Morgunblaðið - 07.05.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1978
15
Svanhvít og Reynir með börriin. þau Hauk og Ástu.
„Aðalkosturinn við að
búa í sveit er að maður
er sjálfs síns herra”
— segir Reynir Gíslason á Bæ í Hofshreppi
ÞAÐ hefur færzt mjög í vöxt á
síðari árum, að fólk úr þéttbýl-
inu hefur tekið sig upp og flutzt
í sveit og hafið búskap. Sumt af
þessu fólki hefur áður verið í
sveit og sótt í sveitasæluna á ný,
en aðrir segjast vera að flýja
borgarstressið. Á Bæ í Hofs-
hreppi í Skagafirði búa ung
hjón, Reynir Gíslason og Svan-
hvít Gísladóttir, ásamt tveimur
börnum sínum. Þau teljast til
síðar nefnda hópsins, því bæði
höfðu áður verið í sveit og
reyndar er Reynir alinn þar upp.
Þau Reynir og Svanhvít flutt-
ust norður þann 1. apríl 1974, og
komu þá frá Hveragerði, þar
sem þau höfðu búið í nokkur ár
og meðal annars byggt sér
einbýlishús.
Húsasmiður áður
„Ég lærði húsasmíði í Hvera-
gerði og vann þar. Annars hafði
ég verið um tíma á sjónum,
einar 3 vertíðir, og eitt sinn átti
ég trillu á Hofsósi, en sú útgerð
gekk illa,“ segir Reynir.
„Árin sem við bjuggum í
Hveragerði urðu víst átta, en
þegar tækifærið bauðst var
ákveðið að fara að búa, og ég sé
alls ekki eftir skiptunum. Mín
hugsun er líka sú, að ef mann
langar til að gera eitthvað, þá er
um að gera að láta það eftir
sér,“ segir Reynir ennfremur.
Þegar Svanhvít var spurð að
hvernig hún hefði kunnað við
skiptin, segir hún: „Að sjálf-
sögðu voru þetta viss viðbrigði,
en hér hefur mér aldrei leiðst.
Ég saknaði kannski þess mest
að við fórum hingað norður úr
nýju einbýlishúsi."
Bundinn yfir kúnum
Þau Reynir og Svanhvít eru
eingöngu með kúabúskap og því
var ekki úr vegi að spyrja þau
hvernig þau kynnu við það.
„Þegar við komum hingað voru
hér aðeins kýr. Fjárhús voru
heldur ekki til, þannig að ekki
var um mikið að velja. Við
höfum alla tíð kunnað vel við
kúabúskapinn, en hins vegar er
sá galli á gjöf Njarðar, að maður
er geysilega bundinn yfir kún-
um.“
— Hvað eruð þið með marga
gripi í fjósi?
„Þegar við fluttumst hingað
keyptum við 28 nautgripi, en
núna erum við með 40 mjólkandi
kýr fyrir utan geldneyti, þannig
að í fjósi eru nú um 65 hausar
og þar við bætast kálfar.
Við höfum stundað að kaupa
fullvaxta kýr og komist upp í að
kaupa 11 kýr í einu frá sama bæ
og höfum við náð mjög góðum
árangri með svona kaupum.“
— Hafið þið í huga að stækka
búið enn?
Væri gott að vera
með um 35 kýr
„Ég tel að búið megi ekki vera
stærra en það er fyrir tvær
manneskjur, og ég vildi frekar
fækka gripum eitthvað, þ.e.
niðurí svona 35, þegar maður er
búinn að byggja upp stofninn,
og þá að reyna að vera með
einhverja kjötframleiðslu sam-
hliða mjólkinni," segir Reynir.
Þau Reynir og Svanhvít sögðu
að félagslíf í Hofshreppi væri
mjög gott, prýðis félagsheimili
væri á Hofsósi, ennfremur
leikfélag og söngfélag og kirkju-
kór. Og væri mikið af
skemmtunum yfir veturinn.
Höfðavatn, sem liggur inn af
Þórðarhöfða, nær svo til upp að
bæjardyrunum á Bæ og þegar
Reynir var spurður hvort hann
nytjaði vatnið eitthvað, en þar
er mikill silungur, sagði hann:
„Við höfum ekki haft neinn tíma
til að nytja vatnið enn, heyskap-
urinn situr fyrir öllu. Annars er
nú svo komið við vatnið að ósinn
hefur lokast, en hugmyndin er
að opna ósinn á ný í sumar.
Aðalkosturinn við að búa í
sveit er, að maður er sjálfs síns
herra og ekki bundinn við
hverja mínútu, og þó það sé oft
erfitt að vera bóndi, þá er
ánægjan miklu meiri ef árang-
urinn er góður," segir Reynir.
Selur fóður
fyrir Bústólpa
Auk þess að sinna bóndastörf-
unum hefur Reynir tekið að sér
að selja kjarnfóður fyrir fyrir-
tækið Bústólpa á Akureyri og
hann segir: „Það eru töluvert
margir sem kaupa fóður frá
okkur, enda verðið alla tíð mjög
hagstætt, en fóðrinu er skipað á
land á Hofsósi og síðan ekið
hingað í skemmu, sem hefur
verið byggð yfir fóðrið.“
Ilér er Ilaukur með bezta vininn.
Happdrætti
Lionsklúbbsins
Fjölnis
Vinningsnúmer
Nr. 14.074 Sólarlandaferð með Sunnu á kr. 150.000.—
Nr. 12.578 Sólarlandaferð með Sunnu á kr. 150.000.—
Beygjuvélar
10—26 mm
Plötuklippur
3—5 mm
Lokkur
10 mm
G.J.
Fossberg
Skúlagötu 63, sími 18560.
VARAHLUTIR
vorum ad fá
frá: Mitsubishi
í: Lancer og Galant
t.d. stýrisenda, spildilkúlur, kúplingsbarka, kúplingar,
stýrisupphengjur, dempara, vatnsdælur.
Afltásamastað Laugavegi118-Simi22240
EGILL VILHJÁLMSSON HE
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU