Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
29
Örtröð á
sýningu
Errós að
Kjarvals-
stöðum
— sagði Davíð Oddsson
— Aðsókn að listahátíð
hefur verið framar öllum
vonum og gengið mjög vel,
sagði Davíð Oddsson for-
maður framkvæmdanefnd-
ar listahátíðar í samtali
við Mbl. Mjög góð aðsókn
var að sýningu Errós að
Kjarvalsstöðum, sagði
Davíð, nánast örtröð og
bezta aðsókn sem verið
hefur að sýningu á
Kjarvalsstöðum um lang-
an tíma.
Listahátíð var sett á laugar-
dag á Kjarvalsstöðum og töluðu
þá Davíð Oddsson og Sigurjón
Pétursson forseti borgarstjórn-
ar. Þar kom einnig flokkurinn
Freies Theater frá Þýzkatandi
og lék ýmsar listir á stultum og
óð um allt húsið eins og Davíð
komst að orði.
Af öðrum viðburðum Lista-
hátiðar um helgina má nefna
opnun sýningar Kristjáns Dav-
íðssonar í sal Félags ísl. mynd-
listarmanna en þar sýnir hann
55 myndir og er helmingur
þeirra til sölu. Nokkur hundruð
manns höfðu séð sýninguna í
gærkvöldi og einnig höfðu selzt
nokkrar myndanna. Þá var
opnuð í Bogasal sýningin
Freies Theater lék listir sínar í miðborginni um helgina og í gærkvöldi er þessi mynd var tekin.
Frá sýningunni á amerískum teikningum 1927-1977 sem er í Listasafni íslands, en hún er opin
daglega kl. 13.30 til 22.
Listamennirnir Kristján Davíðsson og Erró ræðast við á sýningu
Kristjáns, sem er í F.Í.M. salnum við Laugarnesveg.
„Frönsk vefjarlist og grafík",
sem er komin hingað fyrir
milligöngu franska sendiráðsins
og opnaði sýninguna franski
sendiherrann. Eru á sýningunni
43 verk 24 franskra listamanna
og hefur hún farið víða um lönd.
Samanstendur hún af frum-
myndum, grafíkmyndum og ofn-
um teppum.
í Listasafni íslands var opnuð
sýning á amerískum teikningum
1927-1977 og sagði dr. Selma
Jónsdóttir forstöðumaður Lista-
safnsins aðsókn hafa verið
óvenjugóða. Er sýningin hingað
Frá sýningu Errós að Kjarvalsstöðum.
íslenzki dansflokkurinn sýndi í
Þjóðleikhúsinu.
komin fyrir tilstuðlan Menning-
arstofnunar Bandaríkjanna á
vegum Listasafns Minnesota-
fylkis. Malcolm E. Lein forseti
safnsins kom hingað til lands til
að vera við opnun sýningarinnar
og flutti ávarp við athöfnina. Er
Island fyrsti viðkomustaður
sýningarinnar á ferð hennar um
Evrópulönd.
Tvær sýningar voru opnaðar í
Norræna húsinu. Vigdís Kristj-
ánsdóttir sýnir þar vatnslita-
myndir, íslenzkar jurtir og blóm
í bókasafni hússins og í
kjallaranum er Mattinen-sýn-
ingin. Þar sýna hjónin Helle-Vi-
beke Erichsen og Seppo Mattin-
en, en þau hafa bæði tekið þátt
í.einkasýningum og samsýning-
um, heima og heiman og eiga
mörg listasöfn verk eftir þau
bæði.
Að kvöldi laugardagsins voru
síðan tónleikar Oscars Peterson
og Niels-Henning Örsted Peder-
sen í Laugardalshöllinni sem
var þéttsetin og var listamönn-
unUm vel fagnað. Sagði Davíð
Oddsson að Oscar Peterson
hefði verið mjög ánægður með
viðtökur áheyrenda.
I Þjóðleikhúsinu voru tónleik-
ar og ballettsýning á sunnudag.
Gísli Magnússon og Halldór
Haraldsson léku verk eftir
Stravinsky og Bartók og um
kvöldið sýndi Islenzki dans-
flokkurinn ballett sem Davið
sagði að hefði tekizt vel og verið
vel fagnað og aðsókn góð að
þessum tveimur dagskrárliðum.
Strokkvartett Kaupmannahafn-
ar hélt á sunnudagskvöld tón-
leika í Norræna húsinu og
verður aftur á fimmtudags-
kvöldið með tónleika þar.
Að síðustu skal nefnd sýning
Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík sem opnuð var á
sunnudag í Ásmundarsal við
Freyjugötu, en Sigurjón Ólafs-
son myndhöggvari er heiðurs-
gestur sýningarinnar.
í dag verða tónleikar í Laug-
ardalshöll kl. 20.30 þar sem
Rostropovitch leikur einleik á
selló með Sinfóniuhljómsveit
Islands undir stjórn Vladimirs
Ashkenasys, en Rostropovitch
kom til landsins í gærkvöldi. I
nótt var síðan væntanleg sér-
stök flutningavél með hljóðfæri
Smokie, alls 17 tonn og átti að
flytja þau í Laugardalshöllina í
nótt.