Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 15
15
MORGtJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
Bókaklúbbur AB:
Síðasta bindi
íslenzks ljóðasafns
BÓKAKLÚBBUR Almcnna bóka-
félagsins hefur sent frá sér
síðasta bindi íslenzks ljóðasafns.
Þetta bindi er nefnt IV. bindi B
og tekur yfir síðustu áratugina í
íslenzkri ljóðagerð allt til 1%0.
þannÍK að skáld. sem gáfu ekki út
fyrstu ljóðabækur sínar fyrr en
eftir 1960 eru ekki með í safninu.
Eftirtalin 35 skáld eiga ljóð í
þessari nýju bók: Vilhjálmur frá
Skáholti, Steinn Steinarr, Heið-
rekur Guðmundsson, Bragi Sigur-
jónsson, Guðmundur Daníelsson,
Gestur Guðfinnsson, Kristinn
Reyr, Hörður Þórhallsson,
Kristján frá Djúpalæk, Jón úr Vör,
Jakobína Sigurðardóttir, Ólafur
Jóhann Sigurðsson, Þorsteinn
Valdimarsson, Stefán Hörður
Grímsson, Rósberg G. Snædal,
Ingólfur Kristjánsson, Helgi Sæ-
mundsson, Jón Óskar, Einar Bragi,
Böðvar Guðlaugsson, Hannes Sig-
fússon, Gunnar Dal, Elías Mar,
Thor Vilhjálmsson, Jónas Svafár,
Sigurður A. Magnússon, Sigfús
Daðason, Vilborg Dagbjartsdóttir,
Jón frá Pálmholti, Matthías
Johannessen, Hannes Pétursson,
Ingimar Erlendur Sigurðsson,
Dagur Siguröarson, Þorsteinn frá
Hamri, Jóhann Hjálmarsson.
Kristján Karlsson hefur eins og
kunnugt er séð um Islenzkt
ljóðasafn að öllu leyti — nema
Hannes Pétursson valdi í hluta af
2. bindi. Með þessu nýja bindi er
allt safnið komið út og eru það alls
6 bækur og því stærsta úrval
íslenzkra ljóða sem út hefur
komið. Ein bókin er úrval ljóða-
þýðinga, hið fyrsta sinnar tegund-
ar á íslenzku, þar sem valið er úr
Sigurvegarar í unglingaflokki, talið frá vinstri. Þórður
Þorgeirsson á Þrótti, Ester Harðardóttir á Blesa og Asta
Sigurjónsdóttir á Sval.
Keppt í tveimur flokk-
um í Firmakeppni Fáks
ÁRLEG Firmakeppni Ilesta- knapi Ester Harðardóttir, sem
mannafélagsins Fáks var haldin
á skeiðvclli félagsins laugar-
daginn 20. maí sl. AHs tóku 173
firmu og hross þátt í keppninni
en keppt var í tveimur aldurs-
flokkum. unglingaflokki 15 ára
og yngri, en þar voru keppendur
56, og flokki fullorðinna.
Úrslit urðu þau, að í unglinga-
flokki varð sigurvegari Þróttur,
eign Tómasar Ragnarssonar,
knapi Þórður Þorgeirsson, sem
keppti fyrir Gunnar Guðmundsson
h/f, annar varð Blesi, eigandi
Hörður og Guðjón Jónssynir,
Forsíða skólahiaðs Tónlistarskól
ans í Reykjavík.
Skólablað
um tónlist
Nemendafélag Tónlistarskólsans
í Reykjavík hefur gefið út 3.
tölublað af tímaritinu „YMIR“.
Ritið er 40 blaðsíður að stærð,
offsetprentað, og hefur að geyma
viðtöl, greinar og afþreyingarefni
varðandi tónlist og tónlistar-
fræðslu. Það mun vera hið eina
sinnar tegundar á landinu.
Ritið er til sölu í Islenzkri
tónverkamiðstöð, Laufásvegi 40,
og Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
keppti fyrir Radíóbúðina, og í
þriðja sæti varð Svalur, eigandi og
knapi Ásta Sigurjónsdóttir, er
keppti fyrir Hreyfil.
I flokki fullorðinna urðu úrslit
þau að sigurvegari varð Villingur,
eign Bergljótar Leifsdóttur, knapi
Trausti Guðmundsson, annar varð
Gullfeti, knapi og eigandi Halldór
Sigurðsson, sem keppti fyrir Hótel
Valhöll, og í þriðja sæti varð
Magna, eign Gunnars Eyjólfs-
sonar, knapi Erling Sigurðsson,
sem keppti fyrir Ingvar Helgason
h/f.
Túnisar
taka ítalska
fiskibáta
Sikilev, 2. júní. AP.
SJÓMENN á fiskibát frá Eynni
Lappedusa við Sikiley sögðu frá
því í morgun aö skotið hefði verið
á þá skammt frá strönd Túnis af
túniskum varðbáti sem hefði síðan
tekið þrjá aðra ítalska báta.
Áhöfnin á bátnum sem komst
undan sagði að á hverjum þeirra
þriggja báta sem teknir hefðu
verið. væru tíu manns. Hefðu
bátarnir þrír verið neyddir til að
sigla til túnisku hafnarborgarinn-
ar Sfax.
Upp á síðkastið hefur iðulega
kastast í kekki milli Itala og
Túnisa af þessum sökum.
Kristján Karlsson
öllum ljóðaþýðingum, sem birzt
hafa.
Þetta nýja bindi er 278 bls. að
meðtöldum kvæðaskrám og ævi-
ágripum höfunda. Bókin er prent-
uð og bundin i Prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
(Fréttatilkynning)
Nótaskipið Jón Kjartansson SU-111. sem áður hét Narfi. kom fyrir
nokkrum dögum til heimahafnar. Eskifjarðar. með fyrsta aflann.
Var það 600 tonna kolmunnafarmur af Færeyjamiðum. Skipstjóri
er Þorsteinn Kristjánsson. Mvndin var tekin þegar verið var að
landa kolmunnanum á Eskifirði.
Ljósm. Mbl.. Ágúst I. Jónsson.
Hvað
veistu um
Werzalit ?
í
s
s
Werzalit er sambland trjáviðar og gerfiefna.
Nánar tiltekið spónaplötur, gagnvarðar og með húð úr
melamin. Werzalit er veðurþolið, fúnar ekki og
þarfnast ekki viðhalds. Werzalit hentar vel jafnt úti sem
inni, sem sólbekkir, handriðalistar, bekkir, blómakassar
og sem klæðningar á veggi, loft, bílskúrshurðir o.fl. o.fl.
Werzalit er til í mörgum litum, gerðum og stærðum.
Kynnum Werzalit með sýningu í húsakynnum 1
okkar Skeifunni 19, dagana 6.—9. júní. Þar verða til
viðtals sérfræðingar frá Werzalit verksmiðjunum til ■
kynningar og ráðgjafa dagana 6.—7. júní.
Verið velkomin á Werzalitsýninguna.
r varan\egt.
\Verx
áutet
Timburverzlunin Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 1 S, SÍMI 85244