Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
3
Vinstri stjómin hafði gert sam
komulag umbrottför varn-
arliðsins fyrir mitt ár 1976
Einungis stórsigur Sjálfstæðisflokksins
vorið 1974 kom í veg fyrir þau áform
LÚÐVÍK Jósepsson, formaður
Alþýðubandalagsins, ritar
grein í Þjóðviljann í fyrradag,
þar sem hann fjailar um úrslit
sveitarstjórnarkosninganna
frá sjónarmiði Alþýðubanda-
lagsins. Athygli hefur vakið, að
í grein þessari er ekki minnzt
einu orði á varnarmálin. Þar
sem brottför varnarliðsins hef-
ur verið baráttumál Sósíalista-
flokksins og síðar Alþýðu-
bandalagsins frá upphafi, er
tekið að þögn formanns Al-
þýðubandalagsins um varnar-
málin f grein þessari stafi af
því, að flokkur hans telji
óheppilegt, að þau mál komi til
umræðu f kosningabaráttunni,
sem nú er að hefjast vegna
alþingiskosninganna hinn 25.
júní n.k. Úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna sýna hins vegar,
að verulcgar líkur eru á því að
vinstri stjórn verði mynduð
eftir þingkosningarnar. Þess
vegna þykir Morgunblaðinu
ástæða til að rifja upp og
minna á, að vinstri stjórnin,
sem sat frá 1971 — 1974 hafði
náð samkomulagi um brottför
varnarliðsins f áföngum. Það
samkomulag náðist f marz 1974
milli Framsóknarflokks, Al-
þýðubandalags og SFV. Það
var einungis stórsigur Sjálf-
stæðisflokksins f kosningunum
vorið 1974, sem komu í veg
fyrir, að af þessu yrði.
að
ser
Þeir flokkar, sem stóðu
vinstri stjórninni komu
saman um „drög að viðræðu-
grundvelli um endurskoðun á
varnarsamningi íslands og
Bandaríkjanna“. Þau voru svo-
hljóðandii
„1. Varnarlið það, sem nú er
á Islandi skal hverfa af landi
brott í áföngum. Skal brott-
flutningnum hagað þannig, að
fyrir árslok 1974 verði fjórðung-
ur liðsins farinn, helmingur
fyrir mitt ár 1975, % fyrir
árslok 1975 og síðasti hlutinn
fyrir mitt ár 1976. — Hér er sem
sagt gert ráð fyrir því, að
varnarliðið hverfi brott af ís-
landi í áföngum á tveimur árum.
Síðan segir:
2. Til fullnægingar skuldbind-
ingum Islands við NATO leggur
íslenska ríkisstj. til, að eftirfar-
andi háttur verði á hafður.
a. Flugvélar á vegum NATO
hafi lendingarleyfi á Keflavík-
urflugvelli, þegar þurfa þykir
vegna eftirlitsflugs yfir norður-
höfum. Þó skal eigi vera hér föst
bækistöð flugvéla. Um nánari
ákvæði verði fjallað í samningn-
um.
b. Vegna slíkra lendinga hafi
Vinstri stjórnin við lok stjórnartímabils hennar, eftir að Björn Jónsson hefur sagt af
sér ráðherradómi.
NATO heimild til að hafa á
Keflavíkurflugvelli hóp manna,
er ekki séu hermenn, til þess að
sjá um eftirlit áðurgreindra
flugvéla. Um tölu þessara
tæknimanna fer eftir nánara
samkomulagi, þó þannig, að
aðeins verði um takmarkaða
starfsemi að ræða.
c. Eftir brottför varnarliðsins
taka íslendingar við löggæslu á
flugvellinum. Skulu Islendingar
áður þjálfaðir í þeim sérstöku
löggæslustörfum, sem þörf er á.
d. íslendingar skulu leggja til
þann mannafla, sem þarf til að
veita þeim aðilum, sem samkv.
framansögðu hafa dvöl á Kefla-
vikurflugvelli, nauðsynlega
þjónustu.
e. íslendingar taka við rekstri
radarstöðvanna á Suðurnesjum
og í Hornafirði, þegar þjálfaður
íslenskur mannafli er til taks.
f. Farþegaflug skal vera al-
gerlega aðskilið frá þeirri starf-
semi, er samkv. framansögðu
verður haldið uppi á Keflavíkur-
flugvelli til fullnægingar skuld-
bindingum íslands við NATO.“
Afdráttarlausar yfir-
lýsingar Ólafs
Jóhannessonar
I umræðum á Alþingi um
þessi drög gaf Ólafur Jóhannes-
son, þáverandi forsætisráð-
herra, mjög eindregnar yfirlýs-
ingar um þau áform ríkisstjórn-
ar hans, að varnarliðið skyldi
hverfa af landi brott. Ólafur
Jóhannesson sagði m.a.:
„Hitt liggur svo í augum
Framhald á bls. 30.
SUNNA BÝOUR ALLTÞAD BESTA SEM TIL Efí Á GfílKKLANDI
HÆGT ER AÐ SKIPTA GRIKKLANDSDVÖL MILLI ÞESSARA STAÐA OG
UPPLIFA ÞETTA ALLT í EINNI OG SÖMU GRIKKLANDSFERÐINNI.
AÞENUSTRENDUR
* .............. ^
Glifada eftirsóttasti tískubaöstrandarbærinn.
Öll Sunnuhótel og íbúðir meö elnkasundlaug og
sólbaösgöröum. Fjölbreytt skemmtana og veitinga-
húsalíf. Enda er Glifada baöstrandarbærinn,
dvalarstaöur Onassis fjölskyldunnar og annarra
þeirra sem kunna aö velja sér bestu dvalarstaöina
í Grikklandi.
VOULIAGMENI
—Fyrir þá sem vilja dvelja á afskektum staö fjarri
veitingahúsum og skemmtistööum.
Þar býöur Sunna uþþ á hótel viö sjálfa baöströnd-
ina, og aö sjálfsögöu meö góöri sundlaug og
sólbaösaöstööu. Vouliagmeni er tilvalinn staöur
fyrir þá sem kjósa kyrrð og rólegheit í sumarleyfinu.
RHODOS
blómaeyjan fagra
Góöar baöstrendur, hótel og íbúðir, fjölbreytt
skemmtanalíf. íslenskur fararstjóri Sunnu á Rhodos
sér um fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferöir,
m.a. yfir sundiö til Tyrklands. Rhodos er tollfrjáls
eyja, þar sem fólk getur gert góö kauþ. Blómaeyjan
Rhodos hefur lengi verið ein vinsælasta sólskins-
þardís, frænda okkar á Norðurlöndum, enda er um
helmingur allra feröamanna þar, Norðurlandabúar.
SKEMMTISIGLING ^
meö 17000 lesta, fljótandi ævintýraborg á
Miðjarðarhafinu.
/Evintýriö sem alla dreymir um!
Viðkomustaðir: Rhodos — Krít —
Korfú — Júgóslavía — Feneyjar —
Aþena
Dagflug á Þriöjudögum.
Þegar fullbókaö suma flugdaga, og
aöeins örfá sæti laus flesta hina.
Brottfarardagar: 27 júní — 18. júlí —
1. — 8. — 15. — 22. og 29. ágúst
5. — 12. og 19. sept.
FERDASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRÆTI 10,$ími29322