Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 20

Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978 Enga ævintýrapólitík í utanríkismálum Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar hefur á því kjörtímabili, sem nú er að Ijúka komiö í höfn tveimur veigamiklum Þáttum í utanríkismálum okkar, varnarmálum og landhelgis- málum. Þegar ríkisstjórnin tók viö völdum á haustmánuöum 1974 haföi mikil og vaxandi óvissa ríkt um framtíö varnarsamstarfs íslands og Bandaríkjanna um þriggja ára skeið. Vinstri stjórnin lýsti Því yfir í upphafi valdaferils síns sumarið 1971, aö hún hygöist segja upp varnarsamningnum viö Bandaríkin. í marz 1974 höföu Þeir flokkar, sem stóðu aö vinstri stjórninni náð samkomulagi um varnarmálin, sem byggöist á Því, aö varnarliöiö skyldi hverfa af landi brott í áföngum og vera farið á miöju ári 1976. Um Þessa meginstefnu var samkomulag milli Framsóknarflokks, AlÞýöubandalags og SFV. Það var einungis stórsigur Sjálfstæóísflokksins í Þingkosningunum 1974, sem kom í veg fyrir, aó af Þessu yröi. Nokkrum mánuóum áöur höfðu 55 Þúsund íslendingar undirritaö áskorun Þess efnis, að varnir landsins yröu tryggðar áfram meö varnarsamningnum viö Bandaríkin. Fyrsta verk núverandi ríkisstjórnar haustið 1974 var aó ganga frá endurskoöun varnarsamnings við Bandaríkin, sem tryggði áfram varnir landsins. Síðan hefur ríkt friður um Þennan veigamikla Þátt í utanríkismálum okkar. Annað Þýöingarmikið mál, sem ríkisstjórnin hefur komiö í heila höfn á Því kjörtímabili, sem nú er að Ijúka, er landhelgismálið. Ríkisstjórnin skilar frá sér 200 mílna fiskveiðilögsögu, sem hefur nánast verið hreinsuð af erlendum veiðiskipum. Þetta er stærsti sigur, sem íslendingar hafa unniö á sviói utanríkismála frá pví aó lýðveldi var stofnaö á árinu 1944. Eftir átök, ófriö og óvissu undanfarinna ára í utanríkismál- um er nauðsynlegt, aö friöur veröi á næstu árum um stefnu okkar í öryggismálum og fiskveiðimálum og að við einbeitum okkur aó pví á næstu misserum að tryggja markaði fyrir útflutningsvörur okkar erlendis. Eini markaðurinn, sem segja má, að hafi veriö öruggur síöustu árin er Bandaríkjamarkaöur. Með Þeim árangri, sem ríkisstjórninni tókst aö ná í landhelgísmálinu, opnaói hún einnig fiskmarkaði okkar í Evrópu, sem höfðu ýmist veriö alveg lokaðir eöa hálflokaöir. Hins vegar ríkir óvissa um mikilvæga markaði í Portúgal, Nígeríu og fleiri löndum. Það er mikilvægasta verkefni utanríkisÞjónustu okkar á næstu árum að opna okkur greiðan aðgang að þessum mörkuðum. Öruggir markaðir fyrir útflutningsafurðir okkar eru forsenda batnandi lífskjara í landinu. Þaö kemur okkur aö litlu gagni, pótt viö veiðum vel og framleiöum mikið, ef við töpum Þýöingarmiklum mörkuðum. Þess vegna megum við engin Þau skref stíga í utanríkismálum á næstu misserum, sem geta valdið röskun á markaðsaðstöðu okkar. Yrði Þaö gert, yrði Það um leið mesta kjaraskerðing, sem Þjóðin hefði orðiö fyrir. Þessi viðhorf í utanríkismálum eru gerð að umtalsefni hér vegna Þess, að augljóslega er hætta á nýrri vinstri stjórn eftir Þingkosningarnar 25. júní n.k., ef miö er tekið af úrslitum sveitarstjórnakosninga. Sjálfstæðisflokkurinn parf að koma sterkur út úr Þeim kosníngum, sem fram fara eftir tæpar 3 vikur, ef takast á aö koma í veg fyrir nýja ævintýrapólitík í utanríkismálum. Það er augljóst, að vinstri flokkarnir, sem höfðu náö samkomulagi um pað veturinn 1974 aö senda varnarliðið af landi brott í áföngum, munu taka upp práðinn Þar sem frá var horfiö, ef mynduð veröur ný vinstri stjórn í landinu. Ef styrkur Alpýöubandalagsins verður svipaður í Þingkosningunum og hann var í sveitarstjórnakosningunum verður augljóst, að staða Þess til að knýja á um brottför varnarliðsins hefur stóreflzt. Ekki fer á milli mála aö hverju AlÞýðubandalagið stefnir. Hin svonefndu Samtök herstööva- andstæðinga hafa boðað Keflavíkurgöngu hinn 10. júní li.k. Sú ganga er farin til Þess aö ýta undir kröfu vinstri manna og kommúnista um brottför varnarliðsins. í dag eru öll hin sömu rök til staðar og voru 1974 fyrir nauðsyn Þess, að varnarliöiö verði hér áfram. Til viðbótar er augljóst, að umsvif Sovétríkjanna víða um heimsbyggðina hafa stóraukizt frá Þeim tíma. Þessar staðreyndir ásamt nauðsyn Þess, að friður ríki um utanríkisstefnu okkar og að markaösaðstaða okkar verði tryggð gerir Það að verkum, að utanríkismálin veröa óhjákvæmilega mikill Þáttur í kosningabaráttunni á næstu vikum. Þar stendur valið milli Sjálfstæðisflokksins og ábyrgrar stefnu í utanríkis- og öryggismálum og vinstri stjórnar og ævintýrapólitíkur í utanríkismálum. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjórí Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskríftargjald 2000.00 kr. ð mánuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Birgir ísl. Gunnarsson: Morgunblaðið bað Birgi Isleií Gunnarsson að skrifa um tónleika Oscars Peter- sons ok fer Krein hans hér á eftiri Sennilega er það til lítils að ætla sér að skrifa um svona tónleika. bað , sem máli skiptir, eru þau hug- hrif. sem hver og einn verður fyrir. Þeim er erfitt að lýsa. — Þau setjast að í sálinni og verða hluti af persónuleikanum. Senni- lega verður maður aldrei samur og jafn eftir svona reynslu. Því að reynsla var Oscar Peterson og Niels Henning Örsted Pedersen á tónleikunum i Laugardalshöll. A tónleikum Oscars Petersons það og hún eftirminnileg. Út af fyrir sig er það afrek, að tveir menn skuli geta haldið rúmlega 4000 manns bergnumdum í rúmlega tvo tíma, og það svo, að enginn vildi missa af einum einasta tóni. Hvort sem leikið var ljúft og eiskulega, eða af krafti og þrótti, — allra eyru voru sperrt og ekki stóð á fagnaðarlátum, þeg- ar þau áttu við. Rétt áður en ég lagði af stað á tónleikana, horfði ég á viðtal við Oscar Peterson í sjónvarpinu. „Hvað ætlar þú að spila?“ spurði frétta- maðurinn. „Það veit ég ekki,“ sagði Oscar Peterson, „stemmning augnabliksins ræður miklu um það.“ Og hafi hann ætlað að spila á þá stemningu, þá tókst honum það. Fyrri hluta tónleikanna spilaði hann einn. Gömul sveiflulög komu hvert af öðru, tengd saman á annan hátt en maður á að venjast. Þarna sló Oscar á marga strengi. Hljómarnir gengu einhvern veginn þvers og krusS, en þó í mögnuðum samhljóm. Sjálfur man ég núna eftir á helzt eftir Ellingtonlögunum c-jam Blues og Caravan og þó, — fleiri lög eru enn að suða í kollinum á mér eftir þenn- an hluta tónlcikanna. Ég skal að vísu viðurkenna, að í fyrri hluta tónleikanna fannst mér stundum, að t?eknin hjá Oscari Peterson bæri tilfinningarnar ofur- liði. Sennilega var fyrri hlutinn eins konar úpphit- un. Það átti eftir að koma á daginn. Og svo hófst síðari hlut- inn. Gítarlcikarinn Joe Pass var veikur og því kom „aðeins“ Niels Ilenning Ör- sted Pedersen til liðs við aðalhetju kvöldsins. Það var enginn smá liðsauki. Niels Henning er orðinn okkur Reykvíkingum að góðu kunnur. Hann spilaði í Norræna húsinu í haust og svo aftur á vegum Jass-vakningar í Háskóla- biöi fyrir rúmum mánuði. Ég held, að ekkert hafi verið of sagt í hóli um þann mann. Slíkan bassaleik upp- lifir maður ekki annars staðar. Gamla kenningin er sú, að bassi (og reyndar píanó lika) séu rythma hljóðfæri, en slíkum reglum hlítir Niels Henning ekki. Bassinn í höndum hans er einleikshljóðfæri og stundum stal Niels Hcnning senunni, ef manni leyfist að orða það þannig. Seinni hluti tónleikanna var í einu orði sagt frábær. Samspilið milli tvímenning- anna var þannig, að stund- um var cins og heil hljóm- sveit væri að verki undir styrkri stjórn. Sjálfur skildi ég ekki alltaf, hvernig Oscar fór að því að beita vinstri hendinni. Það var eins og hún væri undir annarri stjórn en sú hægri, og stundum eins og a.m.k. væri leikið f jórhent. Tæknin var meiri en svo, að með orðum verði lýst, og nú komu tilfinningarnar einn- ig til skjalanna. Gömul og góð jassverk, eigin tónsmíðar Oscars Pet- erson, eins og hluti úr „Canadian Suit“ og ljúfl- ingsstef úr þckktum klass- iskum verkum. Allt rann þetta af fingrum fram, hvert af fætur öðru. Fallegu stefin urðu að stórbrotnum tónverkum í „impro- visationinni“ hjá þeim fé- lögum. Og svo var þessu lokið. Stemmningin reis hátt, aukalagið varð að koma. Vinsælt lag úr þýzkri óper- ettu fékk nýjan hljóm og nýjan tilgang í túlkun þcirra félaga. Eftir tónleikana gafst mér færi á að ræða við þá félaga. Báðir eru þeir hóg- værir og látlausir menn, en það finnst mér einkenni mjög margra mikilla lista- manna, sem ég hef hitt. Oscar kvaðst glaður yfir þeirri stemmningu, sem ríkti á hljómleikunum og „hljómburðurinn í Laugar- dalshöllinni var mjög góð- ur,“ sagði hann. „Það er óvenjulegt í slíkum höll- um.“ Þessi ummæli glöddu að sjálfsögðu mitt gamla horgarstjórahjarta. Oscar kvað þessi miklu ferðalög þreytandi og reyna mikið á sig. Aðalatriði fyrir hverja tónleika væri að hvíla sig vel. gera ekki neitt og hafa hugann hvíldan og skýran. Hann væri ekki þreyttur eftir slíka tónlcika, en spenntur fyrst á eftir. Héð- an færi hann til Sviss að hitta konu sína og tiltölu- lega nýíætt barn þeirra hjóna. Við þökkum þessum elskulcga manni komuna hingað og Listahátíð á þakkir skildar fyrir frum- kvæði í þcssu efni. Vonandi vcrður það áfram fastur liður á dagskrá Listahátíð- ar að fá slíka jasssnillinga til að leika hér. Ég hef margsinnis hlýtt á hljómplötur með Oscari Pet- erson, — en satt að segja hélt ég ekki, að hann væri svona góður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.