Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 35

Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978 Einsöngur MÁR Magnússon „þjófstart- aði“ Listahátíðinni s.l. föstudagskvöld í Norræna húsinu og naut til þess aðstoðar Jónínu Gísla- dóttur. Á efnisskránni voru lög eftir okkar gömlu og góðu tónskáld og nokkur erlend stórnúmer og voru sum þeirra laglega sungin. Már hefur hljómfallega rödd og bæði tilfinningu fyrir texta og lagferli. í honum er samofin sérkenni- leg listamennska, djúpstæð þörf fyrir að syngja og gæfuleysi, sem verður skap- sárast þegar hann velur sér verkefni sem hann ræður ekki við. Vitneskja og þekking á verkefni er ekki ávallt réttur mælikvarði hvort það er meðfærilegt eða við hæfi flytjandans. Þó það kunni að hljóma eins og öfugmæli, er raddþjálfun Más Magnússonar ekki á því stigi að söngur hans gleðji áheyrendur, vegna þeirrar áhættu sem, hann sífellt tekur. Misfellurnar eru svo sérkennilegar að það sem Tðnllst eftir JQN ÁSGEIRSSON Már Magnússon hann í sama lagi gerir illa í eitt skipti, gerir hann vel í annað. Þannig getur áheyrandinn átt von á öllu. Þetta er í fyrsta sinn sem undirritaður heyrir Má syngja á tónleikum og eftir því sem hann gerði bezt, eins og t.d. í lagi Páls Jónína Gísladóttir ísólfssonar, Sáuð þið hana systur mína og hluta af Ideale, eftir Tosti, og La Dansa, eftir Rossini, ætti hann að geta, í samstarfi með góðum undirleikara og leiðbeinanda, valið sér verk- efni við hæfi og flutt þau mjög vel. ____________- 35 Stofnar S.H. eigin stofn- lánadeild? Aöalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem lauk í Reykjavík í gær, samþykkti að stjórn S.H. athugaði, hvort ekki Væri hagkvæmt að víkka hlutverk Minningarsjóðs Elíasar Þorsteins- sonar þannig, að hann gæti jafnframt gegnt hlutverki stofn- lánasjóðs fyrir frystihús innan Sölumiðstöðvarinnar. S.II. skipuleggi fræðslustarfsemi Á aðalfundi Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna í gær var samþykkt að fela stjórn S.H. að skipuleggja fræðslustarfsemi fyrir starfsfólk frystihúsanna. Starfsemin á að verða í formi kvikmynda, fyrir- lestra og námskeiða eftir því sem heppilegast er talið á hverjum stað. „Vorblómið” I vor kom út 15. árgangur af Vorblóminu, barnariti Unglinga- reglu I.O.G.T. Er það selt á degi Unglingareglunnar í byrjun maí. Þetta er barnabók og efni hennar sögur, leikrit og kvæði, auk þess sem þar hefur verið minnst í stuttu máli nokkurra merkis- manna (karla og kvenna) sem unnið hafa fyrir Unglingaregluna mikið starf. I ritnefnd Vorblómsins hafa verið öll þessi ár sömu mennirnir: Ingimar H. Jóhannesson, Ólafur F. Hjartar og Sigurður Gunnarsson. En efnisval og útgáfa hefur að langmestu leyti hvílt á Sigurði Gunnarssyni sem annast hefur þetta rit af mikilli samviskusemi. Tilgangurinn með útgáfu Vor- blómsins er að gefa út hollt lesefni fyrir börn. Birta í því siðrænar sögur sem stundum hafa bindis- boðskap og leikrit til lestrar á heimilum og til nota á fundum í barnastúkunum. En aldrei hafa þær átt eins miklu hlutverki að gegna og nú, þegar reykingar og jafnvel drykkjuskapur eru farin að færast til barnanna, vegna óheppi- legs fordæmis hinna fullorðnu og þeirrar lausungar sem einkennir þjóðfélagið. í þessum 15 árgöngum Vor- blómsins er mikið af góðu lesefni handa börnum, svo vel hefur val á því tekisti Ritið er líka mynd- skreytt og smekklega útgefið. En það sem einkennir það eru margar ágætar bindindissögur sem vekja til umhugsunar. Ekkert annað rit hefur eins mikið af því efni í sögulegum búningi við hæfi barna. í það hafa einnig ritað sögur margir af kunnustu barnabóka- höfundum þjóðarinnar. Vorblómið hefur verið Ungl- ingareglunnistyrkur í félagsstarfi og auk þess hefur það verið henni töluverður fjárhagslegur styrkur þar sem sala þess hefur gengið mjög vel. Meðan það seldist best var það gefið út í 4000 eintökum, en síðan barnastúkum fækkaði hefur þessi tala lækkað allmikið. Eigi að síður kemst það inn á mörg heimili. Segja má að með þessu 15. hefti Vorblómsins séu nokkur tímamót í sögu þess. En vonandi verður Unglingareglan svo gæfusöm að halda áfram útgáfunni, þótt senni- lega verði skipti á mönnum í ritnefndinni. Með Vorblóminu hefur verið reynt að gefa íslenskum börnum hollt lesefni og er þess þörf í öllu því moldviðri sem nú gengur yfir í rituðu máli. Það þarf eitthvert mótvægi gegn öllum þeim ómerki- legu myndabókum sem nú eru gefnar út að taka frá börnunum alla umhugsun um bókarefnið. Ég vil flytja ritnefnd Vorblóms- ins bestu þakkir fyrir vel unnin störf í 15 ár og óska Vorblóminu heilla í framtíðinni. Eiríkur Sigurðsson. Nú hýrnar heldur betur yfir Herrahúsinu. Sumarið er komið. Húsið er fullt af vönduðum sportfatnaði sem hentar jafnt eldri sem yngri í ævintýri og ferðalög komandi mánaða, hvort sem er innanlands eða utan. BANKASTRÆTI 7. SIMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SÍM1150<

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.