Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 1
1 48 SÍÐUR MEÐ 8 SlÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 123. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Jarðskjálfti kostar 21 lífið Tokyo 12. júní. Reuter — AP. TUTTUGU og einn beið bana og 350 slösuðust í jarðskjálfta á Ilonshu. aðaley Japans. í dag. betta er mesti jarðskjálfti sem hefur orðið í Japan í 15 ár. Skýjakljúfar í Tokyo léku á reiðiskjálfi í jarðskjálftanum sem gerði milljónum bilt við þegar fólk var að fara heim frá vinnu og olli ugg um flóðbylgju með- fram Kyrrahafsströnd Honshu. Harðast úti varð horgin Sendai þar sem flestir slösuðust og mestar skemmdir urðu. Kippur- inn stóð í nokkrar sekúndur og jarðskjálftinn mældist 7.5 stig á Richterskvarða. Lögreglan sagði að allir þeir sem biðu bana, 21 að tölu, og næstum því allir sem slösuðust hefðu verið í Sendai, 600.000 manna borg um 300 km norðaustur af Tokyo á strönd Ky'rrahafs. Flestir þeirra sem biðu bana urðu undir byggingum sem hrundu en tveir týndu lífi þegar stórt rafmagnsmastur hrundi á þá. Lögreglan telur að fleiri kunni að hafa farizt enda er að minnsta kosti tveggja enn saknað. Jarðskjálftastofnunin í Uppsöl- um sagði að þetta væri kröftugasti jarðskjálfti sem hefði mælzt í heiminum það sem af er þessu ári. Jarðskjálftinn olli skriðuföllum á mörgum stöðum umhverfis Sendai og víða varð rafmagnslaust og gaslaust. Skemmdir urðu á tveimur jarðvarmastöðvum í borg- inni. Flestum járnbrautarferðum á norðurhluta Honshu var aflýst og járnbrautarstarfsmenn sögðu að ferðirnar hæfust ekki aftur fyrr en á morgun. Alls er talið að 140 hús séu ónýt og níu brýr hafa eyðilagzt, aðal- lega í Miyagi-héraði. V-þýzk útfærsla Bonn 12. júní. Reuter. AP. VESTUR-ÞJÓÐVERJAR til- kynntu í dag að þeir mundu fara að dæmi annarra þjóða við Eystrasalt og færa út fiskveiðilandhelgi sína þar að miðlínum á fimmtudaginn. í yfirlýsingu frá Bonn-stjórninni sagði að nýja lögsagan yrði opin fiskiskipum frá öðrum aðildarlöndum Efna- hagsbandalagsins en ríki utan bandalagsins fengju aðeins réttindi í lögsögunni sam- kvæmt sérsamningum. Það á sinn þátt í ákvörðun- inni að Pólverjar hafa tekið vestur-þýzka togara að undan- förnu á umdeildum svæðum á Eystrasalti en Vestur-Þjóðverj- ar boðuðu fyrst í febrúar að fiskveiðilandhelgin yrði stækk- uð á Eystrasalti. I tilkynningu stjórnarinnar í dag segir að útfærslan sé nauðsynleg til að bægja alvar- legri hættu frá afkomu fiski- manna og fiskiiðnaðarins. Ítalíustjórn fær stuðning Róm 12. júní — Reuter. i FYRSTU tölur sýndu í dag greinilegan stuðning við kristi- lega demókrata og kommúnista sem styðja stjórn þeirra á þingi í tvennum þjóðaratkvæðagreiðsl- um sem fóru fram á Ítalíu um helgina. Þegar 15 af hundraði atkvæða höfðu verið talin virtist Róttæki flokkurinn hafa beðið ósigur í baráttu sinni fyrir afnámi tveggja umdeildra lagai Flokkur- inn knúði fram þjóðaratkvæða- greiðslurnar og vildi afnema lög frá 1974 er veita lögreglu aukin völd og lög um opinberar f járveit- ingar til stjórnmálaflokka er nema 51 milljón dollara á ári. Bæði kristilegir demókratar og kommúnistar lögðu álit sitt að veði með því að skora á Itali að styðja bandalag flokkanna og hafna tillögunum. Samkvæmt fyrstu tölum greiddu 40% kjós- enda atkvæði með því að lögin um opinberan fjárstuðning við stjórn- málaflokka yrðu afnumin en 60% á móti. Aðeins 23% vildu afnema lögin um aukin völd lögreglu og 76% vildu halda þeim. Kjörsókn var rúmlega 80%. Róttækir héldu því fram að lögreglulögin hefðu ekki komið í veg fyrir sífellda aukningu glæpa og að þau hefðu leitt til „almenns vígbúnaðar" ítalskra glæpamanna og morða á saklausu fólki. En morðið á Aldo Moro er öllum í fersku minni og því var ekki búizt við að tillaga róttækra fengi hljómgrunn. Því var enn fremur haldið fram að lögin um fjárveitingar hins opinbera til stjórnmálaflokka sem skipta þeim á milli sín í samræmi við styrk þeirra á þingi komi aðeins gömlum stjórnmálaflokk- um til góða og að þau hafi ekki bundið enda á mútuþægni stjórn- málamanna. 3flýja í lítilli flugvél Kassel, 12. júní AP. Reuter. ÞRÍR menn virðast hafa flúið frá Austur-Þýzkálandi í dag í lítilli einshreyfils flugvél að sögn landamæravarða. Landamæraverðir sögðu að það væri hugsanlegt að flug- Framhald á bls. 31 | ' f 'i l* j s I ■ I J [ i S: 1 *. ■ * 'Æ ' -PS * \ % '"If; I ftl wytti i „ 1 mjí B 11 1 j i ?! m a , j I % \ Þrír bílar klemmdust undir veggjum sem hrundu úr byggingu og eyðilögðust í miklum jarðskjálfta í Izumi skammt frá borginni Sendai í Japan í gær. Líbanskir hægrimenn fá ísraelskar stöðvar Beirút, 12. júní. Reuter. STARFSMENN Sameinuðu þjóðanna áttu í dag mikilva'gar viðræður við líbönsku stjórnina og reyndu að leysa erfiðleika sem hafa komið upp á síðustu stundu og geta tafið fyrirætlanir um að friðargæzlusveit- ir Sameinuðu þjóðanna taki við stöðvum Israelsmanna í Suður-Líban- on á morgun. Ileimildir í Beirút herma að leyniviðræður hafi verið hafnar þegar Israelsmenn afhentu flestar stöðvar sínar í Suður-Líbanon hermönnum líbanskra hægrimanna en ekki friðargæzluliði SÞ. Samkvæmt heimildunum hörf- uöu allar helztu sveitir Israels- manna í gær og líbanskir hægri- menn tóku við stöðvum þeirra: Brottflutningi ísraelsmanna á að ljúka á morgun. Starfsmenn SÞ reyna sam- kvæmt heimildunum að komast að málamiðlunarsamkomulagi við lí- bönsku stjórnina þannig að gæzlu- sveitunum verði le.vft að fara inn á svæði þau sem nú eru á valdi hægrimanna. Gæzluliðið hefur reynt um skeið að fá skýringu frá stjórninni á stöðu herliðs hægri- manna og síðasta ráðstöfun Isra- elsmanna gerir það að verkum að slík skýring er nauðs.vnleg að því er heimildirnar herma. ísraelsstjórn hikar. Jafnframt frestaði ísraelska stjórnin ennþá einu sinni í dag ákvörðun um svar við tveimur mikilvægum spurningum frá Bandaríkjamönnum um friðarum- leitanir í Miðausturlöndum — gagnstætt því sem við var búizt. Svars ísraelsstjórnar er beðið með eftirvæntingu í Washington þar sem vonað er að það verði til þess að friðarviðræður geti hafizt Lögregluforingjar skoða litla austur-þýzka flugvél sem lenti skammt frá Kassel í Vestur-Þýzkalandi. aftur milli Israelsmanna og Eg>*pta. Fyrri spurningin er um afstöðu Israelsmanna til vesturbakkans og Gaza-svæðisins að loknu fimm ára Framhald á bls. 32 Sonur Sáms: 25 ár New York 12. júní — Reuter. MORÐINGINN David Berkow- itz — „Sonur Sáms“ — sem olli skelfingu í New York með morðæði í fyrra var í dag dæmdur þyngstu refsingu, 25 ára fangelsi, og lagt var til að hann yrði hafður bak við lás og slá það sem eftir væri ævinnar. Morðinginn hefur játað á sig sex morð og sat eins og í leiðslu þegar dómararnir, sem voru Framhald á bls. 31 Málaliðar til Zaire? Kaupmannahiifn 12. júní. AP. Kcutcr. UTANRÍKISRÁÐHERRA Breta. David Owen. sagði í dag. að það væru mikil mistök ef Zaire réði málaliða. Hann sagði þetta vegna blaða- fréttar um að Mobutu Sese Seko forseti hefði í hyggju að koma á fót 2.000 manna málaliðaher og skrá í hann menn í Evrópu og Suður-Aíríku. Fréttin hefur ekki Framhald á bls. 32

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.