Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
LOGREGLAN í Reykjavík
handtók á sunnudaginn býzk-
an mann aö nafni Konrad
Ciesielski og son hans aö nafni
Lothar eftir að þcim feðgum
hafði verið veitt eftirför um
landið í fimm daga. Konrad
þessi Ciesielski er þekktur víða
um Evrópu fyrir þjófnaði á
fálkaungum og þar sem rök-
studdur grunur lá fyrir um það
að hann hefði komið hingað til
lands fyrir nokkrum árum i
þeim erindagerðum að stela
fálkaungum úr hreiðrum hér-
lendis, þótti vissara að hafa á
honum góðar gætur. Við leit f
hifreið þeirra feðga fundust
iangvíucgg og ýmis úthúnaður,
sem nytsamur getur verið við
fálkaungastuld en engir fálka-
ungar né fálkaegg fundust f
fórum feðganna.
Að sögn Williams Th. Möller,
aðalfulltrúa lögreglustjóra, bár-
ust upplýsingar um það hingað
til lands að maður þessi væri
væntanlegur hingað. Kom hann
í síðustu viku og hafði þá bifreið
meðferðis. Menntamálaráðu-
neytið ásamt fuglaverndunar-
mönnum og lögreglunni voru
viðbúin komu hans. Þeir feðgar
héldu af stað norður í land á
miðvikudaginn í síðustu viku á
Volkswagen-rúgbrauð bifreið
sinni. Fóru þeir áleiðis til
Akureyrar en lögðu þó sveig á
leið sína um Bröttubrekku og
Skógarströnd. Gistu þeir fyrstu
nóttina við Hraun í Norðurár-
dal. Næsta dag fóru þeir til
Ljósm. Kristján.
Guðmundur Ilermannsson yfirlögregluþjónn með búnað bjóðverj-
anna, sem hald var lagt á, kaðla, sigbúnað, talstöðvar, stcngur til
ungaveiða og búnað til að halda hita á eggjum.
Frægur fálkaungaþjófur
gripinn í Reykjavík
Akureyrar og síðar til Mývatns.
Fóru þeir hægt yfir og stoppuðu
víða og þá fyrst og fremst á
stöðum, þar sem fálka- og
arnarvarp er. I bakaleiðinni
fóru þeir yfir Laxárdalsheiði og
inn Dali. Til Reykjavíkur komu
þeir á sunnudagsmorgun og
voru þeir handteknir á Vestur-
landsvegi en lögreglumenn
höfðu fylgt þeim feðgum eftir
alla leið.
Feðgarnir voru teknir til
yfirheyrslu á sunnudaginn. Þar
sem þeir höfðu ekki fálkaegg né
fálkaunga í fórum sínum var
ljóst, að sögn Williams Th.
Möller, að þeir höfðu ekki gerst
brotlegir við lög að öðru leyti en
því, að þeir höfðu gerst of
nærgöngulir við hreiður. Sem
fyrr segir fundust langvíuegg í
fórum þeirra og kváðust feðg-
arnir hafa fengið þau að gjöf og
þættu þeim eggin mjög skraut-
leg. Sögðust þeir hafa ætlað að
kaupa andaregg áður en þeir
færu utan og hefði verið ætlunin
að unga þeim út í Þýzkalándi
með þar til gerðum útbúnaði.
Auk eggjanna fannst í fórum
þeirra útbúnaður ýmiss konar
Framhald á bls. 30.
Nýtt fiskverð:
20% hækkun þýðir 8mill-
jarða kr. útgjaldaaukningu
Keflavík:
/
Aframhaldandi
samstarf sjálf-
stæðismanna og
framsóknarmanna
krflavík. 5. júní.
SAMKOMULAG hefur náðst milli
sjálfstæðismanna og framsóknar-
manna um áframhaldandi sam-
starf í bæjarstjórn á svipuðum
grundvelli og á síðasta kjörtíma-
bili. Fyrsti fundur nýkjörinnar
bæjarstjórnar verður á fimmtu-
dag.
Sjálfstæðismenn og framsókn-
armenn hafa nú 5 af 9 bæjarfull-
trúum, en höfðu sex síðasta
kjörtímabil, en í kosningunum
fyrra sunnudag misstu sjálfstæð-
ismenn einn mann og hafa því þrjá
bæjarfulltrúa nú og framsóknar-
menn tvo.
- IÞF
Seyðisfjörður:
—------------
Aframhaldandi
samstarf sjálf-
stæðis- og fram-
sóknarmanna
NÝKJÖRIN bæjarstjórn Seyðis-
fjarðar kom saman til fyrsta
fundar síns í gær. Framsóknar-
menn og sjálfstæðismenn eru í
áframhaldandi samstarfi og hafa
áfram fimm af níu bæjarfulltrú-
um, framsóknarmenn 3 og sjálf-
stæðismenn 2.
Forseti bæjarstjórnar var kjör-
inn Hörður Hjartarson af B-lista,
1. varaforseti Theodór Blöndal af
D-lista og annar varaforseti Þor-
valdur Jóhannsson af B-lista. I
bæjarráð voru kjörnir Hörður
Hjartarson og Theodór Blöndal og
Hallsteinn. Friðþjófsson af lista
minnihlutans. Jónas Hallgrímsson
var ráðinn bæjarstjóri áfram.
Húsavík:
Fanney
hlaut Lands-
bankabátinn
Húsavík. 5. júní.
HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins
fóru fram með hefðbundnum hætti
á Húsavík í fegursta veðri.
Hátíðahöldin hófust með guðs-
þjónustu klukkan 9 og síðan var
farin hópsigling um flóann með
yngstu bæjarbúana. Klukkan 14
var safnast saman á hafnarupp-
fyllingunni og voru þar tveir
aldnir sjómenn heiðraðir , Karl
Aðalsteinsson og Karl Pálsson.
Afhentur var Landsbankabátur-
inn, en hann hlaut í þetta skipti
Framhald á bls. 30.
SETUVERKFALL starfsfólks
fiskiðjuvers Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar. sem hófst á miðviku-
dag. stóð enn í gær, en þá hafði
starfsfólkið á fundi fellt sáttatil-
lögu bæjarstjórnar Hafnarfjarð-
ar með 68 atkva?ðum gegn 43.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Ingvasonar, forstjóra
BÚH, var málið því í biðstöðu í
gær. Vildi hann ekkcrt tjá sig um
málið. en sagði að það varðaði
mannleg samskipti.
Forystumenn verkalýðsfélag-
anna í Hafnarfirði fengu því
framgengt að boðað var til óform-
legs bæjarstjórnarfundar, þar sem
þetta deilumál í Bæjarútgerðinni
var tekið fyrir. Þar skýrðu for-
ENN IIEFUR ekki tekizt sam-
komulag um nýtt fiskverð. en sem
kunnugt er átti nýtt fiskverð að
taka gildi hinn 1. júní s.l. Farið
hefur verið fram á allt að 20%
hækkun á almennu fiskverði, en
fulltrúar fiskvinnslunnar í
verðlagsráði benda á að ef hækk-
un eigi að verða á fiskvcrði verði
aðrar ráðstafanir að koma til,
þar sem nú þegar sé mikið tap á
ystumenn verkalýðsfélaganna
málið og ennfremur ræddi bæjar-
stjórnin við forstjóra fyrirtækis-
ins og verkstjóra. Útbjó bæjar-
stjórnin síðan tillögu, sem er á þá
leið að í upphafi lýsa þeir áhyggj-
um sínum með þróun mála í BÚH
og að þeir hafi reynt eftir föngum
að kynna sér deilurnar, sem þar
séu. Segir þar jafnframt að af
gefnu tilefni hafi verkstjórarnir
lýst því yfir í áheyrn bæjarfulltrú-
anna, að þeir hafi fyllsta áhuga á
því að hafa sem mesta samúð með
starfsfólkinu og kappkosta að
dagleg samskipti séu sem vinsam-
legust. Síðan segir í tillögunni: „Til
að stuðla að þessu og sem beztu
andrúmslofti á vinnustað milli
öllum greinum fiskvinnslunnar.
Fiskverðsákvörðunin hcfur nú
um tíma v.erið til umf jöllunar hjá
yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, án þess að nokkur
árangur hafi náðst.
Morgunblaðið fékk það staðfest
hjá Eyjólfi ísfeld Eyjólfssyni,
forstjóra Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, í gær, að hvert 1%
sem fiskverðið hækkaði um, hefði
starfsmanna og yfirmanna og
koma í veg fyrir árekstra eða
misskilning er leitt getur til
leiðinda, leggja bæjarfulltrúar til
eftirfarandi:
a) Að haldnir verði reglulegir
starfsmannafundir einu sinni í
mánuði, þar sem starfsfólk og
yfirmenn skiptist á skoðunum og
skýrt verði frá þeim málum, sem
eru á döfinni hverju sinni.
b) Að trúnaðarmenn verkalýðs-
félaga og starfsfólksins og verk-
stjórnar haldi með sér reglulega
vikulega fundi og séu þar haldnar
fundargerðir um þau atriði, sem
um er fjallað og ástæða þykir til
að bóka.
Framhald á bls. 30.
í för með sér 400 millj. kr.
útgjaldaauka fyrir fiskvinnsluna í
landinu miðað við ársrekstur,
þannig að 20% hækkun á fiskverði
leiddi til 8 milljarða króna út-
gjaldaauka. Kvað hann fisk-
vinnsluna í landinu engan veginn
geta staðið undir slíkri hækkun,
ástandið væri nógu bágborið fyrir,
t.d. miðað við maírekstur þar sem
væri 1500 millj. kr. tap miðað við
ársgrundvöll. Síðan hefðu komið
til launahækkanir hinn 1. júní s.l.
og þar leiddi 10% hækkun launa
til 2 milljarða kr. útgjaldaaukn-
ingar.
Sameiginlegir
framboðsfundir
á Vestfjörðum
Frambjóðendur til Alþingis-
kosninga í Vestfjarðakjördæmi
hafa komið sér saman um að halda
sameiginlega framboðsfundi.
Fyrstu fundirnir verða í Árnesi,
Hólmavík og á Króksfjarðarnesi
10. júní. Daginn eftir verða fundir
á Tálknafirði, Bíldudal og Patreks-
firði, 12. júní verða fundir á
Þingeyri og Flateyri, 13. júní á
Bolungarvík og Súðavík, 14. júní á
Súgandafirði og Reykjanesi og
síðasti fundurinn verður á ísafirði
15. júní.
Þrír oddvit-
ar á Flat-
eyri næsta
kjörtímabil
Þrír oddvitar verða á Flateyri á
kjörtímabilinu, þar sem fulltrúar
allra listanna þriggja, sem komu
mönnum í hreppsnefnd, hafa gert
samkomuleg um að láta atkvæða-
greiðslu ráða málum í hrepps-
nefndinni.
Listi Sjálfstæðisflokks fékk tvo
menn kjörna í hreppsnefnd, E-listi
Framfarafélags Flateyrar fékk tvo
menn kjörna og C-listi framsókn-
armanna og óháðra 1 mann
kjörinn. Núverandi oddviti er
Guðvarður Kjartansson af E-lista,
síðan tekur Hinrik Kristjánsson af
D-lista við embættinu og loks
Steinar Guðmundsson af C-lista.
16 ára piltur
í gæzluvarðhald
vegna síendurtek-
inna bílþjófnaða
16 ÁRA piltur hefur verið
úrskurðaður í 20 daga gæzlu-
varðhald í Hafnarfirði fyrir
síendurtekna bílþjófnaði. Úr-
skurðurinn hefur verið kærður
til hæstaréttar.
Aðfararnótt s.l. föstudags
varð pilturinn uppvís að því að
stela tveimur bifreiðum og einni
dráttarvél í Hafnarfirði auk þess
sem hann gerði tilraun til þess
að stela enn einum bíl. Voru
bílarnir meira og minna
skemmdir eftir piltinn, því hann
var mjög ölvaður þessa nótt og
aksturinn mun ekki hafa verið
sem nákvæmastur.
Pilturinn hefur ítrekað stolið
bílum í Hafnarfirði og nágrenni
á undanförnum mánuðum og í
vetur var hann úrskurðaður í 40
daga gæzluvarðhald vegna ítrek-
aðra brota. Þá var hann í vetur
dæmdur í 4 mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi og 6 mánaða
skilorðsbundið fangelsi, en hann
var ekki byrjaður að afplána
dóminn þegar hann var tekinn á
dögunum.
Dellan í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar:
Starfsfólkið felldi miðlunar-
tillögu bæjarstjómarinnar
Verkalýðshreyfingin:
Tíðir fundir í dag
- Sáttafundur á morgun
FUNDI sambandsstjórnar Verka-
mannasambands íslands, sem fyr-
irhugað var að halda í gær, var
frestað og verður hann haldinn í
dag klukkan 14, eða mitt á milli
fundar 10-manna nefndar ASÍ,
sem hittist klukkan 10 og fundar
miðstjórnar ASÍ og 10-manna
nefndarinnar, sem ráðgerður er
klukkan 16.
Torfi Hjartarson
sáttasémjari hefur svo boðað
samninganefnd VMSÍ og samn-
inganefnd vinnuveitenda til sátta-
fundar á morgun klukkan 14.
Enn er ekki ráðið, hvort áskorun
formannaráðstefnu VMSÍ um boð-
un yfirvinnubanns 10. til 30. júní
verður breytt í táknræna mót-
mælaaðgerð með yfirvinnubanni i
eina viku 10. til 17. júní. Þetta
verður þó efni fundanna, sem
ráðgerðir eru í dag, en í gær var
enn allt oljóst um það, hvorl
samstaða innan ASÍ tækist um
slíka táknræna mótmælaaðgerð
við efnahagsráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar. Slík aðgerð yrði þá
ekki framkvæmd til þess að ýta á
að samningarnir yrðu látnir gilda.