Morgunblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
47
Colombia:
BoKuta. Colombia. 5. júní. AP.
í KVÖLD benti allt til þess
að Julio Cesar Turbay Ay-
ala, frambjóðandi Fráls-
lynda flokksins í Colombia í
Suður-Ameríku, yrði kjör-
inn forseti landsins með
naumum meirihluta at-
kvæða. Töluverð spenna var
í Bogota, höfuðborg lands-
ins, og fleiri borgum Vegna
þess hve úrslit virtust tvísýn
og óviss og fyrirskipaði
ríkisstjórnin í kvöld að
hermenn tækju sér stöðu á
helztu stöðum í höfuðborg-
Enn dregur úr
vinsældum Carters
Ncw Vork. ">. júní. Reuter.
TRAUST bandarísks almennings á
Carter Bandaríkjaforseta hefur
enn minnkað og hefur nú aldrei
verið jafn veikt að því er segir í
niðurstöðu Loui Harris-stofnunar-
innar í dag. Þar sagði að 61%
spurðra í maímánuði hefðu sagt að
þeir hefðu ekki trú á störfum
Carters í Hvíta húsinu. Sextíu og
fimm prósent sögðu að þeir hefðu
orðið fyrir sárum vonbrigðum með
Carter í forsetaembætti og að af
þeim sem kusu hann árið 1976
töldu 54 prósent að hann hefði
valdið þeim vonbrigðum. Þó létu
flestir í ljós þá skoðun að kannski
kæmi síðar betri tíð fvrir Carter.
í niðurstöðum Gallupskoðana-
könnunar sem einnig var birt í
gær, sunnudag, þótti koma fram
vísbending um að hagur Carters
hefði vænkast ögn, en þó væri það
ekki svo að til tíðinda teldist.
inni til að koma í veg fyrir
að ólgan fengi útrás. Voru
hermennirnir vopnaðir og
höfðu táragassprengjur til-
búnar ef til tíðinda drægi.
Frambjóðandi íhaldsflokksins,
Belisario Betancur, hafði fyrr í
dag lýst yfir sigri sínum, en
skömmu síðar kom í ljós að Ayala
hafði nauman meirihluta. Þegar
níutíu og fimm prósent atkvæða
höfðu verið talin hafði Ayala
fengið 2.226.163 atkvæði en Betan-
cur 2.137.987 atkvæði. Fjórir aðrir
voru í framboði en koma ekki við
þessa sögu. Ekki hefur verið jafn
mjótt á mununum í kosningum í
Colombia í átta ár. En það er í
minnum haft þegar Gustavo Rojas
Pinilla, einræðisherra landsins í
kringum 1950, tapaði í kosningum
1970 og munaði þá aðeins 60 þús
atkvæðum.
Turbay Ayala er fyrrverandi
sendiherra lands síns í Washing-
ton. Fráfarandi forséti landsins,
Alfonso Lopez Michelsen, sem er
frjálslyndur, gat ekki gefið kost á
sér á ný vegna ákvæða í stjórnar-
skrá landsins.
ERLENT
Desai í viðskipta-
viðræðum í Belgíu
Risaborturn á siglingu. — Á myndinni má sjá nýjasta
„sjóskrímsli" í Norðursjó, olíuborunarpall Chevron-olíu-
félagsins sem verið er að flytja á sjó út. Turninn er 225
metrar á hæð og með gífuriega umfangsmiklar
undirstöður. Gert er ráð fyrir að turninn byrji að dæla
olíu í lok mánaðarins.
Brilssrl. 5. júní. AP.
MORAJI Desai hinn aldurhnigni
forsætisráðherra Indlands kom til
Brússel í morgun í tveggja daga
heimsókn og munu viðskipti Ind-
lands og Belgíu einnig verða rædd
á fundum hans og ráðamanna í
Belgíu. Leo Tindemanns forsætis-
ráðherra Belgíu fagnaði Desai við
komuna en þetta er lengsta
ferðalag sem Desai hefur tekizt á
hendur síðan hann tók við embætti
forsætisráðherra Indlands. Ind-
verjar hafa gert sérstakan við-
skipta- og samvinnusamning við
Efnahagsbandalagið en hafa nú
áhyggjur af ráðstöfunum sem
bandalagíð hefur ákveðið fyrir
skömmu sem miða að því að
takmarka innflutning tiltekinna
framleiðsluvara frá þróunarlönd-
unum, einkum er þar átt við
vefnaðarvöru, og gæti það komið
óþyrmilega niður á Indverjum.
Frá Belgíu fer hann síðan til
Bretlands og Bandaríkjanna og
heim kemur hann 17. júní.
Tvísýn úrslit í
forsetakosningum
Bhutto verd-
ur ekki sleppt
Islamahad. Pakistan. 5. júní. AP.
RÍKISSTJÓRN Pakistans
bar í dag, mánudag, þær
fregnir til baka að hún
myndi leyfa Zulifikar Ali
Bhutto. fyrrverandi forsæt-
isráðherra landsins, að
hverfa frá Pakistan í útlegð.
Opinberar heimildir sögðu
að þessar fréttir væru alger-
lega úr lausu lofti gripnar.
Fréttamaður BBC í Pakist-
an hafði látið það frá sér
fara um helgina að Zia
forseti hefði ákveðið að leyfa
Bhutto að fara ef hann héldi
sig frá öllum stjórnmálaaf-
skiptum. Bhutto var dæmd-
ur til dauða þann 18. marz
sl. eins og frá var sagt en
hann hefur áfrýjað dómnum
og er ekki vitað hvenær
hæstiréttur landsins kveður
upp úrskurð sinn.
TlugfaruT:
Hótel.og
írskurmorDMnm. *.
A4ls:
4?
Txrfö: lo.jiW klíf*
tomifr: jprícTjUdlölg I3.jÚk\Í kl.l8~
'förnftjóri: ‘Síg>wmc 3-
TSamvinnu-
ferðír
AUSTURSTRÆTI 12 SÍMI 27077