Morgunblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
27
ÞAÐ VAR mál margra,
að Skotar væru fram úr
hófi bjartsýnir á að þeir
ynnu ekki aðeins Perú
léttilega, heldur sjálfan
heimsbikarinn. Þótti
mörgum sem Skotar
væru búnir að vinna
titilinn áður en keppn-
in sjálf hófst. En þeir
voru færðir harkalega
niður á jörðina á ný, er
hið „slaka“ og „út-
brunna“ lið Perú vann
mjög sannfærandi sig-
ur yfir þeim.
Þjálfari Skota, Ali McCleod,
hafði sagt, að tækist Skotum að ná
völdum á leiknum þegar í upphafi
og að skora mark eða mörk
snemma í leiknum, myndi eftir-
Fall Skota var hátt
leikurinn verða auðveldur. Þetta
tókst Skotum, þeir léku mjög vel
framan af og komu vörn Perú hvað
eftir annað í mikinn vanda og
snemma leiks voru báðir þeir
Hartford og Masson nærri þvíað
skora. En Skotar þurftu ekki að
bíða lengi eftir markinu, því að á
14. mínútu skoraði Joe Jordan
eftir að markvörður Perú hafði
hálfvarið skot Bruce Rioch. En
eftirleikurinn var síður en svo
auðveldur, Skotar misstu nú öll
tök á leiknum og Perúmenn létu
sóknirnar dynja á marki and-
stæðinganna og leikmenn eins og
Martin Buchan og Stewart Kenne-
dy sem léku bakvarðastöðurnar
voru grátt leiknir af þeim
Cubillias, Munante og Oblitas. Það
kom því ekki á óvart þegar Perú
jafnaði með marki Cueto. Skotar
byrjuðu af krafti í síðari hálfleik
og fljótlega fengu þeir dæmda
vítaspyrnu, Don Masson tók hana
og skot hans var gott, en mark-
vörður Perú, Ramoa Qviroga, lét
þáð ekkert á sig fá og varði
snilldarlega. Skömmu síðar skall-
aði Joe Jordan í stöngina. En síðan
fóru Perúmenn að síga á á ný og
á 70. mínútu skoraði Teofilo
Cubillias glæsilegt mark og sex
mínútum síðar var hann aftur á
ferðinni er hann skoraði þriðja
mark Perú beint úr aukaspyrnu og
var vörn Skotanna vægast sagt
sofandi við það tækifæri. Það
komu engin fjörbrot frá Skotum
og Perúmenn yfirspiluðu þá loka-
kaflann og sigurinn var vís, enn
ein óvænt úrslit í HM.
Lið Skotlandsi Rouich. Kcnnedy. Burns.
Forsyth, Buchan. Rioch, Masson, Ilartford,
Jordan, DaÍKÍish og Johnstone. Macari og
Gemmill komu inn á fyrir þá Rioch og
Masson í sfðari hálfleik.
Lið Perúi Quiroga. Manzo, Duarte,
Chumpitaz. Diaz, Velasquez. Cueto
Cubillias. Munante, La Rosa. Oblitas.
Dómarii Ericson frá Svíþjóð.
• Þriðja mark Perú*
manna er staðreynd.
Cubillias (lengst til
hægri) hefur fundið
smugu í varnarvegg
Skota og þeir horfa
furðu lostnir í allar
áttir. Skotar töpuðu
leiknum óvænt 3—1.
Símamynd AP.
íranir stóðu í Hollendingum
EINS og vænta mátti,
unnu Hollendingar
öruggan sigur yfir liði
írans, en það tók þá
næstum allan fyrri hálf-
leikinn að finna leiðina
fram hjá varnarmúr
Persanna og í netið hjá
þeim. Og Iranir voru
tvívegis nærri því að
skora snemma í leikn-
um.
Hollendingar hófu þegar í stað
stórsókn, en íranir komu þeim
verulega á óvart með góðum
varnarleik og á áttundu mínútu
komu þeir þeim næstum til að fá
hjartaáfall, er skot frá Faraki
breytti um stefnu af Rijsbergen,
en rúllaði aðeins þumlung fram
hjá stönginni. Fáeinum mínútum
síðar voru Iranir enn á ferðinni, en
Sadeghi skaut naumlega fram hjá
markinu. Síðan tóku Hollendingar
öll völd í sínar hendur, en vörn
Irana barðist grimmilega og það
var ekki fyrr en á 42. mínútu að
markið kom. Þá var Rene Van Der
Kerkhov barinn gróflega niður í
vítateig og Rob Rensenbrink
skoraði úr vítinu.
í síðari hálfleik voru yfirburðir
Hollendinga hinir sömu og á 62.
mínútu skoraði Rensenbrink aftur
og nú með skalla og fjórum
mínútum síðar einlék Rep inn í
vítateig Irana og var þar felldur
harkalega. Og úr vítaspyrnunni
skoraði Rensenbrink þriðja mark
sitt og er því markhæsti leikmaður
HM eins og er.
• Rensenbrink skoraði þrennu.
Lið Hollandsi Joongbloed, Suurbier,
Rijsbergen, Krol, Van Der Kerkhov,
Neeskens, Haan Jansen, Van Der Kerkhov,
Rep, Rensenbrink.
Lið írani Hajzi, Nazari, Abdollahie,
Kazerani, Eskaandarian, Parvin, Pour,
SadeRhi, Agha, Faraki, Fahani.
Dómarii Archundia frá Mexfkó.
v.#'
• %
vj^
v.#'
.J*
• '
V_#v
Þeir hafa skorað á HM
Rensenbrink (Holland) 3
Cubillias (Perú) 2
Cuetu (Perú) 1
Jordan (Skotland) 1
Krankl (Austurríki) 1
Dani (Spánn) 1
Schachner (Austurríki) 1
Reinaldo (Brasilfa) 1
Sjoberg (Svíþjóð) 1
Rossi (Ítalía) 1
Lacombe (Frakkland) 1
Zaccarelli (Ítalía) 1
Vazquacz (Mexíkó) 1
Kaabi (Túnis) 1
Dhouib (Túnis) 1
Gommidth 1
Csapo (Ungverjaland) 1
Luque (Argentína) 1
Bertoni (Argentina) 1
| LÍKAMSÞJÁLFUNARTÆKID f
BullworkeR
er einstakt fyrir tog- og þrýstibún-
aöinn og einfalda æfingakerfiö
sem því fylgir.
Vilt Þú halda vió líkams-
hreysti þinni?
veröa vöövastæltur?
Þá ættir þú að kynna þér nánar kosti
Bullworkertækisins sem milljónir manna um
allan heim dásama fyrir skjótan og ótvíræöan
árangur með aðeins 5 mínútna æfingu á dag.
Hvers virði er heilsa pín?
útlit Þitt?
Taktu á þig rögg og póstsendu afklippinginn
hér að neðan í dag og við munum senda þér
stóran litmyndabækling ásamt öörum upplýs-
ingum þér að kostnaóarlausu og án skuld-
bindinga um hæl, eða tækiö ásamt litmynda-
bæklingnum og æfingakerfinu ef þú vilt frekar
panta strax
POSTVERZLUNIN
HEIMAVAL
BOX 39, KÓPAVOGI
*SENDU AFKLIPPINGINN SEM BEIÐNI UM NANARI
UPPLÝSINGAR ÁN SKULDBINDINGAR EÐA £EM PÖNTUN
GEGN PÓSTKRÖFU MEÐ 14 DAGA SKILARETTI FRÁ
MÓTTÖKU TÆKISINS.
SENDIÐ MER:
□ UPPLÝSINGAR
MAEN
D
STK BULLWORKER
HEIMILISEANG,