Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 27

Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978 27 ÞAÐ VAR mál margra, að Skotar væru fram úr hófi bjartsýnir á að þeir ynnu ekki aðeins Perú léttilega, heldur sjálfan heimsbikarinn. Þótti mörgum sem Skotar væru búnir að vinna titilinn áður en keppn- in sjálf hófst. En þeir voru færðir harkalega niður á jörðina á ný, er hið „slaka“ og „út- brunna“ lið Perú vann mjög sannfærandi sig- ur yfir þeim. Þjálfari Skota, Ali McCleod, hafði sagt, að tækist Skotum að ná völdum á leiknum þegar í upphafi og að skora mark eða mörk snemma í leiknum, myndi eftir- Fall Skota var hátt leikurinn verða auðveldur. Þetta tókst Skotum, þeir léku mjög vel framan af og komu vörn Perú hvað eftir annað í mikinn vanda og snemma leiks voru báðir þeir Hartford og Masson nærri þvíað skora. En Skotar þurftu ekki að bíða lengi eftir markinu, því að á 14. mínútu skoraði Joe Jordan eftir að markvörður Perú hafði hálfvarið skot Bruce Rioch. En eftirleikurinn var síður en svo auðveldur, Skotar misstu nú öll tök á leiknum og Perúmenn létu sóknirnar dynja á marki and- stæðinganna og leikmenn eins og Martin Buchan og Stewart Kenne- dy sem léku bakvarðastöðurnar voru grátt leiknir af þeim Cubillias, Munante og Oblitas. Það kom því ekki á óvart þegar Perú jafnaði með marki Cueto. Skotar byrjuðu af krafti í síðari hálfleik og fljótlega fengu þeir dæmda vítaspyrnu, Don Masson tók hana og skot hans var gott, en mark- vörður Perú, Ramoa Qviroga, lét þáð ekkert á sig fá og varði snilldarlega. Skömmu síðar skall- aði Joe Jordan í stöngina. En síðan fóru Perúmenn að síga á á ný og á 70. mínútu skoraði Teofilo Cubillias glæsilegt mark og sex mínútum síðar var hann aftur á ferðinni er hann skoraði þriðja mark Perú beint úr aukaspyrnu og var vörn Skotanna vægast sagt sofandi við það tækifæri. Það komu engin fjörbrot frá Skotum og Perúmenn yfirspiluðu þá loka- kaflann og sigurinn var vís, enn ein óvænt úrslit í HM. Lið Skotlandsi Rouich. Kcnnedy. Burns. Forsyth, Buchan. Rioch, Masson, Ilartford, Jordan, DaÍKÍish og Johnstone. Macari og Gemmill komu inn á fyrir þá Rioch og Masson í sfðari hálfleik. Lið Perúi Quiroga. Manzo, Duarte, Chumpitaz. Diaz, Velasquez. Cueto Cubillias. Munante, La Rosa. Oblitas. Dómarii Ericson frá Svíþjóð. • Þriðja mark Perú* manna er staðreynd. Cubillias (lengst til hægri) hefur fundið smugu í varnarvegg Skota og þeir horfa furðu lostnir í allar áttir. Skotar töpuðu leiknum óvænt 3—1. Símamynd AP. íranir stóðu í Hollendingum EINS og vænta mátti, unnu Hollendingar öruggan sigur yfir liði írans, en það tók þá næstum allan fyrri hálf- leikinn að finna leiðina fram hjá varnarmúr Persanna og í netið hjá þeim. Og Iranir voru tvívegis nærri því að skora snemma í leikn- um. Hollendingar hófu þegar í stað stórsókn, en íranir komu þeim verulega á óvart með góðum varnarleik og á áttundu mínútu komu þeir þeim næstum til að fá hjartaáfall, er skot frá Faraki breytti um stefnu af Rijsbergen, en rúllaði aðeins þumlung fram hjá stönginni. Fáeinum mínútum síðar voru Iranir enn á ferðinni, en Sadeghi skaut naumlega fram hjá markinu. Síðan tóku Hollendingar öll völd í sínar hendur, en vörn Irana barðist grimmilega og það var ekki fyrr en á 42. mínútu að markið kom. Þá var Rene Van Der Kerkhov barinn gróflega niður í vítateig og Rob Rensenbrink skoraði úr vítinu. í síðari hálfleik voru yfirburðir Hollendinga hinir sömu og á 62. mínútu skoraði Rensenbrink aftur og nú með skalla og fjórum mínútum síðar einlék Rep inn í vítateig Irana og var þar felldur harkalega. Og úr vítaspyrnunni skoraði Rensenbrink þriðja mark sitt og er því markhæsti leikmaður HM eins og er. • Rensenbrink skoraði þrennu. Lið Hollandsi Joongbloed, Suurbier, Rijsbergen, Krol, Van Der Kerkhov, Neeskens, Haan Jansen, Van Der Kerkhov, Rep, Rensenbrink. Lið írani Hajzi, Nazari, Abdollahie, Kazerani, Eskaandarian, Parvin, Pour, SadeRhi, Agha, Faraki, Fahani. Dómarii Archundia frá Mexfkó. v.#' • % vj^ v.#' .J* • ' V_#v Þeir hafa skorað á HM Rensenbrink (Holland) 3 Cubillias (Perú) 2 Cuetu (Perú) 1 Jordan (Skotland) 1 Krankl (Austurríki) 1 Dani (Spánn) 1 Schachner (Austurríki) 1 Reinaldo (Brasilfa) 1 Sjoberg (Svíþjóð) 1 Rossi (Ítalía) 1 Lacombe (Frakkland) 1 Zaccarelli (Ítalía) 1 Vazquacz (Mexíkó) 1 Kaabi (Túnis) 1 Dhouib (Túnis) 1 Gommidth 1 Csapo (Ungverjaland) 1 Luque (Argentína) 1 Bertoni (Argentina) 1 | LÍKAMSÞJÁLFUNARTÆKID f BullworkeR er einstakt fyrir tog- og þrýstibún- aöinn og einfalda æfingakerfiö sem því fylgir. Vilt Þú halda vió líkams- hreysti þinni? veröa vöövastæltur? Þá ættir þú að kynna þér nánar kosti Bullworkertækisins sem milljónir manna um allan heim dásama fyrir skjótan og ótvíræöan árangur með aðeins 5 mínútna æfingu á dag. Hvers virði er heilsa pín? útlit Þitt? Taktu á þig rögg og póstsendu afklippinginn hér að neðan í dag og við munum senda þér stóran litmyndabækling ásamt öörum upplýs- ingum þér að kostnaóarlausu og án skuld- bindinga um hæl, eða tækiö ásamt litmynda- bæklingnum og æfingakerfinu ef þú vilt frekar panta strax POSTVERZLUNIN HEIMAVAL BOX 39, KÓPAVOGI *SENDU AFKLIPPINGINN SEM BEIÐNI UM NANARI UPPLÝSINGAR ÁN SKULDBINDINGAR EÐA £EM PÖNTUN GEGN PÓSTKRÖFU MEÐ 14 DAGA SKILARETTI FRÁ MÓTTÖKU TÆKISINS. SENDIÐ MER: □ UPPLÝSINGAR MAEN D STK BULLWORKER HEIMILISEANG,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.