Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
FRAKKAR OG UNGVERJAR
VERÐA AÐ HALDA HEIM
LEIKUR Frakka og Ungverja á laugardaginn
byrjaði ekki á réttum tíma, og er það fyrsti
leikurinn í HM sem ekki hefst á mínútunni.
Ástæðan var sú að bæði liðin komu til leiks í
hvítum búningum. Senda varð lögreglubifreið eftir
búningum til félagsliðs í nágrenninu til að bjarga
við málunum.
Þetta sýndi best hve litla
þýðinjtu leikurinn hafði fyrir bæði
liðin, en hvorujít þeirra átti
mönuleika á að halda áfram í
keppninni. Nú var aðeins um hið
franska stolt að ræða. Er leikurinn
hófst kom í ljós að Frakkar, sem
nú léku mjöK afslappaðir, léku
stórvel oft voru nánast óþekkjan-
iegir frá fyrri leikjum sínum í
keppninni.
Fyrsta mark Frakka kom á 20.
Argentina'78
mínútu er Christian Lopez skaut
af 25 metra færi, Of; þrumuskot
hans hafnaði í samskeytum
marksins. Færðist nú mikið líf í
leikinn og var hann vel leikinn af
báðum liðum. Frakkar sköpuðu sér
þó hættulefiri tækifæri og léku oft
mjöf; vel saman. Á 37. mínútu léku
Frakkar unf;versku varnarmenn-
ina grátt og eftir ftlæsilegan
samleik komst Marc Berdoll einn
innfyrir vörnina, lék á unf;verska
markvörðinn of; skoraði. Ungverj-
ar náðu að minnka muninn með
rnarki Zombori á 41. mín., en
aðeins einni mínútu síðar skora
Frakkar sitt þriðja mark, eftir að
þvaf;a hafði myndast við mark
tinpverja of; Rócheteau potaði
knettinum í netið. Þannif; var
staðan í leikhléi 3—1. Síðari
hálfleikur var ekki eins vel leikinn
ok er líða tók á mátti sjá að
leikmenn fóru sér að engu óðslega.
Leikurinn endaði 3—1, ekkert
mark var skorað í síðari hálfleik.
Þjálfari Frakká sagði eftir leikinn
að þéir þyrftu ekki að vera
óánægðir. Þeir hefðu verið í besta
riðlinum og sýnt góða leiki á móti
Argentínu og nú á móti Ungverj-
um. Þá sagði hann að knattspyrn-
an í úrslitunum ætti eftir að verða
mun betri en sést hefði til þessa.
LIÐ FRAKKLANDS, Dropsy, Janvion.
Tresor. Lopez. Bracci. Petit. Bathenay.
Papi. (Platini) Rocheteau. (Dider Six)
Berdoll. Rouyer.
LIÐ UNGVERJALANDS. Gujdar. Martos..
Balint. Kereki. Jozef. Nyilasi. Pinter,
Zombori. Paszai. Torozsik, Nagy.
DÓMARIt Armando Coeino Brasiliu.
• Markvörður Mexíkó. Pedro Soto Morrio. niðurbrotinn er cnn eitt
markið heíur verið skorað hjá honum. Að þessu sinni var það hinn
pólski Zbignew Bonick sem fann leiðina í netið hjá Mexikönum.
(Símamynd AP)
Pólverjar efst-
ir í öðrum riðli
• Markið sem fleytti Brasilíumönnum í átta liða úrslitin. Robcrto skorar sigurmarkið gegn Austurríki.
(Símamynd AP)
Vamarieikur Bras-
ilíu aðall liðsins
LOKSINS tókst Brasilíu að ná sigri. Þeir sigruðu Austurríkismenn 1-0 á Mar
Del Plata leikvanginum í Buenos Aires á sunnudag. Meö sigri sínum hlutu
Þeir fjögur stig í riðlinum, jafnmörg og Austurríkismenn. Austurríki hefur
samt hagstæðara markahlutfall og er pví í efsta sæti.
Það var Carlos Roberto De Oliveira
sem skoraði sigurmark Brasilíu-
manna eftir stórkostlegan samleiks-
kafla þeirra á 75. mínútu leiksins. Af
aðeins 12 metra færi náði hann að
skjóta með vinstra fæti föstu skoti
sem hinn annars ágæti markvörður
Austurríkis réði ekki við.
Austurríkismenn léku varnarleik,
og voru aðeins með tvo framherja.
Náðu þeir aldrei að gera neinn usla
í hinni sterku vörn Brasilíumanna.
Fjórar breytingar voru gerðar á liði
Brasilíu og einn af þeim sem kom inn
í liöið var Carlos Roberto sem
skoraði markið. Brasilíumenn sóttu
mun meira allan leikinn og áttu
nokkur allgóð marktækifæri, sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Á 28. mínútu fyrri
hálfleiks áttu Brasilíumenn auka-
spyrnu við vítateigslínu. Mendonca
tók spyrnuna og náði að skjóta
framhjá varnarveggnum en Koncilia
bjargaöi vel. Fimm mínútum síðar
fékk Mendonca besta tækifæriö í
öllum leiknum en með úthlaupi tókst
markverði Austurríkis að bjarga.
Austurríkismenn áttu sárafá tæki-
færi í leiknum enda lítil áhersla lögð
á sóknarleikinn. Hinn snjalli Krankl
mátti sín lítið óstuddur í framlínunni.
Er leiknum lauk var Brasilíumönn-
um ákaft fagnaö af fjölda áhorfenda,
og mikil gleöi braust út í Brasilíu.
Eftir leikinn sagöi þjálfari Brasilíu
að lið sitt hefði sýnt framfarir en yrði
1. riðill
LOKASTAÐAN í 1. riðli varð Dessí:
PÓLVERJAR sigruðu Mcxico 3—1 í öðrum riðli IIM keppninnar í
Argentínu á laugardag. ,Með sigri si'num hrepptu þeir fyrsta sætið í
riðlinum og fengu fimm stig. V Þjóðverjar hlutu annað sætið með fjögur
stig. Lið Póllands hefur staðið sig vel í keppninni ofj má búast við því
að þcim takiht að verða í einu af efstu sætunum. I IIM keppninni í
V-Þýskalandi höfnuðu þeir í þriðja sæti.
Fyrstu fimmtán mínútur fyrri
hálfleiks tóku leikmenn beggja
liða lífinu með ró. Mexico-menn
vissu að sigur dygði þeim skammt
og léku því án allrar taugaspennu.
Pólverjum dugði jafntefli til að
komast áfram og lögðu áherslu á
sterkan varnarleik. Það var
Sanches frá Mexico sem átti fyrsta
skot Ieiksins á áttundu mínútu, en
rétt framhjá. Fjórum mínútum
síðar var framlínumaður hjá
Mexico felldur gróflega inni í
vítateig en dómarinn sá ekki
ástæðu til að flauta. Smátt og
smátt náðu Pólverjar góðum tök-
um á leiknum og fóru að sækja
meira. Markið lét samt standa á
sér, og það var ekki fyrr en í lok
fyrri hálfleiks, er aðeins þrjár
mínútur voru til hlés, að Zbigniew
Boniek skoraði eftir frábæra
sendingu frá Lato. Boniek var
aðeins átta metra frá marki og
réði markvörðurinn ekkert við
skotið.
Lið Mexico var mjög breytt frá
leiknum við V-Þýskaland. Alls
voru gerðar sex breytingar á
liðinu. Kom það mjög ákveðið til
leiks í síðari hálfleik og var ákaft
hvatt af fjölda áhorfenda. Lék
liðið vel og skapaði sér fljótt góð
marktækifæri. Á 51. mínútu leiks-
ins jafnaði svo Victor Rangle fyrir
Mexico. Kom mark þetta eftir
mikinn einleik hjá Flores sem lék
hvern varnarmanninn á fætur
öðrum mjög grátt, og sendi svo
knöttinn inn á Rangle sem gat
varla annað en rennt knettinum í
netið. Fimm mínútum síðar not-
fæíði fyrirliði Pólverja, Kazimierz
Deyna, sér til hins ítrasta upp-
lausn í vörn Mexico og skoraði með
skoti af löngu færi, óverjandi fyrir
markvörðinn.
Síðasta hluta leiksins sóttu svo
Mexicomenn og tvívegis var brotið
illa á framlínumönnum þeirra inni
í vítateig án þess að dómarinn
dæmdi. í annað skiptið var Ortega
felldur mjög illa og hefði umsvifa-
laust átt að dæma vítaspyrnu.
Fékk dómarinn líka ófagrar
kveðjur frá áhorfendum sem
púuðu og flautuðu án afláts á hann
það sem eftir var leiksins. Þriðja
og síðasta mark leiksins kom á 83.
mínútu og enn var þar að verki
Boniek, sem öllum að óvörum
sendi þrumufleyg langt utan af
velli, í net Mexicomanna. Var
glæsilega að þessu marki staðið,
Heldur dofnaði yfir leiknum við
markið og eftir þetta tóku Pólverj-
ar litla áhættu.
LIÐ PÓLLANDS, Tomaszewski, Szyman-
owski. Zmuda. Gorgon, Rudy, Kasperczak,
Masztaler, Deyna, Boniek. Iwan. Lato, (v -
Luhanski).
LIÐ MEXICOt Soto, Flores, Cisneros,
Gomes. Vazqez, Tores. Cucllar. Cardenas.
Ortega. Itangel, Sanches. (vm Mendizabal).
DÓMARL Jafar Namdar. íran.
að gera betur ef þeir ætluöu sér að
sigra.
Varnarleikur liösins var aðall þess
í þessum leik og sá besti sem það
hefur sýnt. Nú þarf að brýna
sóknarleikinn.
Nú hefst keppnin fyrir alvöru — og
nú fer að sjást falleg knattspyrna,
sagði Couthino.
Liö Brasiliu, Leao. Toninho. Oscar,
Amaral. Rodriquez. Neto, Cerezo. Batista.
Jortje. Gil. Roberto. Dirceu.
Lið Austurrfkis, Koncilia. Sara. Ober
mayer. Breienberxer. Pezzey. Hickersbenr
er. Prohaska. Krnakl. Kreuz, Jara. Krieiter.
Dómarl, Roherto Wurtz frá Frakklandi.
Argentína
Frakkland —
italía
Argentína
Frakkland
Ungverjaland
Italía 0—1
Ungverjaland 3—1
3 3 0 0 6—2 6
3 2 0 1 4—3 4
3 1 0 2 5—5 2
3 0 0 3 3—8 0
2. riðill
Lokastaðan í 2. rióli varð pessí:
Austurríki — Brasilía 0—1
Spánn — Svípjóó 1—0
Austurríki 3 2 0 1 3—2 4
Brasilía 3 1 2 0 2—1 4
Spánn 3 111 2—2 3
Svípjóó 3 0 12 1—3 1
3. riðill
Lokastaðan í 3. rióli varó pessi:
Túnis — Vestur-Þýzkal. 0—0
Pólland — Mexíkó 3—1
Pólland 3 2 1 0 4—1 5
V-Þýzkaland 3 1 2 0 6—0 4
Túnis 3 111 3—2 3
Mexíkó 3 0 0 3 2—12 0
• Perúmaðurinn Cubil-
las er nú markahæsti
leikmaður Heimsmeist-
arakeppninnar í Arg-
entínu og ýmsir spá því
að hann verði marka-
kóngur keppninnar. Úr
því fæst skorið síðar í
mánuðinum.
4. riðill
Lokastaðan í 4. riðli varö þessi:
Perú — íran 4—1
Holland — Skotland 2—3
Perú 3 2 1 0 7—2 5
Holland 3 111 5—3 3
Skotland 3 111 5—6 3
íran 3 0 1 2 2—8 1