Morgunblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
Listahátíð í Reykjavík: Viðtal við Oscar Peterson og frásögn af hljómleikum hans í Laugardalshöll
.... Stundum
gleði og
stundum
kannski
ofboðlitla
sorg”
og fyrstu tónarnir svifu út yfir
fullsetinn salinn varð svo hljótt
í höllinni að heyra hefði mátt
saumnál detta. Það var greini-
legt að hallargestir hugðust
ekki missa af neinu í leik þessa
ofurmennis á sviði jazzpíanó-
leiks.
Peterson hóf tónleikana á því
að leika einn í um það bil
fimmtíu mínútur. Mátti þá
iðulega greina ýmsar þekktar
laglínur, enda hefur Peterson
leikið flest kunn jazzlög inn á
hljómplötur einhvern tíma á
ævinni. Gátu áhorfendur enda
ekki stillt sig um að klappa
honum lof í lófa þegar þeir
greindu gamalkunnar laglínur.
Peterson leikur af mikilli
tilfinningu og sönglar um leið
og hann leikur og blandast þá
oft sérkennilega 'saman klið-
mjúkir tónar píanósins og hin
hrjúfa rödd listamannsins.
Að loknum þessum einleik
Petersons var gert hlé á tón-
leikunum í fimmtán mínútur og
mátti þá sjá ýmsar aldnar
íslenzkar jazzkempur brosa
breitt er þær ræddu saman um
það sem fram hafði farið.
Eftir hléið kynnti Peterson
félaga sinn, bassaleikarinn
Niels Henning 0rsted Peder-
sen, sem hann kvaðst álíta
snilling á sitt hljóðfæri. Þeir
hófu síðan að leika saman og
mátti ekki á milli sjá hvor átti
stærri hlut í hjörtum áhorf-
enda, meistari Peterson eða
hinn afburða snjalli danski
bassaleikari. Það var hins
vegar ljóst að þeir áttu hvor um
sig dágóðan hlut í hjarta hins
því þegar maður horfði á þá
gantast og brosa hvor til
annars af tómri leikgieði, varð
manni iðulega hugsað til gleði
og algleymis barna að leik. Þeir
félagarnir léku saman í rúma
klukkustund við mjög góðar og
innilegar undirtektir og eftir að
þeir höfðu lokið efnisskrá sinni
voru þeir klappaðir fram hvað
eftir annað og léku þeir eitt
aukalag.
SIB.
Að loknum hljómleikum
Oscar Petersons og Niels
Henning Orsted Pedersens
sl. laugardagskvöld gafst
blm. Morgunblaðsins tæki-
færi til að ræða við þá
félaga. Blm. innti Peter
son fyrst eftir því hvernig
honum hefði þótt að leika
jazz á íslandi.
„Það var mjög ánægjulegt að
leika hér í kvöld, enda er alltaf
gaman að leika fyrir góða
áhorfendur. Hvort sem er á
íslandi eða annars staðar í
heiminum."
— Þegar nokkur þúsund
manns eru saman komin eins
og nú í kvöld til þess eins að
hlýða á þig leika, þá verður
manni hugsað til þess hvað það
er, sem þú ert að tjá öllu þessu
fólki, hvaða tilfinningar viltu
vekja hjá áhorfendum?
„Aðeins þær tilfinningar sem
tónlistin vekur hjá þeim hverj-
um og einum, stundum gleði og
stundum kannski ofboðlitla
sorg. Ef þetta tekst er ég
ánægður."
— Hvað er helst á döfinni
hjá þér á næstunni?
„Ég er að skrifa tónlist fyrir
tvær kvikmyndir núna. Önnur
þeirra er hálfgerð hryllings-
mynd, en hin er fræðslumynd
um þrælahald í Kanada, gerð á
vegum National Film Board of
Canada. Þannig að ég kem ekki
til með að hafa mikinn tíma til
hljómleikahalds á næstunni.“
— Vildirðu geta leikið oftar
á hljómleikum en þú gerir nú?
„Nei, enda þótt það sé
skemmtilegt að leika fyrir fólk,
þá er ég fjölskyldumaður og vil
gjarnan vera heima hjá fjöl-
skyldu minni sem mest, en sá
vilji samræmist illa hljóm-
leikaferðalögum."
— Hvern telurðu efnilegast-
an ungra jazzpíanista um þess-
ar mundir?
„Þetta er erfið spurning, þeir
eru svo margir. En ef ég á að
nefna eitt nafn af þessum
fjölda, verður það Cedar Wal-
ton. Mér þykir hann mjög
skemmtilegur."
— Saknarðu þess að Pass gat
ekki leikið með ykkur í kvöld?
„Það var alla vega ekki um
söknuð að ræða.í þeirri merk-
ingu að manni fyndist vanta
eitthvað, enda höfum við 0r-
sted Pedersen leikið saman
tveir fjöldamörgum sinnum á
liðnum árum, hins vegar er
auðvitað alltaf gaman að leika
með Joe Pass og á þann hátt er
hugsanlegt að segja sem svo að
maður hafi saknað hans.“
— Hvenær Iékuð þið NH0P
fyrst saman?
„Það eru mörg ár síðan. Við
skulum sjá ... ætli það hafi
ekki verið á síðasta áratug,
seint á síðasta áratug.“
Blm. náði einnig tali af Nils
Henning 0rsted Pedersen eitt
andartak þar sem hann var á
tali við framámenn Jazzvakn-
ingar og önnum kafinn við að
gefa eiginhandaráritanir.
NH0P kvaðst hafa feiknin öll
að gera, þ.á m. með Oscar
Peterson síðar í sumar, enn-
fremur myndi hann leika inn á
hljómplötu í Þýzkalandi á
næstunni. Hann var ánægður
með tónleikana og kvaðst vona
að hann myndi leika hér á landi
aftur, áður en langt um liði.
Kliðmjúkir tónar
— hugljúf rödd.
Þegar Oscar Peterson gekk
inn á sviðið í Laugardalshöll-
inni á mínútunni kl. níu risu
áhorfendur, yfir þrjú þúsund að
tölu, úr sætum sínum og hylltu
þennan þéttvaxna meistara
jazzins innilega. Eftir að hafa
tilkynnt forföl! Joe Pass settist
Peterson við píanóið og um leið