Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 47

Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978 47 Colombia: BoKuta. Colombia. 5. júní. AP. í KVÖLD benti allt til þess að Julio Cesar Turbay Ay- ala, frambjóðandi Fráls- lynda flokksins í Colombia í Suður-Ameríku, yrði kjör- inn forseti landsins með naumum meirihluta at- kvæða. Töluverð spenna var í Bogota, höfuðborg lands- ins, og fleiri borgum Vegna þess hve úrslit virtust tvísýn og óviss og fyrirskipaði ríkisstjórnin í kvöld að hermenn tækju sér stöðu á helztu stöðum í höfuðborg- Enn dregur úr vinsældum Carters Ncw Vork. ">. júní. Reuter. TRAUST bandarísks almennings á Carter Bandaríkjaforseta hefur enn minnkað og hefur nú aldrei verið jafn veikt að því er segir í niðurstöðu Loui Harris-stofnunar- innar í dag. Þar sagði að 61% spurðra í maímánuði hefðu sagt að þeir hefðu ekki trú á störfum Carters í Hvíta húsinu. Sextíu og fimm prósent sögðu að þeir hefðu orðið fyrir sárum vonbrigðum með Carter í forsetaembætti og að af þeim sem kusu hann árið 1976 töldu 54 prósent að hann hefði valdið þeim vonbrigðum. Þó létu flestir í ljós þá skoðun að kannski kæmi síðar betri tíð fvrir Carter. í niðurstöðum Gallupskoðana- könnunar sem einnig var birt í gær, sunnudag, þótti koma fram vísbending um að hagur Carters hefði vænkast ögn, en þó væri það ekki svo að til tíðinda teldist. inni til að koma í veg fyrir að ólgan fengi útrás. Voru hermennirnir vopnaðir og höfðu táragassprengjur til- búnar ef til tíðinda drægi. Frambjóðandi íhaldsflokksins, Belisario Betancur, hafði fyrr í dag lýst yfir sigri sínum, en skömmu síðar kom í ljós að Ayala hafði nauman meirihluta. Þegar níutíu og fimm prósent atkvæða höfðu verið talin hafði Ayala fengið 2.226.163 atkvæði en Betan- cur 2.137.987 atkvæði. Fjórir aðrir voru í framboði en koma ekki við þessa sögu. Ekki hefur verið jafn mjótt á mununum í kosningum í Colombia í átta ár. En það er í minnum haft þegar Gustavo Rojas Pinilla, einræðisherra landsins í kringum 1950, tapaði í kosningum 1970 og munaði þá aðeins 60 þús atkvæðum. Turbay Ayala er fyrrverandi sendiherra lands síns í Washing- ton. Fráfarandi forséti landsins, Alfonso Lopez Michelsen, sem er frjálslyndur, gat ekki gefið kost á sér á ný vegna ákvæða í stjórnar- skrá landsins. ERLENT Desai í viðskipta- viðræðum í Belgíu Risaborturn á siglingu. — Á myndinni má sjá nýjasta „sjóskrímsli" í Norðursjó, olíuborunarpall Chevron-olíu- félagsins sem verið er að flytja á sjó út. Turninn er 225 metrar á hæð og með gífuriega umfangsmiklar undirstöður. Gert er ráð fyrir að turninn byrji að dæla olíu í lok mánaðarins. Brilssrl. 5. júní. AP. MORAJI Desai hinn aldurhnigni forsætisráðherra Indlands kom til Brússel í morgun í tveggja daga heimsókn og munu viðskipti Ind- lands og Belgíu einnig verða rædd á fundum hans og ráðamanna í Belgíu. Leo Tindemanns forsætis- ráðherra Belgíu fagnaði Desai við komuna en þetta er lengsta ferðalag sem Desai hefur tekizt á hendur síðan hann tók við embætti forsætisráðherra Indlands. Ind- verjar hafa gert sérstakan við- skipta- og samvinnusamning við Efnahagsbandalagið en hafa nú áhyggjur af ráðstöfunum sem bandalagíð hefur ákveðið fyrir skömmu sem miða að því að takmarka innflutning tiltekinna framleiðsluvara frá þróunarlönd- unum, einkum er þar átt við vefnaðarvöru, og gæti það komið óþyrmilega niður á Indverjum. Frá Belgíu fer hann síðan til Bretlands og Bandaríkjanna og heim kemur hann 17. júní. Tvísýn úrslit í forsetakosningum Bhutto verd- ur ekki sleppt Islamahad. Pakistan. 5. júní. AP. RÍKISSTJÓRN Pakistans bar í dag, mánudag, þær fregnir til baka að hún myndi leyfa Zulifikar Ali Bhutto. fyrrverandi forsæt- isráðherra landsins, að hverfa frá Pakistan í útlegð. Opinberar heimildir sögðu að þessar fréttir væru alger- lega úr lausu lofti gripnar. Fréttamaður BBC í Pakist- an hafði látið það frá sér fara um helgina að Zia forseti hefði ákveðið að leyfa Bhutto að fara ef hann héldi sig frá öllum stjórnmálaaf- skiptum. Bhutto var dæmd- ur til dauða þann 18. marz sl. eins og frá var sagt en hann hefur áfrýjað dómnum og er ekki vitað hvenær hæstiréttur landsins kveður upp úrskurð sinn. TlugfaruT: Hótel.og írskurmorDMnm. *. A4ls: 4? Txrfö: lo.jiW klíf* tomifr: jprícTjUdlölg I3.jÚk\Í kl.l8~ 'förnftjóri: ‘Síg>wmc 3- TSamvinnu- ferðír AUSTURSTRÆTI 12 SÍMI 27077

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.