Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
• Einn helsti markaskorari Svía, Thomas Sjöherg, skorar markið sem tryggði Svíum mikilvægt stig gegn
Brasilíumönnum. Lennart Larson íylgist spenntur með, en þeir Edhino og Amaral reyna að pota
knettinum írá áður en að Sjöberg tekst að hleypa aí. Símamynd AP.
Fjórir leikir
áHMídag
MEÐ hvcrri umferð sem lcikin er
í IIM-kcppninni í Argentínu
skýrast línurnar. Nú þegar er
mikið um óvænt úrslit í keppn-
inni og það citt cr víst, að allt
getur gerzt. í dag fara fram
eftirtaldir lcikin
1. riðill. Ítalía — Ungverjaland
kl. 16.45 í Mar Dcl Plata. Dómari
Ramon Barreto, Uruguay.
2. riðill. Pólland — Túnis kl.
19.45 í Rosario. Dómari Franco
Marties, Spáni.
2. riðill. Mexico — V-þýzkaland
kl. 19.45 í Cordoba. Dómari
Arouk Bouzo, Sýriandi.
1. riðill. Argentína — Frakk-
land kl. 22.15 í Buenos Aircs.
Dómari Jean Dubach Sviss.
• *
v.#'
• «
• ♦
V.#
V#
* ♦
V.#
Markakóngurinn
Krankl tryggði
Austurríki sigur
AUSTURRÍKISMENN komu á óvart með 2<1 sigri sfnum yfir
Spánverjum á laugardaginn. Var talið að vörn Spánverja væri sú besta
liðanna í kcppninni og þar að auki voru settir tveir mcnn til höfuðs
mesta markaskorara Austurrfkismanna, Hans Krankl. Engu að siður
var það hann sem skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik.
Spánverjar hófu leikinn með áttu besta færið, er Willy Kreuz
miklum látum og við lá að þeir
settust að í vítateig Austurríkis-
manna, en á níundu mínútu urðu
þeir fyrir miklu áfalli, er Walter
Schachner náði knettinum á eig-
inn vallarhelmingi, brunaði einn
upp og skoraði laglega, 1—0. En
Spánverjar létu það ekkert á sig fá
og á 22. mínútu tókst þeim að
jafna, en markið var slysalegt
frásjónarhóli Austurríkismanna,
vörn þeirra mistókst að hreinsa
frá eftir fyrirgjöf frá vinstri og
Dani skoraði, en knötturinn
breytti um stefnu af varnarmanni.
Spánverjar sóttu meira sem fyrr,
en það voru Austurríkismenn sem
1. riðill
Úrslit leikja og staðan í 1. riðli:
Argentína — Ungverjaland 2:1
Ítalía — Frakkland 2:1
Argentína
Ítalía
Frakkland
Ungverjaland
2. riðill
Úrslit leikja og staðan í 2. riðli:
V-Þýzkaland — Pólland 0:0
Túnis — Mexico 3:1
Túnis 1 1 0 0 3:1 2
V-Þýzkaland 1 0 1 0 0:0 1
Póliand 1 0 1 0 0:0 1
Mexico 1 0 0 1 1:3 0
3. riðill
Úrslit leikja og staðan í
Austurríki — Spánn
Brasilía — Svípjóð
Austurríki 110
Brasilía 10 1
Svípjóð 10 1
Spánn ____________10 0
4. riðill
Úrslit leikja og staöan í 4. riðli:
Holland — Iran
Perú — Skotland
Holland
Perú
Skotland
íran
3:0
3:1
1 0 0 3:0 2
1 0 0 3:1 2
0 0 1 1:3 2
0 0 1 0:3 0
komst einn inn fyrir vörn Spán-
verja, en skot hans var meistara-
lega varið af Miguel Angel. En
sókn Spánverja þyngdist og vörn
Austurríkismanna sýndi veik-
leikamerki. Rexax átti tvö góð skot
að marki, en Koncilia varði vel í
bæði skiptin og Kurt Jara bjargaði
af marklínu eftir að Kincilia hafði
farið í skógarferð. Síðustu fimm
mínútur fyrri hálfleiks voru síðan
æsispennandi, Pezzey bjargaði á
línu skoti frá Cano, Austurríkis-
menn brunuðu upp og Krankl
komst í gott færi, en Angel varði
vel og i næstu sókn komst Cano í
sannkallað dauðafæri, en hann
hitti knöttinn alls ekki. En inn
vildi knötturinn ekki og staðan í
hálfleik var því jöfn, 1—1.
Austurríkismenn sóttu heldur
meira í síðari hálfleik, en yfir
höfuð var leikurinn þunglamaleg-
ur. Á 66. mínútu komst Hans
Krankl í mjög gott færi, en skaut
yfir markið og aðeins mínútu síðar
fékk hann knöttinn á svipuðum
slóðum og nú skoraði hann. Þetta
reyndist vera sigurmark leiksins
og er ekki að neita, að úrslitin
koma eins og nokkur önnur á HM
nokkuð á óvart.
Eftir leikinn sagði Helmut
Senekowitsch þjálfari Austur-
ríkismanna að austurríska liðið
hefði sigrað vegna þess að það
væri samæfðara og samrýmdara,
en Kubala, þjálfari Spánverja, var
niðurbrotinn og sagði tapið ein-
faldlega stafa af því að Austur-
ríkismenn hefðu nýtt sín tækifæri,
en þeir ekki.
Lið Austurríkis.
Koncilia, Breitenberger, Pezzey, Ober
meyer, Sara, Jara, Hickersberger (Weber),
Kreuz, Prohaska, Krankl. Sachner
(Pirkner)
Lið Spánari
Miguel Angel, Marcellino, Miguelli, Pirri,
San Jose, De La Cruz, Asensi Cardenosa
(Leal), Dani, Cano, Rexax (Quini)
Dómarii Palotai írá Ungverjalandi.
• Ilans Krankl, markhæsti leikmaður Evrópu síðasta keppnistímabil,
skoraði sigurmark Austurrikismanna gegn Spánverjum.
Dramatískur endirí leik
Svía og Brasilíumanna
SVÍÞJÓÐ og Brasilía gerðu jafntefli 1 — 1 á Mar Del
Plata-leikvanginum í heimsmeistarakeppninni á laugardag.
Lok leiksins urðu mjög dramatísk. Brasilíumenn fengu
hornspyrnu í lokin og Toninho skallaði í markið.
Brasilíumenn fögnuðu ákaft og héldu sig hafa sigrað,
Hellström markvörður Svía grúfði andlitið í höndum sér f
þeirri trú að lið hans hefði tapað á lokasekúndu leiksins,
er dómarinn Clive Thomas frá Wales gaf merki um að
leiknum hefði verið lokið og markið væri ekki gilt. Olli
þetta miklu fjaðrafoki eins og gefur að skilja en ekki þýðir
að deila við dómarann.
Brasilíumenn hófu leikinn vel á
móti Svíum og sóttu ákaft og áttu
þrjú mjög góð tækifæri á að skora
fyrstu 15. mínútur leiksins en öll
mistókust og virtist þetta draga
nokkuð úr krafti leikmanna
liðsins. Vörn Svianna var mjög
traust og var henni stjórnað af
Birni Nordqvist sem lék þarna
sinn 109. landsleik og setti þar með
nýtt heimsmet hvað varðar lands-
leikjafjölda. Svíar náðu annað
slagið skyndisóknum sem ollu
glundroða í vörn Brasilíu. Sjöberg
og Benny Wendt áttu góð tæki-
færi, sem þeir klúðruðu. Eitt besta
marktækiflri leiksins kom á
tuttugustu mínútu er Sjöberg var
í dauðafæri inni í vítateig en skot
hans fór rétt yfir þverslá! Á 37.
mínútu urðu Brasilíumönnum á
varnarmistök og Sjöberg náði
knettinum inni í vítateig þeirra og
skoraði með þrumufleyg framhjá
Leao markverði Brasilíumanna.
Tveimur mínútum áður höfðu
Brasilíumenn átt gott tækifæri en
Hellström sýndi að hann er ekkert
lamb að leika við og varði
meistaralega eins og svo oft í
leiknum. Á lokamínútu fyrri hálf-
leiksins brunaði miðvallarspilar-
inn Cerezo upp vinstri kantinn og
lagði stórfallega sendingu fyrir
fætur Reinaldo inni í vítateig og
átti hann ekki i erfiðleikum með
að skora. rétt áður en dómarinn
flautaði til hálfleiks.
í síðari hálfleik léku Brasilíu-
menn ekki eins vel, og drógu menn
aftur í vörnina. Virtust þeir hafa
áhyggjur af varnarleiknum.
Fyrirliði þeirra, Rivelino, var
mjög slakur í leiknum og margar
sendingar hans mistókust. Hann
átti þó ágætt skot á markið í
byrjun síðari hálfleiksins, en
boltinn lenti í varnarmanni Svía
og var næstum dottinn í mark-
hornið fjær en fór framhjá. Eins
og háður hefur komið fram, skall
hurð nærri hælum í lokin er
hornspyrnan var framkvæmd en
dómarinn hafði flautað leikinn af.
Svíþjóð hafði tryggt sér dýrmætt
stig og á nú alla möguleika á að
komast áfram í riðlinum.
Lið Krasilíui Lcao, Toninho, Oscar,
Amaral. Kdinho. Cerczzo. Batista. Zico, Gil.
Reinaldo. Rcvelino. (Nelinho 68. mín).
Lifl Svfþjóðari Hellströn. Borx, Anders-
son, Norqvist, Tapper, Erlandsson,
Larsson, Lindeeroth. Sjöbcrg, Wendt,
Lennart Larsson. (Edstroen 84. mín.)
Dómarii Clive Thomas, Wales.