðar, Dan- merkur og Finnlands. Vaxandi andstöðu í garð ísraels- stjórnar hefur orðið vart að undanförnu, þar sem margir telja að ósveigjanleiki Begins forsætisráðherra hafi oröið til þess að sigla friðarviðræðum í strzand, og er talið að Dayan niuni leggja á það megináherzlu að afla ísraelsmönnum santúöar í ferðinni, sem taka mun 10 daga. Nýtt lyf boðar byltiiigu í barátt- unni gegn of háum blóðþrýstingi Boston — 6. maí — AP. I nýútkomnu tölublaði hins þekkta bandan'ska la-knatíma- rits The New England Journal of Medicine er sagt frá nýju lyfi. sem talið er að muni valda byltingu í baráttunni gegn of mikiuni blóðþrýstingi. Rannsóknir á áhrifum lyfsins. sem Ifallað er SQ-11224, hafa staðið yfir við Boston háskóla að undanförnu. en ekki er búizt við því að lyfið verði komið á almennan markað fyrr en eftir um það bil tvö ár. Meðal annars hefur lyfið þann eiginleika að það dregur úr blóðþrýstingi, sem er svo mikiil að hingað til hafa önnur lyf eða læknisráð ekki dugað, en rannsóknir benda einnig ein- dregið til þess að aukaverkanir af völdum lyfsins séu engar. Bendir ýmislegt til þess að lyfið muni leysa af hólmi flest meðul, sem hingað til hafa verið notuð til þess að lækka blóðþrýsting. Yfirmaður hjartasjúkdóma- deildar Boston-háskóla, Aram Chobanian, segir að SQ-14225 sé án nokkurs vafa merkilegasta framlagið í þessari viðureign síðan „vatnstöflur“ svokalllaðar komu fram á sjónarsviðið, og dugðu þær vel þegar um var að ræða væg tilfelli of mikils blóðþrýstings. Síðar hafa lyf eins og Reserpine og Propranol verið notuð í auknum mæli gegn sjúkdómnum, en bæði hafa þau áhrif á taugakerfið og orsaka í mörgum tilvikum þunglyndi og doða, auk þess sem þau eru Framhald á bls. 31 Dayan til Norður- landa og Bretlands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.