Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
31
Sigríður Guðmunds-
dóttir - Afmæliskveðja
Áttræð er í dag sæmdarkonan
frú Sigríður Elísabet Guð-
mundsdóttir. Hún fæddist 13. júní
1898 á Naustu/n við Skutulsfjörð,
dóttir hjónanna Elísabetar Sturlu-
dóttur og Guðmundar Jónssonar
er þar bjuggu. Guðmundur og
Elísabet áttu sex börn, fjóra
drengi og tvær stúlkur. Einn
drengjanna, Samúel, misstu þau er
hann var 24 ára. Hin komust til
fullorðinsára og er af þeim komið
valið fólk.
Er Sigríður hafði náð tveggja
ára aldri fluttist hún með foreldr-
um sínum og systkinum, er þá
voru fædd, að Fossum í Engidal.
Bjuggu þau svo þar næstu fimm
árin. Þá er flutzt búferlum til
Hnífsdals. Þar dvöldu foreldrar
hennar til æviloka í hárri elli. Af
systkinum sínum er Sigríður nú
ein eftir á lífi og hefir búið í
Hnífsdal í samfleytt 73 ár.
Hinn 23. desember 1923 giftist
Sigríður Ingimar Finnbjörnssyni
fyrrverandi formanni og útgerðar-
manni. Síðan hefir heimilið verið
hennar vettvangur og bar hún
gæfu til að búa bónda sínum
hlýlegt og gott heimili og gerir
enn. Þeim varð sex barna auðið, 3
drengir og 3 stúlkna. Elsta dreng-
inn, Guðmund, misstu þau á öðru
aldursári. Hin eru Halldóra Inga,
Guðmundur Sturla, Hrefna, Björn
Elías og Margrét. Sigríður annað-
ist börnin af mikilli prýði, enda
eru börn þeirra hjóna dugmikið og
— Maraþon
tónleikar
Framhald af bls. 29.
frumsmíð eftir Loft S. Loftsson,
ágætt lag viö Ijóðið Vakri
Skjóni, eftir Jón Þorláksson frá
Bægisá. Annað efni var gamalt
og margsungið nema helst
Motetta eftir Ludovico Grossi
da Víadana (1564—1627).
Viadana og Juilo Caccini eru
taldir upphafsmenn sólómót-
ettunnar og hafði tónlist eftir
Viadana mjög mikil áhrif á gerð
kirkjutónlístar á 17. öld. Karla-
kórinn Þrestir flutti verkið en
var illa í stakk búinn til pess.
Þarna kemur fram eitt sér-
kennilegt vandamál karlakóra,
að aðsókn í Þá er bundin viö
tiltekna tónlist en vonandi
tekst stjórnanda kórsins, Páli
Gröndal, að fá til liðs við sig
menn, sem vilja vitja góðrar
tónlistar. Fóstbræður sungu
mjög vel sín lög, Þó gömul séu.
Fóstbræður hafa reynt eins og
Karlakór Reykjavíkur að flytja
og fá gerð ný tónverk en betur
má ef duga skal til endurreisn-
ar og stórrar Þátttöku í fram-
vindu tónmenntar á íslandi.
Jón Ásgeirsson.
V þáttur
Þjóðdansar
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
stóð fyrir lokaatriðinu á Mara-
Þontónleikunum og var efnis-
skráin priskipt. Fyrst voru
dansar frá 19. öld, Þá dansar
sem almennt ganga undir nafn-
inu „gömlu dansarnir“, og
síðast ísl. söngdansar og Þjóð-
lög. Það er ekki viöeigandi aö
undirritaöur leggi dóm á sýn-
inguna. í Þess stað er freistandi
að fjaila lítillega um starf
Þjóðdansafélagsins og starf.
Sigríðar Valgeirsdóttur. Til
skamms tíma hefur vantrúnað-
ur og vanÞekking á danssögu
íslendinga verið nærð á Þröng-
sýni „fræðimanna", sem sam-
kvæmt stirðbusalegu atferli
sínu telja Það sannað, að Það
sé andstætt eöli islendinga aö
dansa. Sigríður Valgeirsdóttir
hefur gengið Þvert í veg fyrir
Þessa kennimenn stirðleikans
og kennt Þjóödansa, lesiö
heimíldir og safnað dönsum hjá
eldra fólki og telur sig hafa
nokkuð glögga mynd af dans-
sögu ísiendinga. Þaö er ekki
nóg meö aö Sigríöur hafi Þurft
að tala til dansfólkið, sem
margt vildi aðeins dansa
erlenda dansa, til aö feta erfiðíi
og óljósa leið til endurvakning-
ar á íslenzkum dönsum, heldur
og sáu fáir áheyrendur nokkurt
vit í Þessu. Nú er svo komið aö
Þjóðlög eru komín í tísku og ísl.
danshöfundar á sviði Þjóðleik-
hússins sækja í smiöju Sigríö-
ar. Það má vera Ijóst aö sé
eitthvað til sem kalla má
íslenzkan alþýdudans er spor-
gerö hans og form, stílgerd og
sköpun Sigríöar Valgeirsdóttur,
hvort sem mönnum líkar betur
eða verr. Hún hefur skapað
dansinum Það form, sem hann
hefur í dag og Þegar menn
Þykjast ætla að vera Þjóðlegir
á Því sviði, eru Þeir að stæla
verk hennar eins og á sér
reyndar alltaf staö um nýskap-
andi listamenn. Þessu er vert
að halda á loft og muna, ef von
er til pess að sporgöngumönn-
um hennar auðnist að hlúa að
Þessum veika gróðri. Að Þess-
ari sýningu stóöu auk Þjóð-
dansafélagsins söngflokkurinn
Hljómeyki, sem auk Þess að
syngja fyrir dansi, flutti nokkur
íslenzk Þjóðlög mjög fallega.
Fyrir gömlu dönsunum léku
Eggert Þorleifsson á klarinett,
Harold Wright á fíðlu, Jósef
Magnússon á flautu, Þorvaldur
Björnsson á dragspil og Agnes
Löve, píanóleikari, sem einnig
lék undir hjá Hljómeyki.
Jón Ásgeirsson.
— Sonur Sáms
Framhald af bls. 1
þrír — einn úr hverju hverfi
þar sem hann framdi morðin —
lásu fangelsisdómana sem
nema alls 275 árum.
í réttarhöldunum í dag gerð-
ist það að Daniel Carrique,
vinur fjölskyldu Stacy Mosko-
witz, síðasta fórnarlambs
Berkowitz, reis á fætur og
hrópaði til sakborningsins: „Þú
munt brenna í víti Berkowitz.
„Hann hótaði jafnframt að ná
sér niðri á Berkowitz ef hann
lcsnaði úr fangelsi.
Carrique var fljótlega yfir-
bugaður og fjarlægður úr
dómssalnum.
Dómarinn Willion Kapelman
spurði hvort „illir andar“ sem
Berkowitz segir ásækja sig
hefðu haft einhver áhrif á þá
ákvörðun hans að játa sig
sekan í réttarhöldunum. Hann
svaraði: „Þeir höfðu nokkur
áhrif. Þetta var það sem þeir
vildu. En ákvörðunin var mín
þótt hún væri ekki eingöngu
mín
Kapelman dómari sagði að
Berkowitz hefði tjáð fangaverði
að hann vildi verða í fangelsi
það sem eftir væri ævinnar af
ótta við að andarnir næðu
yfirhöndinni þegar hann yrði
látmn laus.
Ástkær sonur okkar og bróölr
OLAFUR PÁLL HJALTASON,
Heiöargeröi 10,
sem lézt í Hammersmith-hospital, London, 8. júní sl„ veröur jarðsunginn trá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. júní kl. 1,30. Þeir, sem vitdu minnast hans,
vinsamlegast láti líknarstofnanir njóta þess.
Halldóra Sveinbjörnadóttir,
Hjalti Ólatur Jónaaon
systkini hins látna og aórir vandamenn.
ágætis fólk. Áður en Sigríður
giftist Ingimar eignaðist hún eina
dóttur, Huldu, með Valdimar B.
Valdimarssyni, ættfræðingi. Hún
ólst upp hjá föður sínum og
foreldrum hans. Samband hefir
ætíð verið náið milli Huldu, móður
hennar, stjúpa og systkina.
Kæra Sigríður, með þessum fáu
línum vil ég færa þér mínar beztu
þakkir fyrir þá órofa tryggð, er þú
sýndir okkur hjónum og börnum
okkar alla tíð. Sérstaklega vil ég
þakka hina traustu vináttu þína
við konu mína í veikindum hennar
og þar til yfir lauk.
Ég óska þér allra heilla og
blessunar við þessi tímamót, ævi
þinnar og góðra elliára. Fjölskyldu
þinni óska ég alls velfarnaðar.
Helgi Björnsson
Bakkavegi 3, Ilnífsdal.
— 3 flýja
Framhald af bls. 1
maðurinn hefði villzt yfir landa-
mærin áður en hann lenti
skammt frá Kassel en sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
benda allar líkur til þess að um
flótta hafi verið að ræða.
Mennirnir voru færðir til yfir-
heyrslu.
Austur-þýzkur landaniæra-
vörður flúði yfir Berlínarmúr-
inn í gær og gaf sig fram við
yfirvöld. Félagar hans tóku ekki
eftir flóttanum.
— Átuskilyrði
Framhald af bls. 18
Langanesi. Ut af vestanverðu
Norðurlandi var einkum ung og
vaxandi rauðáta en í Austur-ís-
landsstraumnum var pólsævarát-
an ríkjandi að venju.
Fæðuskilyrði átunnar eru með
bezta móti vegna þess hve þör-
ungagróður er nú mikill og má því
búast við að átan aukist og dafni
næstu vikur.
Við lok mánaðarins fundust
verulegar kolmunnalóðningar á
Dohrnbanka milli íslands og
Grænlands eins og þegar hefur
verið skýrt frá í fjölmiðlum.
Austur og suðaustur af landinu
fannst kolmunni einkum á tveimur
svæðum. Eystra svæðið er á 64° n.
br. milli 4 og 5° v.l. en hið vestara
var miklu stærra og náði frá 61°
að 64° n. br. Sunnan til á þessu
svæði var kolmunni við vesturbrún
færeyska landgrunnsins og lá
kolmunnabeltið þaðan í norðvest-
ur og var einkum á milli 10—11°
v.l. norður undir 64° n. br. Norðan
þessarar breiddargráðu fannst
óverulegt magn nema helzt við
djúpkantinn út af Austfjörðum.
Ekki er talið að kolmunni hafi
myndað nægilega þéttar torfur til
að unnt sé að stunda bræðsluveið-
ar á rannsóknatímanum.
Þá segir að ljóst sé að kolmunn-
inn gangi norður á bóginn í
tveimur aðskildum göngum. Stefn-
ir önnur NNA í haf en hin NNV
í átt að Austfjörðum.
STRÍÐSSÖNGUR
MISTAKANNA.
Hér é Fróni finnast enn
frjálslyndir og vinstrimenn
sem hegóa sér í veislum vel
og verður ekki um blöörusei.
Syngja hátt
í sunnanátt
sorgarljóöin gleöifljóö:
„Báglega tókst meó Alping enn;“
eru par haröir zetumenn.
Aldnar kempur eigra um sal
Þótt enginn sé Þar Hannibal.
Einnig Karvel er fyrir bí.
Eflum Magnús Torfa Þvít
Nú er úr
doðadúr,
drengir, starf aó hrífa skarf.
Ef enginn kemst af oss á Þing
Það er hin mesta svíviróingl
Ný kynslóð
til
aukinna átaka!
Volvo býður nú nýja gerð vöru-
bíla, F-línuna; F6, F10 og F12 F-
línan er bylting í hönnun og frá-
gangi, hvað varðar allt öryggi og
þægindi fyrir bílstjórann, hvort
sem er í akstri eða annarri með-
höndlun á bílunum.
Leitaðu frekari upplýsinga um
F-línuna í Volvosalnum hjá Þor-
leifi Jónssyni. Hann talar varla
um annað en vörubíla.
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200